|
11.
Veikindi
18. febrúar
2012 - 15:19
17. febrúar kl
11.11 F2
Neyðarlínan boðaði vegna skyndilegra veikinda í heimahús á
Kjalarnesi. Tveir menn fóru í útkallið á Kjöl 2 og hlúðu að,
uns læknir og sjúkrabíll komu.
~:~
10.
Vélsleðaslys við Móskarðahnjúka
6. febrúar
2012 - 21:50
5. febrúar kl
13.49 F2 gurlur
Sleðahópar voru kallaðir út þegar vélsleðamaður slasaðist
norðan við Móskarðahnjúka. Tveir Kjalarmenn fóru í
vettvangshjálp á Kjöl 10 og Kjöl 1. Var annar þeirra fluttur
á vélsleða á slysstað því leiðin var ófær öðrum en
beltatækjum. Þyrla LHG flutti manninn á slysadeild og
björgunarsveitir ferjuðu sleðann hans til byggða.
~:~
9.
Öndunarerfiðleikar
30. janúar
2012 - 21:50
30. janúar kl
16.04 F1
Neyðarlínan boðaði sveitina vegna öndunarerfiðleika í
heimahúsi á Kjalarnesi. Þrír menn fóru í útkallið á Kjöl 2.
~:~
8.
Óveður á Hellisheiði
30. janúar
2012 - 21:40
27. janúar kl
10.59 F3 grænn Sveitir
á höfuðborgarsvæðinu og Ölfusi voru kallaðar út í
óveðursaðstoð á Hellisheiði, þar sem fjöldi bíla sat fastur.
Slæmt veður var á svæðinu með skafrenningi og ofankomu svo
ruðningstæki höfðu ekki undan og var
Suðurlandsvegi/Þrengslavegi lokað. Fólk var flutt í
skjól í Hveragerði eða Litlu Kaffistofunni. Kjölur 1 fór á
staðinn með tveimur mönnum.
~:~
7.
Óveður á höfuðborgarsvæðinu
26. janúar
2012 - 22:40
26. janúar kl
7.13 F3 grænn Talsverð
ófærð vegna skafrennings og ofankomu á höfuðborgarsvæðinu
öllu. Loka þurfti Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut og
sveitir af höfuðborgarsvæðinu fóru til aðstoðar á
Suðurnesjum. Kjölur var kallaður út undir morgun, en aðrar
sveitir sinntu verkefnum um nóttina. Kjölur 1 og fjórir menn
voru í verkefnum í Breiðholti og Grafarvogi uns tókst að
ryðja helstu götur.
~:~
6.
Leit í Reykjavík
26. janúar
2012 - 22:30
26. janúar kl
04.43 F2 gulur Leit
að manni í miðbæ Reykjavíkur sem fannst fljótlega eftir
boðun. Þrír menn voru komnir í hús þegar leit var
afturkölluð.
~:~
5.
Bílvelta á Vesturlandsvegi
26. janúar
2012 - 22:25
23. janúar kl
20.31 F1 Kallað
út vegna bíls sem fauk af veginum og valt við Móa á
Kjalarnesi. Slæmar aðstæður voru á slysstað, hálka og
skafrenningur. Ökumaður og farþegi voru fluttir með
sjúkrabíl á slysadeild. Tveir kjalarmenn ásamt
slökkviliðsmanni fóru í útkallið á Kjöl 1.
~:~
4.
Festa við Arnarholt
15. janúar
2012 - 14:20
10. janúar kl
19.41 F3 grænn Einn
bíll var losaður úr festu í snjó við Arnarholt. Vegna slæms
veðurs og veðurspár voru nokkrar sveitir á
höfuðborgarsvæðinu í viðbragðsstöðu og í verkefnum meðan
veðrir gekk yfir. Kjölur 1 og fjórir menn voru á vaktinni.
~:~
3.
Maður slasaður á fæti
7. janúar
2012 - 10:20
6. janúar kl
19.41 F2 Neyðarlínan
boðaði vegna manns sem hafði runnið til í hálku á götu í
Grundarhverfi og slasast á fæti. Þrír menn fóru á Kjöl 1 og
hlúðu að og báru viðkomandi í skjól á börum. Sjúkrabíll
flutti manninn á slysadeild.
~:~
2.
Stórhríð í nágrenni Reykjavíkur
7. janúar
2012 - 10:17
6. janúar kl
01.14 F3 grænn
Mjög slæmt ferðaveður á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og
efri byggðum. Loka þurfti tímaabundið Vesturlands- og
Suðurlandsvegi. Fjórar sveitir voru kallaðar út til aðstoðar
ökumönnum. Á Kjalarnesi fóru hviður í 40 m/sek (Skrauthólar)
með mikilli hálku og blindu. Ökumenn óku út af veginum eða
voru stopp vegna kófs og snjóa. Losa þurfti bíla og draga
upp á veg, auk þess að ferja fólk til byggða. Kjölur 1 og
þrír menn sinntu verkefnum á Kjalarnesi, Mosfellsbæ og í
Kjós þangað til veðrinu slotaði undir morgun.
~:~
1.
Bílar fastir í Kjósarskarði
1. janúar
2012 - 16:20
1. janúar kl
13.12 F3 grænn
Farið í Kjósarskarð og aðstoðað við að losa og snúa við
útlendingum á bílaleigubílum, sem sátu fastir austan við
Þórufoss. Alls fimm bílar á staðnum, en þæfingsfærð var og
skarðið illfært. Þrír menn og Kjölur 1.
~:~
2012
- - - -
Árið 2011; 71 útkall alls, þar af 33 vegna SHS
71.
Aðstoð við Vesturlandsveg
1. janúar
2012 - 16:18
30. desember kl
14. Skyndileg veðrabreyting með hvassviðri, skafrenningi og
seinna rigningu gekk yfir sv-hornið. Nokkrir ökumenn sem
höfðu fokið út af þjóðveginum eða fest bíla sína á
afleggjurum við Grundarhverfi voru aðstoðaðir. Nokkrar aðrar
sveitir voru einnig kallaðar út í verkefnum í næsta nágrenni
við höfuðborgina. Þrír Kjalarmenn og Kjölur 1 skiptu milli
sín verkefnunum meðfram flugeldasölunni.
~:~
70.
Fannfergi á höfuðborgarsvæðinu
1. janúar
2012 - 16:14
29. desember kl
02.00 F2 gulur
Strax í kjölfarið á leitinni við Vífilstaðavatn (sjá hér að
neðan) fóru sveitir í það að aðstoða ökumenn sem sátu fastir
víða á höfuðborgarsvæðinu. Slæmt ferðaveður með skafrenningi
og snjókomu varði fram á morgun og var í nógu að snúast.
Losaðir voru bílar í Grafarvogi og á Kjalarnesi og eftir það
bakvakt í Þórnýjarbúð til morguns. Kjölur 1 og þrír menn.
~:~
69.
Leit við Vífilsstaðavatn
1. janúar
2012 - 16:10
29. desember kl
00.52 F2 gulur
Kallað út á öllu höfuðborgarsvæðinu vegna ungs manns sem var
villtur í afar slæmu veðri ofan byggðar, milli Garðabæjar og
Kópavogs. Fannst hann fljótt eftir að fyrstu bílar komu á
svæðið með ljós. Þrír menn fóru til leitar á Kjöl 1.
~:~
68.
Leit í Heiðmörk
19. desember
2011 - 21:33
18. desember kl
17.13 F2 gulur
Leitað að ungum dreng sem varð viðskila við fjölskyldu sína
í Jólaskóginum í Heiðmörk. Kom hann fram heill á húfi skömmu
eftir að leit hófst. Alls mættu 7 manns frá sveitinni á Kjöl
1 og Kjöl 10.
~:~
67.
Árekstur á Vesturlandsvegi
11. desember
2011 - 21:16
10. desember kl
20.04
F1 Árekstur
tveggja fólksbíla á Vesturlandsvegi við Blikdalsá. Slæmt
veður var á slysstað og blint í hryðjum. Aðstoðað var við
umferðarstjórnun á vettvangi og hlúð að fólki. Bílarnir
tveir voru dregnir burtu til þess að greiða fyrir umferð.
Alls mættu 7 manns frá sveitinni á Kjöl 1. Dælubíll
slökkviliðs Kjalarness kom einnig á vettvang.
~:~
66.
Strætó útaf á Vesturlandsvegi
11. desember
2011 - 21:14
10. desember kl
16.47
F3 grænn.
Boðað vegna flutninga á farþegum leiðar 57, sem fór út af
veginum við viktarplanið. Kjölur 1 fór á staðinn með tveimur
mönnum. Mjög hvasst var norðan við Grundarhverfi, hálka og
skafrenningur en ekki urðu slys á fólki. Farþegarnir voru
fluttir í Mosfellsbæ þar sem annar vagn og ættingjar tóku
við þeim.
~:~
65.
Bílvelta á Vesturlandsvegi
27. nóvember
2011 - 21:32
26. nóvember kl
23.46
F1 Kallað út
vegna bíls með tveimur mönnum í, sem fór út af veginum
sunnan við Grundarhverfi. Fimm menn fóru á staðinn á Kjöl 2
og einkabílum. Lögregla og sjúkraflutningamenn voru
aðstoðaðir við að koma fólkinu út úr bílnum.
~:~
64.
Bruni í Kjós
27. nóvember
2011 - 21:30
22. nóvember kl
18.20
F2 Farið
ásamt slökkviliði Kjalarness í eldsvoða í einbýlishús í
Kjósinni, menn og búnaður til hreinsistarfa fluttur á
björgunarsveitarbílunum tveimur. Hugað var að tveimur mönnum
vegna gruns um reykeitrun og aðstoðað við störf á vettvangi.
Tveir björgunarsveitarmenn mættu auk fimm slökkviliðsmanna
af Kjalarnesi. Slökkvlilið Akraness kom einnig á staðinn.
~:~
63.
Leit á Fimmvörðuhálsi og Sólheimajökli
19. nóvember
2011 - 15:12
10. -12. nóvember
F2 gulur. Umfangsmikil leit að sænskum ferðamanni á
Fimmvörðuhálsi og Sólheimajökli. Sveitir á svæði 1 voru
fyrst boðaðar kl 00.40 aðfaranótt fimmtudagsins. Í fyrstu
var leitað á Skógarheiði og Fimmvörðuhálsi en þegar bíll
hins týnda fannst við Sólheimajökul, var leitin færð þangað.
Maðurinn fannst látinn, ofarlega á jöklinum um hádegi á
laugardeginum. Kjölur fór í tvígang austur til leitar með
tvo menn og fjórhjól.
~:~
62.
Hugsanlegt andlát
31. október
2011 - 21:10
27. október kl 7:10. F1
Boðað vegna gruns um andlát í heimahúsi. Fjórir
fóru á staðinn, með Kjöl 2. Grunurinn reyndist ekki á rökum
reistur.
~:~
61.
Barn slasast í heimahúsi
23. október
2011 - 10:30
18. október kl 19:10. F2
Neyðarlínan boðaði vegna ungs barns sem hafði
dottið illa á steingólf í heimahúsi í
Grundarhverfi. Tveir menn fóru á staðinn á báðum
björgunarsveitarbílunum og sinntu barninu uns sjúkrabíll
kom.
~:~
60.
Meðvitundarleysi
1. október
2011 - 12:17
1. október kl 11:11. F1
Boðað vegna meðvitundarleysi utandyra í
Grundarhverfi. Tveir fóru á staðinn, hlúðu að og gáfu
súrefni uns sjúkrabíll og læknir komu.
~:~
59.
Veikindi á Mosfellsheiði
1. október
2011 - 12:17
26. september kl 14:56. F2
gulur
Óskað eftir aðstoð við Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins
vegna manns sem veiktist utan alfaraleiðar á Mosfellsheiði.
Þrír Kjalarmenn fóru af stað með Kjöl 1 og 10 upp í
Mosfellsdal. Þyrlan sótti manninn skömmu síðar.
~:~
58.
Aðstoð í heimahús
25. september
2011 - 16:57
22. september kl 15:22. F3
Neyðarlínan hringdi beint og bað um aðstoð vegna eldri
konu sem hafði fallið í heimahúsi. Þrír fóru á vettvang og
athuguðu með meiðsl og stuðning.
~:~
57.
Meðvitundarskerðing
25. september
2011 - 16:47
22. september kl 13:48. F2
Einstaklingur með skerta meðvitund í heimahúsi. Þrír
fóru á staðinn.
~:~
56.
Endurlífgun
15. september
2011 - 22:17
13. september kl 16:10. F1 Boðað
vegna endurlífgunar í Grundarhverfi. Viðkomandi var með
meðvitund þegar að var komið. Fimm mættu í útkallið á Kjöl
2.
~:~
55.
Eldur í sumarbústað
12. september
2011 - 20:07
10. september kl 17:08. F2
Eldur í sumarbústað við Meðalfellsvatn. Farið til aðstoðar
SHS á Kjöl 2 með dælukerru, þrír menn. Slökkviliðseining
Kjósverja hafði slökkt eldinn þegar að var komið.
~:~
54.
Neyðarblys yfir Kollafirði
8. september 2011 -
20:45
7. september kl 17:05. F2
gulur. Neyðarblys sást á lofti úr Árbæ, í átt að
Akrafjalli. Leitað var frá landi með kíki, bátar sigldu um
svæðið og þyrla LHG sveif yfir. Hvöss norðanátt og úfinn
sjór. Ekkert sást til báts í neyð. Leit var hætt rúmum
klukkutíma síðar. Fimm Kjalarmenn leituðu frá landi í
tveimur bílum.
~:~
53.
Eftirgrennslan í Breiðholti
8. september 2011 -
20:45
3. september kl 03:15. F2
gulur.
Leit að slösuðum manni í Breiðholtinu. Leitarsvæði stækkaði
eftir því sem tímanum leið og náði frá Reykjanesi norður í
Hvalfjörð. Maðurinn fannst heill á húfi klukkan sjö um
morguninn. Fjórir manns frá Kili tóku þátt í leitinni á Ford
Econoline.
~:~
52.
Viðbúnaður í Keflavík
29. ágúst 2011 -
21:45
27. ágúst kl 04:36. F2.
Hættustig - rauður boðað vegna Boeing 767, þar sem reykur
var í stjórnklefa. Fóru björgunarsveitir og aðrir
viðbragðsaðilar á höfuðborgarsvæðinu áleiðis á söfnunarsvæði
við Straumsvík. Fóru fjórir Kjalarmenn suður á Ford
Econoline. Vélin lenti heilu og höldnu um klst eftir boðun.
~:~
51.
Farið á slysadeildina
12. september
2011 - 20:15
23. ágúst kl 15:30. F3 Farið
með barn sem hafði handleggsbrotnað við leik í
Grundarhverfi, til meðferðar á slysadeild. Bílstjóri á Kjöl
2 sá um flutninginn.
~:~
50.
Leit í Kópavogi
21. ágúst 2011 -
14:35
18. ágúst kl 21:32.
F2 gulur. Leit að manni í Kópavogi, sérhæfðir
leitarhópar kallaðir út. Tveir menn lögðu af stað, til
aðstoðar á fjórhjólinu. Maðurinn fannst heill á húfi tæpri
klukkustund eftir að útkall barst.
~:~
49.
Maður klemmdur undir traktor
7. ágúst 2011 -
09:35
6. ágúst kl 21:05.
F1 Kallað út vegna manns sem klemmdist
undir traktor. Komið
var á slysstað nokkuð á undan öðrum viðbragðsaðilum og
traktorinn tryggður í Kjöl 2 og hlúð að manninum. Ekki var
hægt að færa traktorinn fyrr stærri landbúnaðartæki komu á
staðinn. Aðstoðað var við að losa manninn og koma í
sjúkrabíl. Þrír Kjalarmenn fóru í útkallið á Kjöl 2.
~:~
48.
Maður brenndur á fótum
7. ágúst 2011 -
09:25
5. ágúst kl 18:02.
F2 Útkall á vegum SHS vegna manns
sem brenndist þegar heitt vatn helltist á fætur hans í
heimahúsi. Einn maður fór á staðinn á Kjöl 2 og hlúði að uns
sjúkrabíll kom.
~:~
47.
Barn í krampa
7. ágúst 2011 -
09:15
5. ágúst kl 08:58.
F1 Útkall á vegum SHS vegna barns
í krampa í heimahúsi. Tveir menn fóru á staðinn á Kjöl 2 og
hlúðu að uns sjúkrabíll flutti viðkomandi.
~:~
46.
Slys í Esju
7. ágúst 2011 -
09:10
1. ágúst kl 14:11. F2
gulur Kallað út vegna konu sem féll á göngustígnum
við Mógílsá, ofan við þriðja skilti og slasaðist á fæti.
Björgunarsveitarmenn aðstoðuðu sjúkraflutningamenn við að
flytja konuna niður fjallið. Tveir Kjalarmenn fóru á staðinn
á Kjöl 1 og 10.
~:~
45.
Kona fellur af hestbaki
26. júlí 2011 -
16:25
26. júlí kl 14:58.
F1 Útkall á vegum SHS vegna konu
sem slasaðist á baki eftir að hafa fallið af hesti við Eyri
í Kjós. Hlúð var að konunni og gerðar ráðstafanir vegna háls
og hryggáverka. Slagveðurs rigning var á svæðinu og erfitt
um vik að finna slysstað. Sjúkrabíll kom um 10 mínútum
seinna. Alls fóru þrír Kjalarmenn á staðinn á báðum bílunum.
~:~
44.
Hótun um sjálfsskaða
26. júlí 2011 -
16:25
21. júlí kl 16:00.
F2 Kallað út af Neyðarlínu vegna
einstaklings sem hótaði að stökkva fram af þaki
byggingar. Tveir menn fóru á staðinn uns lögreglan kom
og tók við.
~:~
43.
Slys í Esju
25. júlí 2011 -
10:20
21. júlí kl 19:29.
F2 gulur Sveitir á
höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út vegna göngumanns sem
slasaðist á fæti ofarlega á göngustígnum í Esjunni. Var
viðkomandi fluttur á börum í bíl og þaðan niður fjallið til
móts við sjúkrabíl, um tveimur tímum eftir að boðin bárust.
Kjölur 2 ásamt tveimur mönnum fóru í útkallið, en á sama
tíma stóð sveitin einnig hálendisvaktina að Fjallabaki.
~:~
42.
Leit á Fimmvörðuhálsi
14. júlí 2011 -
18:45
13. júlí kl 10:54.
F2 gulur Leit að göngumanni, sem
villtist í þoku á leið yfir Fimmvörðuháls. Þegar
eftirgrennslan um nóttina bar ekki árangur, voru sveitir á
suðvestur landi kallaðar út. Leitað var með göngumönnum,
fjórhjólum, hundum og þyrlu beggja megin Fimmvörðuhálsins.
Kjölur 2 og þrír göngumenn fóru upp í Baldvinsskála til
leitar. Fjórhjólið var auk þess undirbúið til
framhaldsleitar um kvöldið. Maðurinn fannst heill á húfi við
Steinholtsá kl hálf átta um kvöldið.
~:~
41.
Strand á Meðalfellsvatni
8. júlí 2011 -
21:55
8. júlí kl 00:19.
F1 rauður Útkall vegna fólks sem
bjarga varð sér upp á sker í Meðalfellsvatni þegar bátur
þeirra fylltist af vatni. Tveir menn fóru með slöngubát
uppeftir og komu fólkinu, sem var kalt og hrakið, í land.
Fleiri aðilar, björgunarsveitarmenn, lögregla og
sjúkraflutningamenn auk sjónarvotta, komu á staðinn og hlúðu
að. Báturinn var ausinn og dreginn í land. Alls komu fimm
Kjalarmenn á slysstað og að útkallinu.
~:~
40.
Bráðaveikindi í Hvammsvík
8. júlí 2011 -
21:49
6. júlí kl 21:57.
F1 Neyðarlínan boðaði vegna manns sem
veiktist skyndilega í Hvammsvík. Sveitin var með vinnukvöld
og fór strax með fjóra menn úr húsi. Sjúkrabílar úr bænum
komu á staðinn um svipað leyti. Maðurinn var fluttur með
sjúkrabíl í bæinn.
~:~
39.
Slys á Meðalfellsvatni
3. júlí 2011 -
14:25
2. júlí kl 16:28.
F2 Boðað til aðstoðar SHS vegna
báts með tveimur fullorðnum og þremur börnum sem hvolfdi á
Meðalfellsvatni. Menn voru enn í bátagöllum við frágang
eftir Lundeyjarútkallið þegar boðin bárust, en fólkið var þá
komið í land. Farið var á Kjöl 1 með fyrstuhjálparbúnað og
teppi á staðinn. Tvö yngstu börnin voru orðin nokkuð köld en
verið að hlú að þeim í húsi. Sjúkrabíll og lögregla komu
skömmu síðar.
~:~
38.
Bátur strandar við Lundey
3. júlí 2011 -
14:20
2. júlí kl 11:24.
F1 rauður Bátar og skip á
höfuðborgarsvæðinu voru kölluð út vegna Christinu,
lundaskoðunarbáts, sem standaði við Lundey. Átta manns voru
um borð og fór fólkið strax í björgunarbát Christinu. Þaðan
var farþegum bjargað í land og áhöfn um borð í Ásgrími
Jónssyni. Björgunarskipin Ásgrímur og Einar dróu Christinu á
flot, þegar flæddi að. Slöngubátur frá Kili með þremur
mönnum aðstoðaði við björgunina.
~:~
37.
Bílvelta við Saltvík
2. júlí 2011 -
10:35
1. júlí kl 11:58.
F1 Boðað vegna veltu húsbíls á
Vesturlandsvegi við Saltvíkurafleggjara. Ökumaðurinn var
einn í bílnum, kominn út þegar að var komið og kenndi sér
einskis meins. Tveir Kjalarmenn fóru í útkallið á Kjöl 2 og
hlúðu að uns sjúkrabíll mætti.
~:~
36.
Leit í Bústaðahverfinu
2. júlí 2011 -
10:25
26. júní kl 21:18.
F2 gulur
Björgunarsveitir af höfuðborgarsvæðinu voru boðaðir í
sérhæfða leit vegna manns sem hvarf af Borgarspítalanum.
Einn Kjalarmaður mætti í leitina á fjórhjóli. Maðurinn
fannst skömmu síðar við Bústaðakirkju.
~:~
35.
Öndunarerfiðleikar
2. júlí 2011 -
10:20
24. júní kl 17:43.
F2 Neyðarlínan boðaði vegna
öndunarerfiðleika á meðferðarheimilinu Vík. Fjórir menn fóru
á Kjöl 2 með súrefni og aðstoðuðu uns sjúkrabíll kom á
staðinn. Tveir björgunarsveitarmannanna voru staddir við
Olís á Kjalarnesi við kynningu á Hálendisvaktinni og Safe
travel verkefninu þegar boðin bárust og voru því snöggir á
staðinn.
~:~
34.
Sjálfhelda í Esjunni
21. júní 2011 -
18:15
21. júní kl 15:59.
F2 gulur
Björgunarsveitarmenn af höfuðborgarsvæðinu voru boðaðir
vegna tveggja manna sem voru í sjálfheldu í klettabelti
austan við Þverfellshorn í Esjunni. Þyrla Landhelgisgæslunnar var í loftinu og hífði mennina upp um
klst eftir að útkall barst. Kjölur fór með fjóra menn á
Patrol og fjórhjól, sem fyrsta sveit á vettvang við
Gunnlaugsskarð.
~:~
33.
Leit í Hekluhrauni
21. júní 2011 -
18:15
18. júní kl 20:51.
F2 gulur
Heildarútkall á höfuðborgarsvæðinu til aðstoðar við leit að
manni sem saknað var á leiðinni frá Selssundi að Hellu. Leit
hafði þá staðið yfir í einhvern tíma með m.a. þyrlu,
fjórhjólum og hundum. Þyrlan fann manninn stuttu eftir
boðun. Er talið að hann hafi orðið bráðkvaddur. Fjórir
leitarmenn voru klárir til brottfarar á Kjöl 1 þegar afboðun
barst.
~:~
32.
Slys í Svínaskarði
17. júní 2011 -
10:15
15. júní kl 20:08.
F2 gulur
Björgunarsveitarmenn af höfuðborgarsvæðinu fóru til aðstoðar
konu sem slasaðist í reiðtúr um Svínaskarð. Var konan með
áverka á hendi og fæti eftir að hestur hennar féll á hana.
Var hún flutt á börum í bíl og áfram á slysadeild. Einnig
var aðstoðað við að ríða hesti hins slasaða niður í Kjós.
Kjölur 1 með fimm mönnum, var fyrstur á vettvang en bilaði
skammt frá slysstað og nýttist ekki til flutninga. Einn
Kjalarmaður fór þó með hinum slasaða í bæinn. Bílaviðgerð
fór fram á staðnum þegar Kjölur 2 bættist í hópinn. Alls
komu sjö menn frá sveitinni að aðgerðinni.
~:~
31.
Vélarvana bátur við Kjalarnes
17. júní 2011 -
10:05
13. júní kl 13:32.
F2 gulur
Boðað vegna lítils báts sem var
vélarvana rétt suður af Kjalarnesi. Gat skipstjórinn ekki
komið vélinni í gang, því hann hafði óvart misst lyklana
fyrir borð og rak bátinn því að klettunum við Nesvík. Vel
gekk að taka bátinn í tog til hafnar, en Halla Jónsdóttir
frá Ársæli kom seinna og tók við. Alls komu fimm menn að
útkallinu, þar af þrír á slöngubát.
~:~
30.
Kaldavatnsleki
12. júní 2011 -
19:05
30. maí kl 17:09.
F3
Tveir menn fóru til aðstoðar SHS í
kaldavatnsleka í Grundarhverfi. Mikið vatn flæddi um gólf í
parhúsi vegna bilunar í inntaki hússins. Starfsmenn
Orkuveitunnar komu og lokuðu fyrir vatnið í götunni svo hægt
væri að gera við og hefja hreinsunarstörf. Kjölur 1 flutti
búnað á staðinn.
~:~
29.
Snúinn ökkli í Esju
13. maí 2011 -
22:20
12. maí kl 20:24.
F2 gulur
Tveir Kjalarmenn fóru með fyrstuhjálparbúnað og teppi
áleiðis að konu sem snéri sig illa á ökkla neðarlega á
göngustígnum að Þverfellshorni. Fleiri sveitir og SHS komu
einnig á bílastæðið við Mógilsá. Þyrlan var í grenndinni og
sótti konuna.
~:~
28.
Leit við Laufaskörð
13. maí 2011 -
22:10
9. maí kl 18:12.
F2 gulur
Kallað út vegna manns sem villtist á leiðinni frá
Skálafelli að Esju og hafði örmagnast. Göngumenn af
höfuðborgarsvæðinu og Akranesi voru byrjaðir að leita á
svæðinu frá Skálafelli að Laufaskörðum, þegar þyrlan fann
manninn á toppi Esju. Hann hafði ofkælst alvarlega og var
fluttur með þyrlunni á slysadeild. Kjölur 2 með tveimur
mönnum fór til leitar norðan við Esjuna og Kjölur 10 á
Skálafell.
~:~
27.
Leit að ökumanni
1. maí 2011 -
09:50
30. apríl kl 01:52.
F2 gulur
Einn bílstjóri á Kjöl 2 var boðaður beint af
svæðisstjórn til þess að vera á útkíkki eftir ákveðnum bíl,
við gatnamót Hvalfjarðarvegar/Vesturlandsvegar. Sveitir voru
ekki farnar að leita, en svæðisstjórn og lögregla sáu um
rannsóknarvinnu. Maðurinn var staðsettur skömmu síðar.
~:~
26.
Leit við Þríhnjúkagíg
24. apríl 2011 -
17:05
21. apríl kl 00:30.
F2 gulur
Leit við Þríhnjúkagíg í Bláfjöllum vegna þriggja manna sem
ekki höfðu skilað sér heim eftir fyrirhugaða ferð að skoða
hellinn. Leitarmenn og undanfarar á svæði 1 voru boðaðir.
Kjölur 1 og 10 með þremur leitarmönnum, voru á leiðinni í
Bláfjöll þegar mennirnir fundust heilir á húfi við gíginn.
~:~
25.
Sunnanhvellur á Höfuðborgarsvæðinu
16. apríl 2011 -
09:05
10. apríl kl 17:09.
F2 gulur Allar
sveitir á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðir út þegar
skyndilegt hvassviðri með mikilli rigningu brast á um miðjan
dag. Óvenju mörgum verkefnum þurfti að sinna á svæðinu öllu,
nema á Kjalarnesi og voru margir hópar að störfum fram til
miðnættis. Nokkuð var um að stór og gömul tré féllu í
áhlaupinu, auk hefðbundinna fokverkefna. Fjórir menn á Kjöl
1 fóru í verkefni í Mosfellsdal og Reykjavík.
~:~
24.
Viðbúnaður á Reykjavíkurflugvelli
16. apríl 2011 -
09:05
4. apríl kl 22:15.
F2 gulur Viðbúnaðaráætlun
vegna Reykjavíkurflugvallar var virkjuð vegna óvissu um
lendingu lítillar flugvélar. Boða átti bátahópa en aðeins
hluti sveitarinnar fékk útkallið, og þá í gegnum símboða.
Boð til annara sveita misfórust líka að einhverju leyti.
Menn voru rétt lagðir af stað í hús þegar vélin lenti heilu
og höldnu.
~:~
23.
Leit á Þingvallavatni
3. apríl 2011 -
16:50
2. apríl kl 22:48.
F2 gulur Slöngubátar
á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðir út til stuðnings svæði 3,
vegna villu tveggja manna á bát á Þingvallavatni. Fjórir
menn mættu í bækistöð og gerðu bát og bíl kláran. Voru allar
sveitir á höfuðborgarsvæðinu settar í biðstöðu í húsi um
tíma, þangað til afturköllun barst.
~:~
22.
Hótun um sjálfsvíg
3. apríl 2011 -
16:50
31. mars kl
23:37.
F1 Boðað af
Neyðarlínu vegna alvarlegrar hótunar um sjálfsvíg. Fóru sex menn á staðinn
með Kjöl 1 og hlúðu að uns lögregla og sjúkrabíll komu á
staðinn.
~:~
21.
"Sinubruni" við Brautarholt
27. mar 2011 -
18:10
28. mars kl
14:22.
F3 Útkall
á vegum SHS vegna tilkynningar um sinuelda við Brautarholt.
Fóru alls fjórir menn, þrír björgunarsveitarmenn og einn
slökkvliliðsmaður á staðinn á dælubíl og Kjöl 1. Í ljós kom
að verið var að brenna rusl og var eldur slökktur.
~:~
20.
Slys í hjá Stjörnugrís
27. mar 2011 -
18:00
28. mars kl
14:09.
F1 Útkall
á vegum SHS vegna manns sem skarst á hnífi í nára í
kjötvinnslu Stjörnugríss. Tveir menn fóru á staðinn og hlúðu
að hinum slasaða uns sjúkrabíll kom.
~:~
19.
Bátur að sökkva við Akurey
27. mar 2011 -
18:00
26. mars kl
17:15.
F1 rauður.
Björgunarskip, bátar og kafarar á höfuðborgarsvæðinu, voru
kallaðir út vegna lítillar trillu með tveimur mönnum um
borð, sem sökk norður af Akurey. Slöngubáturinn var
sjósettur í víkinni en um svipað leyti voru fyrstu
björgunarbátar komnir á slysstað og búnir að ná mönnunum um
borð. Þrír Kjalarmenn komu að útkallinu.
~:~
18.
Leit við Lækjarbotna
26. mar 2011 -
14:20
26. mars kl
12:02.
F2 gulur.
Heildarútkall á svæði 1 vegna barns sem týndist við
Lækjarbotna. Fjórir menn voru að leggja í´ann úr húsi á Kjöl 1
og Kjöl 10, þegar afturköllun barst.
~:~
17.
Umferðaróhapp við vigtarplanið
26. mar 2011 -
14:20
23. mars kl
8:10.
F2
Útkall á vegum SHS vegna fólksbíls sem lenti á staur rétt
sunnan Hvalfjarðarganga. Sex manns voru í bílnum. Þrír
Kjalarmenn fóru á Kjöl 1 og 2 á slysstað og hlúðu að uns
frekari aðstoð barst. Tveir voru fluttir á slysadeild.
~:~
16.
Fokskemmdir í Fólkvangi
5. mar 2011 -
17:13
5. mars kl
12:06.
F2 gulur.
Óveðursaðstoð í félagsheimilinu Fólkvangi, þar sem hurð fauk
af hjörunum og brotnaði í hvassviðiri. Fjórir menn á Kjöl 1
fóru á staðinn og negldu plötur fyrir.
~:~
15.
Bílvelta við Eyri
18. feb 2011 -
20:10
17. febrúar kl
9:58.
F1
Útkall á vegum SHS vegna ökumanns sem velti bíl sínum við
Eyri í Kjós í mikilli hálku. Tíu mínútum seinna fór annar
bíll einnig út af veginum á sama stað, en ökumaður þar slapp
án meiðsla. Dælubíllin fór á slysstað með þremur mönnum og
hlúði að hinum slasaða, sem var þá kominn úr bílnum.
Sjúkrabíll flutti viðkomandi á slysadeild.
~:~
14.
Aðstoð í heimahúsi
14. feb 2011 -
21:20
13. febrúar kl
21:44.
F2
Boðað til aðstoðar lögreglu og sjúkrabíl sem voru á leið á
staðinn þar sem maður hótaði sjálfsskaða. Fjórir menn frá Kili komu fyrstir á vettvang og
hlúðu að einstaklingi, uns aðrir viðbragðsaðilar komu að.
~:~
13.
Bílvelta í Kjós
12. feb 2011 -
16:20
12. febrúar kl 10:30.
F2
Neyðarlínan boðaði sveitina vegna bílveltu við Kiðafell í
Kjós. Fimm manns fóru á slysstað á Kjöl 1. Hugað var að
hinum slösuðu, sem voru komnir út úr bílnum, þangað til
sjúkrabill og lögregla komu á staðinn. Tveir voru fluttir á
slysadeild.
~:~
12.
Óveður á höfuðborgarsvæðinu
12. feb 2011 -
16:10
11. febrúar kl
9:14.
F2 gulur.
Djúp lægð olli nokkrum usla og voru björgunarsveitir
kallaðar út víða á landinu. Þrátt fyrir talsverðan vind og
rigningu á utanverðu nesinu var sveitin aðeins kölluð út í
eitt verkefni í Grundarhverfi. Fimm manns voru við störf á
Kjöl 1.
~:~
11.
Óveður við Grundarhverfi
12. feb 2011 -
16:00
8. febrúar kl
18:23.
F2 gulur.
Kallað út vegna staðbundinnar hvassrar SA-áttar í og við
Grundarhverfi. Mælir Veðurstofunnar á Skrauthólum bilaði við
46 m/sek og því óvíst með verðurhæð. Talsvert var um
fokskemmdir á húsum og girðingum og allmörg verkefni sem
þurfti að sinna allt til miðnættis. Einnig fauk langt
plaströr upp á Vesturlandsveg og skapaði hættu fyrir
vegfarendur. Alls komu átta manns að á einum bíl.
~:~
10.
Útafakstur norðan við Grundarhverfi
5. feb 2011 -
9:20
4. febrúar kl
23:40.
F1 Tilkynnt
um bílveltu ofan við Olís. Slæmt veður með skafrenningi og
fljúgandi hálku. Báðir björgunarsveitarbílarnir fóru á
staðinn með þremur mönnum og staðfestu að fólksbíll hefði
endað á hliðinni í skurði og allir væru komnir út. Fólki
komið í skjól og hlúð að þangað til sjúkrabilar og lögregla
komu á staðinn. Fjórir fluttir til skoðunar á slysadeild.
~:~
9.
Árekstur sunnan við Hvalfjarðargöng
5. feb 2011 - 9:10
2. febrúar kl
18:37.
F1 Tveggja
bíla árekstur á Vesturlandsvegi við viktarplanið.
Dælubíllinn og Kjölur 2 fóru á slysstað og sáu um að huga að
ökumönnum og verndun vettvangs. Krapi og snjór var á veginum
og talsverð umferð. Einn slasaður var fluttur með sjúkrabíl
frá Akranesi í bæinn og annar með Kjöl 2 á móts við
sjúkrabíl við Esjumela. Rannsóknarnefnd umferðaslysa
aðstoðuð á vettvangi. Alls voru 5 manns á staðnum.
~:~
8.
Leit á Suðurnesjum
5. feb 2011 -
9:00
2. febrúar kl 9:11.
F2 gulur
Sveitir á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum voru kallaðar út
til leitar vegna manns frá Sandgerði, sem hafði verið saknað
í viku. Farið var suður í Sandgerði á Kjöl 2 með fjórhjól,
þrír menn. Maðurinn fannst í höfninni skömmu fyrir hádegi.
~:~
7.
Leit á Helgafelli
23. jan 2011 -
20:20
23. janúar kl 18:25.
F2 gulur
Kallað út til leitar vegna konu sem týndi áttum við göngu á
Helgafell við Hafnarfjörð. Talsverð þoka og úðarigning var á
svæðinu. Konan fann gestabókina á toppinum og var
eftirleikurinn fyrir leitarmenn auðveldur. Þrír Kjalarmenn
lögðu af stað úr húsi í átt að Kaldárseli.
~:~
6.
Leit við Kleifarvatn
23. jan 2011 -
20:18
22. janúar kl 14:00.
F2 gulur
útkall vegna fjögurra manna sem villtust við göngu í þoku
við Sveifluháls. Heyrðu hinir týndu í sírenur bíla og
fundust eftir skamma leit. Kjölur 1 og 10 fóru á staðinn með
alls 5 manns og hófu leit.
~:~
5.
Hættustig í Keflavík
23. jan 2011 -
20:16
17. janúar kl
12:19. Björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar voru
kallaðir út þegar flugmaður veiktist skyndilega um borð í
franskri vél. Kjölur 1 fór með fimm menn á söfnunarsvæði
bjarga í Straumsvík. Vélin lenti heilu og höldnu skömmu
síðar.
~:~
4.
Vatnsleki að Arnarholti
16. jan 2011 -
14:10
15. janúar kl 17:24.
F3
útkall á vegum SHS vegna heitavatnsleka í einni af álmum
Arnarholts. Slökkvilið Kjalarness aðstoðað með flutning á
mannskap og búnað milli staða og hreinsunarstörf. Econoline
með bílstjóra ásamt dælubíl með áhöfn.
~:~
3.
Meðvitundarleysi
16. jan 2011 -
14:00
12. janúar kl 11:13.
F1 útkall
vegna manns sem missti skyndilega meðvitund við
meðferðarheimili á Kjalarnesi. Einn maður fór á vettvang á
Kjöl 2 og veitti öndunaraðstoð þangað til sjúkrabílar komu á
staðinn.
~:~
2.
Maður skerst á handlegg
9. jan 2011 - 09:40
8. janúar kl 23:39.
F2 útkall á vegum SHS vegna manns sem skarst illa á handlegg
og fæti við fall í heimahúsi í Grundarhverfi. Búið var um
áverkana og beðið þangað til sjúkraflutningamenn og lögregla
tóku við. Fimm menn á Kjöl 2 mættu á staðinn.
~:~
1.
Óveðursaðstoð á höfuðborgarsvæðinu
9. jan 2011 -
09:35
7. janúar kl
11:59. F2 gulur
óveðursaðstoð. Sveitir um allt land voru kallaðar út eða
voru í viðbragðsstöðu vegna slæms veðurs, hvassviðris,
ofankomu og sjávarflóðs. Á höfuðborgarsvæðinu varð nokkurt
tjón vegna foks. Sveitin fór í verkefni í Kollafirði,
Víðinesi og í Reykjavík en var einnig með bakvakt í
Grundarhverfi fram eftir degi, alls fjórir menn.
~:~
2011
- - - -
|