Úr starfinu
4.september 2010 -
20:30
Á
nýafstaðinni Menningarnótt voru sjö manns frá Kili
við gæslustörf i miðborginni á vegum lögreglu og
fram undan er öryggisfylgd kajakræðara í keppni
milli Geldinganess og Hvammsvíkur. Gæsluverkefni
hafa verið nokkur undanfarið og voru m.a. aðrar
björgunarsveitir aðstoðaðar við Hálendisgæslu í
ágústmánuði. Myndir frá Fjallabaki og Sprengisandi
má sjá á myndasíðu.
Vetrarstarf sveitarinnar fer nú að síga af stað með
æfingum, vinnukvöldum og fundum í Þórnýjarbúð.
Nokkur handtök eru eftir í nýuppgerðum Econoline og
einnig verða áherslur á námskeið Björgunarskólans,
sem nú starfar eftir nýju sniði.
~ : ~
Unglingastarfið
22.ágúst 2010 -
16:48
Unglingastarf er nú farið af stað aftur eftir
sumarfrí með dagskrá á þriðjudagskvöldum kl. 19.
Stormur var þó ekki í algjöru fríi, því farið var á
Landshlutamót unglinga í Vestmannaeyjum 9.-11. júlí
og í Útivistarskólann að Gufuskálum 5.-10. ágúst.
Í báðum ferðunum var unglingadeildum stokkað upp og
hrært vel í, svo þau hefðu sem best tækifæri til að
kynnast jafnöldrum frá öðrum svæðum. Allar æfingar,
verkefni, samveran, veðrið .... „geðveikt gaman“.
Í Eyjum komu um 300 unglingar ásamt umsjónarmönnum
saman á flötinni við Stórhöfða og skemmtu sér við
sprang, 60 metra bjargsig, rústabjörgun, sund,
kassaklifur, grill, kvöldvöku og keppnisleika um
helgina. Frá Stormi fóru sjö unglingar ásamt aðeins
„eldri unglingum“ þeim Guðrúnu og Hólmari.

Hópurinn á síðasta námskeiði Útivistarskólans taldi
28 unglinga m.a. frá Reyðarfirði, Neskaupstað,
Selfossi, Akranesi og Kópavogi auk Kjalarness. Góð
aðstaða til æfinga er á Gufuskálum og kennarar voru
allir þaulvanir björgunarsveitamenn frá
Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Fræðsla var í fyrstu
hjálp, rústabjörgun, sigi, rötun og ferðamennsku og
kryddað með æfingum, leikjum og bátsferð frá Rifi
inn á milli. Á Gufuskálaleikjum setti Agnes nýtt met
í Gufuskálakollhnísum með 30 hnísum. Vonandi eiga
Stormsunglingar það um ókomin ár.
>> Fleiri myndir. <<
Unglingar í björgunarsveitunum eiga hrós skilið
fyrir þátttöku sína.
~ : ~
Hálendisgæsla á Hveravöllum við Kjalveg
29.júlí 2010 -
20:15
Hálendisgæsluvakt
sveitarinnar á vegum Landsbjar
gar á Hveravöllum
er afstaðin. Alls voru 8 manns í verkefninu, sem
stóð í viku. Eknir voru 2600 km og gekk allt vel,
verkefni voru færri en í fyrra. Tveir bílar og
fjórhjól sveitarinnar voru á ferðinni og ýmis aðstoð
veitt bæði fótgangandi, hjólandi og akandi
ferðamönnum. Einnig kynntust menn svæðinu vel og
fallegri náttúru. Veður var einmuna gott, sólríkt og
hlýtt.
Hægt er að lesa nánar um vaktina í skýrslu
>>hér<< og myndir eru á
>>myndasíðu<<.
~ : ~
Kjölur 1 tekinn í gegn
11.júlí 2010 -
09:07
Fordinn er
þessa dagana að verða útkallsklár aftur eftir
mikla
yfirhalningu og verður fyrsta verkefni hans að fara
til Hálendisgæslu á Kili um miðjan júlí.
Sveitin fékk bílinn nýjan árið 1992 gegnum
tryggingarnar, eftir að samskonar bíll eyðilagðist
við brunann í Þórnýjarbúð. Á þeim tíma var hann
fyrsti bíllinn af þessari gerð, sem breyttur var hér
á landi og var í kjölfarið mikið notaður til
auglýsinga fyrir Fjallabíla. Á síðustu tveimur árum
hefur verið farið
markvisst í endurbætur og nauðsynlegt viðhald enda
er bíllinn lítt keyrður og hefur alla tíð fengið
góða umönnun. Búið er að setja m.a. loftpúða, nýja
toppgrind með kössum, ryðbæta og heilsprauta og
endurnýja allt rafmagn. Nýjar merkingar verða settar
samkvæmt stöðlum SL og má sjá drög að nýju útliti
hér til hliðar.
Alls fara níu björgunarsveitarmenn til Hálendisgæslu
í ár og verða til taks fyrir ferðamenn á Kili í
viku, sem hluti af Save Travel verkefninu. Ford,
Patrol og fjórhjól verða með í för líkt og í fyrra
og gist verður á Hveravöllum. Verkefni af þessu tagi
eru mjög viðamikil, þar sem taka þarf allan
nauðsynlegan búnað með til viðgerða eigin tækja og
ferðamanna, björgunar ökutækja og fólks, fyrstu
hjálpar og fjarskipta auk eldsneytis, matar og
hefðbundins útilegubúnaðs.
Í ár styrktu Iðnmark, N1 og Iceland Spring
sveitina með vörur fyrir gæsluna.
~ : ~
Stormur í Eyjum
7.júlí 2010 -
21:47
Sex vaskir
unglingar úr Stormi fóru í dag ásamt þeim Hólmari og
Guðrúnu til Eyja á Landshlutamót unglingadeilda sem
stendur yfir þessa helgi. Unglingar úr Stormi og
Kyndli í Mosfellsbæ tóku mótið snemma og voru þeir
fyrstir á svæðið, en tjaldað er við skátaskálann
undir Stórhöfða. Veður er gott með sól og stillu,
(ólíkt því sem verið hefur á Kjalarnesinu síðustu
daga) og verður vonandi áfram. Alls er von á um 250
þátttakendum víðsvegar af landinu.
Laugardagurinn verður þéttskipaður skemmtun og
samveru í formi póstavinnu, grilli, keppni og
kvöldvöku í boði heimamanna.
Snemma sunnudagsmorgun er svo ráðgert að sigla upp á
fastalandið aftur.
~ : ~
Menntunarátak Landsbjargar
5.júlí 2010 -
23:20
Vert er að benda á yfirstandandi menntunarátak
Landsbjargar, sem ætlað er að tryggja grunnmenntun
allra útkallsfélaga björgunarsveitanna. Fyrsta
áfanga þess hefur verið hrundið af stað, sjálfsmati
í grunnfögum Björgunarmanns 1; fyrstu hjálp,
rötun,ferðamennsku, leitartækni, fjallamennsku 1 og
snjóflóðaleit 1. Beinn hlekkur á sjálfsmatið er hér
>>
http://www.landsbjorg.is/category.aspx?catID=560
<<
og eru félagar hvattir til þátttöku og taka stöðu á
þekkingu sinni, hvar megi síðan berja í bresti með
námskeiðum síðar á árinu eða í vetur.
Á vef Landsbjargar stendur til boða frekara
kynningarefni.
~ : ~
Bátamessa
20.júní 2010 -
10:40
Boðað var til bátamessu í gær, á kvennadag
inn 19.
júní í hjá Hjálparsveit Skáta í Kópavogi.
Þangað söfnuðust fjölmargir bátar og liðsmenn þeirra
frá Suðurnesjum, Björg á Eyrarbakka, Árborg á
Selfossi, Ársæli, Kili og HSSK til þess að skiptast
á upplýsingum og skoða hina mismunandi tegundir
björgunarbáta og búnað sem þeim fylgir. Með í för
voru m.a. tveir Atlantic 75 bátar sem nýverið hafa
bæst í flóruna, þeir Njörður frá Suðurnesjum og
Halla frá Ársæli og jetskiið Buni frá Árborg. Siglt
var út fyrir Gróttu að Þerney þar sem HSSK bauð upp
á grillmat.
Tvö útköll fléttuðust inn í
bátamessuna - kafaraslys á Þingvöllum og strand við
Akurey sem menn sinntu
líka. Myndin hér til hliðar er af Ársæls- og
Kjalarmönnum á vaktinni
við Akurey um kvöldið.
~ : ~
„Mennt er máttur“
11.júní 2010 -
23:10
Þessa dagana sitja nokkrir félagar námskeið
Björguna
rskóla SL í fyrstu hjálp 2. Námsefnið kennir
Kristófer Sigurðsson, læknanemi á 4. ári og
sjúkraflutningamaður og lætur sér fátt um finnast
þótt aðstaðan undir súð í Þórnýjarbúð sé bæði þröng
og loftlaus.
Mikil áhersla hefur verið lögð á menntun félaga
eftir áramót og hafa námskeið í m.a. fjallamennsku,
fjarskiptum, fyrstu hjálp, björgunarmenn í aðgerðum,
leitartækni og hópstjórnun verið sótt bæði hjá
björgunarskólanum og Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins. Hluti hópsins hefur verið að
sækjast eftir upprifjun en aðrir að fara í gegnum
grunninn að Björgunarmanni 1.
Næsta haust breytast kennsluhættir hjá
Björgunarskólanum og verða með talsvert öðru sniði
en nú er. Hægt verður að taka sjálfsmat á netinu,
bóklegi hluti námskeiða verður færður í fjarnám og
munnleg stöðupróf verða á endurmenntunarnámskeiðum.
Frekari upplýsingar um menntunarátak
Björgunarskólans má fá á heimasíðu SL.
~ : ~
Öskuhreinsun undir Eyjafjöllum
30.maí 2010 -
23:10
Laugardaginn 22. maí fóru þrír félagar austur til
öskuhreinsunar undir Eyjafjöllum. Með í för var enn
og
aftur vinnuþjarkurinn, Rósenbauer, dæla
slökkviliðsins ásamt tilheyrandi búnaði. Svo vel
vildi til að verkefni hópsins var hreinsun við bæinn
Drangshlíðardalur, þar sem við höfðum áður verið við
hreinsistörf.
Að þessu sinni lá heldur þykkara öskulag yfir en í
fyrra skiptið og var gróður á einstaka blettum alveg
hulinn. Veður var gott, stilla og hlýindi og askan
til friðs, þar sem hún var rök og í grófara lagi. Að
venju var gestrisnin í fyrirrúmi hjá bændum og
hópnum boðið bæði í mat og vöfflur þrátt fyrir annir
við sauðburð og fjósverk. Dagurinn fór í að hreinsa
þök á íbúðar- og útihúsum við bestu aðstæður. Ekki
spillti fyrir að fá þær fréttir daginn eftir að hlé
væri á öskufalli í bili og von til þess að bændur á
svæðinu þurfi ekki að búa við frekari óvissu.
Á myndinni má sjá Rósenbauer hinn knáa og lagnir frá
"læk" að fjárhúsum og grillir í mann á stút spúla
ösku af þaki.
Fleiri myndir á myndasíðu.
~ : ~
Nýr svæðisstjórnarbíll skoðaður
24.maí 2010 -
22:10
Nýlega fóru
formenn á svæði 1 að skoða nýjan svæðisstjórnarbíll,
sem reiknað er með að verði tekinn í gagnið í haust.
Bíllinn er fyrrum vöruflutningabíll og verður
hólfaður niður út frá SÁBF kerfinu. Búið að leggja
allt rafmagn, loftnet, kapla, teppaleggja loft og
veggi, setja upp flest öll tæki, sprauta og merkja,
allar hillu einingar, ljós, kortaaðstaða og
tússtöflur/veggir, leðursófi, ísskápur og
örbylgjuofn og margt fleira. Enn vantar að klára
frágang á loftnetum uppi á þaki bíls og setja upp
vettvangsmyndavél utan á bíl sem hægt er að stjórna
innan frá og skoða vettvang. Einnig er hugsunin að
smíða framlengingu á pallinn aftan á bílnum, og
útbúa segl/tjald yfir.
Verið er að skoða staðsetningu bílsins og
rekstrarumhverfi en vonast er til að hann nýtist við
stærri aðgerðir á landsvísu jafnt og á svæði 1.
~ : ~
Aðalfundur Kjalar 2010 og árshátíð
15.maí 2010 -
18:35
Aðalfundur björgunarsveitarinnar Kjölur var haldinn
28. apríl síðastliðinn í Þórnýjarbúð.
Ný stjórn var skipuð sem hér segir:
Formaður: Birgir Þór Guðbrandsson
Varaformaður: María Theodórsdóttir
Gjaldkeri: Sonja Þórey Þórsdóttir
Ritari: Anna Filbert
Meðstjórnendur: Adam Finnsson og Brynjar Már
Bjarnason
Fram kom á fundinum að árið 2009 hafi verið með þeim
betra í sögu sveitarinnar. Útköll voru 50 auk
fjölmargra annara verkefna, boðið var upp á tvenns
konar unglingastarf, nýliðun var með mesta móti og
fjárhagur góður, þrátt fyrir talsvert viðhald á
tækjum og endurnýjun á búnaði.
Árshátíðin var síðan haldin í heimahúsi hér í hverfi
12. maí s.l. Félagar mættu þar ásamt mökum sínum,
borðuðu heimalagaðan grillmat með öllu tilheyrandi
og eftirrétt. Spjölluðu menn síðan og sátu að sumbli
fram á nótt, fóru í pottinn og varð úr hin besta
skemmtan og góður rómur gerður að viðburðinum.
~ : ~
Afmælisrit Kjalar er komið út
1.maí 2010 -
16:35
1.
prentun afmælisritsins er komin út og er þegar
uppseld.
2. prentun er væntanleg eftir 2. - 3. vikur. Anna
tekur við pöntunum í síma 616 8493 eða á
bjorgunarsveit@simnet.is.
Félagar í Kili borga kr 3.000,- (niðurgreitt) en
aðrir kostnaðarverð sem er kr 5.000,- Ritið er
120 bls. stútfullt af myndum og skemmtilegu og
fróðlegu efni.
Ritið er 20x24 cm á stærð, á kiljubókarformi.
Einnig er hægt er að panta ritið í harðri kápu á
netinu á slóðinni http://www.blurb.com/bookstore/detail/1346251
Þar
er líka hægt að skoða fyrstu síðurnar.
Anna, María og Sonja tóku saman efni í ritið og
vinnan hefur tekið um 2 ár frá því er fyrstu
hugmyndir komu fram um það.
~ : ~
Aðalfundur Kjalar 28. apríl
24.apríl 2010 -
18:20
Aðalfundur Kjalar verður haldinn 28.
apríl n.k. í Þórnýjabúð kl 20.
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
lögum félagsins.
~ : ~
Eldgos í Eyjafjallajökli
24.apríl 2010 -
15:07
Eitthvað er að draga úr öskufallinu
og
hafa björgunarsveitir haft í nógu að snúast ásamt
fleirum vegna þess. Félagar í björgunarsveitum hafa
verið og eru við hreinsunarstörf á bæjum undir
Eyjafjöllum og þar á meðal félagar í Kili sem fóru í
þrjá daga austur til aðstoðar
fyrir og um síðustu helgi. Myndir má sjá á
myndasíðunni og einnig nokkrar teknar af fréttamanni
Reuters:
sjá Reuters link hér<<. Verið er að skafa upp
öskuna af húsum, þökum, þakrennum og gangstéttum, en
hún er eins og kítti eða steypa þar sem blotnað
hefur í henni. Slökkviliðið hefur síðan komið í
kjölfarið og spúlað burt því sem eftir situr, en
einnig fóru Kjalarmenn austur með öfluga lausa dælu
frá SHS sem nýttist við hreinsun húsa og plana.
Hér fylgja
leiðbeiningar frá Almannvörnum ríkisins (pdf 304
Kb), um hvað ber að varast og fyrirbyggjandi
aðgerðir ef til öskufalls kemur. Ekki er útilokað að
öskuskýin nái til Reykjavíkursvæðisins eins og spár
gera ráð fyrir.
Fleiri myndir <<
~ : ~
„Matur er mannsins megin"
18.apríl 2010 -
9:43
Aldrei er of oft minnst á það góða
bakland sem björgunarsveitir eiga í
slysavarnadeildum. Slysavarnadeildirnar sinna
margvíslegum og þörfum störfum innan
Slysavarnafélgsins Landsbjargar þótt þær séu
sjaldanst eins sýnilegar og björgunarsveitirnar.
Helstu verkefni deildanna eru slysavarnir og
fjáraflanir til stuðnings sveitunum, en nokkrar
deildir eru auk þess virkar í útköllum og sinna
hússtjórn, sálrænni fyrstu hjálp og reiða fram mat
fyrir björgunarsveitarmenn og aðra sem koma að
útkallinu. Mismikið mæðir á mönnum við langvarandi
aðgerðir og þrátt fyrir að allir björgunarsveitamenn
séu ávalt með nesti til sólarhrings, gerir góður
aðbúnaður það að verkum að menn nýtast enn betur og
lengur. Á vettvangi er sjaldnast tækifæri til þess
að hvílast eða fá heita hressingu.
Um páskana stóðu Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík
ásamt öðrum deildum vaktina í Heimalandi undir
Eyjafjöllum og höfðu tilbúinn mat allan
sólarhringinn fyrir viðbragðsaðila, sem stóðu
vaktina vegna gossins á Fimmvörðuhálsi.
Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík tekur oft til mat
fyrir um 100 manns í einu og fær til þes stuðning
frá ýmsum fyrirtækjum og verslunum á
höfuðborgarsvæðinu. Flest fyrirtæki taka vel í að
aðstoða, en einn dyggasti stuðningsaðilinn
undanfarin tvö ár hefur verið „Þín Verslun“ á
Seljabraut og verður þeim seint fullþakkaður
stuðningurinn.
~ : ~
Aðalfundur Kjalar 28. apríl
17.apríl 2010 -
18:43
Aðalfundur Kjalar verður haldinn 28.
apríl n.k. í Þórnýjabúð kl 20.
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
lögum félagsins.
~ : ~
Gosvakt á Fimmvörðuhálsi
2.apríl 2010 -
15:37
Miðvikudaginn 31. 3. stóðu fjórir úr
björgunarsveitinnni Kyndli ásamt einum úr Kili
vaktina á Fimmvörðuhálsi. Komið var að gosstöðvunum
snemma morguns og svæðið vaktað allan daginn. Þrátt
fyrir einstaklega bjart og stilt veður var fátt um
manninn í byrjun
og jókst umferð ekki fyrr en eftir hádegi. Lítið var
um verkefni, aðallega að leiðbeina ferðalöngum,
einstaka skutl á þreyttum göngumönnum og vöktun
hættusvæða.
Gosið sjálft hélst nokkuð stöðugt en
einhverjar breytingar urðu á hraunrennslinu í
Hrunagili.
Um það leyti er vaktaskipti við Ársælinga fóru fram
bárust fregnir af hugsanlegri nýrri sprungu NV af
eldstöðvunum og kom það í okkar hlut að fara og
staðfesta það. Í framhaldinu fór af stað rýming
fólks af Fimmvörðuhálsinum og Mýrdalsjöklinum öllum.
Unnu björgunarsveitir og lögregla sem voru á
staðnum, að því í sameiningu að snúa fólki við og
beina niður á láglendi.Gekk rýmingin vel þótt sumir væru tregir til að snúa
baki við nýju sjónarspili. Vorum við ásamt lögreglu
með þeim síðustu til þess að aka niður með Skógará
og komum að Skógum um miðnætti, eftir ánægjulegan
dag í grennd við stórkostleg náttúruöfl.
Myndin er af bíl Kyndilsmanna á leið að
eldstöðvum á Fimmvörðuhálsi að morgni í um 19°
frosti.
Fleiri myndir eru á myndasíðu Kjalar.
~ : ~
Hvanngil og Fimmvörðuháls
30.
mars 2010 - 20:59
Tveir Kjalarmenn á Kjöl 2 aðstoðuðu
Björgunarsveitina Kyndil við flutning á þeirra
mönnum, þegar þeir héldu í árlega sveitarferð sína.
Einng var bílstjóri frá bjsv. Hafnarfjarðar á Spora
2 til aðstoðar.
Lagt var af stað frá
höfuðstöðvum Kyndils um 18:30 föstudaginn
26. mars ásamt Kyndli
1 og Dodge Ram og haldið suður eftir þjóðvegi 1,
stoppað á Hvolsvelli og
tankað á tækin ásamt
því að teygja úr sér. Það var strax ljóst að mikil
umferð var af fólki
sem vildi skoða gosið á Fimmvörðuhálsi og sóttist
ferðin seint inn Fljótshlíðina. Þeir sem voru á
sleðum fóru hinsvegar upp
Sólheimajökul og yfir
jökulinn að Hvanngilsskála. Þegar úr örtröðinni í
Fljótshlíðinni var
komið, byrjaði færið
einnig að þyngjast og þunn snjóskel sem lá ofan á
ískrapa brotnaði
sífellt undan bílunum. Erfitt var að spila
Kyndilströllið (Ford Econoline á
46") aftur upp og
ekki komið í skála fyrr en 04:00. Sem betur fer voru
sleðamennirnir ásamt sleðamönnum Fbsr
mættir á undan og
búnir að kynda upp. Við fengum ekki að spreða
tímanum í
svefn, því nýliðar Kyndils voru ræstir um 07:00 til
þess að fara í allskyns
æfingar. Ákveðið var
að Kjölur 2 og Spori 2 skildu kanna færið á
Mælifellssandi fyrir
Kyndil 1 sem er í þyngri kantinum. Á söndunum
var færið gott fyrir
utan einn krapakafla, svo ákváðum við að skella
okkur norðan
meginn upp Mýrdalsjökul og kíkja á gosstöðvarnar.
Færið upp jökulinn
var mjög þungt og
mjökuðumst við á 10-15km/klst í 3 klst. Þegar komið
var inn á leið ferðamanna frá Sólheimajökli var
þetta eins og malbik. Eftir
smá skoðun á
gosstöðvunum var rennt niður í skála á 2 tímum og í
tíu dýrindis lambalæri sem Kyndill var búinn að
elda. Mikið var um
fjórhjólahópa við
skálann og lentum við í smá viðgerðum fyrir þá..
Eftir matin var pakkað saman og hélt bílahópurinn að
gosstöðvunum kl 22:30
til þess að sjá sjónarspilið í myrkri.
Þar sem Kjalarmenn
voru búnir að keyra tvisvar sinnum upp á
Fimmvörðuháls á nokkrum tímum var ákveðið að sofa
uppi við gostöðvarnar og sjá þær í
ljósaskiptunum. Um 7
leytið var haldið niður Sólheimajökul og á
malbikið sem leiddi
okkur svo aftur heim.
Við þökkum
Kyndilsmönnum, Sporamanni og Fbsr mönnum kærlega
fyrir flotta ferð.
~ : ~
Björgunarhundanámskeið
30.
mars 2010 - 20:57
Vetrarnámskeið BHSÍ var haldið dagana 12. – 17. mars
í Eyjafirði. Leiðbeinendur á námskeiðinu voru sex,
þar af tveir frá Noregi og æft á 3 svæðum ofan
Víkurskarðs. Um 30 teymi tóku þátt og af þeim tóku
19 teymi próf. Fyrirlestrar voru á dagskrá á kvöldin
og aðalfundur BHSÍ einnig haldinn.
Eftir þetta námskeið eru hundateymin í Kili orðin
þrjú, sem eru í þjálfun – þeir Birgir/Breki,
Hólmar/Vaskur og Nansý/Hilmir.
~ : ~
Afmælisritið
21.
mars 2010 - 14:32

Afrmælisritið er farið í prentun erlendis og tekur
nokkrar vikur. Spurning hvort
það verði ekki bara á undan febrúarskýrslunni frægu.
Í afmælisritinu er farið yfir sögu sveitarinnar og
slysavarnamála á Kjalarnesi í máli og myndum. Ritið
verður 120 blaðsíður að stærð og verður selt á
kostnaðarverði.
Sýnishorn
einnar af mörgum myndasíðum ritsins er til hægri úr
veðravítishluta þess.
~ : ~
112 dagurinn
27.
feb 2010 - 17:52
112-dagurinn var haldinn víða um land þ. 11. febrúar
síðastliðinn og var áherslan í ár lögð á
skyndihjálpar kunnáttu almennings.
Skyndihjálparmaður ársins 2009 var valinn og
viðbragðsaðilar kynntu störf sín með ýmsum hætti.

Kjölur var með fræðslu um neyðarnúmerið og viðbrögð
við slysum meðal skólabarna í 1.-7. bekk
Klébergsskóla af því tilefni. Einn félagi
sveitarinnar var í Smáralind ásamt fulltrúum frá
Slysavarnafélaginu Landsbjörg, Rauðakrossinum og
Neyðarlínu.
Á myndinni
t.h. sem Sigurður Viðar Ottesen tók í Smáralindinni
þann 13 feb eru f.v. Sæunn Ósk Kjartansdóttir frá
Slysavarnasviði Slysavarnafélagsins Landsbjörg,
Garðar Guðjónsson skipuleggjandi dagsins og María Theodórsdóttir frá bjsv Kjölur
Almenningi bjóðast fjölmörg námskeið í fyrstu hjálp
hjá Rauða Krossinum og hvetjum við fólk til þess að
fara á þau og kynna sér þetta. Reynslan sýnir að
þeir einstaklingar sem einhvern tíma hafa farið á
slíkt námskeið er líklegra til að bregðast rétt við
í neyðartilfellum.
Ekki þarf að fara langt því ýmis námskeið bjóðast í
Mosfellsbæ og er næsta 4 klst námskeið í skyndihjálp
á dagskrá þ. 24. 3. Frekari upplýsingar má finna á
heimasíðu Rauðakrossins
WWW.REDCROSS.IS
~ : ~
Haítískipið
13.
feb 2010 - 18:20
Í
síðustu viku fór fram á Kjalarnesi og víðar söfnun á
hjálpargögnum sem fara munu til Haítí. Leitað var
til fyrirtækja og almennings um aðstoð við að leysa
brýnustu þörf bágstaddra á hamfarasvæðinu. Dæmi um
það sem helst var sótt eftir var;
Matvæli – hrísgrjón, haframjöl, súpur, núðlur, kex
og dósamatur
Hreinlætisvörur – sápur, bleyjur, tannkrem og
tannburstar
Fyrsta hjálp – plástrar, grisjur, sárabindi og
teygjubindi
Afþreying fyrir börn – bangsar og lítil leikföng
Annað – tjöld, tjalddýnur og teppi
Tekið var á móti gögnum í húsi
björgunarsveitarinnar, Þórnýjarbúð og voru
undirtektir sérdeilis góðar. Menn komu færandi hendi
með ýmsar vörur - bæði nýtt og notað. Margir fóru
sérstaklega í verslunarleiðangur til þess að kaupa
mat, hreinlætis- og ungbarnavörur. Einn Kjalnesingur
fékk aðstoð þeirra í Krónunni við að versla og
flytja mikið magn af mat og leikföngum í aðstöðu
verkefnisins við Holtaveg.
Þökkum við öllum
hjartanlega fyrir að bregðast svo vel við.
Gögnin hafa nú verið flokkuð og pökkuð til flutnings
í miðstöðinni við Holtaveg. Þau barnaföt, pelar, og
aðrar barnavörur, sem meðal annars söfnuðust á
Kjalarnesi, eru farin út með flugi og dreifast meðal
SOS barnþorpa á Haítí. Enn er leitað að skipi til
þess að sigla héðan suður með önnur hjálpargögn.
Fylgjast má með framvindu verksins á heimasíðunni
HAITISKIPID.IS og
facebook
~ : ~
1 1 2 dagurinn
10.
feb 2010 - 18:46
1 1 2
dagurinn er haldinn fímmtudaginn 11.2. víða um land.
Þema dagsins er aðkoma venjulegs fólks að vettvangi
slysa, veikinda og áfalla. Nánar um daginn er hægt
kynna sér á
>> heimasíðu Neyðarlínunnar og meðal
annars taka skyndihjálparprófið.
~ : ~
Til hamingju með afmælið, Óðinn
1.
feb 2010 - 18:40
Varðskipið Óðinn átti
50 ára afmæli 27. janúar og um
helgina var þess minnst. Opið var og ókeypis
aðgangur í Víkina, sjóminjasafnið á Grandagarði og
hægt að skoða Óðinn, sem þar hvílir við bryggju sem
minjasafn. Um borð er hægt að að kynna sér farsæla
sögu skipsins og snoturlega er búið um muni í
vistarverum þess.
Þá var boðið upp á sýningu á hífingu á mönnum úr
"sjávarháska" í höfninni með þyrlu
Landhelgisgæslunnar TF-EIR. "Skipbrotsmennina" tvo
léku félagar úr Kili, þau Anna Filbert og Brynjar
Bjarnason.
Björgunarskipið Ásgrímur, sem einnig kom við sögu,
æfir reglulega með þyrlu LHG slíkar hífingar úr sjó.
Nokkrar fleiri myndir eru á >>myndasíðu Kjalar<<
~ : ~
Söfnum í Haítískipið
29.
jan 2010 - 21:35

Þessa dagana fer fram söfnun á
hjálpargögnum sem fara munu til Haítí með
skipi. Leitað er til fyrirtækja og almennings um
aðstoð við að leysa brýnustu þörf bágstaddra á
hamfarasvæðinu.
Það sem helst vantar eru:
Matvæli – hrísgrjón, haframjöl, súpur, núðlur, kex
og dósamatur
Hreinlætisvörur – sápur, bleyjur, tannkrem og
tannburstar
Fyrsta hjálp – plástrar, grisjur, sárabindi og
teygjubindi
Afþreying fyrir börn – bangsar og lítil leikföng
Annað – tjöld, tjalddýnur og teppi
Tekið verður á móti hjálpargögnum í húsi
björgunarsveitarinnar, Þórnýjarbúð
Þriðjudaginn 2. Febrúar kl. 19-22
Miðvikudaginn 3. Febrúar kl. 19-22
Sjá nánar á heimasíðu
>>HAÍTÍSKIPIÐ<<
~ : ~
Styrkveiting frá Reykjavíkurborg
24.
jan 2010 - 20:53

Á föstudaginn undirrituðu
borgarstjóri Hanna Birna Kristjánsdóttir og
fulltrúar björgunarsveita í Reykajvík
styrktarsamning til eins árs. Reyndar var fulltrúi
Kjalar ekki viðstaddur þar sem hann var í útkalli í
Hvalfirði.
>>
Frétt á mbl.is og mynd <<
Björgunarsveitirnar sem um ræðir eru;
Björgunarsveitin Ársæll, Björgunarsveitin Kjölur,
Flugbjörgunarsveitin og Hjálparsveit skáta
Reykjavík.
Reykjavíkurborg mun á samningstímanum styrkja
sveitirnar samtals um 5.460.000 kr.
Á myndinni (mbl.is) eru
Borgþór Hjörvarsson, f.h. Björgunarsveitarinnar
Ársæls, Elsa Gunnarsdóttir, f.h.
Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík, Hanna Birna
Kristjánsdóttir, borgarstjóri, og Haukur Harðarson
f.h. Hjálparsveitar skáta.
~ : ~
Starfsemin framundan
14.
jan 2010 - 22:23
Starfsemi sveitarinnar er nú að
verða eðlileg aftur eftir hátíðarnar og dagskrár að
tínast inn á heimasíðuna.
Dagskrá Storms og æfingaplan SHS má sjá á tengli
undir liðnum á döfinni á forsíðu. Stormur verður með
fasta tíma á þriðjudögum kl 19. Helgarferðir og
heimsóknir til annara unglingadeilda eru enn í
vinnslu og verða settar inn í dagskrá seinna. Næsti
hópur skólavals byrjar 21. janúar og verður með tíma
á fimmtudögum kl 11.25.
Fastir tímar sveitarinnar verða áfram á miðvikudögum
kl 20 og skiptast á fundir, æfingar og vinnukvöld.
Dagskráin er prjónuð af fingrum fram og menn beðnir
um að fylgjast með tilkynningum á heimasíðu.
Fyrirhugað er að nota næstu vikur og mánuði til
endurmenntunar og fræðslu á ýmsum sviðum. Má þar
nefna námskeið í fjarskiptum I, fjallamennsku,
snjóflóðaleit, fyrstu hjálp I, Vettvangshjálp og
Fyrstu hjálp í óbyggðum. Flestar tíma- og
staðsetningar á námskeiðum eru komnar inn í dagskrá.
Menn eru hvattir til þess að ná sér í meiri þekkingu
og láta stjórn vita ef þeir hafa áhuga á námskeiðum.
~ : ~
ÞRETTÁNDAFLUGELDASALA
4.
jan 2010 - 22:25
Í ár verða flugeldar seldir á
Þrettándanum eins og oft áður, miðvikudaginn 6.
janúar kl 14 - 20,
sjá meðfylgjandi
auglýsingu.
~ : ~
Afmæli og áramót
3.
jan 2010 - 10:30
Gleðilegt nýtt
ár !!
60
ára afmælisboð Kjalar var haldið í Þórnýjarbúð 29.
des s.l
. og var mjög ánægjulegt hve margir eða um
150 manns sáu sér fært að koma.
Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir komuna, frómar
afmælisóskir og gjafir. Húsið, tæki og tól voru til
sýnis og boðið upp á kaffi og afmælistertu.
Fleiri myndir eru á myndasíðu.
Afmælisritið er áfram í vinnslu, vantar
lokahnykkinn, og nokkrar ágætar ábendingar komu fram
í boðinu og stefnt að útgáfu hið fyrsta.
Flugeldasalan gekk vel og þökkum við Kjalnesingum og
öðrum fyrir góðar undirtektir. Kjölur hélt
flugeldasýningu við brennuna á Klébergi og var
veðrið sérlega gott til útiveru og flugeldaskota.
Allt gekk slysalaust fyrir sig.
Flugeldasalan verður opin á Þrettándanum.
~ : ~
FLUGELDASALA og AFMÆLI
27.
des 2009 - 18:05
Sölustaður flugeldasölu
Björgunarsveitarinnar á Kjalarnesi er við
Þórnýjarbúð, rétt vestan við söluskála OLÍS.
Opnunartímar
eru;


mán. 28. desember kl 13 – 22
þri. 29. desember kl 13 – 22
mið. 30. desember kl 13 – 22
Gamlársdag 31. desember kl 10 - 16
Þriðjudaginn 29.
desember verður haldið upp á 60 ára afmæli björgunar- og
slysavarnamála á Kjalarnesi með opnu húsi í
Þórnýjarbúð kl 16 - 19, boðið verður upp á kaffisopa
og hús og tæki til sýnis.
~ : ~
Jólasveinar á ferð á aðfangadagsmorgun
20.
des 2009 - 10:01
Líkt
og í fyrra munum við aðstoða jólasveinana
við að dreifa pökkum
til barna í Grundarhverfi.
Sveinarnir áætla að vera á ferðinni á Kjalarnesi og
nágrenni á aðfangadagsmorgun.
Best er að koma pökkunum á Esjugrund 35 á
Þorláksmessu.
Muna að merkja pakkana vel, nafn og heimilisfang.
Verð pr. pakka kr 500, hámark 1000 kr á heimili.
(Anna s: 6168493)
~ : ~
Kayakæfing í Laugardalslaug
6.
des 2009 - 15:10
Æfingarferð
unglinganna á Kayökum í Laugardalslaug gekk vel.
Hún var haldin á vegum
Kayakklúbbsins, sjálfboðastarf að sjálfsögðu á
alþjóðadegi sjálfboðaliðans, líka þakklætisvottur
við Kjöl vegna samstarfs í árlegu
Hvammsvíkurmaraþoni, og kunnum við þeim bestu þakkir
fyrir. Fleiri myndir eru á myndasíðunni og
líka
á tengli Kayakklúbbsins.
~ : ~
Unglingastarf og skólaval
3.
des 2009 - 20:46

Nú fer
unglingastarfi og skólavali að ljúka fyrir áramót.
Síðustu þrjú atriðin hjá Stormi eru kajakkynning
núna á laugardag á vegum Kajakklúbbsins í
Laugardalslaug, og næstu þriðjudaga að þrífa
húsið og Litlu jól.
Í skólavalinu er dagskráin tæmd, nema hluti hópsins
á eftir að fara í sjóferð, þegar veður gefur.
Dagskrá Storms hefst síðan að nýju í janúar á nýju
ári og verður auglýst síðar.
Á myndinni eru Daníel og Aron í hellaskoðunarferð í
Leiðarenda.
~ : ~
Hálendisskýrsla 2009
16.
nóv 2009 - 21:46
Nýlega kom út
skýrsla um hálendisvakt björgunarsveitanna sumarið
2009. Þar kemur m.a. fram að skráðar aðstoðarbeiðnir
voru 930 talsins sem er umtalsverð fjölgun frá árinu
áður. Helstu verkefnin voru að aðstoða fólk við ár
og vöð, grennslast fyirir um fólk sem ekki skilaði
sér á áætluðum tíma og aðstoða með sprungin dekk og
bilaða bíla. Um þetta má lesa nánar í skýrslunni sem
HÉR er skýrslan aðgengileg. pdf 14 MB. Þess má
geta að fjöldi mynda í skýrslunni er frá vakt Kjalar
á Kili.
Undirbúningur er þegar hafinn fyrir næsta sumar og
má gera ráð fyrir svipuðu skipulagi og áður. Óskað
verður eftir því að sveitir taki að sér eina viku
eins og áður. Miðstöðvar verða á sömu stöðum og áður
en verið er að skoða leiðir til að betrum bæta
aðstöðu björgunarsveitarfólks. Gert er ráð fyrir því
að opna fyrir skráningu sveita á vikur og staði um
miðjan febrúar.
(Af
vef SL).
~ : ~
Áhugavert efni
12.
nóv 2009 - 21:17
Núna um helgina 14. - 15. nóv. er Sleðamessa hjá
Björgunarsveit Hafnarfjarðar. Verður þar í boði
fjöldi áhugaverðra erinda um spennandi efni,
jöklaferðir, snjóflóðaleit, fjarskipti og
Reitakerfið nýja. Sjá dagskrá
>> hér
Einnig verður á næstu helgi 21. nóv. Ráðstefna um
hamfarir og björgunarmál hjá
Hjálparsveit skáta Garðabæ á 40 ára
afmælishelginni þeirra. Þar verður margt spennadi
fyrirlestraefnið, Tsunami, jarðskjálftar og
jökulhlaup. Dagskráin er
hér
~ : ~
Sala
Neyðarkalls gekk vel
9.
nóv 2009 - 20:57
Vel gekk að selja Neyðarkallinn um helgina. Kjölur
þakkar góðar móttökur og ómetanlegan stuðning við
sveitina. Fjármunum sem safnast er langmest varið í
viðhald og rekstur tækja svo og innkaup búnaðar.
Verkefnin hafa aukist og eru margvíslegri en áður.
~ : ~
Neyðarkall og félagadagur
4.
nóv 2009 - 21:07
Framundan er árleg fjáröflun Slysavarnafélagsins
Landsbjörg og björgunarsveitanna. Um helgina
verður Neyðarkallinn seldur, lyklakippuhringur með
björgunarsveitarkalli og í þetta sinn verður hundur
honum til trausts og halds. Sölumenn Kjalar verða
meðal annars við Holtagarða og á ferðinni á
Kjalarnesi og Kjós. Biðjum við alla að taka vel á
móti þeim og styðja sína sveit.

Þarna eru þeir allir 4 komir saman.
Þá verður félagadagur haldinn á sunnudaginn næst
komandi 8. nóv. Þar kynna félög og samtök á
Kjalarnesinu starfsemi sína, m.a. Kjölur. Samkoman
verður haldin í Fólkvangi kl 15:30 - 18.
7. bekkur Klébergsskóla sér um sölu kaffiveitinga
til styrktar námsferðar sinnar að Reykjum í
Hrútafirði.

~ : ~
Landsæfing 2009 á Suðurnesjum
25.
okt 2009 - 14:17
Landsæfing björgunarsveita SL var á Suðurnesjum í gær, laugardaginn 24.
október. Sex félagar úr Kili tóku þátt í henni ásamt
fjórum úr unglingadeildinni. Kjölur var skráður sem
fyrstu hjálpar hópur og í almenn verkefni.
Unglingadeildin var í eldlínunni í
hlutverkum sjúklinga, slasaðra og látinna ásamt
mörgum öðrum úr unglingadeildum björgunarsveita
landsins. Þau héldu til í Grindavík og gistu þar
tvær nætur í góðu yfirlæti Grindvíkinga. Margvísleg
verkefni voru leyst af hendi af björgunarsveitunum, slösuðum bjargað úr
skipum, bruna, tekið móti þyrlu og slasaðir fluttir
úr og um borð í hana. Alls voru verkefni
æfingarinnar 57 talsins og aðgerðir stóðu frá morgni
til kvölds. Víða sáust fánar sveitarfélaga og SL
blakta við hún í góða veðrinu og skólamatur.is bauð
til kvöldverðar. Láta mun nærri að á fimmta hundrað manns
hafi komið að æfingunni og mikil vinna að
skipuleggja slíkan atburð.
Á myndinni eru meðal annars félagar úr Kili að
lokinni æfingu með þyrlunni.
Fleiri myndir eru á myndasíðu Kjalar.

~ : ~
Ófremdarástand viðbragðsaðila
við áhaldahús
19.
okt 2009 - 20:05
Áhaldahúsið á Kjalarnesi er tvískipt - helmingur
þess fer undir starfssemi framkvæmdasviðs
Reykjavíkurborgar en hinn helminginn nýta
Slökkviliðið (SHS) og Björgunarsveitin Kjölur
saman. Það eru því í raun þrír aðilar sem deila
húsinu og planinu fyrir framan það. Auk þessara
þriggja aðila þá er Endurvinnslustöð Sorpu einnig að
nota hluta af planinu sem útkeyrslu, þótt sú
útkeyrsla sé tæknilega ekki hluti af planinu þá
rennur þetta allt saman í eitt eins og staðan hefur
verið hingað til.

Nú er verið að girða af og loka hluta lóðarinnar
(þar með talið planið) fyrir framkvæmdasviðið og
skapar það veruleg vandamál fyrir okkur í
Björgunarsveitinni. Framkvæmdasviðið er með þann
hluta hússins og lóðarinnar sem er nær veginum en
SHS og Björgunarsveitin Kjölur (viðbragðsaðilar) eru
fyrir innan og því í þröngri aðstöðu,
því við lokumst eiginlega inni aftan við girðinguna
svo aðkoman verður bæði mjög þröng og í raun
lengri. Inn- og útkeyrsla viðbragðsaðila er nú
einbreiður malarvegur, sem einnig er útkeyrsla frá
athafnasvæði Sorpu. Bakka þarf u.þ.b.100 m inn að
útkeyrsludyrum bækisstöðva með bátakerrur ofl. sem
skapar hættu á akveginum sjálfum, auk truflana á
umferð frá Sorpu en þess má einnig geta að fólk er
strax farið að lenda í vandræðum með útakstur frá
Sorpu vegna krapprar beygju .
Planið sjálft minnkar
talsvert og býður ekki upp á að hægt sé að athafna
sig með útkallstæki vegna þrengsla, t.d. gera við og
þrífa. Nógu erfitt verður að athafna sig með eitt
tæki, svo ekki sé talað um þegar útkall krefst t.d.
bíls, báts og fjórhjóls. En hingað til hafa oft
verið æfingar á vegum slökkviliðs og
björgunarsveitar á planinu.
Bílastæðisrými fyrir þá sem fara í útköll verður
mjög takmarkað, skerðir athafnasvæði annara tækja og
getur því lengt enn frekar útkallstíma.
Ljóst er að útkallstími Björgunarsveitarinnar mun
lengjast í mörgum tilfellum vegna þessara framkvæmda
auk annarra vandamála sem skapast af nýrri útkeyrslu
og minna athafnasvæði. Þar sem björgunarsveitin
sinnir einnig útköllum vegna alvarlegra veikinda og
slysa, er hver mínúta dýrmæt. Það sama á við um
útköll vegna sjóslysa en þá yrði mesta töfin og þá
skiptir þetta einna mestu máli.
Hér verður að bæta úr ef ekki á illa að fara.
~ : ~
Veðurofsi
10.
okt 2009 - 9:32
Sælduvitlaust veður gerði á landinu í gær.
Björgunarsveitarmenn höfðu víða í mörg horn að líta
og
meðal
annars á Kjalarnesi. Vindurinn var mikill og
hviðóttur, "þoturnar", sem Kjalnesingar nefna svo,
voru margar yfir 50 m/sek frá kl 8 til kl 17 á
mælinum við Skrauthóla ofan Grundarhverfis og sú
hraðasta fór í 58.1 m/sek. Það varð því ýmislegt að
gefa undan, þök, þakplötur, rúður, gámar,
olíutankur, tunnur, skilti, staurar og girðingar svo
eitthvað sé nefnt.
Myndin fyrir
ofan er af vef Veðurstofunnar og sýnir vindhraðann á
Skrauthólum í gær, en neðri myndin
sýnir Kjalarmenn festa niður þakkant í gær.

Höfum í huga þegar veður sem
þessi eru í vændum eða ganga yfir;
~ að festa eða setja inn lausa hluti, svo þeir valdi
ekki tjóni hjá nágrannanum þegar þeir fljúga af stað
~ vera ekki á ferli utan dyra
~ loka gluggum og draga fyrir
~ halda sig sem mest hlémegin í húsinu
~ hringja óhikað í 112 ef aðstoð vantar, í óveðrum
er neyðarlínan mönnuð fólki sem stjórnar
björgunarverkum
~ : ~
Innbrot
4.
okt 2009 - 10:32
Nýlega
var brotist inn í gáma sveitarinnar við Þórnýjarbúð,
hengilásar klipptir upp og líklega þjófagengi á
ferð. Gámarnir eru merktir Slysavarnafélaginu
Landsbjörg og þar geymir sveitin hluta af sínum
búnaði m.a. dekk af bílunum. Engu var stolið þar sem
fátt var um verðmæta meðfærilega smáhluti. Búið er
að gera frekar ráðstafanir til að erfiðara sé að
komast inn í gámana og fjarlægja helstu verðmæti.
~ : ~
Unglingastarf Kjalar að hefjast
10.
sept 2009 - 18:28
Nú
liggur fyrir dagskrá fyrir unglingastarf hjá Kili og
kennir þar ýmissa grasa s.s. rata eftir áttavita í
heita pottinn, DVD, hellaskoðun, Neyðarkall og svo
mætti lengi telja. Dagskráin er >>hér<<
og á síðunni við Á döfinni. Það eru þeir Hólmar og
Adam sem hafa veg og vanda af starfinu.
~ :) ~
Þakkarorð
31.
ágúst 2009 - 21:32
Skrifstofu
Slysavarnafélagsins Landsbjargar barst bréf frá
Magnúsi Orra Schram, þingmanni Samfylkingar en hann
naut aðstoðar björgunarsveita fyrir skömmu. Bréfið
hljóðar svo:
Um nýliðna verslunarmannahelgi fór undirritaður í
ferðalag um hálendi Íslands í 20 manna hópi á fimm
jeppabifreiðum. Eftir stórkostlegt ferðalag þar sem
leið okkar lá m.a. um Sprengisand, Gæsavatnaleið,
Öskju, Laugafell og fleiri staði var síðdegis á
mánudeginum komið að Blöndu, rétt við Hveravelli.
Blanda var mikil að vöxtum og fór svo að einn
bílanna lenti í erfiðleikum í ánni. Eftir
árangurslausar tilraunir til að koma ökumanni og
bifreið á þurrt leituðum við til hálendisvaktar
björgunarsveitanna á Hveravöllum. Innan stundar var
bílnum komið til bjargar, og öllum ferðalöngum komið
í gott skjól á Hveravöllum þar sem landverðirnir
tóku vel á móti hópnum. Var einstakt að upplifa þá
ósérhlífni og fagmennsku sem einkenndi starf
björgunarmanna þennan mánudag og vil ég fyrir hönd
okkar ferðafélaganna senda þeim miklar og góðar
þakklætiskveðjur fyrir hjálpina. Um var að ræða
björgunarsveitir frá Hveragerði og Kjalarnesi.
Við Íslendingar búum vel að geta leitað á náðir
fólks sem tilbúið er að gefa af sínum frítíma til að
standa vaktina og koma okkur til hjálpar, þegar við
hin lendum í aðstæðum sem við ráðum ekki við. Takk
fyrir mig og mitt fólk.
Magnús Orri Schram
Kópavogi.
~ : ~
Hálendisgæsla á Kili 2009
8.
ágúst 2009 - 9:48
Kjölur hefur
lokið hálendisgæslu á Kjalvegi að þessu sinni. Úhaldið var í len
gra lagi, 12 dagar, frá 24. júlí
til 5. ágúst. Eftir undirbúning fór hópurinn, sem í
upphafi samanstóð af sjö manns, tveim hundum og einu
barni, af stað og farartækin, tveir jeppar, fjórhjól
og kerra með eldsneyti. Tekið var við vaktinni af
Kyndilsmönnum og var í ýmsu að snúast bæði í
ferðinni svo og á víðfeðmu gæslusvæðinu. Þó er ljóst
að verkefni voru ekki eins mörg og í fyrra og sumu
leyti annars eðlis. Ferðalöngum var leiðbeint og
þeir aðstoðaðir í raunum eða ævintýrum sínum,
eftirlitsferðir farnar um slóðir og vegi og litið
til með bílaleigubílum. Rafmagns- og
fjarskipatabilanir hrjáðu svæðið um tíma, og kom
rafvirki sveitarinnar þá að góðum notum. Veðrið var
ekki upp á marga fiska, yfirleitt var kalt og
stundum hvessti úr hófi, jafnvel að smekk
Kjalnesinga, úrkoma töluverð og jafnvel éljagangur.
En, þegar upp er staðið og horft er til baka ríkir
ánægja með hvernig til tókst. Þess má geta að eknir
voru alls um 3500 km í leiðangrinum. Lesa má nánar
um verkefnið í
dagbók þess á síðunni undir skjöl og
myndir eru til sýnis á myndatenglinum.
~ : ~
Kjölur á Kjöl
24.
júlí 2009 - 16:12
Í dag hélt
sveitin til hálendisgæslu á Kili líkt og í fyrra.
Slysavarnafélagið Landsbjörg starfrækir 4 stöðvar á
hálendinu í allt sumar. Þar eru björgunarsveitarmenn
allan sólarhringinn á vakt, reiðubúnir ferðamönnum
til aðstoðar. Vaktin stendur í 10 daga og verða 4 -
7 Kjalarmenn með bækistöð á Hvervöllum á því
tímabili. Talsvert af búnaði verður með í för og
verða báðir jepparnir ásamt fjórhjólinu á Kili í
fyrstu. Nokkrir aðilar hafa styrkt sveitina með
vistir fyrir hópinn og eiga bestu þakkir okkar
fyrir. Þeir eru;
Stjörnugrís,
ORA,
Iðnmark,
Vilkó,
Húsasmiðjan,
sem einnig styrkti okkur með Grilli til eldunar.
~ : ~
Stormur á landsmóti í Hnífsdal
24.
júlí 2009 - 16:12
Landsmót
unglingadeilda var haldið á Vestfjörðum dagana
15.-19. júlí. Fjórir krakkar fóru frá
unglingadeildinni Stormi og tveir umsjónarmenn.
Þetta var í fyrsta skiptið sem Stormur fer á
landsmót og voru allir mjög ánægðir með ferðina.
Farið var í samfloti með unglingadeild Kyndils í
Mosfellsbæ og tjölduðu deildirnar saman og myndaðist
góð stemming milli deildana á mótinu. Allir kynntust
fullt af nýju fólki og skemmtu sér konunglega í
þrautabrautum og póstavinnu sem Vestfirðingar höfðu
sett upp af mikilli snilld. Hápunktur ferðarinnar
voru sennilega björgunarleikarnir, þar sem
unglingarnir voru látnir þreyta allskyns þrautir,
þar á meðal fara í kassaklifur og í draugahús, þar
sem krakkarnir áttu að finna 8 mismunandi hluti,
allt frá þjöl upp í samlokugrill. Hnífsdælingar,
Bolvíkingar og Ísfirðingar stóðu sig vel og mótið
tókst í alla staði vel. Veðrið var frábært og ekki
ský á himni alla ferðina. Krakkarnir nýttu frítíma
til að spjalla við aðra krakka, fara í ána að synda
eða kaupa sér sælgæti og slappa af í sólinni.
Mótinu var svo formlega slitið á laugardeginum með
varðeldi og balli, þar sem Stuðhljómsveitin
blackmetalbandið Sigurpáll frá Grindavík spilaði
ýmis þjóðþekkt lög.
Strax er farið að hlakka til næsta móts sem haldið
verður á Dalvík eftir tvö ár, en á næsta ári verður
næsta landshlutamót og stefna krakkarnir á að fara á
það, og aldrei að vita nema það fjölgi í hópnum
fyrir þann tíma. Nú eru krakkarnir síðan komnir í
smá sumarfrí þar til dagskráin byrjar aftur að fullu
í ágúst.
~ : ~
Laugavegsganga
9.
júlí 2009 - 22:22
Björgunarsveitin Kjölur fór í ferðalag inn í
Landmannalaugar fimmtudaginn 2. júlí. Ætlunin var að
labba laugaveginn. Tjaldað var í Landmannalaugum og
göngu garparnir kíktu í laugina áður en þeir fóru að
sofa. Um 10:00 var svo lagt af stað í gönguna. Adam
og Berglind fóru frá Kili og Daníel, litlibróðir
Adams fékk að ganga með. Hólmar og sonur hans,
Stefán, sáu svo um að keyra vistum á milli skála.
Veðrið lék við göngumennina. Þeir komu í
Hrafntinnusker um hádegis bil og stoppuðu þar og
áðu. Eftir stoppið þar héldu þau áfram niður að
Álftavatni. Útsýnið var æðislegt og engu líkar en
göngumennirnir væru komnir í ævintýraland.
Bílstjórarnir fóru frá Landmannalaugum stuttu eftir
að göngumennirnir fóru þaðan. Ákváðu þeir að keyra
Fjallabaks leið syðri og koma þá leiðina inn að
Álftavatni. Blöðrur og eymsli í hnjám fóru að gera
vart við sig á niðurleið frá Hrafntinnuskeri og
niður að Álftavatni. Teygjubindi var skellt á hnén
og blöðrurnar plástraðar. Upp úr 5 var svo komið
niður að Álftavatni. Búið var að redda gistingu í
skála í Hvanngili og skokkuðu göngumennirnir þessa
stuttu leið sem eftir var frá Álftavatni og yfir í
Hvanngil. Nautakjöt frá Hálsi var svo grillað um
kvöldið og allir fóru saddir í rúmið.
Úrhelli gerði á laugardagsmorgninum og fram að
hádegi. Skálinn fylltist fljótt af rennvotum
túristum. Kjalar menn gátu ekki beðið lengur og
klæddu sig upp og lögðu af stað út í blinda þoku og
úða. Eftir um hálftíma labb var komin sól og blíða
og þornuðu yfirhafnirnar á okkar mönnum fljótt.
Emstrur blöstu síðan við eftir um 4 tíma labb og
voru göngumenn hæst ánægðir með lang þráða hvíld og
matar stopp. Planið var að gista í Emstrum og ganga
síðustu gönguna frá Emstrum niður í Húsadal á
sunnudeginum, en orkumiklir og útkvíldir göngumenn
þráðu ekkert meira en að ljúka göngunni af og löggðu
því af stað úr Emstrum um 6 leitið. Síðasti áfanginn
var auðveldur og allur niður í móti. Eina jökulá
þurfti að vaða, Þröngá. Léttustu göngumennirnir áttu
fullt í fangi með að halda jafnvægi í straumnum en
fyrir rest komust menn yfir. Nú var farið að rigna
og sigið á nóttina. Aðeins örfáir metrar eftir og
voru menn með sigurglampa í augum þegar bakpokunum
var kastað af og gönguskór afreimaðir eftir langa og
stranga ferð. Gist var í skála í Húsadal. Á
sunnudeginum var svo pakkað saman, tekinn smá rúntur
um Þórsmörkina, komið við í Merkurkerinu á leiðinni
heim og stoppað á Hvolsvelli til að fylla á bíl og
maga.
Góð ferð í alla staði og ljóst að meira af svona
ferðum þarf að fara í.
~ : ~
Þórsmerkurferð með SVD kvenna
og Esjuganga
1.
júlí 2009 - 20:52
Farin var skemmtiferð inn í Þórsmörk ásamt félögum í
Ársæli laugardaginn 27. júní s.l. Alls voru fjórir
bílar í förinni fullir af hressum konum. Í boði var
grill
og gönguferð í nágrenni Bása. Þetta var vel
heppnuð ferð þar sem slakað var á eftir erilsama
Sjómannadagshátíð.
Á myndinni er
hópurinn að virða fyrir sér útsýni
yfir Bása, Krossá og
Þórsmörk. Fleiri myndir eru inn
á myndatenglinum eða
>> hér <<
Á sunnudeginum fóru síðan félagar í Kili í Esjugöngu
í góðu veðri. Gengið var frá Mógilsá á
Þverfellshorn, haldið áfram inn á Esju, um
Kerhólakamb, fram af Kambshorni, um drög Vallárdals,
fram hjá Smáþúfum á Lág-Esju og niður hjá
Blikdal, þar sem farðalangar voru sóttir. Rúmlega
fimm tíma góð gönguferð.
~ : ~
Leitarhundar
29.
júní 2009 - 19:48
Björgunarhundasveit Íslands (BHSÍ)
hélt sumarnámskeið dagana 19. - 21. júní á
Gufuskálum. Tveir félagarnir sveitarinnar Biggi og
hundurinn Breki tóku þátt í því og gekk vel.
Tveir aðrir félagar sveitarinnar, Hólmar ásamt
hundinum Vaski og Nansý ásamt hundinum Hilmi, eru í
félaginu
Leitarhundar SL og voru í vetrarúttekt í
Svarfaðardal og Ólafsfirði dagana 20. - 22. mars
s.l. meðal annars í snjóflóðaleit og komust þeir í C
hóp.
Það er því ljóst að efniviður í hundadeild Kjalar er
í mótun og gaman að sjá hver framvindan verður.
~ : ~
Gönguferðir á Esju
16.
júní 2009 - 20:15
Kjölur býður upp á gönguferð á Esju, laugardaginn 20. júní
n.k. Hugmyndin er að mæta við áhaldahús, fá far að
Blikdalsöxl, ganga þaðan sem leið liggur upp á
Lágesju (rannsaka gamla ökuleið á Esju frá
stríðstímum ;-), um Smáþúfur, Kambshorn, Kerhólakamb
og Þverfellshorn, niður hjá Mógilsá. Þar bíður
bíllinn og ferjar til baka.
Þetta er um 12 km ganga og eitthvað háð veðri hvort
lagt verði af stað.
Upplýsingar gefur Hólmar í síma 822 6300
Laugardaginn 27. júní er síðan hugmyndin að ganga
sömu leið til baka.
~ : ~
Göngur og hlaup um fjöll og fyrnindi
8.
júní 2009 - 22:03
Nýtt utanvegahlaup, 7 tinda hlaupið verður haldið í
fyrsta skipti laugardaginn 13. júní 2009.
Skátafélagið Mosverjar, Björgunarsveitin Kyndill og
Mosfellsbær standa að hlaupinu sem hefst kl 10:00
við Lágafellslaug í Mosfellsbæ. Hlaupið er utanvega
um fjöll, heiðar og dali í bæjarlandi Mosfellsbæjar
og komið aftur í mark við Lágafellslaug. Í boði eru
tvær hlaupaleiðir 37 km og 17 km. Sjá nánar á vefjum
Mosfellinga,
Kyndill og
Mosfellsbær og
Mosverjar
Kjölur ætlar hins vegar að bjóða upp á þriggja þúfna
fyrnindagöngu á Esju laugardaginn 20. júní og 27.
júní.
Sjá nánar síðar hér á síðunni.
~ : ~
Kajakkynning í Klébergslaug
8.
júní 2009 - 21:43
Helgina
13. - 14. júní n.k. býður björgunarsveitin
áhugasömum Kjalnesingum að koma og kynnast
kajakíþróttinni.
Mæting kl. 9 í Klébergslaug
laugardag eða sunnudag með sundföt og handklæði.
Anna s. 6168493
~ : ~
Sporrakninganámskeið
4.
júní 2009 - 20:33

Sporrakningar hafa lítt verið
notaðar í leitum hérlendis, en eru víða um heim
viðurkennd aðferð og mikið heimildarefni til um það.
Helgina 22. - 24. maí s.l. var haldið
sporrakninganámskeið í á vegum Sigurðar Ó.
Sigurðssonar hjá SL. Þar var m.a. farið í
grunnatriðin, búnaður skoðaður, einföld og flókin
spor rakin á mismunandi yfirborði lands.
Sporagildrur voru skoðaðar, gerðar afsteypur af
sporum og lesið í spor við bíl (PLS). Sigðurður
sýndi svo tilraunareit þar sem fylgst er með
aldurshnignun spora, ýmissa ummerkja og rusls.
Þátttakendur voru frá sjö sveitum, á
höfuðborgarsvæðinu auk Selfoss og Hveragerðis. Í
umræðum í lok námskeiðsins kom fram að áhugi er á að
taka þennan þátt leitar til umhugsunar í sveitunum
og æfa markvisst sporrakningar sem viðbót við
leitaraðferðir.
~ : ~
Kjalarnesdagurinn
10.
maí 2009 - 18:10
Kjalarnesdagurinn
var haldinn hátíðlegur laugardaginn 9. maí í
ágætisveðri. Ýmislegt var á dagskránni, frítt var í
sund og leikfimi í íþróttahúsinu á Klébergi,
skrúðganga og fótboltaleikir á battavellinum,
nýbakaðar vöfflur og unglingadeilidin Stormur
grillaði pylsur við Fólkvang. Kjölur bauð upp á
slöngubátsreið og fjórhjólabrun.
~ : ~
Leitarhestar.is
6.
maí 2009 - 18:00
Undirbúningsvinna vegna leitarhesta
hefur staðið yfir á síðustu misserum.
Undirbúningshópur hefur verið stofnaður og er
Björgunarsveitin Brák, Borgarnesi í forsvari fyrir
honum. Komin er heimasíða um verkefnið
LEITARHESTAR.IS Einnig koma að undirbúningi
aðilar úr Björgunarfélagi Akraness, Björgunarfélagi
Árborgar, Björgunarsveitinni Heiðari,
Björgunarsveitinni Kili, Björgunarsveitinni Kyndli,
Björgunarsveitinni Oki og Flugbjörgunarsveitinni á
Hellu. Markmiðið er að kanna notkun hesta til
leitar- og björgunarstarfa. Haldnar hafa verið
æfingar og fundir og nýlega var æfing í Borgarfirði,
sem Kjölur og Brák önnuðust. Skýrslu um æfinguna er
að finna í Skjöl
tenglinum og myndir hægt að finna í
Myndir hnappinum.
~ : ~
Svínainnflúensa
3.
maí 2009 - 17:30
Það hefur varla farið fram hjá
neinum fréttir af svínainnfúensunni sem nú fer um
heiminn. Viðbúnaðarstig hérlendis er enn
"Hættustig". Björgunarsveitir koma við sögu í
viðbúnaðaráætlun landlæknisembættis og má nánar
fræðast um á vef embættisins
LANDLAEKNIR.IS
og
INNFLUENSA.IS
>>Viðbragsáætlun
Almannavarna - Heimsfaraldur innflúensu
~ : ~
Leitartækninámskeið
22.
apríl 2009 - 20:30

Helgina
17. - 19. apríl s.l. fór hópur frá Kili og Stormi á
leitartækninámskeið ásamt Skagamönnum. Námskeiðið
var haldið á vegum björgunarfélags Akraness og var
Kjartan S. Þorsteinsson leiðbeinandi. Fyrsta kvöldið
var þátttakendum dembt beint í alvöru leitaræfingu
innanbæjar, sem rúmaði nánast öll mistök sem
óreyndur leitarmaður getur gert. Laugardag og
sunnudag fór bókleg fræðsla og æfingar fram á
Þórisstöðum í Svínadal. Þar börðu menn m.a. í
brestina sem komu fram í byrjunaræfingunni.
Aðrar myndir eru komar á myndasíðuna.
~ : ~
Aðalfundur Kjalar framundan
10.
apríl 2009 - 09:40
Miðvikudaginn
15. apríl n.k. verður aðalfundur Kjalar haldinn í
Þórnýjarbúð kl 20.
Á
dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf skv. lögum
sveitarinnar:
- fundargerð síðasta aðalfundar
- skýrsla stjórnar
- reikningar lagðir fram
- lagabreytingar
- stjórnarkjör
- kosning skoðunarmanna
- önnur mál
Allir velkomnir
~ : ~
Stormur með vefsíðu
2.
apríl 2009 - 08:37
Unglingadeild sveitarinnar, Stormur
hefur fengið eigin vefsíðu og er tengill á hana
>>http://unglstormur.blogcentral.is/blog/
Von er á fleiri myndum frá Húsafellsferðinni.
~ : ~
Húsafellsferðin góða
24.
mars 2009 - 21:20
Um síðustu helgi, 20.-22. mars, fór
sveitin ásamt unglingadeildinni Stormi í helgarferð
að Húsafelli og nágrenni. Farið var með bæði Kjöl 1
og 2 ásamt fjórhjólinu. Hópurinn samanstóð af sjö
unglingum, fimm eldri og heldri
björgunarsveitarmönnum og einum hundi.
Á föstudeginum voru Hraunfossar og
Barnafoss skoðaðir áður en komið var í náttstað í
Gamla Bæ á Húsafelli. Eitt af fyrstu verkum eftir að
menn voru búnir að koma sér fyrir og skoða glæsileg
húsakynni, var að skella vænri Kjósarsteik á
grillið. Tekin var góð leitaræfing innandyra, þegar
kom að því að finna borðbúnað fyrir tólf manns og
bar sú leit árangur að lokum. Eftir spil og
pottaspjall var farið snemma að sofa enda planið að
leggja í ferð á Langjökul í birtingu, morguninn
eftir.
Formaður sá um ræsingu og voru allir
klárir á hjól og bíla fyrir átta
laugardagsmorguninn. Veðrið var þungbúið og gékk á
með éljum. Snjórinn blautur og víða krapi undir. Svo
fór að festing fyrir drifskaft gaf sig í Kjöl 2 á
leiðinni inn að jökli, svo kippa varð því undan.
Farið var rólega yfir og allar festur nýttar til
hins ýtrasta í
>>myndatökur<<,
mokstur, leik og tækjaæfingar. Brekkur voru
gagnlegar til rennslis á þotum og slöngum.
Ákveðið var að sleppa jöklaferð og
fara ekki lengra en að skálunum, Geitlandsskála eða
Langjökulsbúðum, þar sem Kjölur 2 var bara í
afturhjóladrifinu og ekkert skyggni á jöklinum. Stór
hópur jeppa frá 4x4 renndi framhjá og upp, en kom
fljótlega niður aftur vegna þoku, skafrennings og
élja.
Við nýttum hinsvegar skaflana við
skálana til snjóhúsagerðar og æfinga á tækjum. Lærðu
allir moksturstækni við ýmis skilyrði, gildi góðrar
næringar og hvernig best er að klæðast þegar úrkoma,
vindur og frost fara saman.
Þegar komið var niður í Húsafell
aftur var ákveðið að sleikja sólarglennu í
sundlauginni og síðan var rúllað niður í Reykholt í
heimsókn til björgunarsveitarinnar Ok. Heimamenn
sýndu okkur tækjakost sinn og boðið var upp á
prufuferð í snjóbílnum.
Aftur var grillað um kvöldið þrátt
fyrir mikla snjókomu og potturinn nýttur og menn
lágu á meltunni.
Á sunnudeginum tóku allir saman og
hlaðið í bíla og stefnan tekin á Surtshelli. Slóðin
þangað reyndist illfær sökum aurbleytu og eftir smá
rúnt á svæðinu var blásið til heimferðar. Snemmbúinn
tvífættur farfugl frá Tékklandi fékk að fljóta með
frá Hraunfossum niður á Kjalarnes. Góð helgi endaði
svo á samhentu átaki allra við að þrífa tæki og
ganga frá í húsi.
~ : ~
Árshátíðin
1.
mars 2009 - 09:25
Árshátíð Kjalar verður í Húsafelli 20. mars n.k. Um
er að ræða tveggja nátta ferð og verður farið
föstudaginn 20. mars. Sameiginlegur kvöldmatur fyrir
kjötætur verður föstudag og laugardag. Bílar
sveitarinnar taka 20 manns smekkfullir, svo og húsið
sem pantað er,
Gamli Bær í Húsafelli. Einnig er opið ef fólk
vill fara á sér bíl eða jeppa og þess vegna taka með
sér vélsleða, hjól eða 4hjól.
Stefnt er að því að fara á jökulinn á laugardegi.
Skrá sig sem fyrst hjá Bigga, 866 5960, fyrstur
kemur fyrstur fær.
~ : ~
Í ýmsu að snúast
18.
feb 2009 - 20:25
Kjölur kemur víða við.
Skýrsla um Hálendisvakt björgunarsveitanna 2008 kom
út í dag eins og sjá má í
frétt SL og
frétt á Vísi og Kjalarfélagar oft í mynd !!
Þarft verkefni sjálfboðaliða björgunarsveitanna þar
á ferð og vonandi verður framhald þar á.
Skýrsluna má nálgast hér, nokkrar myndir í henni frá
Kili.

Mynd af mbl.is >> Fleiri myndir og frétt af mbl.is
Enn kemur Kjölur við sögu, nú í
Kærleiksgöngunni á dögunum niðri við Tjörn. Dreift
var og kveikt í kyndlum til ræðumanna, göngu- og
kórfólks. Einn félaganna tók að sér að klifra stiga
og faðma styttuna af Jóni Sigurðssyni og færa honum
Kærleikshjarta úr blómum. Jákvæð stemming og á
bjartsýnum nótum.
Á myndinni mjá sjá Bergljótu Arnalds stjórnanda
Kærleiksatburða kvöldsins og Adam Finnsson við það
tækifæri.
~ : ~
Farartækin reynd í snjó
12.
feb 2009 - 20:48
Vel
hefur viðrað til ferðalaga í snjó undanfarið. Hafa
öll ökutæki sveitarinnar verið oft á ferðinni í þeim
tilgangi að þekkja þau betur í snjóakstri. Nokkrar
ferðir hafa verið í Skálafell og mismunandi dekk
prófuð á fjórhjólið. Hleypt úr dekkjum og spilað úr
festum. Patrolinn, Fordinn og fjórhjólið hafa verið
reyndir í Skálafelli og ein ferð var farið á
Snæfellsnesið á Fordinum.
~ : ~
1-1-2 dagurinn
11.
feb 2009 - 19:00

Í dag var dagur neyðarnúmersins haldinn um allt
land.
Björgunarsveitin Kjölur var af því tilefni með
kynningu á Neyðarlínunni í Klébergsskóla fyrir
1.-10.bekk. Kynningin var í formi glærusýningar þar
sem LEGO karlar og kubbar voru í aðalhlutverki.
Þannig var rakið í fjölbreyttu myndmáli hvernig á að
bregðast við ýmsum aðstæðum...með því að hringja í
1-1-2. Vel tókst til og voru yngstu jafnt sem þau
elstu mjög áhugasöm og miklar umræður mynduðust um
slys, alls konar aðstæður..og LEGO.
Kynninguna má nálgast
>> hér
(PDF).
Einnig bendum við á vefsvæði Neyðarlínunnar en þar
er meðal annars að finna skyndihjálparverkefni,
gátlista og ýmislegt fleira
>> vafraðu hér!
~ : ~
Félagsstarfið og 112 dagurinn
6.
feb 2009 - 20:10

Eftir jólin hefur verið lögð áhersla á fyrstu hjálp.
Skólavalið fór í kynningu á fyrstu hjálp og Stormur
hefur á æfingum komist í kynni við blæðingar, bílslys og útkallsæfingu. Fram undan er 112
dagurinn, 11. febrúar n.k. og mun
fyrstuhjálparbúnaður verða til sýnis í Klébergsskóla
og spjallað við nemendur. Þá er lítil
hópslysaæfing framundan í febrúar og upprifjun á
First Responder.
~ : ~
Gamlar fundagerðir og myndir
13.
jan 2009 - 13:10

Fyrsti áfangi afritunar á fundagerðum
Slysavarnardeildar Kjalarness (SVDK) er komin hér á
síðuna, undir valmöguleikanum Skjöl. Búið er að
afrita fundagerðir frá tímabilinu 1949-1960 og eru
þær í einu skjali. Fleiri fundagerðir koma inn
síðar.
Nokkrar myndir eru einnig komnar inn á myndavef
sveitarinnar. Um er að ræða skannaðar myndir frá
nokkrum eldri félögum sveitarinnar. Vonir standa til
að fleiri myndir komi í leitirnar, og hægt verði að
gera innsettum myndum nánari skil: dagsetningar,
atburðir og staðsetning og auðvitað hverjir eru á
myndunum! Endilega skrifið athugasemdir neðan við
myndirnar.
Þær má skoða >> hér.
~ : ~
Janúarfundur Slysavarnadeildar kvenna í Reykjavík
11.
jan 2009 - 20:30
res.jpg)
Konur í Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík brutust
gegnum myrkrið upp á Kjalarnes og héldu janúarfund
sinn í Þórnýjarbúð. Kynntu þær starfsemi
deildarinnar fyrir áhugasömum og fengu kynningu á
björgunarsveitinni í staðinn. Á fundinum afhentu þær
jafnframt fulltrúum frá HSSR styrk vegna kaupa á
kerru undir tjald þeirra.
Kaffi og gott meðlæti, ásamt léttum leikjum var svo
í boði kvennanna.
Þökkum þeim kærlega fyrir komuna.
~ : ~
Slysavarnadeild kvenna í
Þórnýjarbúð
5.
jan 2009 - 20:30
Núna á
fimmtudaginn 8. janúar
býður
Slysavarnadeild Kvenna í Reykjavík öllum
Kjalarneskonum í
KAFFI í Þórnýjarbúð kl 20.

~ : ~
>>ÞRETTÁNDAFLUGELDAR<<

Frá brennu
og flugeldasýningu á Klébergi
ljósm. Friðrik
Theodórsson
>>Fleiri myndir<<
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
og þökkum
stuðninginn.
~ : ~
Brenna og flugeldasýning
31.
des 2008 - 09:10
Brennan verður eins og áður á Kléberginu og kveikt í
henni kl 20:30 og skömmu seinna
um kl 21 verður Kjölur á svæðinu með flugeldasýningu
i boði OLÍS.

GLEÐILEGT
NÝTT ÁR
og þökkum stuðninginn.
Förum varlega í meðferð flugeldanna,
söfnum skotleifum og umbúðum eftir áramótin og förum
með það í Sorpu.
~ : ~
Flugeldasala
26.
des 2008 - 17:20
Flugeldasala Kjalar hefst á sunnudaginn 28. desember
við Áhaldahúsið við Sorpu.
Opnunartímar er sem hér segir:
sunnudagur 28. desember kl 13 - 22
mánudagur 29.desember kl 13 - 22
þriðjudagur 30 .desember kl 13 - 22
miðvikudagur 31. desember kl 10 - 16
Minnum á að taka gömlu, ónotuðu
Gemsana með ("Svaraðu kallinu" ) og
setja í endurnýtingarkassann hjá okkur í
flugeldasölunni.
~ : ~
Gleðileg Jól
24.
des 2008 - 13:32
.jpg)
Nokkrir
Jólasveinar voru á ferðinni í Grundarhverfi í morgun
og færðu börnum gjafir.
Björgunarsveitin Kjölur óskar Kjalnesingum,
Kjósverjum og öðrum gleðilegra jóla.
~ : ~
Jólasveinaheimsókn
aðfangadagsmorgun
21.
des 2008 - 14:02
Kjölur aðstoðar við að ná sambandi við jólasveina og
fá þá til að koma í heimsókn aðfangadagsmorgun.
Sjá auglýsingu hér >> kv. Anna s
6168493
~ : ~
Heimsókn til Þorbjörns, Grindavík
18.
des 2008 - 20:48
Dagana 13. til 14. des. fóru 6 unglingar úr
unglingadeildinni Stormur og tveir stjórar í
heimsókn til Grindavíkur. Lagt var af stað kl 10
laugardagsmorgun og komið við hjá Kyndli í
Mosfellsbæ og þar slógust í hópinn 12 unglingar frá
Kyndli og tveir stjórar. Þegar komið var til
Grindavíkur var byrjað á því að koma sér fyrir í
fundaraðstöðu þeirra Þorbjarnarmanna. Tekið var til nesti og búnaður
þeirra skoðaður. Heilsað var upp á stóran hóp
unglinga (~25) í Hafbjörgu, unglingadeildin í
Grindavík. Sigið var fram af um 20 m háum
lýsistönkum og farið í bíltúr á Man trukki með
ströndinni og var skipt í tvo hópa. Þá var klifið í
klifurvegg, farið í feluleiki í myrkvuðu húsi.
Grindavíkursveitin eldaði kjúkling fyrir hópinn og
Otti sagði frá sögu sveitarinnar. Þá var frjáls tími
í húsi, næturævintýri með "útkalli" á sínum stað.
Leitað var að einum úr hópnum og ekki sofnað fyrr en
undir morgun. Að lokinni tiltekt var farið í Bláa
lónið í heimleiðinni og Kyndilsmenn kvaddir í Mosó.
Í Þónýjarbúð á Kjalarnesi var að lokum tekið til og
þrifið.
Fín ferð, takk Þorbjörn Grindavík fyrir móttökurnar.
MYNDIR KOMNAR Á MYNDASÍÐU
~ : ~
"Ekkert fikt" í Klébergsskóla
17.
des 2008 - 18:48
Hver kannast ekki við slíkar
fréttir um áramót.
"Þrjú
flugeldaslys í gærkvöld
Drengur slasaðist þegar
púður í heimagerðum flugeld
sprakk. Tveir til viðbótar
hafa slasast vegna flugelda,
annar þeirra vegna þess að
flugeldurinn var gallaður."
8. - 10. bekkir
Klébergsskóla fengu Þórð Bogason og Adam Finnsson í
heimsókn þriðjudaginn
16. desember. Þeir útlistuðu á glærum og og með
kvikmynd að það borgar sig ekki að fikta með flug-
og skotelda. Forvarnarstarfið "Ekkert fikt" hefur
áreiðanlega sitt að segja, ásamt árvökulum augum
foreldra og forráðamanna, til að koma í veg fyrir
slys af orsökum flugelda. Engin alvarleg slys urðu á
áramótum á Kjalarnesinu í fyrra og við skulum stuðla
að því að halda því þannig.
Myndin hér til hliðar, sem er úr fyrirlestri
sýnir hver illa hendi getur farið er skoteldur
springur í hendinni.
Munum að
slysalaus jól og áramót eru best, förum varlega með
kertin og skoteldana.
~ : ~
Sitt lítið um útköll Kjalar síðustu ára
12.
des 2008 - 9:55
Nú
nálgast áramót eina ferðina enn og tilvalið að líta
til baka á tölfræði útkallanna síðustu árin. Nokkur
aukning er í fjölda útkalla það sem af er ári 2008,
29 árið 2006, 26 árið 2007 og 46 árið 2008.

Sé litið á tölfræðina eftir mánuðum sést að desember
sker sig úr með flest útköll. Árið 2008 eru
fleiri úköll skráð á sumarmánuðum en áður.

Sé litið á flokkun útkalla er fjölgun í þeim öllum
nema óveðursútköllum og sérstaklega mikil aukning í
björgunum.
~ : ~
Skáldabúðaheiði
4.
des 2008 - 5:25
Síðdegis
á laugardag 29. nóvember var
hafin leit að
rjúpnaskyttu, sem hafði ekki komið fram til
félaga
sinna á tilsettum
tíma. Svæðið er erfitt til leitar og nefnist
Skáldabúðaheiði í Gnúpverjahreppi. Leitað hefur
verið í fjóra daga og um 100 manns tekið þátt í
henni.
5 félagar frá Kili fóru í leit með bíl og fjórhjól.
Fyrstu nóttina var hvílt í veiðikofa inn á svæðinu í
nokkra tíma og haldið síðan áfram í fyrstu
dagsskímu. Mánudag og þriðjudag var haldið áfram
leit með minni mannskap. Norðan gjóla var með um
-10° stiga frosti.
Stefnt er að frekari leit á morgun föstudag.
~ : ~
Styrkur frá Slysavarnadeild kvenna
Reykjavík
16.
nóv 2008 - 10:45
Konurnar í
Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík héldu
nóvemberfund sinn í Sæbjörginni. Þar afhentu þær
500.000 kr styrk til viðhalds á Econolinebíl
sveitarinnar. Hann þarfnast verluegra viðgerða um
þessar mundir. Einnig sögðu ungmennin í Stormi frá
dvöl sinni á Gufuskálum frá því í sumar sem SVD
kvenna styrktu. Áhugavert erindi var flutt um Gróu
Pétursdóttir fyrrverandi formann
SVD kvenna og
starfsemi deildarinnar kynnt. Kjölur þakkar kærlega
fyrir hlýhug.
Á myndinni afhendir Fríður
Birna formaður SVD kvenna í Reykajvík styrkinn til
Birgis Þórs formanns Kjalar.
~ : ~
Styrkur frá Forvarna- og framfarasjóði
Reykjavíkurborgar
10.
nóv 2008 - 18:05
Kjölur
sótti um styrk til Forvarna- og framfarasjóðs
Reykjavíkurborgar, vegna skólavals sveitarinnar í
unglingadeild Klébergsskóla. Markmið skólavalsins er
að unglingar kynnist sjálfboðaliðastarfi
björgunarsveitarinnar, með áherslu á sérstöðu
heimasvæðis. Markmið Forvarnasjóðsins er að stuðla
að árangri í forvarnastarfi með styrkveitingu og er
styrkurinn veittur tvisvar á ári. Kjölur fékk styrk
að upphæð 200.000,- kr og var hann afhentur formlega
af borgarstjóra með viðhöfn í Höfða 27. október.
Alls fékk 21 aðili styrk.
~ : ~
Skólavali
á haustönn að ljúka
3.
nóv 2008 - 21:36
Í tilefni
þess að skólavali björgunarsveitar í Klébergsskóla á
unglingastigi, er að ljúka næstkomandi mánudag fór
hópurinn í Klifurhúsið. Unglingadeildin Stormur var
einnig með í för og gat kennt hinum eitt og annað.
Síðasti tíminn verður á mánudaginn n.k. og þá verður
farið í heimsókn í björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð.
~ : ~
NEYÐARKALL
31.
okt 2008 - 18:36
Í dag
hrindir Landsbjörg af stað árlegu fjáröflunarátaki
björgunarsveitanna
"NEYÐARKALL frá björgunarsveitum. Félagar
sveitanna ganga í hús og sitja fyrir landanum um
allt land og selja neyðarkalllinn fyrir 1000 kr til
fjáröflunar. Kallinn er vel útbúinn að vanda, í
björgunarvesti, með bjarghring og hangir í
lyklakippuhring. Fyrirtæki geta keypt stærri kall
til að standa á borði, 35 cm, fyrir 35.000 kr.
Þó fórnfúst starf
björgunarsveitarmanna sé í
sjálfboðavinnu kostar rekstur þeirra drjúgan
skilding og vonum við að landsmenn taki vel á móti
sölufólkinu.
~ : ~
BJÖRGUN 2008
19.
okt 2008 - 21:30
Ráðstefnan
Björgun verður sett á föstudaginn, 24.október kl 11
á Grand Hótel og stendur alla helgina. Boðið verður
upp á fjölda góðra fyrirlestra s.s.;
Flutningur slasaðra, lofttæmidýnur
Vettvangsrannsóknir
Jarðskjálftar á Suðurlandi 2008
Leitin á Svínafellsjökli 2007
Björgunarsveitir á hálendinu
Snjóflóðabjörgun
Fyrstu viðbrögð við skipulagningu leitar
Skráning og nánari upplýsingar eru á heimasíðu
Slysavarnafélagsins Landsbjörg
eða smella
hér >>>> <<<<<<<
~ : ~
Jákvæðni, húmor og hlýlegt
viðmót.
16.
okt 2008 - 22:30
Slysavarndeild kvenna í Reykjavík heldur
skemmtikvöld í fjáröflunarskyni, þar sem Edda
Björgvins léttir mönnum lund. Þetta er öllum opið og
verður haldið í Gróubúð, Grandagarði 1, mánudaginn
27. október kl 20:30. Verðið er kr 2.500.
~ : ~
Endurskinsmerkin
eru nauðsynleg
11.
okt 2008 - 9:30
Félagar í Kili dreifðu endurskinsmerkjum í
leikskólanum Berg á Kjalarnesi í vikunni. Hægt var
að velja úr margs konar merkjum og sýndist sitt
hverjum og erfitt að velja. Áður hafði merkjum verið
dreift á Opnu húsi sveitarinnar og SHS og vonir
standa þá til að flestir verði vel upplýstir í
myrkrinu framundan. Á myndinni er María ásamt hluta
hinna hressu krakka á Bergi.

~ : ~
Smölun í Kjós
21.
sept 2008 - 20:40
Kjölur
lagðist á sveif með bændum í Kjós í dag og smalaði
Reynivallahálsinn. Veður var fast í
haustgalsagírnum, hressilegur útsynningur með næstum
því hagléljum og grátt í hærri fjöll. Vel gekk að
smala, fyrir utan nokkrar kindur sem þótti
skemmtilegra að snúa á smalana á endasprettinum og
stinga af í átt að Reynivöllum. Hér til hliðar má
sjá mynd af vöskum hóp smala úr Kili, að verki loknu
í Kjósinni.
~ : ~
Fjallakofinn - sértilboð
20.
sept 2008 - 09:20
Nú
er um að gera að birgja sig upp af vörum, endurnýja
fyrir veturinn, gjafir fyrir jólin
eða bara bæta við draslið og fá sér það það nýjasta
og besta í bransanum.
20 %
staðgreiðsluafsláttur til 31. okt. á öllum vörum,
auk sértilboða.
Merkin ekki af verri endanum; Scarpa, Marmot,
Smartwool, Petzl, Black Diamond o.fl.
WWW.FJALLAKOFINN.IS
~ : ~
Opið hús
17.
sept 2008 - 18:48
All
margir lögðu leið sína í Opið hús í Þórnýjarbúð og
heimsóttu slökkviliðið og björgunarsveitina.
Gestirnir spreyttu sig í hjartahnoði, sprautuðu úr
brunaslöngu, klifruðu upp á kössum og kynntu sér
tæki og sögu viðbragðsaðilanna í máli og myndum. Hægt
var að kaupa sér pulsu og fá sér kaffisopa og
sælgæti í eftirrétt.
Kjölur og SHS þakkar gestunum kærlega fyrir komuna
og stuðninginn.
>>> fleiri
myndir<<<
~ : ~

Opið hús um starfsemi Kjalar og
Slökkviliðsins sunnudaginn 14. september kl 14 -
17 í Þórnýjarbúð.
>>> AUGLÝSING <<<
Í ýmsu að snúast
3.
sept 2008 - 18:28
Kjölur hefur
verið í ýmis konar gæsluverkum upp á síðkastið, eins
og á menningarnótt, við móttöku
handboltalandsliðsins, á fjölskyldusamkomu Norðuráls
og Stuðmannaballi. Framundan er gæsla á Hvammsvíkur
maraþoni kajakræðara.
Einnig
er komið í gang starf unglingadeildar og skólaval
Klébergsskóla.
~ : ~
STORMUR unglingadeild
kynning n.k. föstudag 29. ágúst
sjá auglýsingu hér
~ : ~
Kjölur á Kili, hálendisvakt lokið
16.
ágúst 2008 - 14:32
Hálendisgæslu á Kili
lauk á sunnudaginn 10. ágúst. Alls komu sjö manns að
verkefninu frá Kili og alls voru eknir 2349 km.
Margvísleg og skemmtileg verkefni voru leyst, eins
og kynna starfsemi Landsbjargar og
hálendisgæsluverkefnið, upplýsingar til ferðamanna
og frá ferðamönnum, hvernig farið er yfir vöð á
jökulám og fylgja bílum yfir þau, gera við dekk og
bilaða bíla og taka þreytta göngumenn upp í síðasta
spölinn. Tvö útköll urðu á tímabilinu, vegna
augnslyss í Kerlingafjöllum og vegna bilaðs bíls á
Stórasandi norðan Langjökuls. Skráð var hvernig
fjarskipti á Tetra, VHF og GSM gengu fyrir sig. Þá
var dagbók haldin yfir starfið og er hún birt
>> hér.
Hálendisgæslu Slysavarnafélagsins Landsbörg er skipt
í fjögur svæði, og í ár skiptu 20 sveitir með sér
vöktum á þeim á tímabilinu 27. júní til 10. ágúst.
Föst viðvera er á fjórum stöðum, Hveravöllum,
Landmannalaugum, Dreka og Nýjadal og merktir vinnu-
og íverugámar á hverjum stað.
Verkefnið er vel kynnt, almennt virtust ferðalangar
vita af því og ánægðir með þessa þjónustu.
Félögum í björgunarsveitinni Kjölur líkaði dvölin
vel á Hveravöllum og Kili, áttu gott samstarf við
skálaverði og geta vel hugsað sér til hreyfings á ný
næsta sumar á hálendisvakt.
Myndir á myndasíðu.
~ : ~
Kjölur á Kili, hálendisgæsla
8.
ágúst 2008 - 22:25
Kjölur hefur sinnt
hálendisgæslu á Kili frá því fyrir
verslunarmannahelgi. Verkefnin eru margvísleg, mest
er um aðstoð við ferðalanga vegna þess að farartæki
þeirra hafa lotið í lægra haldi fyrir fjallvegunum
hörðu og holóttu. Gárungarnir tala um tappaorðin
þrjú, troða tappa í dekk, tappa lofti og öl-tappa ??
Vaktaskipti urðu í hópnum að hluta í gær og lýkur
vist sveitarinnar á slóðum
Fjalla-Eyvindar á mánudaginn.
res.jpg)
res.jpg)
Ljósmyndir Maríu Theodórsdóttur og félaga, sýna;
e.t.v. Anna, Hólmar og María á við skálann í
Svínárnesi, e.t.h.
Kiddi, Adam og Hólmar kanna Blönduvað,
niðri, Gámur og Skrámur Björgunarsveitanna á
Hveravöllum.
Fleiri myndir komnar á myndasíðuna.
~ : ~
Fimmvörðuháls
1.
júlí 2008 - 21:52
Félagar úr björgunarsveitinni Kili
og unglingadeildinni Stormi, alls 8 manns, fóru í
æfingaferð um helgina. Helmingur hópsins fór á
föstudegi inn að Skógum og gisti þar. Þau skoðuðu
m.a. sögusafn SL sem er inni á byggða- og
sögusafninu þar á bæ. Á laugardagsmorgun komu hinir
á nýmerktum Pa
trol, Kjölur2, fyrrverandi Reykur3
HSSR. Hópurinn var myndaður í bak og fyrir, með og
án nýja bílsins. Síðan hófu sex
félagar göngu á Fimmvörðuháls á meðan hinir fóru inn
í Þórsmörk til æfinga.
Veður var hið besta og gönguhópurinn tók sér góðan
tíma til myndatöku og virða fyrir sér umhverfið. Smá
snjókoma var efst á leiðinni og voru allir fegnir að
komast í skála Útivistar, þar sem var etið, spjallað
og sofið.
Á sunnudagsmorgun var lagt í hann áleiðis niður í
Goðaland, eftir að allir höfðu dáðst að frumlegri
salernisaðstöðunni í skálanum. Aftur snjóaði efst á
hálsinum en veðrið batnaði með hverju skrefi niður á
við. Með vott af þreytu, en ánægju með gönguna, var
öslað inn í Bása til móts við hina félagana. Restin
af sunnudeginum fór í afslöppun í Básum, draga rútu
upp úr á, hitta leiðbeinendur af Gufuskálum yfir
sykurpúðum inn í Langadal, ná í Econolæninn inn að
Skógum og keyra á Kjalarnesið. Fleiri
>>myndir<<.
Frábær ferð !!
~ : ~
"Nýr" bíll bætist í flotann
1.
júlí 2008 - 21:25
res.jpg)
Í síðustu viku fékk Kjölur afhentan
"nýjan" notaðan Patrol jeppa Reykur 3 frá HSSR. Nú
heitir hann Kjölur 2 og eru bundar vonir við að hann
nýtist vel í aðgerðum sveitarinnar.
~ : ~
Stormur í Útivistarskóla
27.
júní 2008 - 19:40
Dagana
12. - 17. júní s.l. fóru 7 ungmenni í unglingadeild
Kjalar, STORMUR í
Útivistarskóla Landsbjargar á
Gufuskálum. Slysavarnardeild kvenna Reykjavík
styrkti þau til fararinnar og kunna krakkarnir þeim
bestu þakkir fyrir. Létu þau mjög vel af dvölinni og
að sögn alltaf á fullu milli kl 8 og 23. Dagskráin
var æðisleg, fengu leiðsögn við sig, hnýta hnúta,
rústabjörgun, ferðamennsku og rötun, fóru í
gönguferðir, skruppu í kaupstað í sund, horfðu á
Video. Þá var kvöldvaka og keppnir. Alls voru 24
krakkar í hópnum, frá Hellu, Hnífsdal, Ísafirði,
Þingeyri, Seltjarnarnesi, Mofellsbæ og Sandgerði.
Veðrið var gott og kennararnir geðveikt góðir.
Fleiri myndir á myndasíðunni.
~ : ~
Ný flugslysaáætlun
24.
júní 2008 - 21:45
Út
er komin ný flugslysaáætlun fyrir
Keflavíkurflugvöll
og eru menn beðnir við að kynna sér hana hér undir
skjalatenglinum til hliðar.
~ : ~
Hátíð hafsins - Sjómannadagurinn
6.
júní 2008 - 21:45
Síðast liðna helgi tók sveitin þátt
í Hátíð Hafsins í Reykjavík ásamt Björgunarsveit
inni
Ársæli. Tók unglingadeildin Stormur einnig þátt í
dagskránni. Slöngubátur Kjalar sinnti gæslu og
öðrum verkefnum á láði, en þá voru einnig fjórhjól,
kayakar og búnaður til sýnis á Miðbakka. Ársæll
sýndi líka sinn tækjakost og sá auk þess um
kassaklifur og línubrú. Veðrið var hið besta miðað
við hverju spáð var og stöðugur straumur af fólki
við höfnina til að taka þátt í þeirri umfangsmiklu
dagskrá sem í boði var.
>>Fleiri myndir <<
Fjórhjólið vakti gríðarlega lukku,
en kayakar fengu einnig verðskuldaða athygli enda
ekki margar sveitir sem eiga kayaka til að nota í
leit.
Endapunkturinn á hátíðinni var
glæsilegt hlaðborð hjá Slysavarnadeild kvenna í
Gróubúð.
~ : ~
Leitarhestar
2.
júní 2008 - 22:35
17. maí var haldin
leitaræfing í Svignaskarði í Borgarfirði að
frumkvæði bjsv Brák, þar sem fram fór athugun á
notkun hesta til leitar. Kjölur kom einnig að
skipulagi og
úrvinnslu
æfingarinnar. Skoðað var hvernig hóparnir, tveir
hestahópar og einn gönguhópur leystu ýmis verkefni á
leitarsviði. Leitað var að vísbendingum og týndu
fólki á fjórum mismunandi svæðum, kjarri vaxin
klapparholt, mólendi, meðfram árbakka og á
framræstum engjum. Blautar klappir og votlendi
reyndust knöpum og hestum erfið yfirferðar, en í
flestum tilfellum voru hestahópar fljótari að leysa
verkefni. Leitarsvæðin voru ekki stór og má reikna
með að heldur dragi sundur með göngufólki og
hestum þegar leitarsvæði stækkar. Æfingin þótti
heppnast vel og er hugur í mönnum að byggja á
reynslunni sem hún skilaði til frekari æfinga. Nánar
má lesa um æfinguna í
samantekt hér.
Mynd 2.
~ : ~
Kjalarnesdagurinn 2008
18.
maí 2008 - 18:45

Kjalarnesdagurinn var haldinn í gær (laugardaginn 17. maí). Segja má
að tónlistarskólinn hafi blásið til leiks með
lokatónleikum sínu í samkomusal skólans. Skrúðganga
fór frá leiksvæðinu í hverfinu að Fólkvangi. Þar var
hoppikastali og í boði björgunarsveitar;
andlitsmálning, fjórhjólaferðir, slöngubátssiglingar
og grillpulsur til sölu. All nokkur hópur fólks og
barna kom og lét hráslagalegt veður ekki á sig fá.
Á myndinni
má sjá hvar Hólmar formaður (Kjölur pabbi) og
unglingar í Stormi grilla pulsur.
Fleiri
myndir.
Unglingadeild
Kjalar, Stormur, stóð í ströngu og ágóði af sölu
rennur í sjóð þeirra.
~ : ~
Búnaði stolið
9.
maí 2008 - 22:00
Á laugardag (3.
maí) voru björgunarsveitir kallaðar út vegna fólks
sem þurfti aðstoð við að komast niður úr Esjunni.
Einn þeirra sem brást við kallinu var Adam Finnsson
frá Björgunarsveitinni Kjölur á Kjalarnesi. Þegar hann
kom niður úr Esju, eftir vel heppnaða
björgunaraðgerð beið hans óskemmtileg sýn. Búið var
að brjótast inn í bíl hans og stela ýmsum munum,
þ.á.m. sjúkratösku með skyndihjálparbúnaði sem hann
notar í störfum sínum sem "hlaupari" í
björgunarsveitinni. Adam setti sögu sína á blað og
hana má lesa hér fyrir neðan.
"Þann 3 maí síðastliðinn kl. 20:15 fékk
björgunarsveitin Kjölur útkall, þrennt í sjálfheldu
í hlíðum Esjunnar. Sem meðlimur Kjalar brást ég við
kallinu og mætti á vettvang við Blikdalsá á
Kjalarnesi.
Ég lagði bílnum mínum á vigtarplaninu sem
Vegargerðin notar til eftirlits, sunnan Blikdalsár.
Ég læsti bílnum og hljóp upp í björgunarsveitarbíl
sem var í móanum fyrir ofan planið. Ég taldi óhætt
að skilja bílinn eftir á planinu þar til útkallinu
væri lokið.
Staðsetnings fólksins var víst ekki alveg rétt
samkvæmt útboðuninni þannig að björgunaraðgerðir
fóru fram töluvert sunnar en upphaflega til stóð.
Ég, ásamt félaga mínum úr Kili fórum upp á Esjuna á
fjórhjóli og komum að fólkinu ofan frá. Unnum við
svo í sameiningu að því að koma fólkinu niður.
Eftir þessa þriggja tíma aðgerð hélt ég svo aftur að
vigtarplaninu til að ná í bílinn minn. Þegar þangað
var komið var greinilegt að bíllinn var ekki í sama
ástandi og þegar ég skildi við hann þremur tímum
áður. Búið var að brjóta hliðarrúðuna bílstjóramegin
og stela úr bílnum. Greinileg för eru á rúðulistum
eftir verkfæri sem notað hafði verið til að spenna
rúðuna og brjóta. Meðal þess sem stolið var, voru
eyrnatappar, latex hanskar, Nokia 12V síma
hleðslutæki, Canon Powershot A myndavél, stórri
íþróttatösku frá ADIDAS með snyrtidóti og sundfötum,
skjalaveski með rúðustrikuðum blöðum o.fl. og sárast
af öllu tóku þjófarnir sjúkratösku með
skyndihjálparbúnaði.

(Taskan lítur þannig út bara með Kjalarmerki)
Taskan var vel merkt björgunarsveitinni Kili og í
henni var allur helsti skyndihjálparbúnaður sem til
þarf við minniháttar slys og endurlífganir. Þessi
taska er hluti af “hlaupara” búnaði mínum. Vegna
samstarfssamnings við SHS komum við upp 6
einstaklingum með sjúkrabúnað á Kjalarnesinu og svo
ég í Kjósinni. Þessi hópur er kallaður hlauparar,
því þeir koma sér á vettvang, hlaupandi eða á
einkabílum og byrja meðferð á sjúklingi þangað til
björgunarsveitarbíllinn kemur eða sjúkrabíll.
Finnst mér persónulega heldur lágt lagst, þegar vel
merktum búnaði björgunarsveitamanna er stolið.
Einnig var í töskunni gult vesti með endurskini sem
merkt var “Björgunarsveitin Kjölur” á baki og
“Slysavarnarfélagið Landsbjörg” á vinstra brjósti.
Ljóst er að tjón þetta er töluvert og vil ég hér með
lýsa eftir vitnum sem geta lýst öðrum bílum á
vigtarplaninu en rauðri Toyota bifreið. Mér var ekki
skemmt við að koma niður af fjallinu eftir þriggja
tíma björgunaraðgerð, þreyttur og svangur, og finna
bíl minn tjónaðan og eignum mínum stolið. Öll hjálp
er vel þegin í þessum málum."
(Tekið af vef Landsbjargar)
Þess má geta að tæpt ár er síðan búnaði var
stolið úr merktum bát sveitarinnar þar sem hann stóð
fyrir framan verkstæði og einnig hefur
söfnunarbaukum hennar verið stolið.
~ : ~
Aðalfundur bjsv Kjölur
3.
maí 2008 - 17:10
Miðvikudaginn 30. apríl s.l. var
haldinn aðalfundur sveitarinnar í Þórnýjarbúð.
Formaður setti fundinn og talaði um að samstarf við
SHS og endurreist unglingadeild hafi breytt áherslum
í starfi sveitarinnar og er lögð aukin áhersla á
þessa tvo þætti. Á árinu var auk þessa sinnt 26
útköllum, ásamt slysavarnaverkefnum. Fjárhagsleg
staða var góð, tvö ný tæki, fjórhjól og Nissan
Patrol, notaður frá HSSR, voru pöntuð og aukið við
fyrstu hjálpar búnað. Næsta ár er 60 ára afmælisár
sveitarinnar og er stefnt að því að halda upp á það.
Gera þurfti hlé á aðalfundarstörfum til að sinna
einu útkalli á Vesturlandsvegi.
Stjórnin er nánast óbreytt, skipt var um annan
meðstjórnandann og í stjórninni eru;
Hólmar Þór Stefánsson formaður
Birgir Þór Guðbrandsson varaformaður
Sonja Þórsdóttir gjaldkeri
Anna Lyck Filbert ritari
Baldvin Grétarsson meðstjórnandi
María Theodórsdóttir meðstjórnandi
~ : ~
Hópslysaæfing
"Loftbelgur hrapar við Rauðavatn"
25.apríl 2008 - 14:30
Unglingadeildin
STORMUR var ásamt öðrum á hópslysaæfingu sem
Ríkislögreglustjóri og Almannavarnir skipulögðu
fyrir
Lögregluskólann. Verið var að æfa
vettvangsstjórn í hópslysi og unglingadeildir úr
Hafnafirði, Mosfellsbæ og Kjalarnesi léku slasaða í
uppsettu slysi, þar sem loftbelgur með farþega hafði
hrapað til jarðar við Rauðavatn.
Ýmsir árverkar voru settir á svið m.a.;
útistandandi auga, brot á útlimum, hryggáverkar,
slagæðablæðing og fleira. SHS og björgunarsveitir
unnu saman að björgun.
Unglingarnir voru 9 frá Kjalarnesi og þótti mjög
gaman að taka þátt í þessu.
Á myndinni er verið að undirbúa "slasaða" til
flutnings. Fleiri myndir eru á myndasíðunni.
~ : ~
Eldri félagar hittast
10.apríl 2008 -
22:00
Sögurakning sveitarinnar hefur verið langt og
strangt ferli og er ekki lokið enn. Ákveðið hefur
verið að undirbúa afmæli björgunar - og
slysavarnarmála á Kjalarnesi 29.desember árið 2009,
en þá verða 60 ár liðin frá stofnun
Slysavarnardeildar Kjalarneshrepps.

Gengið hefur framar
öllum vonum að leita uppi fyrrverandi félaga
sveitarinnar og þann 9.apríl hittust nokkrir þeirra
á ánægjulegum kvöldfundi í Þórnýjarbúð. Rifjuðu þeir
upp minnistæð atvik í starfi og atburði í sögu
sveitarinnar. Alls mættu níu menn, bæði formenn og
aðrir félagar frá ýmsum tímabilum. Þrír þeirra enn á
félagaskrá. Fyrstu fundargerðarbækurnar, skjöl,
bókhaldsbækur, myndir og úrklippur komu í leitirnar
og er mikill fengur fyrir sveitina að fá þessi
sögubrot í hendurnar. Ákveðið var að koma gömlum
myndum á stafrænt form og verður tilkynnt þegar
þeirri vinnu er lokið.
Eiga þeir Andrés
Svavarsson, Axel Sigurðsson, Árni Snorrason, Eggert
Ólafsson, Gunnar L. Gíslason, Sigurgeir Bjarnason,
Sveinn E. Magnússon og Þór J. Gunnarsson þakkir
skildar fyrir innlitið, ásamt öllum öðrum sem hafa
aðstoðað við að púsla saman sögubrotum sveitarinnar.
Þeir sem luma á
minningum tengdum Björgunarsveitinni á Kjalarnesi
eru hvattir til að senda bréf, hvenær sem er,
á tölvupóstfangið: bjorgunarsveit (hjá) simnet.is
eða í pósti á: María Theodórsdóttir, Esjugrund 35,
116 Kjalarnesi
~ : ~
Aðalfundur bjsv Kjölur
30.
mars 2008 - 17:10
Miðvikudaginn 30. apríl n.k. verður aðalfundur haldinn
í Þórnýjarbúð kl 20.
Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf
skv.
lögum sveitarinnar s.s.
Fundargerð síðasta aðalfundar
Skýrsla stjórnar
Reikningar lagðir fram
Lagabreytingar
Stjórnarkjör
Kosning skoðunarmanna
Önnur mál
~ : ~
Unglingadeildin STORMUR
16.
mars 2008 - 17:35
Nýtt líf
hefur færst í unglingadeild björgunarsveitarinnar.
Hún heitir STORMUR og hefur haldið fundi, æfingar og
fræðslukvöld undanfarið, undir styrkri leiðsögn
Adams og Hólmars. Hittast þau á föstudagskvöldum í
Þórnýjarbúð, tekið á hópefli, fræðst um fjarskipti,
kort og áttavita og haft ofkælingarkvöld (sjá myndir
og myndband á
myndasíðu sveitarinnar) og safnað dósum til
kaupa á flíspeysum.
Hópurinn, um 10 krakkar, eru duglegir að mæta og á
dagskrá þeirra er m.a. ferðalag með vorinu.
~ : ~
SL gefur leikskólanum spil
15.
mars 2008 - 09:25
Á mánudaginn afhenti
Kjölur fyrir hönd Slysavarnafélagsins Landsbjörg
leikskólanum Berg á Kjalarnesi spilið Núma sem SL
hefur verið að gefa í skóla að undanförnu.
~ : ~
Styrkur frá Baugi Group
28.
feb 2008 - 21:25
Nýlega veitti Baugur
Group björgunarsveitinni styrk að upphæð kr 143.400
til kaupa á fyrstuhjálpar töskum. Styrkurinn var
afhentur við hátíðlega athöfn 6. febrúar, þar sem
samtals 46 aðilum voru veittir styrkir, en tæplega
350 umsóknir bárust styrktarsjóðnum.
~ : ~
112 dagurinn,
skyndihjálparmenn ársins 2007
12.
feb 2008 - 21:05
Hinn
árlegi 112 dagur var haldinn 11. febrúar og m.a
veitti Rauði kross Íslands
feðgunum Sveinbirni
Grétarssyni og Tómasi Sigurbjörnssyni frá
Kjalarnesi, viðurkenningu sem Skyndihjálparmenn
ársins 2007. Þeir björguðu lífi eiginkonu sinnar og
móður, Guðrúnar Hauksdóttur.
>> Sjá frétt á Ísland í dag>> Sveinbjörn hóf
endurlífgun, hringdi á Neyðarlínuna og sendi Tómas 6
ára son sinn til að sækja hjálp til nágranna síns
Þórðar Bogasonar. Þórður er slökkviliðsmaður
til margra ára og í bj
örgunarsveitinni
Kjölur.
Mynd af fjölskyldunni (mbl.is).
Þórður lét Kjöl vita
þar sem nokkrir félagar voru á fundi upp í
Þórnýjarbúð og komu þeir strax á staðinn með
súrefni. Dæmi um það hversu mikilvægt það er að
kunna fyrstu hjálp og nærvera björgunarsveitar með
búnað skiptir sköpum á Kjalarnesi þar sem
viðbragðstími neyðarbíls er ekki sá sami og annars
staðar á höfuðborgarsvæðinu.
Á myndinni má sjá Þórð Bogason (í hvíta vestinu)
ásamt sjúkrahópi björgunarsveitarinnar.
~ : ~
Kjölur eignast nýtt björgunartæki
8.
feb 2008 - 20:22
Kjölur 10
kominn í hús,
tveggja manna götuskráð fjórhjól af gerðinni Can-Am
Outlander 800cc.
Aukabúnaður
á hjólinu er:
Aukarafgeymir, vhf-talstöð, gps, intercom, xenon
leitarljós, bláljós, spil, álkall, skófla,
sjúkrabúnaður, lágmarks klifurbúnaður og línur.
Mun sveitin ætla að þetta sé öflugt tæki til leitar
eða björgunar á hálendi og eða innanbæjar.
Á meðfylgjandi mynd er Þorbjörn í MótorMax að
afhenda lykla af Kjöl 10 til Birgirs Þórs
(varaformanns Kjalar) og Adams B.
~ : ~
Æfing með TF-EIR
1.
feb 2008 - 20:14
Laugardaginn
19. janúar bauðst mönnum úr bátaflokki sveitarinnar,
ásamt HSSK að koma á æfingu björgunarskips Ársæls,
Ásgríms og þyrluáhafnar TF-EIR. Verið var að þjálfa
nýja menn í þyrluáhöfn. Sigið var niður úr þyrlu og
mönnum bjargað úr sjó og úr björgunarbáti. Maður og
sjúkraskel voru látin síga niður á dekk
björgunarskipsins og híft upp aftur. Æft var á
svæðinu austur og suður af Engey. Veður var
kalsalegt og gekk á með éljum, en æfingin slapp
milli élja og mannskapurinn hinn hressasti. Fleiri
myndir eru á
>> myndakrækju <<
~ : ~
Ert þú á aldrinum 14 til 20 ára ?
Langar þig til að taka þátt í björgunarstarfi ?
Láttu sjá þig og komdu á kynningarfund
föstudaginn 25. janúar kl 20:00 í Þórnýjarbúð -
Áhaldahús hjá SORPU Kjalarnesi
17.
jan 2008 - 21:32
Björgunarsveit skólaval fer að hefjast
13.
jan 2008 - 22:04
Eins og
áður býður Klébergsskóli í samvinnu við Kjöl
upp á skólavalið björgunarsveit og birtist
dagskráin
hér í krækju. Einnig verður auglýst á
töflunni á Á DÖFINNI hér vinstra megin á
síðunni.
~ : ~
SHS og Kjölur á hnútanámskeiði
12.
jan 2008 - 22:17
res.jpg)
SHS
gekkst fyrir hnútanámskeiði í húsnæði
áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi. Nokkrir
SHS- og Kjalarfélagar fóru yfir vel valda
hnúta undir leiðsögn og meðhöndlun lína og
banda. Þá var tekið á tryggingum með böndum
og Doblanir í hífingum á þungum hlutum. Á
myndinni er hópurinn, en kennarinn Ólafur
Ingi Grettirsson tók myndina. Fleiri myndir
eru á
myndatengli
~ : ~
Á Kjölur 60 ára afmæli
á næsta ári ?
9.
jan 2008 - 22:43
Góðar
líkur eru á því að Kjölur eigi 60 ára afmæli
á næsta ári. Það er því tilhlýðilegt í
aðdraganda þess að rifja upp eitthvað frekar
af sögu félagsins. Þeir sem kynnu að luma á
sögum og upplýsingum er snerta
björgunarsveitina t.d. upphafsár hennar, er bent
á að gefa sig fram og hafa samband við Maríu
Th. s:8994069 eða með tölvupósti á
bjorgunarsveit@simnet.is.
~ : ~
Flugeldasýning um áramót
og flugeldasala á Þrettánda
3.
jan 2008 - 21:23
Flugeldasýningin á nýárskvöld
tókst vel og
aðstæður voru hinar ágætu
stu. Brennan var
hin veglegesta og slangur af fólki var mætt
á staðinn með blys og stjörnuljós.
Undirbúningur flugeldasýnigar sem þessarar
er töluverður og þrír nýir sveitarmenn hafa
tekið skotstjóranámskeið, sem léttir
vinnuna. Fleiri myndir eru á
myndasíðunni.
Klárum flugeldalagerinn á Þrettándasölunni
við
áhaldahúsið (Sorpu) og höfum
opið:
laugardag 5. janúar kl. 13 –
21 og
sunnudag 6. janúar kl. 13 –
18
~ : ~
2008
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
1.
jan 2008 - 14:03
Bestu óskir til
Kjalnesinga og Kjósverja um gleðilegt nýtt ár og
þökkum stuðninginn á gamla árinu sem var að líða.
Flugeldasalan gekk vel, þrátt fyrir annríki vegna
útkalla sem komu á sama tíma.
Í kvöld, nýársdag, verður brenna og flugeldasýning á
Klébergi kl 18:00.
.jpg)
Eins og
áður sagði hefur gengið yfir hrina útkalla hefur
verið undanfarnar vikur vegna tíðra heimsókna
óveðurslægða. 10 útköll eru skráð hjá sveitinni í
desember 2007, en 7 voru skráð árið 2006. Á myndinni
hér að ofan eru björgunar- og slökkviliðsmenn af
Kjalarnesi, Baldvin, Friðrik og Adam að stumra yfir
dælu í verkefni í Lækjarsmára Kópavogi 30. des.
Nánar má skoða útköll ársins undir hnappinum Útköll
hér til vinstri.
~ : ~