Í þá gömlu góðu daga 2007  :

 

H E I M

Dagskrá

Um sveitina

Stjórnin

Félagar

Myndir

Tæki

Unglingastarf

Krækjur

Fyrir almenning

Eldri fréttir 2004-2006

 

 

  FLUGELDASALAN
27
. des 2007 - 18:13

Opnunartímar:

föstudagur 28. desember kl 13 - 22
laugardagur 29. desember kl 13 - 22
sunnudagur 30. desember kl 10 - 22
mánudagur 31. desember kl 10 - 16


Kjölur óskar Kjalnesingum og Kjósverjum gleðilegra jóla og minnir á hina árlegu flugeldasölu við Þórnýjarbúð, áhaldahúsið,rétt hjá Sorpu,

EN MINNIR Á .....   .

  Ekkert fikt . .  !!

~ : ~

Jólasveinar á ferli
24
. desember 2007 - 14:57

Kertasníkir, síðasti jólasveinn til byggða, félagar hans, Stekkjastaur og Stúfur voru á ferli í Grundarhverfi í morgun í snjókomu og slyddu. Þar sem sleðafærið var í slappara lagi hertóku þeir bíl sveitarinnar og settu slatta af pökkum um borð. Heimsóttu þeir og börðu utan rúmlega 30 heimili í hverfinu og fengu góðar móttökur.

 

 

 

 

 
Gleðileg Jól

~ : ~
 

Nýr fyrstuhjálparbúnaður
20
. desember 2007 - 21:03

Nýlega styrkti Kvenfélag Kjósarhrepps, hreppsnefnd Kjósarhrepps og Spölur ehf sveitina vegna kaupa á fyrstuhjálparbúnaði. Sveitin keypti að viðbættu eigin framlagi, fimm töskur og vesti fyrir stjórnanda, ásamt hjartastuðtæki. Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins útvegaði allan einnota búnað í töskurnar og bakpoka fyrir hjartastuðtækið. Töskurnar verða staðsettar hjá "hlaupurum", sem í útkalli geta farið beint á staðinn og hafið meðferð uns frekari aðstoð berst. Bílstjórar sjá síðan um að koma björgunarsveitarbílnum á staðinn, en í honum er allur annar fyrstuhjálparbúnaður, meðal annars hjartastuðtæki og súrefni. Með þessu móti er viðbragðstími styttur verulega á svæðinu. Nú þegar hefur í tveimur útköllum reynt á þetta fyrirkomulag og töskurnar nýju.

Á myndinni er hluti sveitarinnar, "hlauparar" og bílstjórar með nýja búnaðinn.

Bestu þakkir til styrktaraðila.
~ : ~


Krakkar mínir komið þið sæl ..  ! !
16
. desember 2007 - 15:45

Eins og undanfarin ár hefur Kjölur aðstoðað jólasveina að koma pökkum í heimahús í Grundarhverfi og næsta nágrenni á Kjalarnesi á aðfangadag.  Nánar um það í auglýsingu hér fylgjandi.

~ : ~

Óveðursútköll
16
. desember 2007 - 15:16

Óvanalega stormasamt hefur verið síðustu viku og mikið um útköll vegna þess. Mörg hundruð björgunarsveitarmenn hafa verið við störf undanfarna daga og bjsv Kjölur var ítrekað  kölluð út til aðstoðar til að hefta fok lausamuna og koma í veg fyrir tjón vegna þessa.  Meðal annars var farið í að festa niður þakplötur á einni álmu í Arnholti og einnig var farið í verkefni í Mosfellsbæ og Reykjavík. Eitt af því sem varð að gefa sig í veðurofsanum var nýtt og veglegt skilti OLÍS hjá Esjuskála í Grundarhverfi. Það var eins og skorið hefði verið á undirstöðu þess, sem er svert stálrör, með beittum hníf. Fleiri myndir eru á myndatenglinum.


~ : ~

Hvað er á seyði  ! !
2
. desember 2007 - 10:30

Undanfarið hefur verið unnið í endurbótum á fjarskipta- og siglingabúnaði (GPS) á bát sveitarinnar. Fram undan er fundur sjóflokks í Kópavogi.

Búið er að panta fjórhjól af gerðinni Can Am Outlander Max GT. Verið er að  setja búnað á hjólið hjá Motor Max og ætti það að vera tilbúið fljótlega eftir áramót. Vonir eru bundnar við að hjólið nýtist helst í útköll og til leitar þar sem erfitt er að  komast að, ferja fólk og búnað um vegleysur.

Þá er sveitin að gera sig klára til að aðstoða jólasveina í Grundarhverfi á aðfangadag, undirbúning flugeldasölu og flugeldafræðslu í Klébergsskóla til að fyrirbyggja slys við meðferð flugelda um áramótin.
- - -
Svo virðist sem síðasta hvassviðri hafi slegið út vindhraðamælingum veðurstöðvarinnar á Skrauthólum.
 
~ : ~
 
Hvassviðri

26
. nóvember 2007 - 21:42

Í gærkvöldi, nótt og fram að hádegi í dag var býsna hvasst á norðanverðu Kjalarnesinu. Mjög hvasst var einnig undir Hafnarfjalli. Ástæða þótti til að kalla björgunarsveitina út, vegfarendum á Vesturlandsvegi til halds og trausts. Það er alltaf einn og einn bjartsýnismaður á ferð, með kerru eða vagn í eftirdragi, þó ágætar símælandi veðurstöðvar gefi til kynna á ljósaskiltum að vindhraðinn í hviðum sé slíkur að best sé að halda sig heima. Í gærkvöldi var hvass austanvindur um 18 m/sek jafnaðarvindur með hviður 26 m/sek á Esjubergi. Á Skrauthólum varr enn hvassara um 24 m/sek með stormhviður um 33 m/sek og um 2 - 3 km vestar, enn hvassara, ofan við Grundarhverfi, niður af Blikdal, við suðurenda Hvalfjarðarganga, svo ekki sé talað um í Tíðaskarði á leið inn í Kjós. Við Hafnarfjall fóru hviður yfir 50 m/sek. Kjölur aðstoðaði vegfaranda við að festa palllok og kerra fauk út fyrir veg. Við þessar aðstæður er ekki ráðlegt að vera á ferðinni, sérstaklega ekki með kerrur eða vagna í eftirdragi. Veðrið gekk niður á hádegi í dag og í kvöld var LOGN ;-)

~ : ~

Reykjavíkurhöfn 90 ára
Faxaflóahafnir styrkja björgunarsveitir

18
. nóvember 2007 - 19:57

16. nóvember tilkynnti stjórn Faxaflóahafna í tilefni 90 ára afmælis Reykjavíkurhafnar að hún ætlaði að styrkja fjórar björgunarsveitir, Ársæl Reykjavík, Kjöl Kjalarnesi, Brák Borgarnesi og björgunarfélag Akraness, um 500.000 kr hver sveit.
Hólmar formaður Kjalar að sjálfsögðu mættur, ásamt fulltrúum hinna björgunarsveitanna (sjá mynd hér til hliðar af vef Faxaflóahafna) veittu styrkjunum móttöku í hófi sem haldið var í Viðey á föstudagskvöldið. 


Björgunarsveitin Kjölur þakkar Faxaflóahöfnum kærlega fyrir stuðninginn.


~ : ~

"
NEYÐARKALL " frá björgunarsveitum
3
. nóvember 2007 - 09:37

Um helgina er fjáröflun Slysavarnarfélagsins Landsbjörg um land allt, "Neyðarkall frá björgunarsveitum".  Þrátt fyrir að starf sveitanna sé sjálfboðaliðastarf, kostar rekstur þeirra og búnaður sitt. Bjsv. Kjölur hyggst nýta sinn hlut í söfnunarfé "Neyðarkallsins" til endurmenntunar félaga sinna í björgunarskólanum og til búnaðarkaupa fyrir sveitina.

~ : ~

Hjartastuðtæki til björgunarsveitarinnar

20. október 2007 - 16:55

LP1000 hjartastuðtæki hefur verið sett í alla dælubíla SHS á höfuðborgarsvæðinu og eitt tæki er staðsett á Kjalarnesi, þar sem björgunarsveitin Kjölur er hluti af viðbragðsáætlun SHS. Þessi tæki eru frá sama framleiðanda og stuðtækin sem eru í sjúkrabifreiðum.
Nokkrir félagar Kjalar hafa fengið þjálfun á tækið, sem er frekar einfalt í notkun. Um leið var farið í upprifjun á endurlífgun. Því fyrr sem hægt er að koma við hjartastuði ásamt hnoði og öndunaraðstoð aukast lífslíkur umtalsvert.  Þá má geta þess hér að hjartastuðtæki er einnig staðsett í íþróttamiðstöðinni á Klébergi Kjalarnesi.
Á myndinni hér að ofan afhendir leiðbeinandinn Sveinbjörn Berentsson SHS, Hólmari Stefánssyni formanni Kjalar hjartastuðtækið. Nokkrar myndir frá námskeiðinu eru >> hér.


~ : ~

Kjölur bátur óskar aðstoðar á Hofsvíkinni

17
. október 2007 - 20:20

Í gærkvöldi um kl 20 voru þrír félagar í björgunarsveitinni Kjölur að æfa sig á slöngubát sveitarinnar, eins og svo oft áður, á sjónum skammt undan landi við Grundarhverfi á Kjalarnesi. Einn félaganna tók að sér hlutverk manns í sjónum sem átti að finna og "bjarga" um borð. Allir voru vel búnir í flotgöllum og með viðeigandi búnað. Ekki tókst betur til en svo að maðurinn fannst ekki í myrkrinu þrátt fyrir blikkljós á galla. Strekkingsvindur var af landi, dálítil alda og kalt. Eftir að hafa svipast um í um 10 - 15 mínútur var ákveðið að óskað eftir aðstoð úr landi frá Kili og fóru menn á bíl út Nesvík til leitar. Skömmu seinna var ákveðið að óska frekari aðstoðar. Björgunarbátur og þyrla komu fljótt á staðinn og þyrla fann manninn nánast strax á kletti skammt frá landi, en þangað hafði hann synt móti vindi og straumi þegar hann sá að bátsfélagar hans misstu sjónar af honum. Á skerinu gat hann náð í GSM síma innan flotgallans og gert vart við sig til bátsins sem sótti hann í sama mund og þyrlan fann hann. Hann var orðinn nokkuð þreyttur og orðið kalt þar sem hann þurfti nánast að fara úr gallanum á klettinum til að ná til GSM símans, en að öðru leyti heill á húfi. Víst er að af þessu atviki má ýmsan lærdóm draga, en allt fer í reynslubankann sem nauðsynlegur er til að björgunarsveitirnar geti tekist á við krefjandi verkefni fyrirvaralaust þegar kallið kemur.
Björgunarsveitin Kjölur kann öllum bestu þakkir fyrir aðstoðina.
~ : ~

Fyrsta hjálp

11
. október 2007 - 21:56

Í gærkvöldi var fyrstu hjálpar æfing í Þórnýjarbúð. Þar voru sett upp nokkur tilvik þar sem reyndi meðal annars á greiningu, notkun bakbrettis, hálskraga og Kedvestis. Sex félagar í Kyndli Mosfellsbæ komu í heimsókn og æfðu með. Segja má að tilvikin hafi átt sér að hluta nýlegar stoðir í raunveruleika Kjalarfélaga og kryddað með hugmyndaflugi viðstaddra. Ánægjuleg kvöldstund, menn spjölluðu og kynntust starfi nágrannasveita. Fyrirhugað er að endurtaka slík samstarfskvöld.
 
Á myndinni sjást björgunarsveitarmenn samstilltir taka mann út úr bíl, bæði í Kedvesti og reyrðan á bakbretti. Fleiri myndir >>> HÉR >>.

~ : ~

Tetranámskeið

6
. október 2007 - 18:16

Björgunarskólinn hélt í vikunni Tetranámskeið í Mosfellsbæ, þar sem stór hópur frá Kyndli og nokkrir frá Kili mættu. Námskeiðið er nýtt og enn í vinnslu, enda er SL nýlega orðinn notandi að Tetrafjarskiptakerfinu. Kennari var Daníel Eyþór og fór hann í gegnum alla grunnþætti Tetratalstöðvarinnar, uppsetningu kerfisins, skipulag talhópa, hina ýmsu möguleika á samskiptum, innan og utan kerfisins, flýtival og virkni takkaborðsins. Enginn slysaðist til að virkja neyðarhnappinn, en hin ýmsu hnappahljóð og takkaóðir nemar reyndu verulega á þolrif kennarans.

~ : ~

Bátakynning 8. - 10. bekkja Klébergsskóla
25
. september 2007 - 22:13

Nokkrir nemendur  8.  - 10. bekkja Klébergsskóla sýndu úr hverju þeir eru gerðir á bátakynningu þegar þeir fóru í smáferð á slöngubát Kjalar á Hofsvíkinni. Skítakuldi var og strekkingsvindur og myrkur þar á ofan. Sum fóru í flotgöllunum í sjóinn og þar var jafnvel hlýrra en uppi í slöngubátnum. Í ljós kom að einn gallinn lak og reyndi þá á hvernig menn voru klæddir, t.d ekki í gallabuxum og bómullarbol, eins og segir í fræðsluefninu um ofkælingu. Að lokum hituðu þau sér með kakósopa í Þórnýjarbúð og ræddu um ofkælingu og loppna fingur.

~ : ~

Smalað í Kjós
1
6. september 2007 - 9:13

Laugardaginn 15. september fóru nokkrir félagar í sveitinni og aðstoðuðu við smölun á Reynivallahálsi í Kjós.  Smalað var frá Staupasteini eða Steðja út með hlíðum, fyrir Reynivallaháls og inn hlíðar ofan Laxár og Neðri Háls að Valdastöðum. Menn voru líka sendir upp á hálsinn og smöluðu ofan frá og niður. Ýmis tæki, tól, hundar og börn voru notuð til verksins, en líklega voru það tveir jafnfljótir og göngustafir sem dugðu best. Ganglimir voru þó farnir að lýjast nokkuð hjá sumum í restina.  Mótorhjól og hundar áttu þó nokkra þokkalega spretti inn á milli.  Veður var svalt og blautt, en nokkuð vel þótti takast til við smölunina.


~ : ~


Endurskinsmerki
1
3. september 2007 - 22:11

Félagar í sveitinni dreifðu nýjum endurskinsmerkjum slysavarnasviðs Slysavarnafélagsins Landsbjörg í öllum bekkjum Klébergsskóla. Endurskinsmerkin þóttu mjög "töff" og oft tók langan tíma að velja rétta merkið. Kennarar og aðrir starfsmenn voru mjög hrifin af merkjunum og fengu þau líka að velja sér eitt. Öll endurskinsmerkin kláruðust.

         


~ : ~


Skemmdarverk - áhrif á útköll
1
. september 2007 - 20:11

Talsvert hefur borið á eignatjóni björgunarsveita vegna innbrota og skemmdarverka. Ekki er hægt að segja hvort um er að ræða vaxandi virðingarleysi eða gjörðir af völdum einhverrar neyslu sem veldur en eitt er víst að áhrifin geta verið talsverð fyrir sveitirnar og þar af leiðandi einnig fyrir almenning. Það að hnupla búnaði ætluðum til björgunarstarfa eða valda skemmdum á honum orsakar verulegar tafir eða jafnvel það að sveit sé óútkallshæf þegar einhver þarf á aðstoð að halda!

Almenningur þarf að gera sér betur grein fyrir því hvað felst í starfi Slysavarnafélagsins Landsbjörg (SL). Innan samtakanna er kappkostað við að halda uppi öflugum tækjakosti, markvissu þjálfunar- og fræðslustarfi til að tryggja skjót og fagleg viðbrögð við vá.

Vitnað í Þórgunni Oddsdóttur (Fréttablaðið 27.ágúst 2007)
„ ..Íslensku björgunarsveitirnar eru íslenski herinn. .. Við veitum þessum her okkar enga sérstaka athygli. Meðan aðrar þjóðir steypa í brons myndir af hershöfðingjum sínum þekkja Íslendingar enga björgunarmenn með nafni. Íslensku hermennirnir vilja ekki frægð og upphefð en þeim veitti ekki af nokkrum milljónum. ”

Allur ágóði af fjáröflun eininga innan SL fer í viðhald búnaðar, rekstur tækja og annarra þátta til að geta boðið upp á sem öflugasta neyðarþjónustu. Kostnaður slíks reksturs er mikill, svo ekki sé talað um allar þær ólaunuðu vinnustundir sem menn leggja fram.

Siðlaus skemmdarverk nýlega unnin á björgunarskipi í Sandgerðishöfn skapaði óþarfa töf á björgunaraðstoð ef hana hefði vantað. Fé og tími sem fór í hreinsun á koppafeiti og dufti úr slökkvitækjum hefði mátt nýta í verðugri verkefni.

Við í björgunarsveitinni Kili höfum einnig orðið fyrir barðinu á einstaklingum sem ekki bera virðingu fyrir okkar starfi. Ýmsum búnaði var í sumar stolið úr nýjum bát sveitarinnar þar sem hann stóð utan við verkstæði. Í síðustu viku var brotist inn í Esjuskála og meðal þess sem þjófar höfðu á brott voru merktir söfnunarbaukar sveitarinnar. Þó stuldurinn komi ekki til með að hafa áhrif á útkallshæfni sveitarinnar og tæplega fjárhaginn heldur, svíður okkur undan skeytingaleysinu. Baukarnir voru þar að auki hannaðir og smíðaðir af sveitarmeðlimi.

Virðið okkur svo við getum bjargað ykkur!

~ : ~

Skólaval unglingadeildar
27
. ágúst 2007 - 21:30

Eins og áður er samstarf milli Kjalar og Klébergsskóla í skólavali um björgunarsveitarstörf og ferðamennsku. Ný dagskrá skólavals unglingadeildar veturinn 2007 - 2008 í Klébergsskóla birtist >>hér (pdf skjal)<<.
Dagskráin verður uppfærð ef þörf er á og birt jafnóðum Á DÖFINNI hér á síðunni.

~ : ~


Leit í Skaftafelli
25
. ágúst 2007 - 10:15

Leit stendur nú yfir að tveimur þýskum ferðamönnum í fjalllendi og jöklum við Skaftafell í Öræfum. Um eitt hundrað leitarmenn verða við störf um helgina. Meðal þeirra eru þrír menn frá björgunarsveitinni Kili, tveir fjallamenn og einn bílstjóri. >> myndir hér <<  Meðal annars verður fínleitað á svæðum sem áður hefur verið leitað á. Leit hefur staðið yfir frá því á þriðjudag og tjöld þjóðverjanna fundust við Svínafellsjökul, sem leiddi til þess að hægt var að þrengja leitarsvæðið. Um helgina verður aukinn þungi í leitinni, meiri mannskapur, þyrlur og hundar leggjast á eitt við að finna mennina. Svæðið er erfitt yfirferðar og þegar hefur einn björgunarsveitarmaður slasast við störf.

~ : ~

ÚTIVERA
2
. ágúst 2007 - 9:15

 

,,Tímaritið Útivera býður félögum Björgunarsveitarinnar Kjalar sumar og ferðatilboð sem fáir fást staðist;

Fyrstu 3 tölublöðin með 50% afslætti eða 422 krónur hvert tölublað
Hvert tölublað eftir það með um 35% afslætti eða 555 krónur hvert tölublað
Bókin Skyndihjálp á ferðinni fylgir frítt með, skyldueign hvers björgunarsveitarmanns

Smelltu þér á tilboðið núna með því að skrá þig á áskriftarsíðu Útiveru, http://www.fjolvi.is/index.php?option=com_content&task=view&id=29&Itemid=50&timarit=2
Munið að skrá í athugasemdareit að þú sért félagi í Kili.

 Göngu-,jeppa- og kajakferðir eru aðeins lítill hluti þess sem fjallað er um í tímaritinu Útiveru. Búnaðarprófanir, leiðar- og svæðislýsingar, fræðsluefni og fréttir og fróðleikur úr heimi útivistarinnar sem sífellt fleiri líta á sem aðskiljanlegan hluta lífsins. Þú getur lesið þér nánar til um efni Útiveru hér http://utivera.is/tolublod/

  ~ : ~

Styrkir
28
. júlí 2007 - 10:00

Nýlega afhentu Vátryggingafélag Íslands og Orkuveita Reykjavíkur styrki til rekstrar sveitarinnar. Styrkur VÍS er 250.000 kr og styrkur Orkuveitunnar er 500.000 kr. Einnig styrkti Slysavarnafélagið Landsbjörg bátakaup Kjalar um 600.000 kr.
Bjsv Kjölur þakkar fyrir veittan stuðning og styrkirnir koma að góðum notum.

 
 ~ : ~

Sigling á slöngubát
30
. júní 2007 - 22:30

Einstaklega gott veður hefur verið til útivistar undanfarið. Dagurinn í dag var tekinn snemma og farið í siglingu á slöngubátnum um spegilsléttan sjóinn um sundin blá. Leiðin lá í Snarfarahöfn og farið í land í Akurey, Engey og Viðey, skoðuðum skemmtiferðaskipið Grand Princess, skútur og Reykjavíkurhöfn. Aðalerindið var samt öryggisgæsla vegna brautarkeppni sportbáta sem fram fór eftir hádegið. Keppnin var á vegum Snarfara og R.Sigmundssonar og fór fram í Rauðarárvík, við ströndina hjá Sæbraut.  Um 10 bátar kepptu eftir fyrirfram ákveðinni braut í nokkrum flokkum, alltaf  tveir í brautinni í einu. Allt gekk áfallalaust fyrir sig, en fleiri björgunarsveitir hefðu mátt mæta til að sinna öryggisgæslunni, en auk okkar voru menn frá Ársæli, SHS og lögreglu. Fleiri myndir eru á myndatenglinum.
  ~ : ~

Umferðarátak
27
. júní 2007 - 22:30

Síðastliðin tvö ár hafa Umferðarstofa og Slysavarnafélagið Landsbjörg í sameiningu sett upp borða, með skilaboðum til ökumanna, á átta brýr á höfuðborgarsvæðinu fyrir tvær stærstu ferðarhelgar ársins. Sami háttur verður hafður á nú í sumar og setti Björgunarsveitin Kjölur borðana upp í dag. Þeir eru góð áminning til ökumanna um að huga að öryggi sínu og farþega sinna í umferðinni en skilaboðin á þeim eru t.d. Ertu fréttaefni morgundagsins?, Ferðu til baka í sjúkrabíl?, Sumir fara aldrei framúr aftur! og Ertu að flýta þér í þitt eigið slys? Markmiðið með borðunum er að fá ökumenn til að hugsa sig tvisvar um áður en þeir taka áhættu í umferðinni. Það er alveg ljóst að betra er að koma aðeins seinna á áfangastað og komast þangað heill á höldnu en að taka óþarfa áhættur (tekið af vef Landsbjargar).
  ~ : ~

Heimasíðan
27
. júní 2007 - 22:00

Heimasíðan hefur legið niðri undanfarið vegna fyrirvaralausrar niðurfellingar á léni sveitarinnar bjorgunarsveit.com. Kjölur hefur fengið sér nýtt lén www.bjsvkjolur.is og startað heimasíðunni upp á nýtt.
 
 ~ : ~

Bílbeltakönnun
15
. júní 2007 - 21:40

Umferðarstofa og Slysavarnafélagið Landsbjörg stóðu að landskönnun á notkun bílbelta hjá ökumönnum í dreifbýli og þéttbýli í lok maí.
Á Kjalarnesinu gerði Kjölur úttekt á tveimur stöðum í og við Grundarhverfi, meðal annars við Klébergsskólann til að huga að akstri með nemendur. Niðurstöður úr skráningu sýndu mikinn mun á beltanotkun, eftir því hvert ferðinni var heitið. Á vesturlandsvegi voru um 95% ökumanna með beltin spennt, en aðeins um 50% ökumanna sem voru á ferð innan hverfis, sem gefur ítrekað tilefni til að minna alvarlega á að það er
ekki síður mikilvægt að nota bílbeltin í styttri ferðum.

Til stendur að endurtaka könnunina í sumar
og verður úttekt gerð á sömu stöðum um land allt.

 ~ : ~

Kjalarnesdagurinn
23
. maí 2007 - 18:00

Kjalarnesdagurinn var haldinn hátíðlegur laugardaginn 19. maí og tókst vel í alla staði. Að skrúðgöngu lokinni söng karlakór Kjalarness í Fólkvangi, menningarhúsi Kjalnesinga. Marta Guðjónsdóttir fulltrúi í borgarstjórn og hverfisráði Kjalarness setti hátíðina.  Styrkur VÍS tryggingafélags var afhentur til björgunarsveitarinnar á Kjalarnesi og Hólmar Stefánsson formaður Kjalar veitti honum viðtöku og flutti ávarp. Þá voru til sýnis handverk heimamanna, jafnt smárra leikskólanemenda og fullorðinna, upplestur skólabarna, boðið var upp á andlitsmálun og félagsmiðstöðin Flógyn var opin. Einnig voru teikningar af nýrri hreinsistöð sýndar og gamli flotti slökkviliðsbíllinn til sýnis. Pylsur og sælgæti í boði, slöngukastalar til að hoppa og renna sér á og slöngubátur Kjalar skoppaði á rennisléttum sjónum í Hofsvíkinni. Um kvöldið var síðan dúndrandi ball og fjör upp um alla veggi með hljómsveitinni Signia.
Sjá myndir á myndasíðu.

 
~ : ~

Reykjavíkurborg styrkir
17
.maí 2007 - 20:40

14. maí s.l. undirritaði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri Reykjavíkur og fulltrúar björgunarsveita í Reykjavík styrktarsamning til þriggja ára. Björgunarsveitirnar sem um ræðir eru Björgunarsveitin Ársæll, Björgunarsveitin Kjölur, Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík og Hjálparsveit skáta í Reykjavík. Samkvæmt samningnum mun Reykjavíkurborg styrkja björgunarsveitirnar næstu þrjú árin eða frá 2007 til 2009 um sex milljónir króna á ári, eða samtals átján milljónir á samningstímanum. Styrkurinn er veittur til stuðnings almennu björgunar- og hjálparstarfi björgunarsveitanna en auk þess skal honum varið til ungmennastarfs þeirra. Borgarstjóri sagði mikilvægt að styðja við bakið á björgunarsveitunum sem hafa á aða skipa þaulreyndu liði sem tilbúið er að takast á við hvern þann vanda sem upp kann að koma. Haukur Harðarson, sveitarforingi Hjálparsveitar skáta í Reykjavík, segir styrkinn vera mjög mikilvægan fyrir starfsemi björgunarsveitanna. Hann renni fastari stoðum undir starfsemi þeirra og auðveldi einnig nýliðun sveitanna.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri og fulltrúar björgunarsveita í Reykjavík
tóku höndum saman við undirritun samningsins.      
Af vef Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
~ : ~

Leitaræfing
13
.maí 2007 - 21:30

Um daginn var haldin leitaræfing til að skoða möguleika á nota bifhjól við leit. Farið var um vegi og slóða á Kjalarnesinu og kannað var hvernig sjónsviði var háttað af hjóli á mismunandi hraða. Til samanburðar var einnig leitað með bíl.

Hjólin komu vel út, voru lipur í snúningum og fundu hina "týndu" nokkuð auðveldlega.  Hinir "týndu" voru um 2 - 5 m frá vegi ýmist ofan í skurði eða þýfðu landi. Fjarskipti við hjólin gengu vel.
~ : ~

Vettvangshjálp - námskeið
9
.apríl 2007 - 21:30

Nýverið lauk námskeiði í vettvangshjálp, sem haldið var hjá SHS fyrir bjsv. Kjöl og Slökkvilið Kjalarness. Námskeiðið spannaði 40 stundir og að auki boðið upp á verklegar viðbótaræfingar á slökkvistöðinni á Tunguhálsi. Námskeiðinu lauk með skriflegu prófi úr öllu námsefninu auk verklegs prófs úr hluta námsefnis. Þetta var fyrsti hópurinn til að fara í gegnum þetta nýja námsefni, sem er bandarískt, þýtt og aðlagað íslenskum aðstæðum. Námskeiðið er ætlað þeim sem veita fyrstu bráðaþjónustu áður en sjúkraflutningamenn koma á vettvang.
 
Sjálfvirkt hjartastuðtæki sömu gerðar og SHS vinnur með, verður afhent sveitinni innan skamms og verður þá sérstök upprifjun á notkun þess.

~ : ~

Aðalfundur
6
.apríl 2007 - 10:20

Aðalfundur Kjalar var haldinn í síðustu viku. Flestir í stjórn gáfu kost á sér áfram nema formaðurinn og var Hólmar því samþykktur inn í stjórn í stað Hermanns. Núverandi stjórn er því;

Formaður: Hólmar Þór Stefánsson

Varaformaður: Birgir Þ. Guðbrandsson

Gjaldkeri: Sonja Þórsdóttir

Ritari: Anna L. Filbert

Meðstjórnendur:
Kristinn Haraldsson
Baldvin Þ. Grétarsson

Sveitin er ágætlega sett fjárhagslega, en huga þarf að húsnæðismálum og endunýjun bíls á næstunni auk smærri verkefna.
~ : ~

Aðalfundur bjsv Kjalar
18. mars 2007 - 16:00

Miðvikudaginn 28. mars n.k. verður haldinn aðalfundur Kjalar í Þórnýjarbúð kl 20.
Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf skv. lögum sveitarinnar s.s.

Fundargerð síðasta aðalfundar
Skýrsla stjórnar
Reikningar lagðir fram
Lagabreytingar
Stjórnarkjör
Kosning skoðunarmanna
Önnur mál

Mælst er til þess að menn komi með björgunarsveitargallana með sér vegna myndatöku.
~ : ~

Kajakræðari á stefnumóti við sel á Hofsvíkinni
24
. feb 2007 - 17:00

Á föstudaginn var kajakræðari bjsv Kjalar á ferð skammt undan landi á Kjalarnesi í góðu veðri. Vissi hann þá ekki fyrrr en hann fékk óvæntan selskap (: )  Selur nálgaðist hann á bakborða, laumaðist hljóðlaust að og skoðaði bát og ræðara í návígi, kannski með smá ástarglampa í auga.  Selurinn dundaði sér við þessa nærskoðun í góðan hálftíma og þetta er ekki einsdæmi um sel í víkinni, þótt aldrei hafi hann verið svo nærri. Fleiri myndir >>>>> hér


~ : ~

1 1 2 dagurinn
13
. feb 2007 - 22:00
1 1 2 dagurinn var haldinn hátíðlegur um land allt á sunnudaginn var. Á höfuðborgarsvæðinu fór lest bíla og tækja frá viðbragðsaðilum um götur borgarinnar og endaði í Smáralind. Þar voru tækin til sýnis úti og inni. Kerru með slöngubát Kjalar var rétt hægt að smeygja inn um snúningshurð Smáralindar og þar var hann til sýnis á göngugötu neðri hæðar ásamt tveimur kajökum.  Aðrar sveitir og viðbragðsaðilar voru þarna einnig með tæki og tól og margir forvitnuðust um störf þeirra. Þyrla Landhelgisgæslunnar sýndi hífingar þegar SHS æfði björgun úr bílflaki á bílastæðinu. Myndir frá Smáralindinni eru >>> hér.
~ : ~

Kajakróður að kveldi í Kópavogi
9
. feb 2007 - 22:15
Nýverið var kajakhópur HSSK heimsóttur og farið í kvöldróður um Fossvoginn.  Nokkur forföll urðu í Kjalarhópnum vegna veikinda og anna, aðeins einn mætti til leiks. Það var fróðlegt fyrir ræðara, sem yfirleitt nýtur félagsskapar sjófugla og sela, að upplifa annað umhverfi með borgarljósum, skipaumferð og manngerða strönd. Kópavogsræðarar hafa unnið leitarskipulag fyrir strandlengjuna frá Gróttu að Eyri á Álftanesi og mun samskonar skipulag verða unnið fyrir Kjalarnesið í sumar.
~ : ~

Nýi báturinn klár
7
. jan 2007 - 15:15

Nú er nýi báturinn er loksins klár, nokkur smáatriði eftir. Myndin hér að ofan er af bátnum, tekin núna um hátíðarnar. Um borð handsala þeir Oliver fulltrúi OLÍS og verslunarstjóri OLÍS Esjuskála, Kjalarnesi og Hólmar fyrir hönd Kjalar, styrk OLÍS vegna endurnýjunar bátsins og flugeldasýningar. Ennfremur hafa eftirtaldir styrkt sveitina á síðast liðnu ári;

Kvenfélag Kjalarness vegna endurnýjunar á björgunarbát,
KBbanki vegna endurnýjunar á björgunarbáti,
Reykjavíkurborg hverfisráð Kjalarness vegna unglingastarfs,
SPRON vegna endurnýjunar björgunarbáts,
Kiwanisklúbburinn Geysir Mosfellbæ vegna endurnýjunar björgunarbáts,
Faxaflóahafnir sf vegna rekstrar björgunarbáts,
Húsasmiðjan vegna endurnýjunar óveðurskistu og búnaðar,
svo síðast en ekki síst,
almenningur með kaupum á Leitarkalli, flugeldum og á ýmsu öðru.

Kann Kjölur þeim bestu þakkir fyrir það.
~ : ~
Þrettándaflugeldasala
auglýsing >>smellið hér


Björgunarsveitin Kjölur
óskar öllum gleðilegs nýs árs  :)
1
. jan 2007 - 15:48

Áramótabrennan 2006 á Klébergi. Fleiri myndir >> hér



ENN ELDRI FRÉTTIR