Í þá gömlu góðu daga 2007 - 2008 - 2009 :

 

H E I M

Dagskrá

Um sveitina

Stjórnin

Félagar

Myndir

Tæki

Unglingastarf

Krækjur

Fyrir almenning

 

 

 

2009 

FLUGELDASALA og AFMÆLI
27
. des 2009 - 18:05

Sölustaður flugeldasölu Björgunarsveitarinnar á Kjalarnesi er við Þórnýjarbúð, rétt vestan
við söluskála OLÍS.
Opnunartímar eru;    

mán. 28. desember kl 13 – 22
þri. 29. desember kl 13 – 22
mið. 30. desember kl 13 – 22
Gamlársdag 31. desember kl 10 - 16
 


Þriðjudaginn 29. desember verður haldið upp á 60 ára afmæli björgunar- og slysavarnamála á Kjalarnesi með opnu húsi í Þórnýjarbúð kl 16 - 19, boðið verður upp á kaffisopa og hús og tæki til sýnis.

 
Efst á síðu  ~ : ~


Jólasveinar á ferð á aðfangadagsmorgun
20
. des 2009 - 10:01

Líkt og í fyrra munum við aðstoða jólasveinana við að dreifa pökkum til barna í Grundarhverfi.

Sveinarnir áætla að vera á ferðinni á Kjalarnesi og nágrenni á aðfangadagsmorgun.
Best er að koma pökkunum á Esjugrund 35 á Þorláksmessu.
Muna að merkja pakkana vel, nafn og heimilisfang.

Verð pr. pakka kr 500, hámark 1000 kr á heimili.

(Anna s: 6168493)

 Efst á síðu  ~ : ~

Kayakæfing í Laugardalslaug
6
. des 2009 - 15:10

Æfingarferð unglinganna á Kayökum í Laugardalslaug gekk vel.  Hún var haldin á vegum Kayakklúbbsins, sjálfboðastarf að sjálfsögðu á alþjóðadegi sjálfboðaliðans, líka þakklætisvottur við Kjöl vegna samstarfs í árlegu Hvammsvíkurmaraþoni, og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.  Fleiri myndir eru á myndasíðunni og líka á tengli Kayakklúbbsins. 





 
Efst á síðu  ~ : ~

Unglingastarf og skólaval
3
. des 2009 - 20:46


Nú fer unglingastarfi og skólavali að ljúka fyrir áramót. Síðustu þrjú atriðin hjá Stormi eru kajakkynning núna á laugardag á vegum Kajakklúbbsins í Laugardalslaug, og næstu þriðjudaga  að þrífa húsið og Litlu jól.
Í skólavalinu er dagskráin tæmd, nema hluti hópsins á eftir að fara í sjóferð, þegar veður gefur. Dagskrá Storms hefst síðan að nýju í janúar á nýju ári og verður auglýst síðar.



Á myndinni eru Daníel og Aron í hellaskoðunarferð í Leiðarenda.

 
Efst á síðu  ~ : ~

Hálendisskýrsla 2009
16
. nóv 2009 - 21:46

Nýlega kom út skýrsla um hálendisvakt björgunarsveitanna sumarið 2009. Þar kemur m.a. fram að skráðar aðstoðarbeiðnir voru 930 talsins sem er umtalsverð fjölgun frá árinu áður. Helstu verkefnin voru að aðstoða fólk við ár og vöð, grennslast fyirir um fólk sem ekki skilaði sér á áætluðum tíma og aðstoða með sprungin dekk og bilaða bíla. Um þetta má lesa nánar í skýrslunni sem HÉR er skýrslan aðgengileg. pdf 14 MB. Þess má geta að fjöldi mynda í skýrslunni er frá vakt Kjalar á Kili.

Undirbúningur er þegar hafinn fyrir næsta sumar og má gera ráð fyrir svipuðu skipulagi og áður. Óskað verður eftir því að sveitir taki að sér eina viku eins og áður. Miðstöðvar verða á sömu stöðum og áður en verið er að skoða leiðir til að betrum bæta aðstöðu björgunarsveitarfólks. Gert er ráð fyrir því að opna fyrir skráningu sveita á vikur og staði um miðjan febrúar.  (
Af vef SL).

Efst á síðu  ~ : ~

Áhugavert efni
12
. nóv 2009 - 21:17

Núna um helgina 14. - 15. nóv. er Sleðamessa hjá Björgunarsveit Hafnarfjarðar. Verður þar í boði fjöldi áhugaverðra erinda um spennandi efni, jöklaferðir, snjóflóðaleit, fjarskipti og Reitakerfið nýja. Sjá dagskrá >> hér 

Einnig verður á næstu helgi 21. nóv. Ráðstefna um hamfarir og björgunarmál hjá Hjálparsveit skáta Garðabæ á 40 ára afmælishelginni þeirra. Þar verður margt spennadi fyrirlestraefnið, Tsunami, jarðskjálftar og jökulhlaup. Dagskráin er hér
Efst á síðu  ~ : ~

Sala Neyðarkalls gekk vel
9
. nóv 2009 - 20:57

Vel gekk að selja Neyðarkallinn um helgina. Kjölur þakkar góðar móttökur og ómetanlegan stuðning við sveitina. Fjármunum sem safnast er langmest varið í viðhald og rekstur tækja svo og innkaup búnaðar. Verkefnin hafa aukist og eru margvíslegri en áður.
Efst á síðu  ~ : ~

Neyðarkall og félagadagur
4
. nóv 2009 - 21:07

Framundan er árleg fjáröflun Slysavarnafélagsins Landsbjörg og björgunarsveitanna.  Um helgina verður Neyðarkallinn seldur, lyklakippuhringur með björgunarsveitarkalli og í þetta sinn verður hundur honum til trausts og halds. Sölumenn Kjalar verða meðal annars við Holtagarða og á ferðinni á Kjalarnesi og Kjós. Biðjum við alla að taka vel á móti þeim og styðja sína sveit.

Þarna eru þeir allir 4 komir saman.
Þá verður félagadagur haldinn á sunnudaginn næst komandi 8. nóv. Þar kynna félög og samtök á Kjalarnesinu starfsemi sína, m.a. Kjölur. Samkoman verður haldin í Fólkvangi kl 15:30 - 18.
7. bekkur Klébergsskóla sér um sölu kaffiveitinga til styrktar námsferðar sinnar að Reykjum í Hrútafirði.

Efst á síðu  ~ : ~

Landsæfing 2009 á Suðurnesjum
25. okt 2009 - 14:17

Landsæfing björgunarsveita SL var á Suðurnesjum í gær, laugardaginn 24. október. Sex félagar úr Kili tóku þátt í henni ásamt fjórum úr unglingadeildinni. Kjölur var skráður sem fyrstu hjálpar hópur og í almenn verkefni. Unglingadeildin var í eldlínunni í hlutverkum sjúklinga, slasaðra og látinna ásamt mörgum öðrum úr unglingadeildum björgunarsveita landsins. Þau héldu til í Grindavík og gistu þar tvær nætur í góðu yfirlæti Grindvíkinga. Margvísleg verkefni voru leyst af hendi af björgunarsveitunum, slösuðum bjargað úr skipum, bruna, tekið móti þyrlu og slasaðir fluttir úr og um borð í hana. Alls voru verkefni æfingarinnar 57 talsins og aðgerðir stóðu frá morgni til kvölds. Víða sáust fánar sveitarfélaga og SL blakta við hún í góða veðrinu og skólamatur.is bauð til kvöldverðar.  Láta mun nærri að á fimmta hundrað manns hafi komið að æfingunni og mikil vinna að skipuleggja slíkan atburð.

Á myndinni eru meðal annars félagar úr Kili að lokinni æfingu með þyrlunni.
Fleiri myndir eru á myndasíðu Kjalar.

Efst á síðu  ~ : ~

Ófremdarástand viðbragðsaðila
við áhaldahús
19. okt 2009 - 20:05

Áhaldahúsið á Kjalarnesi er tvískipt - helmingur þess fer undir starfssemi framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar en hinn helminginn nýta Slökkviliðið (SHS) og Björgunarsveitin Kjölur saman.  Það eru því í raun þrír aðilar sem deila húsinu og planinu fyrir framan það.  Auk þessara þriggja aðila þá er Endurvinnslustöð Sorpu einnig að nota hluta af planinu sem útkeyrslu, þótt sú útkeyrsla sé tæknilega ekki hluti af planinu þá rennur þetta allt saman í eitt eins og staðan hefur verið hingað til.


Nú er verið að girða af og loka hluta lóðarinnar (þar með talið planið) fyrir framkvæmdasviðið og skapar það veruleg vandamál fyrir okkur í Björgunarsveitinni.  Framkvæmdasviðið er með þann hluta hússins og lóðarinnar sem er nær veginum en SHS og Björgunarsveitin Kjölur (viðbragðsaðilar) eru fyrir innan og því í þröngri aðstöðu,
því við lokumst eiginlega inni aftan við girðinguna svo aðkoman verður bæði mjög þröng og í raun lengri.  Inn- og útkeyrsla viðbragðsaðila er nú einbreiður malarvegur, sem einnig er útkeyrsla frá athafnasvæði Sorpu.  Bakka þarf u.þ.b.100 m inn að útkeyrsludyrum bækisstöðva með bátakerrur ofl. sem skapar hættu á akveginum sjálfum, auk truflana á umferð frá Sorpu en þess má einnig geta að fólk er strax farið að lenda í vandræðum með útakstur frá Sorpu vegna krapprar beygju .

Planið sjálft minnkar talsvert og býður ekki upp á að hægt sé að athafna sig með útkallstæki vegna þrengsla, t.d. gera við og þrífa.  Nógu erfitt verður að athafna sig með eitt tæki, svo ekki sé talað um þegar útkall krefst t.d. bíls, báts og fjórhjóls. En hingað til hafa oft verið æfingar á vegum slökkviliðs og björgunarsveitar á planinu.

Bílastæðisrými fyrir þá sem fara í útköll verður mjög takmarkað, skerðir athafnasvæði annara tækja og getur því lengt enn frekar útkallstíma.

Ljóst er að útkallstími Björgunarsveitarinnar mun lengjast í mörgum tilfellum vegna þessara framkvæmda auk annarra vandamála sem skapast af nýrri útkeyrslu og minna athafnasvæði. Þar sem björgunarsveitin sinnir einnig útköllum vegna alvarlegra veikinda og slysa, er hver mínúta dýrmæt. Það sama á við um útköll vegna sjóslysa en þá yrði mesta töfin og þá skiptir þetta einna mestu máli.

Hér verður að bæta úr ef ekki á illa að fara.

Efst á síðu  ~ : ~

Veðurofsi
10. okt 2009 - 9:32

Sælduvitlaust veður gerði á landinu í gær. Björgunarsveitarmenn höfðu víða í mörg horn að líta og meðal annars á Kjalarnesi. Vindurinn var mikill og hviðóttur, "þoturnar", sem Kjalnesingar nefna svo, voru margar yfir 50 m/sek frá kl 8 til kl 17 á mælinum við Skrauthóla ofan Grundarhverfis og sú hraðasta fór í 58.1 m/sek. Það varð því ýmislegt að gefa undan, þök, þakplötur, rúður, gámar, olíutankur, tunnur, skilti, staurar og girðingar svo eitthvað sé nefnt.
Myndin fyrir ofan er af vef Veðurstofunnar og sýnir vindhraðann á Skrauthólum í gær, en neðri myndin sýnir Kjalarmenn festa niður þakkant í gær.


Höfum í huga þegar veður sem þessi eru í vændum eða ganga yfir;

~ að festa eða setja inn lausa hluti, svo þeir valdi ekki tjóni hjá nágrannanum þegar þeir fljúga af stað
~ vera ekki á ferli utan dyra
~ loka gluggum og draga fyrir
~ halda sig sem mest hlémegin í húsinu
~ hringja óhikað í 112 ef aðstoð vantar, í óveðrum er neyðarlínan mönnuð fólki sem stjórnar björgunarverkum

Efst á síðu  ~ : ~

Innbrot
4
. okt 2009 - 10:32

Nýlega var brotist inn í gáma sveitarinnar við Þórnýjarbúð, hengilásar klipptir upp og líklega þjófagengi á ferð. Gámarnir eru merktir Slysavarnafélaginu Landsbjörg og þar geymir sveitin hluta af sínum búnaði m.a. dekk af bílunum. Engu var stolið þar sem fátt var um verðmæta meðfærilega smáhluti. Búið er að gera frekar ráðstafanir til að erfiðara sé að komast inn í gámana og fjarlægja helstu verðmæti.  

Efst á síðu  ~ : ~

Unglingastarf Kjalar að hefjast
10
. sept 2009 - 18:28

Nú liggur fyrir dagskrá fyrir unglingastarf hjá Kili og kennir þar ýmissa grasa s.s. rata eftir áttavita í heita pottinn, DVD, hellaskoðun, Neyðarkall og svo mætti lengi telja. Dagskráin er >>hér<< og á síðunni við Á döfinni. Það eru þeir Hólmar og Adam sem hafa veg og vanda af starfinu.   

~ :) ~

Þakkarorð
31
. ágúst 2009 - 21:32

Skrifstofu Slysavarnafélagsins Landsbjargar barst bréf frá Magnúsi Orra Schram, þingmanni Samfylkingar en hann naut aðstoðar björgunarsveita fyrir skömmu. Bréfið hljóðar svo:

Um nýliðna verslunarmannahelgi fór undirritaður í ferðalag um hálendi Íslands í 20 manna hópi á fimm jeppabifreiðum. Eftir stórkostlegt ferðalag þar sem leið okkar lá m.a. um Sprengisand, Gæsavatnaleið, Öskju, Laugafell og fleiri staði var síðdegis á mánudeginum komið að Blöndu, rétt við Hveravelli.

Blanda var mikil að vöxtum og fór svo að einn bílanna lenti í erfiðleikum í ánni. Eftir árangurslausar tilraunir til að koma ökumanni og bifreið á þurrt leituðum við til hálendisvaktar björgunarsveitanna á Hveravöllum. Innan stundar var bílnum komið til bjargar, og öllum ferðalöngum komið í gott skjól á Hveravöllum þar sem landverðirnir tóku vel á móti hópnum. Var einstakt að upplifa þá ósérhlífni og fagmennsku sem einkenndi starf björgunarmanna þennan mánudag og vil ég fyrir hönd okkar ferðafélaganna senda þeim miklar og góðar þakklætiskveðjur fyrir hjálpina. Um var að ræða björgunarsveitir frá Hveragerði og Kjalarnesi.

Við Íslendingar búum vel að geta leitað á náðir fólks sem tilbúið er að gefa af sínum frítíma til að standa vaktina og koma okkur til hjálpar, þegar við hin lendum í aðstæðum sem við ráðum ekki við. Takk fyrir mig og mitt fólk.

Magnús Orri Schram
Kópavogi.
 
Efst á síðu  ~ : ~

Hálendisgæsla á Kili 2009
8
. ágúst 2009 - 9:48

Kjölur hefur lokið hálendisgæslu á Kjalvegi að þessu sinni. Úhaldið var í lengra lagi, 12 dagar, frá 24. júlí til 5. ágúst. Eftir undirbúning fór hópurinn, sem í upphafi samanstóð af sjö manns, tveim hundum og einu barni, af stað og farartækin, tveir jeppar, fjórhjól og kerra með eldsneyti. Tekið var við vaktinni af Kyndilsmönnum og var í ýmsu að snúast bæði í ferðinni svo og á víðfeðmu gæslusvæðinu. Þó er ljóst að verkefni voru ekki eins mörg og í fyrra og sumu leyti annars eðlis. Ferðalöngum var leiðbeint og þeir aðstoðaðir í raunum eða ævintýrum sínum, eftirlitsferðir farnar um slóðir og vegi og litið til með bílaleigubílum. Rafmagns- og fjarskipatabilanir hrjáðu svæðið um tíma, og kom rafvirki sveitarinnar þá að góðum notum. Veðrið var ekki upp á marga fiska, yfirleitt var kalt og stundum hvessti úr hófi, jafnvel að smekk Kjalnesinga, úrkoma töluverð og jafnvel éljagangur. En, þegar upp er staðið og horft er til baka ríkir ánægja með hvernig til tókst. Þess má geta að eknir voru alls um 3500 km í leiðangrinum. Lesa má nánar um verkefnið í dagbók þess á síðunni undir skjöl og myndir eru til sýnis á myndatenglinum.  

 
Efst á síðu  ~ : ~

Kjölur á Kjöl
24
. júlí 2009 - 16:12

Í dag  hélt sveitin til hálendisgæslu á Kili líkt og í fyrra. Slysavarnafélagið Landsbjörg starfrækir 4 stöðvar á hálendinu í allt sumar. Þar eru björgunarsveitarmenn allan sólarhringinn á vakt, reiðubúnir ferðamönnum til aðstoðar. Vaktin stendur í 10 daga og verða 4 - 7 Kjalarmenn með bækistöð á Hvervöllum á því tímabili. Talsvert af búnaði verður með í för og verða báðir jepparnir ásamt fjórhjólinu á Kili í fyrstu. Nokkrir aðilar hafa styrkt sveitina með vistir fyrir hópinn og eiga bestu þakkir okkar fyrir. Þeir eru;
Stjörnugrís, ORA, Iðnmark, Vilkó, Húsasmiðjan,
sem einnig styrkti okkur með Grilli til eldunar.

 
Efst á síðu  ~ : ~

Stormur á landsmóti í Hnífsdal
24
. júlí 2009 - 16:12

Landsmót unglingadeilda var haldið á Vestfjörðum dagana 15.-19. júlí. Fjórir krakkar fóru frá unglingadeildinni Stormi og tveir umsjónarmenn. Þetta var í fyrsta skiptið sem Stormur fer á landsmót og voru allir mjög ánægðir með ferðina. Farið var í samfloti með unglingadeild Kyndils í Mosfellsbæ og tjölduðu deildirnar saman og myndaðist góð stemming milli deildana á mótinu. Allir kynntust fullt af nýju fólki og skemmtu sér konunglega í þrautabrautum og póstavinnu sem Vestfirðingar höfðu sett upp af mikilli snilld. Hápunktur ferðarinnar voru sennilega björgunarleikarnir, þar sem unglingarnir voru látnir þreyta allskyns þrautir, þar á meðal fara í kassaklifur og í draugahús, þar sem krakkarnir áttu að finna 8 mismunandi hluti, allt frá þjöl upp í samlokugrill. Hnífsdælingar, Bolvíkingar og Ísfirðingar stóðu sig vel og mótið tókst í alla staði vel. Veðrið var frábært og ekki ský á himni alla ferðina. Krakkarnir nýttu frítíma til að spjalla við aðra krakka, fara í ána að synda eða kaupa sér sælgæti og slappa af í sólinni.
Mótinu var svo formlega slitið á laugardeginum með varðeldi og balli, þar sem Stuðhljómsveitin blackmetalbandið Sigurpáll frá Grindavík spilaði ýmis þjóðþekkt lög.
Strax er farið að hlakka til næsta móts sem haldið verður á Dalvík eftir tvö ár, en á næsta ári verður næsta landshlutamót og stefna krakkarnir á að fara á það, og aldrei að vita nema það fjölgi í hópnum fyrir þann tíma. Nú eru krakkarnir síðan komnir í smá sumarfrí þar til dagskráin byrjar aftur að fullu í ágúst.

Efst á síðu  ~ : ~

Laugavegsganga
9
. júlí 2009 - 22:22

Björgunarsveitin Kjölur fór í ferðalag inn í Landmannalaugar fimmtudaginn 2. júlí. Ætlunin var að labba laugaveginn. Tjaldað var í Landmannalaugum og göngu garparnir kíktu í laugina áður en þeir fóru að sofa. Um 10:00 var svo lagt af stað í gönguna. Adam og Berglind fóru frá Kili og Daníel, litlibróðir Adams fékk að ganga með. Hólmar og sonur hans, Stefán, sáu svo um að keyra vistum á milli skála. Veðrið lék við göngumennina. Þeir komu í Hrafntinnusker um hádegis bil og stoppuðu þar og áðu. Eftir stoppið þar héldu þau áfram niður að Álftavatni. Útsýnið var æðislegt og engu líkar en göngumennirnir væru komnir í ævintýraland. Bílstjórarnir fóru frá Landmannalaugum stuttu eftir að göngumennirnir fóru þaðan. Ákváðu þeir að keyra Fjallabaks leið syðri og koma þá leiðina inn að Álftavatni. Blöðrur og eymsli í hnjám fóru að gera vart við sig á niðurleið frá Hrafntinnuskeri og niður að Álftavatni. Teygjubindi var skellt á hnén og blöðrurnar plástraðar. Upp úr 5 var svo komið niður að Álftavatni. Búið var að redda gistingu í skála í Hvanngili og skokkuðu göngumennirnir þessa stuttu leið sem eftir var frá Álftavatni og yfir í Hvanngil. Nautakjöt frá Hálsi var svo grillað um kvöldið og allir fóru saddir í rúmið.
Úrhelli gerði á laugardagsmorgninum og fram að hádegi. Skálinn fylltist fljótt af rennvotum túristum. Kjalar menn gátu ekki beðið lengur og klæddu sig upp og lögðu af stað út í blinda þoku og úða. Eftir um hálftíma labb var komin sól og blíða og þornuðu yfirhafnirnar á okkar mönnum fljótt. Emstrur blöstu síðan við eftir um 4 tíma labb og voru göngumenn hæst ánægðir með lang þráða hvíld og matar stopp. Planið var að gista í Emstrum og ganga síðustu gönguna frá Emstrum niður í Húsadal á sunnudeginum, en orkumiklir og útkvíldir göngumenn þráðu ekkert meira en að ljúka göngunni af og löggðu því af stað úr Emstrum um 6 leitið. Síðasti áfanginn var auðveldur og allur niður í móti. Eina jökulá þurfti að vaða, Þröngá. Léttustu göngumennirnir áttu fullt í fangi með að halda jafnvægi í straumnum en fyrir rest komust menn yfir. Nú var farið að rigna og sigið á nóttina. Aðeins örfáir metrar eftir og voru menn með sigurglampa í augum þegar bakpokunum var kastað af og gönguskór afreimaðir eftir langa og stranga ferð. Gist var í skála í Húsadal. Á sunnudeginum var svo pakkað saman, tekinn smá rúntur um Þórsmörkina, komið við í Merkurkerinu á leiðinni heim og stoppað á Hvolsvelli til að fylla á bíl og maga.

Góð ferð í alla staði og ljóst að meira af svona ferðum þarf að fara í.

Efst á síðu  ~ : ~

Þórsmerkurferð með SVD kvenna
og Esjuganga
1
. júlí 2009 - 20:52

Farin var skemmtiferð inn í Þórsmörk ásamt félögum í Ársæli laugardaginn 27. júní s.l. Alls voru fjórir bílar í förinni fullir af hressum konum. Í boði var grill og gönguferð í nágrenni Bása. Þetta var vel heppnuð ferð þar sem slakað var á eftir erilsama Sjómannadagshátíð. Á myndinni er hópurinn að virða fyrir sér útsýni yfir Bása, Krossá og Þórsmörk. Fleiri myndir eru inn á myndatenglinum eða >> hér <<
 


Á sunnudeginum fóru síðan félagar í Kili í Esjugöngu í góðu veðri. Gengið var frá Mógilsá á Þverfellshorn, haldið áfram inn á Esju, um Kerhólakamb, fram af Kambshorni, um drög Vallárdals, fram hjá Smáþúfum á  Lág-Esju og niður hjá Blikdal, þar sem farðalangar voru sóttir. Rúmlega fimm tíma góð gönguferð.


Efst á síðu  ~ : ~

Leitarhundar
29
. júní 2009 - 19:48

Björgunarhundasveit Íslands (BHSÍ) hélt sumarnámskeið dagana 19. - 21. júní á Gufuskálum. Tveir félagarnir sveitarinnar Biggi og hundurinn Breki tóku þátt í því og gekk vel.
Tveir aðrir félagar sveitarinnar, Hólmar ásamt hundinum Vaski og Nansý ásamt hundinum Hilmi, eru í félaginu Leitarhundar SL og voru í vetrarúttekt í Svarfaðardal og Ólafsfirði dagana 20. - 22. mars s.l. meðal annars í snjóflóðaleit og komust þeir í C hóp.
Það er því ljóst að efniviður í hundadeild Kjalar er í mótun og gaman að sjá hver framvindan verður.

Efst á síðu  ~ : ~

Gönguferðir á Esju
16
. júní 2009 - 20:15

Kjölur býður upp á gönguferð á Esju, laugardaginn 20. júní n.k. Hugmyndin er að mæta við áhaldahús, fá far að Blikdalsöxl, ganga þaðan sem leið liggur upp á Lágesju (rannsaka gamla ökuleið á Esju frá stríðstímum ;-), um Smáþúfur, Kambshorn, Kerhólakamb og Þverfellshorn, niður hjá Mógilsá. Þar bíður bíllinn og ferjar til baka.
Þetta er um 12 km ganga og eitthvað háð veðri hvort lagt verði af stað.
Upplýsingar gefur Hólmar í síma 822 6300

Laugardaginn 27. júní er síðan hugmyndin að ganga sömu leið til baka.

Efst á síðu  ~ : ~

Göngur og hlaup um fjöll og fyrnindi
8
. júní 2009 - 22:03

Nýtt utanvegahlaup, 7 tinda hlaupið verður haldið í fyrsta skipti laugardaginn 13. júní 2009. Skátafélagið Mosverjar, Björgunarsveitin Kyndill og Mosfellsbær standa að hlaupinu sem hefst kl 10:00 við Lágafellslaug í Mosfellsbæ. Hlaupið er utanvega um fjöll, heiðar og dali í bæjarlandi Mosfellsbæjar og komið aftur í mark við Lágafellslaug. Í boði eru tvær hlaupaleiðir 37 km og 17 km. Sjá nánar á vefjum Mosfellinga, Kyndill og Mosfellsbær og Mosverjar

Kjölur ætlar hins vegar að bjóða upp á þriggja þúfna fyrnindagöngu á Esju laugardaginn 20. júní og 27. júní.

Sjá nánar síðar hér á síðunni.
Efst á síðu  ~ : ~

Kajakkynning í Klébergslaug
8
. júní 2009 - 21:43

Helgina 13. - 14. júní n.k. býður björgunarsveitin
áhugasömum Kjalnesingum að koma og kynnast kajakíþróttinni.
Mæting kl. 9 í Klébergslaug laugardag eða sunnudag með sundföt og handklæði.
Anna s. 6168493
Efst á síðu  ~ : ~

Sporrakninganámskeið
4
. júní 2009 - 20:33

Sporrakningar hafa lítt verið notaðar í leitum hérlendis, en eru víða um heim viðurkennd aðferð og mikið heimildarefni til um það. Helgina 22. - 24. maí s.l. var haldið sporrakninganámskeið í á vegum Sigurðar Ó. Sigurðssonar hjá SL.  Þar var m.a. farið í grunnatriðin, búnaður skoðaður, einföld og flókin spor rakin á mismunandi yfirborði lands. Sporagildrur voru skoðaðar, gerðar afsteypur af sporum og lesið í spor við bíl (PLS). Sigðurður sýndi svo tilraunareit þar sem fylgst er með aldurshnignun spora, ýmissa ummerkja og rusls. Þátttakendur voru frá sjö sveitum, á höfuðborgarsvæðinu auk Selfoss og Hveragerðis. Í umræðum í lok námskeiðsins kom fram að áhugi er á að taka þennan þátt leitar til umhugsunar í sveitunum og æfa markvisst sporrakningar sem viðbót við leitaraðferðir.

Efst á síðu  ~ : ~

Kjalarnesdagurinn
10. maí 2009 - 18:10

Kjalarnesdagurinn var haldinn hátíðlegur laugardaginn 9. maí í ágætisveðri. Ýmislegt var á dagskránni, frítt var í sund og leikfimi í íþróttahúsinu á Klébergi, skrúðganga og fótboltaleikir á battavellinum, nýbakaðar vöfflur og unglingadeilidin Stormur grillaði pylsur við Fólkvang. Kjölur bauð upp á slöngubátsreið og fjórhjólabrun.



Efst á síðu  ~ : ~

Leitarhestar.is
6
. maí 2009 - 18:00

Undirbúningsvinna vegna leitarhesta hefur staðið yfir á síðustu misserum. Undirbúningshópur hefur verið stofnaður og er Björgunarsveitin Brák, Borgarnesi í forsvari fyrir honum. Komin er heimasíða um verkefnið LEITARHESTAR.IS Einnig koma að undirbúningi aðilar úr Björgunarfélagi Akraness, Björgunarfélagi Árborgar, Björgunarsveitinni Heiðari, Björgunarsveitinni Kili, Björgunarsveitinni Kyndli, Björgunarsveitinni Oki og Flugbjörgunarsveitinni á Hellu. Markmiðið er að kanna notkun hesta til leitar- og björgunarstarfa. Haldnar hafa verið æfingar og fundir og nýlega var æfing í Borgarfirði, sem Kjölur og Brák önnuðust. Skýrslu um æfinguna er að finna í Skjöl tenglinum og myndir hægt að finna í Myndir hnappinum.

Efst á síðu  ~ : ~

Svínainnflúensa
3
. maí 2009 - 17:30

Það hefur varla farið fram hjá neinum fréttir af svínainnfúensunni sem nú fer um heiminn. Viðbúnaðarstig hérlendis er enn "Hættustig". Björgunarsveitir koma við sögu í viðbúnaðaráætlun landlæknisembættis og má nánar fræðast um á vef embættisins LANDLAEKNIR.IS
og INNFLUENSA.IS
 >>Viðbragsáætlun Almannavarna - Heimsfaraldur innflúensu 

 
Efst á síðu  ~ : ~

Leitartækninámskeið
22
. apríl 2009 - 20:30


Helgina 17. - 19. apríl s.l. fór hópur frá Kili og Stormi á leitartækninámskeið ásamt Skagamönnum. Námskeiðið var haldið á vegum björgunarfélags Akraness og var Kjartan S. Þorsteinsson leiðbeinandi. Fyrsta kvöldið var þátttakendum dembt beint í alvöru leitaræfingu innanbæjar, sem rúmaði nánast öll mistök sem óreyndur leitarmaður getur gert. Laugardag og sunnudag fór bókleg fræðsla og æfingar fram á Þórisstöðum í Svínadal. Þar börðu menn m.a. í brestina sem komu fram í byrjunaræfingunni.

Aðrar myndir eru komar á myndasíðuna.

 
  
Efst á síðu  ~ : ~

Aðalfundur Kjalar framundan
10
. apríl 2009 - 09:40

Miðvikudaginn 15. apríl n.k. verður aðalfundur Kjalar haldinn í Þórnýjarbúð kl 20.

Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf skv. lögum sveitarinnar:
 - fundargerð síðasta aðalfundar
 - skýrsla stjórnar
 - reikningar lagðir fram
 - lagabreytingar
 - stjórnarkjör
 - kosning skoðunarmanna
 - önnur mál

Allir velkomnir

   Efst á síðu  ~ : ~

Stormur með vefsíðu
2
. apríl 2009 - 08:37

Unglingadeild sveitarinnar, Stormur hefur fengið eigin vefsíðu og er tengill á hana >>http://unglstormur.blogcentral.is/blog/ 

Von er á fleiri myndum frá Húsafellsferðinni.
  
Efst á síðu  ~ : ~

 
Húsafellsferðin góða
24
. mars 2009 - 21:20

Um síðustu helgi, 20.-22. mars, fór sveitin ásamt unglingadeildinni Stormi í helgarferð að Húsafelli og nágrenni. Farið var með bæði Kjöl 1 og 2 ásamt fjórhjólinu. Hópurinn samanstóð af  sjö unglingum, fimm eldri og heldri björgunarsveitarmönnum og einum hundi.

Á föstudeginum voru Hraunfossar og Barnafoss skoðaðir áður en komið var í náttstað í Gamla Bæ á Húsafelli. Eitt af fyrstu verkum eftir að menn voru búnir  að koma sér fyrir og skoða glæsileg húsakynni, var að skella vænri Kjósarsteik á grillið. Tekin var góð leitaræfing innandyra, þegar kom að því að finna borðbúnað fyrir tólf manns og bar sú leit árangur að lokum. Eftir spil og pottaspjall var farið snemma að sofa enda planið að leggja í ferð á Langjökul í birtingu, morguninn eftir.

Formaður sá um ræsingu og voru allir klárir á hjól og bíla fyrir átta laugardagsmorguninn. Veðrið var þungbúið og gékk á með éljum. Snjórinn blautur og víða krapi undir. Svo fór að festing fyrir drifskaft gaf sig í Kjöl 2 á leiðinni inn að jökli, svo kippa varð því undan. Farið var rólega yfir og allar festur nýttar til hins ýtrasta í >>myndatökur<<, mokstur, leik og tækjaæfingar. Brekkur voru gagnlegar til rennslis á þotum og slöngum.

Ákveðið var að sleppa jöklaferð og fara ekki lengra en að skálunum, Geitlandsskála eða Langjökulsbúðum, þar sem Kjölur 2 var bara í afturhjóladrifinu og ekkert skyggni á jöklinum. Stór hópur jeppa frá 4x4 renndi framhjá og upp, en kom fljótlega niður aftur vegna þoku, skafrennings og élja.

Við nýttum hinsvegar skaflana við skálana til snjóhúsagerðar og æfinga á tækjum. Lærðu allir moksturstækni við ýmis skilyrði, gildi góðrar næringar og hvernig best er að klæðast þegar úrkoma, vindur og frost fara saman.

Þegar komið var niður í Húsafell aftur var ákveðið að sleikja sólarglennu í sundlauginni og síðan var rúllað niður í Reykholt í heimsókn til björgunarsveitarinnar Ok. Heimamenn sýndu okkur tækjakost sinn og boðið var upp á prufuferð í snjóbílnum.

Aftur var grillað um kvöldið þrátt fyrir mikla snjókomu og potturinn nýttur og menn lágu á meltunni.

Á sunnudeginum tóku allir saman og hlaðið í bíla og stefnan tekin á Surtshelli. Slóðin þangað reyndist illfær sökum aurbleytu og eftir smá rúnt á svæðinu var blásið til heimferðar. Snemmbúinn tvífættur farfugl frá Tékklandi fékk að fljóta með frá Hraunfossum niður á Kjalarnes. Góð helgi endaði svo á samhentu átaki allra við að þrífa tæki og ganga frá í húsi.
 

  Efst á síðu  ~ : ~

Árshátíðin
1. mars 2009 - 09:25

Árshátíð Kjalar verður í Húsafelli 20. mars n.k. Um er að ræða tveggja nátta ferð og verður farið föstudaginn 20. mars. Sameiginlegur kvöldmatur fyrir kjötætur verður föstudag og laugardag. Bílar sveitarinnar taka 20 manns smekkfullir, svo og húsið sem pantað er, Gamli Bær í Húsafelli. Einnig er opið ef fólk vill fara á sér bíl eða jeppa og þess vegna taka með sér vélsleða, hjól eða 4hjól.
Stefnt er að því að fara á jökulinn á laugardegi.
Skrá sig sem fyrst hjá Bigga, 866 5960, fyrstur kemur fyrstur fær.
 
 
Efst á síðu  ~ : ~

Í ýmsu að snúast
18. feb 2009 - 20:25

Kjölur kemur víða við.
 
Skýrsla um Hálendisvakt björgunarsveitanna 2008 kom út í dag eins og sjá má í frétt SL og frétt á Vísi og Kjalarfélagar oft í mynd !!  Þarft verkefni sjálfboðaliða björgunarsveitanna þar á ferð og vonandi verður framhald þar á. Skýrsluna má nálgast hér, nokkrar myndir í henni frá Kili.




Mynd af mbl.is >> Fleiri myndir og frétt af mbl.is
Enn kemur Kjölur við sögu, nú  í Kærleiksgöngunni á dögunum niðri við Tjörn. Dreift var og kveikt í kyndlum til ræðumanna, göngu- og kórfólks. Einn félaganna tók að sér að klifra stiga og faðma styttuna af Jóni Sigurðssyni og færa honum Kærleikshjarta úr blómum. Jákvæð stemming og á bjartsýnum nótum.
Á myndinni mjá sjá Bergljótu Arnalds stjórnanda Kærleiksatburða kvöldsins og Adam Finnsson við það tækifæri.
 
Efst á síðu  ~ : ~

Farartækin reynd í snjó
12. feb 2009 - 20:48

Vel hefur viðrað til ferðalaga í snjó undanfarið. Hafa öll ökutæki sveitarinnar verið oft á ferðinni í þeim tilgangi að þekkja þau betur í snjóakstri. Nokkrar ferðir hafa verið í Skálafell og mismunandi dekk prófuð á fjórhjólið. Hleypt úr dekkjum og spilað úr festum. Patrolinn, Fordinn og fjórhjólið hafa verið reyndir í Skálafelli og ein ferð var farið á Snæfellsnesið á Fordinum.
 
Efst á síðu  ~ : ~

1-1-2 dagurinn

11. feb 2009 - 19:00

Brot úr kynningarefni Kjalar á 112 daginn
Í dag var dagur neyðarnúmersins haldinn um allt land. Björgunarsveitin Kjölur var af því tilefni með kynningu á Neyðarlínunni í Klébergsskóla fyrir 1.-10.bekk. Kynningin var í formi glærusýningar þar sem LEGO karlar og kubbar voru í aðalhlutverki. Þannig var rakið í fjölbreyttu myndmáli hvernig á að bregðast við ýmsum aðstæðum...með því að hringja í 1-1-2. Vel tókst til og voru yngstu jafnt sem þau elstu mjög áhugasöm og miklar umræður mynduðust um slys, alls konar aðstæður..og LEGO.
Kynninguna má nálgast >> hér (PDF).


Einnig bendum við á vefsvæði Neyðarlínunnar en þar er meðal annars að finna skyndihjálparverkefni, gátlista og ýmislegt fleira >> vafraðu hér!


 Efst á síðu  ~ : ~

Félagsstarfið og 112 dagurinn
6. feb 2009 - 20:10


Eftir jólin hefur verið lögð áhersla á fyrstu hjálp. Skólavalið fór í kynningu á fyrstu hjálp og Stormur hefur á æfingum komist í kynni við blæðingar, bílslys og útkallsæfingu. Fram undan er 112 dagurinn, 11. febrúar n.k. og mun fyrstuhjálparbúnaður verða til sýnis í Klébergsskóla og spjallað við nemendur.  Þá er lítil hópslysaæfing framundan í febrúar og upprifjun á First Responder.
 

 

 Efst á síðu  ~ : ~

Gamlar fundagerðir og myndir
13. jan 2009 - 13:10

Mynd: Páll Ólafsson, úr bókinni Kjalnesingar
Fyrsti áfangi afritunar á fundagerðum Slysavarnardeildar Kjalarness (SVDK) er komin hér á síðuna, undir valmöguleikanum Skjöl. Búið er að afrita fundagerðir frá tímabilinu 1949-1960 og eru þær í einu skjali. Fleiri fundagerðir koma inn síðar.
Nokkrar myndir eru einnig komnar inn á myndavef sveitarinnar. Um er að ræða skannaðar myndir frá nokkrum eldri félögum sveitarinnar. Vonir standa til að fleiri myndir komi í leitirnar, og hægt verði að gera innsettum myndum nánari skil: dagsetningar, atburðir og staðsetning og auðvitað hverjir eru á myndunum! Endilega skrifið athugasemdir neðan við myndirnar. Þær má skoða  >> hér.

 Efst á síðu  ~ : ~

Janúarfundur Slysavarnadeildar kvenna í Reykjavík
11. jan 2009 - 20:30


Konur í Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík brutust gegnum myrkrið upp á Kjalarnes og héldu janúarfund sinn í Þórnýjarbúð. Kynntu þær starfsemi deildarinnar fyrir áhugasömum og fengu kynningu á björgunarsveitinni í staðinn. Á fundinum afhentu þær jafnframt fulltrúum frá HSSR styrk vegna kaupa á kerru undir tjald þeirra.
Kaffi og gott meðlæti, ásamt léttum leikjum var svo í boði kvennanna.

Þökkum þeim kærlega fyrir komuna.

 

 Efst á síðu  ~ : ~

Slysavarnadeild kvenna í Þórnýjarbúð
5. jan 2009 - 20:30

Núna á fimmtudaginn 8. janúar býður Slysavarnadeild Kvenna í Reykjavík öllum Kjalarneskonum í KAFFI í Þórnýjarbúð kl 20.


 
Efst á síðu  ~ : ~


>>ÞRETTÁNDAFLUGELDAR<<


Frá brennu og flugeldasýningu á Klébergi ljósm. Friðrik Theodórsson
>>Fleiri myndir<<

GLEÐILEGT NÝTT ÁR 2009
 
 
og þökkum stuðninginn.

 
Efst á síðu  ~ : ~

 


2008
Brenna og flugeldas
ýning
31
. des 2008 - 09:10

Brennan verður eins og áður á Kléberginu og kveikt í henni kl 20:30 og skömmu seinna
um kl 21 verður Kjölur á svæðinu með flugeldasýningu i boði OLÍS.



GLEÐILEGT NÝTT ÁR
og þökkum stuðninginn.
Förum varlega í meðferð flugeldanna,
söfnum skotleifum og umbúðum eftir áramótin og förum með það í Sorpu.

Efst á síðu  ~ : ~

Flugeldasala
2
6. des 2008 - 17:20

Flugeldasala Kjalar hefst á sunnudaginn 28. desember við Áhaldahúsið við Sorpu.
Opnunartímar er sem hér segir:

sunnudagur 28. desember kl 13 - 22
mánudagur 29.desember kl 13 - 22
þriðjudagur 30 .desember kl 13 - 22
miðvikudagur 31. desember kl 10 - 16

Minnum á að taka gömlu, ónotuðu Gemsana með ("Svaraðu kallinu" ) og setja í endurnýtingarkassann hjá okkur í flugeldasölunni.

Efst á síðu  ~ : ~

Gleðileg Jól

24
. des 2008 - 13:32

Nokkrir Jólasveinar voru á ferðinni í Grundarhverfi í morgun og færðu börnum gjafir.

Björgunarsveitin Kjölur óskar Kjalnesingum, Kjósverjum og öðrum gleðilegra jóla.









Efst á síðu  ~ : ~

Jólasveinaheimsókn aðfangadagsmorgun
21
. des 2008 - 14:02

Kjölur aðstoðar við að ná sambandi við jólasveina og fá þá til að koma í heimsókn aðfangadagsmorgun. Sjá auglýsingu hér >>   kv. Anna s 6168493

Efst á síðu  ~ : ~

Heimsókn til Þorbjörns, Grindavík
18
. des 2008 - 20:48

Dagana 13. til 14. des. fóru 6 unglingar úr unglingadeildinni Stormur og tveir stjórar í heimsókn til Grindavíkur. Lagt var af stað kl 10 laugardagsmorgun og komið við hjá Kyndli í Mosfellsbæ og þar slógust í hópinn 12 unglingar frá Kyndli og tveir stjórar. Þegar komið var til Grindavíkur var byrjað á því að koma sér fyrir í fundaraðstöðu þeirra Þorbjarnarmanna. Tekið var til nesti og búnaður þeirra skoðaður. Heilsað var upp á stóran hóp unglinga (~25) í Hafbjörgu, unglingadeildin í Grindavík.  Sigið var fram af um 20 m háum lýsistönkum og farið í bíltúr á Man trukki með ströndinni og var skipt í tvo hópa. Þá var klifið í klifurvegg, farið í feluleiki í myrkvuðu húsi. Grindavíkursveitin eldaði kjúkling fyrir hópinn og Otti sagði frá sögu sveitarinnar. Þá var frjáls tími í húsi, næturævintýri með "útkalli" á sínum stað. Leitað var að einum úr hópnum og ekki sofnað fyrr en undir morgun. Að lokinni tiltekt var farið í Bláa lónið í heimleiðinni og Kyndilsmenn kvaddir í Mosó. Í Þónýjarbúð á Kjalarnesi var að lokum tekið til og þrifið.
Fín ferð, takk Þorbjörn Grindavík fyrir móttökurnar.
MYNDIR KOMNAR Á MYNDASÍÐU
Efst á síðu  ~ : ~

"Ekkert fikt" í Klébergsskóla
17
. des 2008 - 18:48

Hver kannast ekki við slíkar fréttir um áramót.
"Þrjú flugeldaslys í gærkvöld
Drengur slasaðist þegar púður í heimagerðum flugeld sprakk. Tveir til viðbótar hafa slasast vegna flugelda, annar þeirra vegna þess að flugeldurinn var gallaður."


8. - 10. bekkir Klébergsskóla fengu Þórð Bogason og Adam Finnsson í heimsókn þriðjudaginn 16. desember. Þeir útlistuðu á glærum og og með kvikmynd að það borgar sig ekki að fikta með flug- og skotelda. Forvarnarstarfið "Ekkert fikt" hefur áreiðanlega sitt að segja, ásamt árvökulum augum foreldra og forráðamanna, til að koma í veg fyrir slys af orsökum flugelda. Engin alvarleg slys urðu á áramótum á Kjalarnesinu í fyrra og við skulum stuðla að því að halda því þannig.

Myndin hér til hliðar, sem er úr fyrirlestri  sýnir hver illa hendi getur farið er skoteldur springur í hendinni.

Munum að slysalaus jól og áramót eru best, förum varlega með kertin og skoteldana.
Efst á síðu  ~ : ~

Sitt lítið um útköll Kjalar síðustu ára
12
. des 2008 - 9:55

Nú nálgast áramót eina ferðina enn og tilvalið að líta til baka á tölfræði útkallanna síðustu árin. Nokkur aukning er í fjölda útkalla það sem af er ári 2008,
29 árið 2006, 26 árið 2007 og 46 árið 2008.

Sé litið á tölfræðina eftir mánuðum sést að desember sker sig úr með flest útköll. Árið 2008 eru fleiri úköll skráð á sumarmánuðum en áður.

Sé litið á flokkun útkalla er fjölgun í þeim öllum nema óveðursútköllum og sérstaklega mikil aukning í björgunum.

Efst á síðu  ~ : ~

Skáldabúðaheiði
4
. des 2008 - 5:25

Síðdegis á laugardag 29. nóvember var hafin leit að rjúpnaskyttu, sem hafði ekki komið fram til félaga sinna á tilsettum tíma. Svæðið er erfitt til leitar og nefnist Skáldabúðaheiði í Gnúpverjahreppi. Leitað hefur verið í fjóra daga og um 100 manns tekið þátt í henni. 5 félagar frá Kili fóru í leit með bíl og fjórhjól. Fyrstu nóttina var hvílt í veiðikofa inn á svæðinu í nokkra tíma og haldið síðan áfram í fyrstu dagsskímu. Mánudag og þriðjudag var haldið áfram leit með minni mannskap. Norðan gjóla var með um -10° stiga frosti.
Stefnt er að frekari leit á morgun föstudag.
 


Efst á síðu  ~ : ~

 Styrkur frá Slysavarnadeild kvenna Reykjavík
16
. nóv 2008 - 10:45
Konurnar í Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík héldu nóvemberfund sinn í Sæbjörginni. Þar afhentu þær 500.000 kr styrk til viðhalds á Econolinebíl sveitarinnar. Hann þarfnast verluegra viðgerða um þessar mundir. Einnig sögðu ungmennin í Stormi frá dvöl sinni á Gufuskálum frá því í sumar sem SVD kvenna styrktu. Áhugavert erindi var flutt um Gróu Pétursdóttir fyrrverandi formann SVD kvenna og starfsemi deildarinnar kynnt. Kjölur þakkar kærlega fyrir hlýhug.
Á myndinni afhendir Fríður Birna formaður SVD kvenna í Reykajvík styrkinn til Birgis Þórs formanns Kjalar.
Efst á síðu  ~ : ~


Styrkur frá Forvarna- og framfarasjóði Reykjavíkurborgar
10
. nóv 2008 - 18:05
Kjölur sótti um styrk til Forvarna- og framfarasjóðs Reykjavíkurborgar, vegna skólavals sveitarinnar í unglingadeild Klébergsskóla. Markmið skólavalsins er að unglingar kynnist sjálfboðaliðastarfi björgunarsveitarinnar, með áherslu á sérstöðu heimasvæðis. Markmið Forvarnasjóðsins er að stuðla að árangri í forvarnastarfi með styrkveitingu og er styrkurinn veittur tvisvar á ári. Kjölur fékk styrk að upphæð 200.000,- kr og var hann afhentur formlega af borgarstjóra með viðhöfn í Höfða 27. október.  Alls fékk 21 aðili styrk.

Efst á síðu  ~ : ~

Skólavali á haustönn að ljúka
3
. nóv 2008 - 21:36
Í tilefni þess að skólavali björgunarsveitar í Klébergsskóla á unglingastigi, er að ljúka næstkomandi mánudag fór hópurinn í Klifurhúsið. Unglingadeildin Stormur var einnig með í för og gat kennt hinum eitt og annað. Síðasti tíminn verður á mánudaginn n.k. og þá verður farið í heimsókn í björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð.
Efst á síðu  ~ : ~
 


NEYÐARKALL
31
. okt 2008 - 18:36
Í dag hrindir Landsbjörg af stað árlegu fjáröflunarátaki björgunarsveitanna "NEYÐARKALL frá björgunarsveitum.  Félagar sveitanna ganga í hús og sitja fyrir landanum um allt land og selja neyðarkalllinn fyrir 1000 kr til fjáröflunar. Kallinn er vel útbúinn að vanda, í björgunarvesti, með bjarghring og hangir í lyklakippuhring. Fyrirtæki geta keypt stærri kall til að standa á borði, 35 cm, fyrir 35.000 kr.
Þó fórnfúst starf björgunarsveitarmanna sé í sjálfboðavinnu kostar rekstur þeirra drjúgan skilding og vonum við að landsmenn taki vel á móti sölufólkinu.

Efst á síðu  ~ : ~
 

 


BJÖRGUN 2008
19
. okt 2008 - 21:30
Ráðstefnan Björgun verður sett á föstudaginn, 24.október kl 11 á Grand Hótel og stendur alla helgina. Boðið verður upp á fjölda góðra fyrirlestra s.s.;
Flutningur slasaðra, lofttæmidýnur
Vettvangsrannsóknir
Jarðskjálftar á Suðurlandi 2008
Leitin á Svínafellsjökli 2007
Björgunarsveitir á hálendinu
Snjóflóðabjörgun
Fyrstu viðbrögð við skipulagningu leitar
Skráning og nánari upplýsingar eru á heimasíðu Slysavarnafélagsins Landsbjörg
eða smella hér >>>>  <<<<<<<

Efst á síðu  ~ : ~

Jákvæðni, húmor og hlýlegt viðmót.
16
. okt 2008 - 22:30
Slysavarndeild kvenna í Reykjavík heldur skemmtikvöld í fjáröflunarskyni, þar sem Edda Björgvins léttir mönnum lund. Þetta er öllum opið og verður haldið í Gróubúð, Grandagarði 1, mánudaginn 27. október kl 20:30. Verðið er kr 2.500.

Efst á síðu  ~ : ~

 
Endurskinsmerkin eru nauðsynleg
11
. okt 2008 - 9:30
Félagar í Kili dreifðu endurskinsmerkjum í leikskólanum Berg á Kjalarnesi í vikunni. Hægt var að velja úr margs konar merkjum og sýndist sitt hverjum og erfitt að velja. Áður hafði merkjum verið dreift á Opnu húsi sveitarinnar og SHS og vonir standa  þá til að flestir verði vel upplýstir í myrkrinu framundan. Á myndinni er María ásamt hluta hinna hressu krakka á Bergi.

Efst á síðu  ~ : ~

Smölun í Kjós

21
. sept 2008 - 20:40
Kjölur lagðist á sveif með bændum í Kjós í dag og smalaði Reynivallahálsinn. Veður var fast í haustgalsagírnum, hressilegur útsynningur með næstum því hagléljum og grátt í hærri fjöll. Vel gekk að smala, fyrir utan nokkrar kindur sem þótti skemmtilegra að snúa á smalana á endasprettinum og stinga af í átt að Reynivöllum. Hér til hliðar má sjá mynd af vöskum hóp smala úr Kili, að verki loknu í Kjósinni.





Efst á síðu  ~ : ~

Fjallakofinn - sértilboð

20
. sept 2008 - 09:20
Nú er um að gera að birgja sig upp af vörum, endurnýja fyrir veturinn, gjafir fyrir jólin
eða bara bæta við draslið og fá sér það það nýjasta og besta í bransanum.
20 % staðgreiðsluafsláttur til 31. okt. á öllum vörum, auk sértilboða.
Merkin ekki af verri endanum; Scarpa, Marmot, Smartwool, Petzl, Black Diamond o.fl.
WWW.FJALLAKOFINN.IS


Efst á síðu  ~ : ~

Opið hús

17
. sept 2008 - 18:48
All margir lögðu leið sína í Opið hús í Þórnýjarbúð og heimsóttu slökkviliðið og björgunarsveitina. Gestirnir spreyttu sig í hjartahnoði, sprautuðu úr brunaslöngu, klifruðu upp á kössum og kynntu sér tæki og sögu viðbragðsaðilanna í máli og myndum. Hægt var að kaupa sér pulsu og fá sér kaffisopa og sælgæti í eftirrétt.

Kjölur og SHS þakkar gestunum kærlega fyrir komuna og stuðninginn.
>>> fleiri myndir<<<

 

 

 

 

 

 


Efst á síðu  ~ : ~

 

Opið hús um starfsemi Kjalar og Slökkviliðsins sunnudaginn 14. september kl 14 - 17 í Þórnýjarbúð.
>>> AUGLÝSING  <<<

Í ýmsu að snúast
3
. sept 2008 - 18:28
Kjölur hefur verið í ýmis konar gæsluverkum upp á síðkastið, eins og á menningarnótt, við móttöku handboltalandsliðsins, á fjölskyldusamkomu Norðuráls og Stuðmannaballi. Framundan er gæsla á Hvammsvíkur maraþoni kajakræðara. Einnig
er komið í gang starf unglingadeildar og skólaval Klébergsskóla.

Efst á síðu  ~ : ~

STORMUR unglingadeild
kynning
n.k. föstudag 29. ágúst
sjá auglýsingu hér


Efst á síðu  ~ : ~

Kjölur á Kili, hálendisvakt lokið
16
. ágúst 2008 - 14:32
Hálendisgæslu á Kili lauk á sunnudaginn 10. ágúst. Alls komu sjö manns að verkefninu frá Kili og alls voru eknir 2349 km. Margvísleg og skemmtileg verkefni voru leyst, eins og kynna starfsemi Landsbjargar og hálendisgæsluverkefnið, upplýsingar til ferðamanna og frá ferðamönnum, hvernig farið er yfir vöð á jökulám og fylgja bílum yfir þau, gera við dekk og bilaða bíla og taka þreytta göngumenn upp í síðasta spölinn. Tvö útköll urðu á tímabilinu, vegna augnslyss í Kerlingafjöllum og vegna bilaðs bíls á Stórasandi norðan Langjökuls. Skráð var hvernig fjarskipti á Tetra, VHF og GSM gengu fyrir sig. Þá var dagbók haldin yfir starfið og er hún birt >> hér. 
Hálendisgæslu Slysavarnafélagsins Landsbörg er skipt í fjögur svæði, og í ár skiptu 20 sveitir með sér vöktum á þeim á tímabilinu 27. júní til 10. ágúst. Föst viðvera er á fjórum stöðum, Hveravöllum, Landmannalaugum, Dreka og Nýjadal og merktir vinnu- og íverugámar á hverjum stað.
Verkefnið er vel kynnt, almennt virtust ferðalangar vita af því og ánægðir með þessa þjónustu.  Félögum í björgunarsveitinni Kjölur líkaði dvölin vel á Hveravöllum og Kili, áttu gott samstarf við skálaverði og geta vel hugsað sér til hreyfings á ný næsta sumar á hálendisvakt.

Myndir á myndasíðu.  

Efst á síðu  ~ : ~


Kjölur á Kili, hálendisgæsla
8
. ágúst 2008 - 22:25
Kjölur hefur sinnt hálendisgæslu á Kili frá því fyrir verslunarmannahelgi. Verkefnin eru margvísleg, mest er um aðstoð við ferðalanga vegna þess að farartæki þeirra hafa lotið í lægra haldi fyrir fjallvegunum hörðu og holóttu. Gárungarnir tala um tappaorðin þrjú, troða tappa í dekk, tappa lofti og öl-tappa ??
Vaktaskipti urðu í hópnum að hluta í gær og lýkur vist sveitarinnar á slóðum
Fjalla-Eyvindar á mánudaginn.


 

 

 

 

 

 
Ljósmyndir Maríu Theodórsdóttur og félaga, sýna;
e.t.v. Anna, Hólmar og María á við skálann í Svínárnesi, e.t.h. Kiddi, Adam og Hólmar kanna Blönduvað,
niðri, Gámur og Skrámur Björgunarsveitanna á Hveravöllum.


Fleiri myndir komnar á myndasíðuna.


Efst á síðu  ~ : ~


Fimmvörðuháls
1. júlí 2008 - 21:52
Félagar úr björgunarsveitinni Kili og unglingadeildinni Stormi, alls 8 manns, fóru í æfingaferð um helgina. Helmingur hópsins fór á föstudegi inn að Skógum og gisti þar. Þau skoðuðu m.a. sögusafn SL sem er inni á byggða- og sögusafninu þar á bæ. Á laugardagsmorgun komu hinir á nýmerktum Patrol, Kjölur2, fyrrverandi Reykur3 HSSR. Hópurinn var myndaður í bak og fyrir, með og án nýja bílsins. Síðan hófu sex félagar göngu á Fimmvörðuháls á meðan hinir fóru inn í Þórsmörk til æfinga.
Veður var hið besta og gönguhópurinn tók sér góðan tíma til myndatöku og virða fyrir sér umhverfið. Smá snjókoma var efst á leiðinni og voru allir fegnir að komast í skála Útivistar, þar sem var etið, spjallað og sofið.
Á sunnudagsmorgun var lagt í hann áleiðis niður í Goðaland, eftir að allir höfðu dáðst að frumlegri salernisaðstöðunni í skálanum. Aftur snjóaði efst á hálsinum en veðrið batnaði með hverju skrefi niður á við. Með vott af þreytu, en ánægju með gönguna, var öslað inn í Bása til móts við hina félagana. Restin af sunnudeginum fór í afslöppun í Básum, draga rútu upp úr á, hitta leiðbeinendur af Gufuskálum yfir sykurpúðum inn í Langadal, ná í Econolæninn inn að Skógum og keyra á Kjalarnesið.  Fleiri  >>myndir<<.

Frábær ferð !!

Efst á síðu  ~ : ~


"Nýr" bíll bætist í flotann
1. júlí 2008 - 21:25

Í síðustu viku fékk Kjölur afhentan "nýjan" notaðan Patrol jeppa Reykur 3 frá HSSR. Nú heitir hann Kjölur 2 og eru bundar vonir við að hann nýtist vel í aðgerðum sveitarinnar. 

Efst á síðu  ~ : ~

Stormur í Útivistarskóla
27
. júní 2008 - 19:40

Dagana 12. - 17. júní s.l. fóru 7 ungmenni í unglingadeild Kjalar, STORMUR í Útivistarskóla Landsbjargar á Gufuskálum. Slysavarnardeild kvenna Reykjavík styrkti þau til fararinnar og kunna krakkarnir þeim bestu þakkir fyrir. Létu þau mjög vel af dvölinni og að sögn alltaf á fullu milli kl 8 og 23. Dagskráin var æðisleg, fengu leiðsögn við sig, hnýta hnúta, rústabjörgun, ferðamennsku og rötun, fóru í gönguferðir, skruppu í kaupstað í sund, horfðu á Video. Þá var kvöldvaka og keppnir. Alls voru 24 krakkar í hópnum, frá Hellu, Hnífsdal, Ísafirði, Þingeyri, Seltjarnarnesi, Mofellsbæ og Sandgerði. Veðrið var gott og kennararnir geðveikt góðir. Fleiri myndir á myndasíðunni.
Efst á síðu  ~ : ~


Ný flugslysaáætlun
24
. júní 2008 - 21:45

Út er komin ný flugslysaáætlun fyrir Keflavíkurflugvöll og eru menn beðnir við að kynna sér hana hér undir skjalatenglinum til hliðar.

Efst á síðu  ~ : ~


Hátíð hafsins - Sjómannadagurinn
6
. júní 2008 - 21:45

Síðast liðna helgi tók sveitin þátt í Hátíð Hafsins í Reykjavík ásamt Björgunarsveitinni Ársæli. Tók unglingadeildin Stormur einnig þátt í dagskránni. Slöngubátur Kjalar sinnti gæslu og öðrum verkefnum á láði, en þá voru einnig  fjórhjól, kayakar og búnaður til sýnis á Miðbakka. Ársæll sýndi líka sinn tækjakost og sá auk þess um kassaklifur og línubrú. Veðrið var hið besta miðað við hverju spáð var og stöðugur straumur  af fólki við höfnina til að taka þátt í þeirri umfangsmiklu dagskrá sem í boði var.  >>Fleiri myndir <<

Fjórhjólið vakti gríðarlega lukku,  en kayakar fengu einnig verðskuldaða athygli enda ekki margar sveitir sem eiga kayaka til að nota í leit.

Endapunkturinn á hátíðinni var glæsilegt hlaðborð  hjá Slysavarnadeild kvenna í Gróubúð.

Efst á síðu  ~ : ~

Leitarhestar
2
. júní 2008 - 22:35

17. maí var haldin leitaræfing í Svignaskarði í Borgarfirði að frumkvæði bjsv Brák, þar sem fram fór athugun á notkun hesta til leitar. Kjölur kom einnig að skipulagi og úrvinnslu æfingarinnar. Skoðað var hvernig hóparnir, tveir hestahópar og einn gönguhópur leystu ýmis verkefni á leitarsviði. Leitað var að vísbendingum og týndu fólki á fjórum mismunandi svæðum, kjarri vaxin klapparholt, mólendi, meðfram árbakka og á framræstum engjum. Blautar klappir og votlendi reyndust knöpum og hestum erfið yfirferðar, en í flestum tilfellum voru hestahópar fljótari að leysa verkefni. Leitarsvæðin voru ekki stór og má reikna með að heldur dragi sundur með göngufólki  og hestum þegar leitarsvæði stækkar. Æfingin þótti heppnast vel og er hugur í mönnum að byggja á reynslunni sem hún skilaði til frekari æfinga. Nánar má lesa um æfinguna í samantekt hér.  Mynd 2.

Efst á síðu  ~ : ~

Kjalarnesdagurinn 2008
18
. maí 2008 - 18:45


Kjalarnesdagurinn var haldinn í gær (laugardaginn 17. maí). Segja má að tónlistarskólinn hafi blásið til leiks með lokatónleikum sínu í samkomusal skólans. Skrúðganga fór frá leiksvæðinu í hverfinu að Fólkvangi. Þar var hoppikastali og í boði björgunarsveitar; andlitsmálning, fjórhjólaferðir, slöngubátssiglingar og grillpulsur til sölu. All nokkur hópur fólks og barna kom og lét hráslagalegt veður ekki á sig fá.
Á myndinni má sjá hvar Hólmar formaður (Kjölur pabbi) og unglingar í Stormi grilla pulsur.
Fleiri myndir.

Unglingadeild Kjalar, Stormur, stóð í ströngu og ágóði af sölu rennur í sjóð þeirra.

Efst á síðu  ~ : ~

Búnaði stolið
9
. maí 2008 - 22:00

Á laugardag (3. maí) voru björgunarsveitir kallaðar út vegna fólks sem þurfti aðstoð við að komast niður úr Esjunni. Einn þeirra sem brást við kallinu var Adam Finnsson frá Björgunarsveitinni Kjölur á Kjalarnesi. Þegar hann kom niður úr Esju, eftir vel heppnaða björgunaraðgerð beið hans óskemmtileg sýn. Búið var að brjótast inn í bíl hans og stela ýmsum munum, þ.á.m. sjúkratösku með skyndihjálparbúnaði sem hann notar í störfum sínum sem "hlaupari" í björgunarsveitinni. Adam setti sögu sína á blað og hana má lesa hér fyrir neðan.

"Þann 3 maí síðastliðinn kl. 20:15 fékk björgunarsveitin Kjölur útkall, þrennt í sjálfheldu í hlíðum Esjunnar. Sem meðlimur Kjalar brást ég við kallinu og mætti á vettvang við Blikdalsá á Kjalarnesi.
Ég lagði bílnum mínum á vigtarplaninu sem Vegargerðin notar til eftirlits, sunnan Blikdalsár. Ég læsti bílnum og hljóp upp í björgunarsveitarbíl sem var í móanum fyrir ofan planið. Ég taldi óhætt að skilja bílinn eftir á planinu þar til útkallinu væri lokið.

Staðsetnings fólksins var víst ekki alveg rétt samkvæmt útboðuninni þannig að björgunaraðgerðir fóru fram töluvert sunnar en upphaflega til stóð. Ég, ásamt félaga mínum úr Kili fórum upp á Esjuna á fjórhjóli og komum að fólkinu ofan frá. Unnum við svo í sameiningu að því að koma fólkinu niður.

Eftir þessa þriggja tíma aðgerð hélt ég svo aftur að vigtarplaninu til að ná í bílinn minn. Þegar þangað var komið var greinilegt að bíllinn var ekki í sama ástandi og þegar ég skildi við hann þremur tímum áður. Búið var að brjóta hliðarrúðuna bílstjóramegin og stela úr bílnum. Greinileg för eru á rúðulistum eftir verkfæri sem notað hafði verið til að spenna rúðuna og brjóta. Meðal þess sem stolið var, voru eyrnatappar, latex hanskar, Nokia 12V síma hleðslutæki, Canon Powershot A myndavél, stórri íþróttatösku frá ADIDAS með snyrtidóti og sundfötum, skjalaveski með rúðustrikuðum blöðum o.fl. og sárast af öllu tóku þjófarnir sjúkratösku með skyndihjálparbúnaði.

(Taskan lítur þannig út bara með Kjalarmerki)
Taskan var vel merkt björgunarsveitinni Kili og í henni var allur helsti skyndihjálparbúnaður sem til þarf við minniháttar slys og endurlífganir. Þessi taska er hluti af “hlaupara” búnaði mínum. Vegna samstarfssamnings við SHS komum við upp 6 einstaklingum með sjúkrabúnað á Kjalarnesinu og svo ég í Kjósinni. Þessi hópur er kallaður hlauparar, því þeir koma sér á vettvang, hlaupandi eða á einkabílum og byrja meðferð á sjúklingi þangað til björgunarsveitarbíllinn kemur eða sjúkrabíll.

Finnst mér persónulega heldur lágt lagst, þegar vel merktum búnaði björgunarsveitamanna er stolið. Einnig var í töskunni gult vesti með endurskini sem merkt var “Björgunarsveitin Kjölur” á baki og “Slysavarnarfélagið Landsbjörg” á vinstra brjósti.

Ljóst er að tjón þetta er töluvert og vil ég hér með lýsa eftir vitnum sem geta lýst öðrum bílum á vigtarplaninu en rauðri Toyota bifreið. Mér var ekki skemmt við að koma niður af fjallinu eftir þriggja tíma björgunaraðgerð, þreyttur og svangur, og finna bíl minn tjónaðan og eignum mínum stolið. Öll hjálp er vel þegin í þessum málum."
(Tekið af vef Landsbjargar) 
Þess má geta að tæpt ár er síðan búnaði var stolið úr merktum bát sveitarinnar þar sem hann stóð fyrir framan verkstæði og einnig hefur söfnunarbaukum hennar verið stolið.

 

Efst á síðu  ~ : ~


Aðalfundur bjsv Kjölur
3. maí 2008 - 17:10

Miðvikudaginn 30. apríl s.l. var haldinn aðalfundur sveitarinnar í Þórnýjarbúð. Formaður setti fundinn og talaði um að samstarf við SHS og endurreist unglingadeild hafi breytt áherslum í starfi sveitarinnar og er lögð aukin áhersla á þessa tvo þætti. Á árinu var auk þessa sinnt 26 útköllum, ásamt slysavarnaverkefnum. Fjárhagsleg staða var góð, tvö ný tæki, fjórhjól og Nissan Patrol, notaður frá HSSR, voru pöntuð og aukið við fyrstu hjálpar búnað. Næsta ár er 60 ára afmælisár sveitarinnar og er stefnt að því að halda upp á það.
Gera þurfti hlé á aðalfundarstörfum til að sinna einu útkalli á Vesturlandsvegi.
Stjórnin er nánast óbreytt, skipt var um annan meðstjórnandann og í stjórninni eru;
Hólmar Þór Stefánsson formaður
Birgir Þór Guðbrandsson varaformaður
Sonja Þórsdóttir gjaldkeri
Anna Lyck Filbert ritari
Baldvin Grétarsson meðstjórnandi
María Theodórsdóttir meðstjórnandi

Efst á síðu  ~ : ~

Hópslysaæfing
"Loftbelgur hrapar við Rauðavatn"

25
.apríl 2008 - 14:30

Unglingadeildin STORMUR var ásamt öðrum á hópslysaæfingu sem Ríkislögreglustjóri og Almannavarnir skipulögðu fyrir Lögregluskólann. Verið var að æfa vettvangsstjórn í hópslysi og unglingadeildir úr Hafnafirði, Mosfellsbæ og Kjalarnesi léku slasaða í uppsettu slysi, þar sem loftbelgur með farþega hafði hrapað til jarðar við Rauðavatn.
Ýmsir árverkar voru settir á svið m.a.; útistandandi auga, brot á útlimum, hryggáverkar, slagæðablæðing og fleira. SHS og björgunarsveitir unnu saman að björgun.
Unglingarnir voru 9 frá Kjalarnesi og þótti mjög gaman að taka þátt í þessu.

Á myndinni er verið að undirbúa "slasaða"  til flutnings. Fleiri myndir eru á myndasíðunni.


Efst á síðu  ~ : ~


Eldri félagar hittast
10
.apríl 2008 -  22:00

 Sögurakning sveitarinnar hefur verið langt og strangt ferli og er ekki lokið enn. Ákveðið hefur verið að undirbúa afmæli björgunar - og slysavarnarmála á Kjalarnesi 29.desember árið 2009, en þá verða 60 ár liðin frá stofnun Slysavarnardeildar Kjalarneshrepps.

Gengið hefur framar öllum vonum að leita uppi fyrrverandi félaga sveitarinnar og þann 9.apríl hittust nokkrir þeirra á ánægjulegum kvöldfundi í Þórnýjarbúð. Rifjuðu þeir upp minnistæð atvik í starfi og atburði í sögu sveitarinnar. Alls mættu níu menn, bæði formenn og aðrir félagar frá ýmsum tímabilum. Þrír þeirra enn á félagaskrá. Fyrstu fundargerðarbækurnar, skjöl, bókhaldsbækur, myndir og úrklippur komu í leitirnar og er mikill fengur fyrir sveitina að fá þessi sögubrot í hendurnar. Ákveðið var að koma gömlum myndum á stafrænt form og verður tilkynnt þegar þeirri vinnu er lokið.

Eiga þeir Andrés Svavarsson, Axel Sigurðsson, Árni Snorrason, Eggert Ólafsson, Gunnar L. Gíslason, Sigurgeir Bjarnason, Sveinn E. Magnússon og Þór J. Gunnarsson þakkir skildar fyrir innlitið, ásamt öllum öðrum sem hafa aðstoðað við að púsla saman sögubrotum sveitarinnar.

Þeir sem luma á minningum tengdum Björgunarsveitinni á Kjalarnesi
eru hvattir til að senda bréf, hvenær sem er,
á tölvupóstfangið: bjorgunarsveit (hjá) simnet.is
eða í pósti á: María Theodórsdóttir, Esjugrund 35, 116 Kjalarnesi    


Efst á síðu  ~ : ~

Aðalfundur bjsv Kjölur
30. mars 2008 - 17:10

Miðvikudaginn 30. apríl n.k. verður aðalfundur haldinn
í Þórnýjarbúð kl 20.
Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf
skv. lögum sveitarinnar s.s.

Fundargerð síðasta aðalfundar
Skýrsla stjórnar
Reikningar lagðir fram
Lagabreytingar
Stjórnarkjör
Kosning skoðunarmanna
Önnur mál

Efst á síðu  ~ : ~


Unglingadeildin STORMUR
16
. mars 2008 -  17:35

Nýtt líf hefur færst í unglingadeild björgunarsveitarinnar. Hún heitir STORMUR og hefur haldið fundi, æfingar og fræðslukvöld undanfarið, undir styrkri leiðsögn Adams og Hólmars. Hittast þau á föstudagskvöldum í Þórnýjarbúð, tekið á hópefli, fræðst um fjarskipti, kort og áttavita og haft ofkælingarkvöld (sjá myndir og myndband á myndasíðu sveitarinnar) og safnað dósum til kaupa á flíspeysum.
Hópurinn, um 10 krakkar, eru duglegir að mæta og á dagskrá þeirra er m.a. ferðalag með vorinu. 


Efst á síðu  ~ : ~


SL gefur leikskólanum spil
15
. mars 2008 -  09:25

Á mánudaginn afhenti Kjölur fyrir hönd Slysavarnafélagsins Landsbjörg leikskólanum Berg á Kjalarnesi spilið Núma sem SL hefur verið að gefa í skóla að undanförnu.


Efst á síðu  ~ : ~

Styrkur frá Baugi Group
28
. feb 2008 -  21:25

Nýlega veitti Baugur Group björgunarsveitinni styrk að upphæð kr 143.400 til kaupa á fyrstuhjálpar töskum. Styrkurinn var afhentur við hátíðlega athöfn 6. febrúar, þar sem samtals 46 aðilum voru veittir styrkir, en tæplega 350 umsóknir bárust styrktarsjóðnum.

Efst á síðu  ~ : ~

 
112 dagurinn,
skyndihjálparmenn ársins 2007
12
. feb 2008 -  21:05

Sveinbjörn og Tómas taka við viðurkenningunni úr hendi björgunarsveitarmanns. Guðrún er með þeim á myndinni.Hinn árlegi 112 dagur var haldinn 11. febrúar og m.a veitti Rauði kross Íslands feðgunum Sveinbirni Grétarssyni og Tómasi Sigurbjörnssyni frá Kjalarnesi, viðurkenningu sem Skyndihjálparmenn ársins 2007. Þeir björguðu lífi eiginkonu sinnar og móður, Guðrúnar Hauksdóttur. >> Sjá frétt á Ísland í dag>> Sveinbjörn hóf endurlífgun, hringdi á Neyðarlínuna og sendi Tómas 6 ára son sinn til að sækja hjálp til nágranna síns Þórðar Bogasonar.  Þórður er slökkviliðsmaður til margra ára og í björgunarsveitinni Kjölur.

Mynd af fjölskyldunni (mbl.is).

Þórður lét Kjöl vita þar sem nokkrir félagar voru á fundi upp í Þórnýjarbúð og komu þeir strax á staðinn með súrefni. Dæmi um það hversu mikilvægt það er að kunna fyrstu hjálp og nærvera björgunarsveitar með búnað skiptir sköpum á Kjalarnesi þar sem  viðbragðstími neyðarbíls er ekki sá sami og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu.

Á myndinni má sjá Þórð Bogason (í hvíta vestinu) ásamt sjúkrahópi björgunarsveitarinnar.

Efst á síðu  ~ : ~

Kjölur eignast nýtt björgunartæki
8
. feb 2008 - 20:22

Kjölur 10 kominn í hús,
tveggja manna götuskráð fjórhjól af  gerðinni Can-Am Outlander 800cc.
 

Aukabúnaður á hjólinu er:
Aukarafgeymir, vhf-talstöð, gps, intercom, xenon leitarljós, bláljós, spil, álkall, skófla, sjúkrabúnaður, lágmarks klifurbúnaður og línur.

Mun sveitin ætla að þetta sé öflugt tæki til leitar eða björgunar á hálendi og eða innanbæjar.

Á meðfylgjandi mynd er Þorbjörn í MótorMax að afhenda lykla af Kjöl 10 til Birgirs Þórs (varaformanns Kjalar) og Adams B.


Efst á síðu  ~ : ~

Æfing með TF-EIR
1. feb 2008 - 20:14


Laugardaginn 19. janúar bauðst mönnum úr bátaflokki sveitarinnar, ásamt HSSK að koma á æfingu björgunarskips Ársæls, Ásgríms og þyrluáhafnar TF-EIR. Verið var að þjálfa nýja menn í þyrluáhöfn. Sigið var niður úr þyrlu og mönnum bjargað úr sjó og úr björgunarbáti. Maður og sjúkraskel voru látin síga niður á dekk björgunarskipsins og híft upp aftur. Æft var á svæðinu austur og suður af Engey. Veður var kalsalegt og gekk á með éljum, en æfingin slapp milli élja og mannskapurinn hinn hressasti. Fleiri myndir eru á >> myndakrækju <<

Efst á síðu  ~ : ~

Ert þú á aldrinum 14 til 20 ára ?
Langar þig til að taka þátt í björgunarstarfi ?
Láttu sjá þig og komdu á kynningarfund
föstudaginn 25. janúar kl 20:00 í Þórnýjarbúð -
Áhaldahús hjá SORPU Kjalarnesi
17
. jan 2008 - 21:32

Björgunarsveit skólaval fer að hefjast
13
. jan 2008 - 22:04

Eins og áður býður Klébergsskóli í samvinnu við Kjöl upp á skólavalið björgunarsveit og birtist dagskráin hér í krækju. Einnig verður auglýst á töflunni á Á DÖFINNI hér vinstra megin á síðunni.
 

Efst á síðu  ~ : ~


SHS og Kjölur á hnútanámskeiði
12
. jan 2008 - 22:17

SHS gekkst fyrir hnútanámskeiði í húsnæði áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi. Nokkrir SHS- og Kjalarfélagar fóru yfir vel valda hnúta undir leiðsögn og meðhöndlun lína og banda. Þá var tekið á tryggingum með böndum og Doblanir í hífingum á þungum hlutum. Á myndinni er hópurinn, en kennarinn Ólafur Ingi Grettirsson tók myndina. Fleiri myndir eru á myndatengli


Efst á síðu  ~ : ~


Á Kjölur 60 ára afmæli
á næsta ári ?
9
. jan 2008 - 22:43

Góðar líkur eru á því að Kjölur eigi 60 ára afmæli á næsta ári. Það er því tilhlýðilegt í aðdraganda þess að rifja upp eitthvað frekar af sögu félagsins. Þeir sem kynnu að luma á sögum og upplýsingum er snerta björgunarsveitina t.d. upphafsár hennar, er bent á að gefa sig fram og hafa samband við Maríu Th. s:8994069 eða með tölvupósti á bjorgunarsveit@simnet.is.

Efst á síðu  ~ : ~

Flugeldasýning um áramót
og flugeldasala á Þrettánda
3
. jan 2008 - 21:23

Flugeldasýningin á nýárskvöld tókst vel og aðstæður voru hinar ágætustu. Brennan var hin veglegesta og slangur af fólki var mætt á staðinn með blys og stjörnuljós.
Undirbúningur flugeldasýnigar sem þessarar er töluverður og þrír nýir sveitarmenn hafa tekið skotstjóranámskeið, sem léttir vinnuna. Fleiri myndir eru á myndasíðunni.


Klárum flugeldalagerinn á Þrettándasölunni við
áhaldahúsið (Sorpu) og höfum opið:
 
laugardag 5. janúar kl. 13 – 21 og
sunnudag 6. janúar kl. 13 – 18

Efst á síðu  ~ : ~

2008
GLEÐILEGT NÝTT ÁR

1
. jan 2008 - 14:03

Bestu óskir til Kjalnesinga og Kjósverja um gleðilegt nýtt ár og þökkum stuðninginn á gamla árinu sem var að líða.
Flugeldasalan gekk vel, þrátt fyrir annríki vegna útkalla sem komu á sama tíma.

Í kvöld, nýársdag, verður brenna og flugeldasýning á
Klébergi kl 18:00.

Eins og áður sagði hefur gengið yfir hrina útkalla hefur verið undanfarnar vikur vegna tíðra heimsókna óveðurslægða. 10 útköll eru skráð hjá sveitinni í desember 2007, en 7 voru skráð árið 2006. Á myndinni hér að ofan eru björgunar- og slökkviliðsmenn af Kjalarnesi, Baldvin, Friðrik og Adam að stumra yfir dælu í verkefni í Lækjarsmára Kópavogi 30. des. Nánar má skoða útköll ársins undir hnappinum Útköll hér til vinstri.

Efst á síðu  ~ : ~
 

 

flugeldasölu við Þórnýjarbúð, áhaldahúsið,rétt hjá Sorpu,

 
FLUGELDASALAN
27
. des 2007 - 18:13

Opnunartímar:

föstudagur 28. desember kl 13 - 22
laugardagur 29. desember kl 13 - 22
sunnudagur 30. desember kl 10 - 22
mánudagur 31. desember kl 10 - 16


Kjölur óskar Kjalnesingum og Kjósverjum gleðilegra jóla og minnir á hina árlegu flugeldasölu við Þórnýjarbúð, áhaldahúsið,rétt hjá Sorpu,

EN MINNIR Á .....   .

  Ekkert fikt . .  !!

Efst á síðu  ~ : ~

Jólasveinar á ferli
24
. desember 2007 - 14:57

Kertasníkir, síðasti jólasveinn til byggða, félagar hans, Stekkjastaur og Stúfur voru á ferli í Grundarhverfi í morgun í snjókomu og slyddu. Þar sem sleðafærið var í slappara lagi hertóku þeir bíl sveitarinnar og settu slatta af pökkum um borð. Heimsóttu þeir og börðu utan rúmlega 30 heimili í hverfinu og fengu góðar móttökur.

 

 

 

 

 
Gleðileg Jól
 

 

Efst á síðu  ~ : ~
 

Nýr fyrstuhjálparbúnaður
20
. desember 2007 - 21:03

Nýlega styrkti Kvenfélag Kjósarhrepps, hreppsnefnd Kjósarhrepps og Spölur ehf sveitina vegna kaupa á fyrstuhjálparbúnaði. Sveitin keypti að viðbættu eigin framlagi, fimm töskur og vesti fyrir stjórnanda, ásamt hjartastuðtæki. Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins útvegaði allan einnota búnað í töskurnar og bakpoka fyrir hjartastuðtækið. Töskurnar verða staðsettar hjá "hlaupurum", sem í útkalli geta farið beint á staðinn og hafið meðferð uns frekari aðstoð berst. Bílstjórar sjá síðan um að koma björgunarsveitarbílnum á staðinn, en í honum er allur annar fyrstuhjálparbúnaður, meðal annars hjartastuðtæki og súrefni. Með þessu móti er viðbragðstími styttur verulega á svæðinu. Nú þegar hefur í tveimur útköllum reynt á þetta fyrirkomulag og töskurnar nýju.

Á myndinni er hluti sveitarinnar, "hlauparar" og bílstjórar með nýja búnaðinn.

Bestu þakkir til styrktaraðila.
Efst á síðu  ~ : ~


Krakkar mínir komið þið sæl ..  ! !
16
. desember 2007 - 15:45

Eins og undanfarin ár hefur Kjölur aðstoðað jólasveina að koma pökkum í heimahús í Grundarhverfi og næsta nágrenni á Kjalarnesi á aðfangadag.  Nánar um það í auglýsingu hér fylgjandi.

Efst á síðu  ~ : ~

Óveðursútköll
16
. desember 2007 - 15:16

Óvanalega stormasamt hefur verið síðustu viku og mikið um útköll vegna þess. Mörg hundruð björgunarsveitarmenn hafa verið við störf undanfarna daga og bjsv Kjölur var ítrekað  kölluð út til aðstoðar til að hefta fok lausamuna og koma í veg fyrir tjón vegna þessa.  Meðal annars var farið í að festa niður þakplötur á einni álmu í Arnholti og einnig var farið í verkefni í Mosfellsbæ og Reykjavík. Eitt af því sem varð að gefa sig í veðurofsanum var nýtt og veglegt skilti OLÍS hjá Esjuskála í Grundarhverfi. Það var eins og skorið hefði verið á undirstöðu þess, sem er svert stálrör, með beittum hníf. Fleiri myndir eru á myndatenglinum.


Efst á síðu  ~ : ~

Hvað er á seyði  ! !
2
. desember 2007 - 10:30

Undanfarið hefur verið unnið í endurbótum á fjarskipta- og siglingabúnaði (GPS) á bát sveitarinnar. Fram undan er fundur sjóflokks í Kópavogi.

Búið er að panta fjórhjól af gerðinni Can Am Outlander Max GT. Verið er að  setja búnað á hjólið hjá Motor Max og ætti það að vera tilbúið fljótlega eftir áramót. Vonir eru bundnar við að hjólið nýtist helst í útköll og til leitar þar sem erfitt er að  komast að, ferja fólk og búnað um vegleysur.

Þá er sveitin að gera sig klára til að aðstoða jólasveina í Grundarhverfi á aðfangadag, undirbúning flugeldasölu og flugeldafræðslu í Klébergsskóla til að fyrirbyggja slys við meðferð flugelda um áramótin.
- - -
Svo virðist sem síðasta hvassviðri hafi slegið út vindhraðamælingum veðurstöðvarinnar á Skrauthólum.
 
Efst á síðu  ~ : ~
 
Hvassviðri

26
. nóvember 2007 - 21:42

Í gærkvöldi, nótt og fram að hádegi í dag var býsna hvasst á norðanverðu Kjalarnesinu. Mjög hvasst var einnig undir Hafnarfjalli. Ástæða þótti til að kalla björgunarsveitina út, vegfarendum á Vesturlandsvegi til halds og trausts. Það er alltaf einn og einn bjartsýnismaður á ferð, með kerru eða vagn í eftirdragi, þó ágætar símælandi veðurstöðvar gefi til kynna á ljósaskiltum að vindhraðinn í hviðum sé slíkur að best sé að halda sig heima. Í gærkvöldi var hvass austanvindur um 18 m/sek jafnaðarvindur með hviður 26 m/sek á Esjubergi. Á Skrauthólum varr enn hvassara um 24 m/sek með stormhviður um 33 m/sek og um 2 - 3 km vestar, enn hvassara, ofan við Grundarhverfi, niður af Blikdal, við suðurenda Hvalfjarðarganga, svo ekki sé talað um í Tíðaskarði á leið inn í Kjós. Við Hafnarfjall fóru hviður yfir 50 m/sek. Kjölur aðstoðaði vegfaranda við að festa palllok og kerra fauk út fyrir veg. Við þessar aðstæður er ekki ráðlegt að vera á ferðinni, sérstaklega ekki með kerrur eða vagna í eftirdragi. Veðrið gekk niður á hádegi í dag og í kvöld var LOGN ;-)

Efst á síðu  ~ : ~

Reykjavíkurhöfn 90 ára
Faxaflóahafnir styrkja björgunarsveitir

18
. nóvember 2007 - 19:57

16. nóvember tilkynnti stjórn Faxaflóahafna í tilefni 90 ára afmælis Reykjavíkurhafnar að hún ætlaði að styrkja fjórar björgunarsveitir, Ársæl Reykjavík, Kjöl Kjalarnesi, Brák Borgarnesi og björgunarfélag Akraness, um 500.000 kr hver sveit.
Hólmar formaður Kjalar að sjálfsögðu mættur, ásamt fulltrúum hinna björgunarsveitanna (sjá mynd hér til hliðar af vef Faxaflóahafna) veittu styrkjunum móttöku í hófi sem haldið var í Viðey á föstudagskvöldið. 


Björgunarsveitin Kjölur þakkar Faxaflóahöfnum kærlega fyrir stuðninginn.


Efst á síðu  ~ : ~

"
NEYÐARKALL " frá björgunarsveitum
3
. nóvember 2007 - 09:37

Um helgina er fjáröflun Slysavarnarfélagsins Landsbjörg um land allt, "Neyðarkall frá björgunarsveitum".  Þrátt fyrir að starf sveitanna sé sjálfboðaliðastarf, kostar rekstur þeirra og búnaður sitt. Bjsv. Kjölur hyggst nýta sinn hlut í söfnunarfé "Neyðarkallsins" til endurmenntunar félaga sinna í björgunarskólanum og til búnaðarkaupa fyrir sveitina.

Efst á síðu  ~ : ~

Hjartastuðtæki til björgunarsveitarinnar

20. október 2007 - 16:55

LP1000 hjartastuðtæki hefur verið sett í alla dælubíla SHS á höfuðborgarsvæðinu og eitt tæki er staðsett á Kjalarnesi, þar sem björgunarsveitin Kjölur er hluti af viðbragðsáætlun SHS. Þessi tæki eru frá sama framleiðanda og stuðtækin sem eru í sjúkrabifreiðum.
Nokkrir félagar Kjalar hafa fengið þjálfun á tækið, sem er frekar einfalt í notkun. Um leið var farið í upprifjun á endurlífgun. Því fyrr sem hægt er að koma við hjartastuði ásamt hnoði og öndunaraðstoð aukast lífslíkur umtalsvert.  Þá má geta þess hér að hjartastuðtæki er einnig staðsett í íþróttamiðstöðinni á Klébergi Kjalarnesi.
Á myndinni hér að ofan afhendir leiðbeinandinn Sveinbjörn Berentsson SHS, Hólmari Stefánssyni formanni Kjalar hjartastuðtækið. Nokkrar myndir frá námskeiðinu eru >> hér.


Efst á síðu  ~ : ~

Kjölur bátur óskar aðstoðar á Hofsvíkinni

17
. október 2007 - 20:20

Í gærkvöldi um kl 20 voru þrír félagar í björgunarsveitinni Kjölur að æfa sig á slöngubát sveitarinnar, eins og svo oft áður, á sjónum skammt undan landi við Grundarhverfi á Kjalarnesi. Einn félaganna tók að sér hlutverk manns í sjónum sem átti að finna og "bjarga" um borð. Allir voru vel búnir í flotgöllum og með viðeigandi búnað. Ekki tókst betur til en svo að maðurinn fannst ekki í myrkrinu þrátt fyrir blikkljós á galla. Strekkingsvindur var af landi, dálítil alda og kalt. Eftir að hafa svipast um í um 10 - 15 mínútur var ákveðið að óskað eftir aðstoð úr landi frá Kili og fóru menn á bíl út Nesvík til leitar. Skömmu seinna var ákveðið að óska frekari aðstoðar. Björgunarbátur og þyrla komu fljótt á staðinn og þyrla fann manninn nánast strax á kletti skammt frá landi, en þangað hafði hann synt móti vindi og straumi þegar hann sá að bátsfélagar hans misstu sjónar af honum. Á skerinu gat hann náð í GSM síma innan flotgallans og gert vart við sig til bátsins sem sótti hann í sama mund og þyrlan fann hann. Hann var orðinn nokkuð þreyttur og orðið kalt þar sem hann þurfti nánast að fara úr gallanum á klettinum til að ná til GSM símans, en að öðru leyti heill á húfi. Víst er að af þessu atviki má ýmsan lærdóm draga, en allt fer í reynslubankann sem nauðsynlegur er til að björgunarsveitirnar geti tekist á við krefjandi verkefni fyrirvaralaust þegar kallið kemur.
Björgunarsveitin Kjölur kann öllum bestu þakkir fyrir aðstoðina.
Efst á síðu  ~ : ~

Fyrsta hjálp

11
. október 2007 - 21:56

Í gærkvöldi var fyrstu hjálpar æfing í Þórnýjarbúð. Þar voru sett upp nokkur tilvik þar sem reyndi meðal annars á greiningu, notkun bakbrettis, hálskraga og Kedvestis. Sex félagar í Kyndli Mosfellsbæ komu í heimsókn og æfðu með. Segja má að tilvikin hafi átt sér að hluta nýlegar stoðir í raunveruleika Kjalarfélaga og kryddað með hugmyndaflugi viðstaddra. Ánægjuleg kvöldstund, menn spjölluðu og kynntust starfi nágrannasveita. Fyrirhugað er að endurtaka slík samstarfskvöld.
 
Á myndinni sjást björgunarsveitarmenn samstilltir taka mann út úr bíl, bæði í Kedvesti og reyrðan á bakbretti. Fleiri myndir >>> HÉR >>.

Efst á síðu  ~ : ~

Tetranámskeið

6
. október 2007 - 18:16

Björgunarskólinn hélt í vikunni Tetranámskeið í Mosfellsbæ, þar sem stór hópur frá Kyndli og nokkrir frá Kili mættu. Námskeiðið er nýtt og enn í vinnslu, enda er SL nýlega orðinn notandi að Tetrafjarskiptakerfinu. Kennari var Daníel Eyþór og fór hann í gegnum alla grunnþætti Tetratalstöðvarinnar, uppsetningu kerfisins, skipulag talhópa, hina ýmsu möguleika á samskiptum, innan og utan kerfisins, flýtival og virkni takkaborðsins. Enginn slysaðist til að virkja neyðarhnappinn, en hin ýmsu hnappahljóð og takkaóðir nemar reyndu verulega á þolrif kennarans.

Efst á síðu  ~ : ~

Bátakynning 8. - 10. bekkja Klébergsskóla
25
. september 2007 - 22:13

Nokkrir nemendur  8.  - 10. bekkja Klébergsskóla sýndu úr hverju þeir eru gerðir á bátakynningu þegar þeir fóru í smáferð á slöngubát Kjalar á Hofsvíkinni. Skítakuldi var og strekkingsvindur og myrkur þar á ofan. Sum fóru í flotgöllunum í sjóinn og þar var jafnvel hlýrra en uppi í slöngubátnum. Í ljós kom að einn gallinn lak og reyndi þá á hvernig menn voru klæddir, t.d ekki í gallabuxum og bómullarbol, eins og segir í fræðsluefninu um ofkælingu. Að lokum hituðu þau sér með kakósopa í Þórnýjarbúð og ræddu um ofkælingu og loppna fingur.

Efst á síðu  ~ : ~

Smalað í Kjós
1
6. september 2007 - 9:13

Laugardaginn 15. september fóru nokkrir félagar í sveitinni og aðstoðuðu við smölun á Reynivallahálsi í Kjós.  Smalað var frá Staupasteini eða Steðja út með hlíðum, fyrir Reynivallaháls og inn hlíðar ofan Laxár og Neðri Háls að Valdastöðum. Menn voru líka sendir upp á hálsinn og smöluðu ofan frá og niður. Ýmis tæki, tól, hundar og börn voru notuð til verksins, en líklega voru það tveir jafnfljótir og göngustafir sem dugðu best. Ganglimir voru þó farnir að lýjast nokkuð hjá sumum í restina.  Mótorhjól og hundar áttu þó nokkra þokkalega spretti inn á milli.  Veður var svalt og blautt, en nokkuð vel þótti takast til við smölunina.


Efst á síðu  ~ : ~


Endurskinsmerki
1
3. september 2007 - 22:11

Félagar í sveitinni dreifðu nýjum endurskinsmerkjum slysavarnasviðs Slysavarnafélagsins Landsbjörg í öllum bekkjum Klébergsskóla. Endurskinsmerkin þóttu mjög "töff" og oft tók langan tíma að velja rétta merkið. Kennarar og aðrir starfsmenn voru mjög hrifin af merkjunum og fengu þau líka að velja sér eitt. Öll endurskinsmerkin kláruðust.

         


Efst á síðu  ~ : ~


Skemmdarverk - áhrif á útköll
1
. september 2007 - 20:11

Talsvert hefur borið á eignatjóni björgunarsveita vegna innbrota og skemmdarverka. Ekki er hægt að segja hvort um er að ræða vaxandi virðingarleysi eða gjörðir af völdum einhverrar neyslu sem veldur en eitt er víst að áhrifin geta verið talsverð fyrir sveitirnar og þar af leiðandi einnig fyrir almenning. Það að hnupla búnaði ætluðum til björgunarstarfa eða valda skemmdum á honum orsakar verulegar tafir eða jafnvel það að sveit sé óútkallshæf þegar einhver þarf á aðstoð að halda!

Almenningur þarf að gera sér betur grein fyrir því hvað felst í starfi Slysavarnafélagsins Landsbjörg (SL). Innan samtakanna er kappkostað við að halda uppi öflugum tækjakosti, markvissu þjálfunar- og fræðslustarfi til að tryggja skjót og fagleg viðbrögð við vá.

Vitnað í Þórgunni Oddsdóttur (Fréttablaðið 27.ágúst 2007)
„ ..Íslensku björgunarsveitirnar eru íslenski herinn. .. Við veitum þessum her okkar enga sérstaka athygli. Meðan aðrar þjóðir steypa í brons myndir af hershöfðingjum sínum þekkja Íslendingar enga björgunarmenn með nafni. Íslensku hermennirnir vilja ekki frægð og upphefð en þeim veitti ekki af nokkrum milljónum. ”

Allur ágóði af fjáröflun eininga innan SL fer í viðhald búnaðar, rekstur tækja og annarra þátta til að geta boðið upp á sem öflugasta neyðarþjónustu. Kostnaður slíks reksturs er mikill, svo ekki sé talað um allar þær ólaunuðu vinnustundir sem menn leggja fram.

Siðlaus skemmdarverk nýlega unnin á björgunarskipi í Sandgerðishöfn skapaði óþarfa töf á björgunaraðstoð ef hana hefði vantað. Fé og tími sem fór í hreinsun á koppafeiti og dufti úr slökkvitækjum hefði mátt nýta í verðugri verkefni.

Við í björgunarsveitinni Kili höfum einnig orðið fyrir barðinu á einstaklingum sem ekki bera virðingu fyrir okkar starfi. Ýmsum búnaði var í sumar stolið úr nýjum bát sveitarinnar þar sem hann stóð utan við verkstæði. Í síðustu viku var brotist inn í Esjuskála og meðal þess sem þjófar höfðu á brott voru merktir söfnunarbaukar sveitarinnar. Þó stuldurinn komi ekki til með að hafa áhrif á útkallshæfni sveitarinnar og tæplega fjárhaginn heldur, svíður okkur undan skeytingaleysinu. Baukarnir voru þar að auki hannaðir og smíðaðir af sveitarmeðlimi.

Virðið okkur svo við getum bjargað ykkur!

Efst á síðu  ~ : ~

Skólaval unglingadeildar
27
. ágúst 2007 - 21:30

Eins og áður er samstarf milli Kjalar og Klébergsskóla í skólavali um björgunarsveitarstörf og ferðamennsku. Ný dagskrá skólavals unglingadeildar veturinn 2007 - 2008 í Klébergsskóla birtist >>hér (pdf skjal)<<.
Dagskráin verður uppfærð ef þörf er á og birt jafnóðum Á DÖFINNI hér á síðunni.

Efst á síðu  ~ : ~


Leit í Skaftafelli
25
. ágúst 2007 - 10:15

Leit stendur nú yfir að tveimur þýskum ferðamönnum í fjalllendi og jöklum við Skaftafell í Öræfum. Um eitt hundrað leitarmenn verða við störf um helgina. Meðal þeirra eru þrír menn frá björgunarsveitinni Kili, tveir fjallamenn og einn bílstjóri. >> myndir hér <<  Meðal annars verður fínleitað á svæðum sem áður hefur verið leitað á. Leit hefur staðið yfir frá því á þriðjudag og tjöld þjóðverjanna fundust við Svínafellsjökul, sem leiddi til þess að hægt var að þrengja leitarsvæðið. Um helgina verður aukinn þungi í leitinni, meiri mannskapur, þyrlur og hundar leggjast á eitt við að finna mennina. Svæðið er erfitt yfirferðar og þegar hefur einn björgunarsveitarmaður slasast við störf.

Efst á síðu  ~ : ~

ÚTIVERA
2
. ágúst 2007 - 9:15

 

,,Tímaritið Útivera býður félögum Björgunarsveitarinnar Kjalar sumar og ferðatilboð sem fáir fást staðist;

Fyrstu 3 tölublöðin með 50% afslætti eða 422 krónur hvert tölublað
Hvert tölublað eftir það með um 35% afslætti eða 555 krónur hvert tölublað
Bókin Skyndihjálp á ferðinni fylgir frítt með, skyldueign hvers björgunarsveitarmanns

Smelltu þér á tilboðið núna með því að skrá þig á áskriftarsíðu Útiveru, http://www.fjolvi.is/index.php?option=com_content&task=view&id=29&Itemid=50&timarit=2
Munið að skrá í athugasemdareit að þú sért félagi í Kili.

 Göngu-,jeppa- og kajakferðir eru aðeins lítill hluti þess sem fjallað er um í tímaritinu Útiveru. Búnaðarprófanir, leiðar- og svæðislýsingar, fræðsluefni og fréttir og fróðleikur úr heimi útivistarinnar sem sífellt fleiri líta á sem aðskiljanlegan hluta lífsins. Þú getur lesið þér nánar til um efni Útiveru hér http://utivera.is/tolublod/

  Efst á síðu  ~ : ~

Styrkir
28
. júlí 2007 - 10:00

Nýlega afhentu Vátryggingafélag Íslands og Orkuveita Reykjavíkur styrki til rekstrar sveitarinnar. Styrkur VÍS er 250.000 kr og styrkur Orkuveitunnar er 500.000 kr. Einnig styrkti Slysavarnafélagið Landsbjörg bátakaup Kjalar um 600.000 kr.
Bjsv Kjölur þakkar fyrir veittan stuðning og styrkirnir koma að góðum notum.

 
 Efst á síðu  ~ : ~

Sigling á slöngubát
30
. júní 2007 - 22:30

Einstaklega gott veður hefur verið til útivistar undanfarið. Dagurinn í dag var tekinn snemma og farið í siglingu á slöngubátnum um spegilsléttan sjóinn um sundin blá. Leiðin lá í Snarfarahöfn og farið í land í Akurey, Engey og Viðey, skoðuðum skemmtiferðaskipið Grand Princess, skútur og Reykjavíkurhöfn. Aðalerindið var samt öryggisgæsla vegna brautarkeppni sportbáta sem fram fór eftir hádegið. Keppnin var á vegum Snarfara og R.Sigmundssonar og fór fram í Rauðarárvík, við ströndina hjá Sæbraut.  Um 10 bátar kepptu eftir fyrirfram ákveðinni braut í nokkrum flokkum, alltaf  tveir í brautinni í einu. Allt gekk áfallalaust fyrir sig, en fleiri björgunarsveitir hefðu mátt mæta til að sinna öryggisgæslunni, en auk okkar voru menn frá Ársæli, SHS og lögreglu. Fleiri myndir eru á myndatenglinum.
  Efst á síðu  ~ : ~

Umferðarátak
27. júní 2007 - 22:30

Síðastliðin tvö ár hafa Umferðarstofa og Slysavarnafélagið Landsbjörg í sameiningu sett upp borða, með skilaboðum til ökumanna, á átta brýr á höfuðborgarsvæðinu fyrir tvær stærstu ferðarhelgar ársins. Sami háttur verður hafður á nú í sumar og setti Björgunarsveitin Kjölur borðana upp í dag. Þeir eru góð áminning til ökumanna um að huga að öryggi sínu og farþega sinna í umferðinni en skilaboðin á þeim eru t.d. Ertu fréttaefni morgundagsins?, Ferðu til baka í sjúkrabíl?, Sumir fara aldrei framúr aftur! og Ertu að flýta þér í þitt eigið slys? Markmiðið með borðunum er að fá ökumenn til að hugsa sig tvisvar um áður en þeir taka áhættu í umferðinni. Það er alveg ljóst að betra er að koma aðeins seinna á áfangastað og komast þangað heill á höldnu en að taka óþarfa áhættur (tekið af vef Landsbjargar).
  Efst á síðu  ~ : ~

Heimasíðan
27. júní 2007 - 22:00

Heimasíðan hefur legið niðri undanfarið vegna fyrirvaralausrar niðurfellingar á léni sveitarinnar bjorgunarsveit.com. Kjölur hefur fengið sér nýtt lén www.bjsvkjolur.is og startað heimasíðunni upp á nýtt.
 
 Efst á síðu  ~ : ~

Bílbeltakönnun
15. júní 2007 - 21:40

Umferðarstofa og Slysavarnafélagið Landsbjörg stóðu að landskönnun á notkun bílbelta hjá ökumönnum í dreifbýli og þéttbýli í lok maí.
Á Kjalarnesinu gerði Kjölur úttekt á tveimur stöðum í og við Grundarhverfi, meðal annars við Klébergsskólann til að huga að akstri með nemendur. Niðurstöður úr skráningu sýndu mikinn mun á beltanotkun, eftir því hvert ferðinni var heitið. Á vesturlandsvegi voru um 95% ökumanna með beltin spennt, en aðeins um 50% ökumanna sem voru á ferð innan hverfis, sem gefur ítrekað tilefni til að minna alvarlega á að það er
ekki síður mikilvægt að nota bílbeltin í styttri ferðum.

Til stendur að endurtaka könnunina í sumar
og verður úttekt gerð á sömu stöðum um land allt.

 Efst á síðu  ~ : ~

Kjalarnesdagurinn
23. maí 2007 - 18:00

Kjalarnesdagurinn var haldinn hátíðlegur laugardaginn 19. maí og tókst vel í alla staði. Að skrúðgöngu lokinni söng karlakór Kjalarness í Fólkvangi, menningarhúsi Kjalnesinga. Marta Guðjónsdóttir fulltrúi í borgarstjórn og hverfisráði Kjalarness setti hátíðina.  Styrkur VÍS tryggingafélags var afhentur til björgunarsveitarinnar á Kjalarnesi og Hólmar Stefánsson formaður Kjalar veitti honum viðtöku og flutti ávarp. Þá voru til sýnis handverk heimamanna, jafnt smárra leikskólanemenda og fullorðinna, upplestur skólabarna, boðið var upp á andlitsmálun og félagsmiðstöðin Flógyn var opin. Einnig voru teikningar af nýrri hreinsistöð sýndar og gamli flotti slökkviliðsbíllinn til sýnis. Pylsur og sælgæti í boði, slöngukastalar til að hoppa og renna sér á og slöngubátur Kjalar skoppaði á rennisléttum sjónum í Hofsvíkinni. Um kvöldið var síðan dúndrandi ball og fjör upp um alla veggi með hljómsveitinni Signia.
Sjá myndir á myndasíðu.

 
Efst á síðu  ~ : ~

Reykjavíkurborg styrkir
17
.maí 2007 - 20:40

14. maí s.l. undirritaði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri Reykjavíkur og fulltrúar björgunarsveita í Reykjavík styrktarsamning til þriggja ára. Björgunarsveitirnar sem um ræðir eru Björgunarsveitin Ársæll, Björgunarsveitin Kjölur, Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík og Hjálparsveit skáta í Reykjavík. Samkvæmt samningnum mun Reykjavíkurborg styrkja björgunarsveitirnar næstu þrjú árin eða frá 2007 til 2009 um sex milljónir króna á ári, eða samtals átján milljónir á samningstímanum. Styrkurinn er veittur til stuðnings almennu björgunar- og hjálparstarfi björgunarsveitanna en auk þess skal honum varið til ungmennastarfs þeirra. Borgarstjóri sagði mikilvægt að styðja við bakið á björgunarsveitunum sem hafa á aða skipa þaulreyndu liði sem tilbúið er að takast á við hvern þann vanda sem upp kann að koma. Haukur Harðarson, sveitarforingi Hjálparsveitar skáta í Reykjavík, segir styrkinn vera mjög mikilvægan fyrir starfsemi björgunarsveitanna. Hann renni fastari stoðum undir starfsemi þeirra og auðveldi einnig nýliðun sveitanna.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri og fulltrúar björgunarsveita í Reykjavík
tóku höndum saman við undirritun samningsins.      
Af vef Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Efst á síðu  ~ : ~

Leitaræfing
13
.maí 2007 - 21:30

Um daginn var haldin leitaræfing til að skoða möguleika á nota bifhjól við leit. Farið var um vegi og slóða á Kjalarnesinu og kannað var hvernig sjónsviði var háttað af hjóli á mismunandi hraða. Til samanburðar var einnig leitað með bíl.

Hjólin komu vel út, voru lipur í snúningum og fundu hina "týndu" nokkuð auðveldlega.  Hinir "týndu" voru um 2 - 5 m frá vegi ýmist ofan í skurði eða þýfðu landi. Fjarskipti við hjólin gengu vel.
Efst á síðu  ~ : ~

Vettvangshjálp - námskeið
9
.apríl 2007 - 21:30

Nýverið lauk námskeiði í vettvangshjálp, sem haldið var hjá SHS fyrir bjsv. Kjöl og Slökkvilið Kjalarness. Námskeiðið spannaði 40 stundir og að auki boðið upp á verklegar viðbótaræfingar á slökkvistöðinni á Tunguhálsi. Námskeiðinu lauk með skriflegu prófi úr öllu námsefninu auk verklegs prófs úr hluta námsefnis. Þetta var fyrsti hópurinn til að fara í gegnum þetta nýja námsefni, sem er bandarískt, þýtt og aðlagað íslenskum aðstæðum. Námskeiðið er ætlað þeim sem veita fyrstu bráðaþjónustu áður en sjúkraflutningamenn koma á vettvang.
 
Sjálfvirkt hjartastuðtæki sömu gerðar og SHS vinnur með, verður afhent sveitinni innan skamms og verður þá sérstök upprifjun á notkun þess.

Efst á síðu  ~ : ~

Aðalfundur
6
.apríl 2007 - 10:20

Aðalfundur Kjalar var haldinn í síðustu viku. Flestir í stjórn gáfu kost á sér áfram nema formaðurinn og var Hólmar því samþykktur inn í stjórn í stað Hermanns. Núverandi stjórn er því;

Formaður: Hólmar Þór Stefánsson

Varaformaður: Birgir Þ. Guðbrandsson

Gjaldkeri: Sonja Þórsdóttir

Ritari: Anna L. Filbert

Meðstjórnendur:
Kristinn Haraldsson
Baldvin Þ. Grétarsson

Sveitin er ágætlega sett fjárhagslega, en huga þarf að húsnæðismálum og endunýjun bíls á næstunni auk smærri verkefna.
Efst á síðu  ~ : ~

Aðalfundur bjsv Kjalar
18. mars 2007 - 16:00

Miðvikudaginn 28. mars n.k. verður haldinn aðalfundur Kjalar í Þórnýjarbúð kl 20.
Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf skv. lögum sveitarinnar s.s.

Fundargerð síðasta aðalfundar
Skýrsla stjórnar
Reikningar lagðir fram
Lagabreytingar
Stjórnarkjör
Kosning skoðunarmanna
Önnur mál

Mælst er til þess að menn komi með björgunarsveitargallana með sér vegna myndatöku.
Efst á síðu  ~ : ~

Kajakræðari á stefnumóti við sel á Hofsvíkinni
24
. feb 2007 - 17:00

Á föstudaginn var kajakræðari bjsv Kjalar á ferð skammt undan landi á Kjalarnesi í góðu veðri. Vissi hann þá ekki fyrrr en hann fékk óvæntan selskap (: )  Selur nálgaðist hann á bakborða, laumaðist hljóðlaust að og skoðaði bát og ræðara í návígi, kannski með smá ástarglampa í auga.  Selurinn dundaði sér við þessa nærskoðun í góðan hálftíma og þetta er ekki einsdæmi um sel í víkinni, þótt aldrei hafi hann verið svo nærri. Fleiri myndir >>>>> hér


Efst á síðu  ~ : ~

1 1 2 dagurinn
13
. feb 2007 - 22:00
1 1 2 dagurinn var haldinn hátíðlegur um land allt á sunnudaginn var. Á höfuðborgarsvæðinu fór lest bíla og tækja frá viðbragðsaðilum um götur borgarinnar og endaði í Smáralind. Þar voru tækin til sýnis úti og inni. Kerru með slöngubát Kjalar var rétt hægt að smeygja inn um snúningshurð Smáralindar og þar var hann til sýnis á göngugötu neðri hæðar ásamt tveimur kajökum.  Aðrar sveitir og viðbragðsaðilar voru þarna einnig með tæki og tól og margir forvitnuðust um störf þeirra. Þyrla Landhelgisgæslunnar sýndi hífingar þegar SHS æfði björgun úr bílflaki á bílastæðinu. Myndir frá Smáralindinni eru >>> hér.
Efst á síðu  ~ : ~

Kajakróður að kveldi í Kópavogi
9
. feb 2007 - 22:15
Nýverið var kajakhópur HSSK heimsóttur og farið í kvöldróður um Fossvoginn.  Nokkur forföll urðu í Kjalarhópnum vegna veikinda og anna, aðeins einn mætti til leiks. Það var fróðlegt fyrir ræðara, sem yfirleitt nýtur félagsskapar sjófugla og sela, að upplifa annað umhverfi með borgarljósum, skipaumferð og manngerða strönd. Kópavogsræðarar hafa unnið leitarskipulag fyrir strandlengjuna frá Gróttu að Eyri á Álftanesi og mun samskonar skipulag verða unnið fyrir Kjalarnesið í sumar.
Efst á síðu  ~ : ~

Nýi báturinn klár
7
. jan 2007 - 15:15

Nú er nýi báturinn er loksins klár, nokkur smáatriði eftir. Myndin hér að ofan er af bátnum, tekin núna um hátíðarnar. Um borð handsala þeir Oliver fulltrúi OLÍS og verslunarstjóri OLÍS Esjuskála, Kjalarnesi og Hólmar fyrir hönd Kjalar, styrk OLÍS vegna endurnýjunar bátsins og flugeldasýningar. Ennfremur hafa eftirtaldir styrkt sveitina á síðast liðnu ári;

Kvenfélag Kjalarness vegna endurnýjunar á björgunarbát,
KBbanki vegna endurnýjunar á björgunarbáti,
Reykjavíkurborg hverfisráð Kjalarness vegna unglingastarfs,
SPRON vegna endurnýjunar björgunarbáts,
Kiwanisklúbburinn Geysir Mosfellbæ vegna endurnýjunar björgunarbáts,
Faxaflóahafnir sf vegna rekstrar björgunarbáts,
Húsasmiðjan vegna endurnýjunar óveðurskistu og búnaðar,
svo síðast en ekki síst,
almenningur með kaupum á Leitarkalli, flugeldum og á ýmsu öðru.

Kann Kjölur þeim bestu þakkir fyrir það.
Efst á síðu  ~ : ~
Þrettándaflugeldasala
auglýsing >>smellið hér


Björgunarsveitin Kjölur
óskar öllum gleðilegs nýs árs  :)
1
. jan 2007 - 15:48

Áramótabrennan 2006 á Klébergi. Fleiri myndir >> hér



2007