Námskeiðahald
2.
des 2006 -
14:00
Í haust hafa 9 félagar í Kili ásamt 2 mönnum
úr slökkviliði Kjalarness, setið
fyrstu
hjálpar námskeið á vegum SHS.
Námsefnið er íslenskað og unnið upp
úr
nýjustu bók AAOS (American Academy of
Orthopaedic Surgeons) "First responder -
your first response in Emergency care".
Námskeiðið spannar um 40 stundir. Í haust
hefur m.a. verið farið yfir starfssvið
viðbragðsaðila, endurlífgun, mannslíkamann,
líkamsskoðun, flutninga, búnað sjúkrabíla,
skráningu og fjarskipti. Áætlað er að
námskeiðinu ljúki með prófi um miðjan mars
2007.
(Á myndinni er kennarinn Ólafur Ingi
Grettisson frá SHS, að mæla blóðþrýsting hjá
Adam).
Efst á síðu
Ófærð á Kjalarnesi
19.
nóv 2006 -
20:00
Aðfararnótt sunnudagsins gerði slæmt veður
með hvassviðri og ofankomu (mynd
af vef Veðurstofunnar af mæli
Vegagerðarinnar við Esjuberg).
Vindur í hviðum fór upp undir 30 m/sek. við
Skrauthóla. Útkall kom og Kjölur fór á
stúfana rúmlega 3 um nóttina og var færðin
þá orðin slæm, blint og bílar víða fastir í
sköflum og jafnvel farið út fyrir veg.
Bílum var snúið við þar sem ófært var upp á
Akranes og bílalest var fylgt í Mosfellsbæ
og fólki var ekið heim sem ekki treysti sér
til að aka lengur.
Veður gekk niður um
10 leytið um morguninn og byrjað að moka
aðalleiðir um það leyti. Síðdegis
þegar veðri slotaði var farið að draga bíl
upp á veg sem hafði lent út í skurði í
blindunni um nóttina við
Saltvíkurafleggjarann.
Nánar um verkefnin má
sjá undir liðnum
Útköll hér til hliðar.
Efst á síðu
Styrkir til bátakaupa
15.
nóv 2006 -
19:00
Nýlega veitti Kiwanisklúbburinn Geysir
björgunarsveitinni Kili s
tyrk að upphæð
200.000 kr vegna bátakaupanna. Það var á
fjölmennum Kiwanisfundi
1. nóvember s.l. sem styrkurinn var afhentur
og það gerði forseti Geysismanna Sigurður
Ólason og á myndinni hér til hliðar má sjá
formann Kjalar Hermann Þorsteinsson taka við
styrknum. Einnig hefur KBbanki í Mosfellsbæ
styrkt bátakaupin um 100.000 kr og kunnum
við þeim bestu þakkir fyrir.
Efst á
síðu
Annasöm helgi
5.
nóv 2006 -
17:00
Um
helgina hefur Kjölur staðið í ýmsum
verkefnum. Fyrst var útkallsæfing á
laugardagsmorgun með SHS þar sem verkefnið
var eldur í bíl og slasað fólk. Þá tók við
First Responder námskeið á vegum SHS eftir
hádegið. Ákveðið var vegna vondrar veðurspár
og hárrar sjávarstöðu að fara snemma á
sunnudagsmorgun og vakta sjávarágang neðan
Grundarhverfis
og Vallár og i Kollafirði.
Fljótlega var síðan boðað útkall á svæði
eitt og verkefnum ringdi inn, festa
þakplötur, negla fyrir glugga, fergja
trampolín og fleira í þeim dúr. Lítið var að
gera á Kjalarnesi en þó nokkur verkefni í
Mosfellsbæ. Sveitin lauk störfum um
hádegisbil. Einnig var gengið í hús um
helgina á Kjalarnesi og Kjós og seldir
neyðarkallar í fjáröflun Slysavarnafélagsins
Landsbjörg. Vel var tekið á móti félögum við
sölustörf.
Á
myndinni hér að ofan við fjörubakkann neðan
Esjugrundar, sem nagast úr í svona veðrum,
má sjá þara og grjót sem hefur kastast upp á
bakkann. Það voru um 25 m að lóðarmörkum frá
þeirri spýju sem gekk lengst upp.
Efst á
síðu
Ráðstefnan Björgun 2006
23.
okt 2006 -
21:30
Helgina 20. til 22. október hélt
Slysavarnafélagið Landsbjörg ráðstefnuna
Björgun 2006 á Grand Hóteli í Reykjavík. Við
setningu var undirritað samkomulag um
stofnun einkahlutafélags, Öryggisfjarskipti
ehf, sem mun annast uppsetningu á
Tetra-kerfi um allt land. 1. áfangi alls 111
sendar eiga að vera komir í gagnið næsta
sumar og verður leitað til björgunarsveita
með staðsetningu senda og uppsetningu.
Ráðstefnan stóð í þrjá daga og voru
fyrirlestrar íslenskir og erlendir í boði
alla dagana auk tækja- og búnaðarsýningar á
laugardeginum. Tveir fulltrúar Kjalar kynntu
sér meðal annars nýjar áherslur í
endurlífgun, sænska skógarelda, leitarsvið
og aðferðir, slysa- og áverkaferli,
sjónarhorn lögreglu við leit og björgun og
fyrstu viðbrögð á vettvangi frá sjónarhorni
réttarmeinafræðings. Allt var þetta mjög
fróðlegt og áhugavert.
Efst á
síðu
66°Norður
21.
okt 2006 -
22:00
Landsbjargarfélagar fá 20% afslátt
hjá 66°Norður frá 20. - 26. október. Þá
verður kynningarkvöld fyrir meðlimi
Landsbjargar í Faxafeni 12, 26. október
kl 18 - 20.
Efst á
síðu
Göturatleikur
12.
okt 2006 -
22:00
Síðastliðinn sunnudag skipulögðu Gilwell
skátar ásamt bsv Kili ratleik í
Grundarhverfi, fyrir krakka 9 - 15 ára.
Frekar slæmt veður var
og því var allt fært inn sem hægt var og
krakkarnir selfluttir í fjórum 5 - 6 manna
hópum milli húsa. Á póstunum var boðið upp á
leiki, kassaklifur, refaleit
(snjóflóðaýluleit), kayakróður í sundlaug,
fræðslu í björgunarsveitarhúsi og kakósopa.
Nánar má sjá myndir á
>>
Skátavefnum <<.
Myndina hér til hliðar af Önnu og Bjarna í
kayakróðri tók Anna María Þórðardóttir.
Efst á síðu
Æfingar með SHS
15.
sept 2006 -
22:00
Dagskrá æfinga og námskeiða með SHS veturinn
06 - 07, er nánanst tilbúin og er
aðgengileg undir DAGSKRÁ hnappinum hér
til hliðar. Þar er einnig birt öll dagskrá
skólavals unglingadeildar Klébergsskóla.
Dagskráin verður uppfærð ef þörf er á og
birt jafnóðum Á DÖFINNI. Fyrsta æfing SHS er
laugardaginn 7. október.
Efst á
síðu
Nýr bátur væntanlegur í október
3.
sept 2006 -
17:00
Nú fer að styttast í það að nýr bátur komi
til sveitarinnar.
Búið
er að panta Zodiac af MKIV gerð og
áætlað að hann komi til landsins í október.
Hann er sömu gerðar og þeir eiga tvo eintök
af í björgunarsveitinni
Þorbirni í Grindavík. Af þessu tilefni
fóru nokkrir Kjalarmenn í heimsókn til
þeirra Þorbjarnarmanna m.a. til að
taka mál
af bátnum þeirra vegna kerrusmíðar.
Gamli bátur Kjalar verður seldur til björgunarsveitarinnar Heimamanna
Reykhólasveit.
Á myndinni eru þeir Hermann frá Kili og
Otti frá Þorbirni þungt hugsi yfir tækinu.
Með síðustu verkefnum gamla bátsins var í
Hvammsvíkurmaraþoni í gær. Kjölur fylgdi þá
kajakræðurum frá Hvammsvík til Geldinganess,
ásamt Atlanticbát frá björgunarfélagi
Akraness. Aðstæður voru slæmar, NA þræsingur
í Hvalfirðinum og Kjalarnesi, um 15 m/sek.
11 ræðarar lögðu í hann engu að síður og
glímdu hart við Ægi. Verulega teygðist úr
hópnum og þurfti að aðstoða nokkra við að
komast í land eða um borð í kajakinn á ný
eftir veltu. Fimm ræðarar af 11 komust alla
leið í rjómablíðuna á Geldinganesinu.
Efst á síðu
Heimsókn í slökkvistöð í Árbæ
25.ágúst 2006 -
22:00
Miðvikudaginn 23. ágúst fóru nokkrir
félagar úr sveitinni í heimsókn í
slökkvistöðina Tunguhálsi í Árbæ. Þar tók
Þórður Bogason á móti hópnum. Hann sýndi
húsnæðið og tækjakost, en stöðin þjónar
meðal annars Mosfellsbæ og Kjalarnesi.
Rólegt var á vaktinni framan af, en eins og
oft áður þegar námskeið eða heimsóknir hjá
SHS eiga í hlut, kom útkall. Þórður stökk af
stað vegna elds hjá Norðuráli á
Grundartanga, en björgunarsveitin þurfti
ekki að bregðast við að þessu sinni.
Efst á síðu
Skiltin komin upp í Heiðmörk
27.
júní 2006 -
22:20

Skiltavinnu í Heiðmörk er lokið. Sett voru
upp 41 upplýsingaskilti fyrir göngufólk
víðsvegar meðfram göngustígum í
Vifilsstaðahlíð og Elliðavatnsheiði.
Aðstoðað var við að færa eitt stórt skilti
og lagfæra tvö önnur. Sveitin var
nokkur kvöld síðustu tvær vikur að ljúka
verkinu. Skemmtilegt verkefni í fallegu
umhverfi.
Efst á síðu
Heimsókn í Grindavík
13.
júní 2006 -
22:20
Farið verður í heimsókn til
björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í Grindavík
mánudaginn 19. júní, mæting í Þórnýjarbúð kl
19. Þar sem Kjölur er í
bátakaupahugleiðingum bauðst að prófa Zodiak
Mark IV sem Þorbjörn á. Þeir Grindavíkurmenn
hafa verið liðlegir að miðla af bátareynslu
sinni og einnig Ársælsmenn, sem áður voru
heimsóttir í sama tilgangi.
Efst á síðu
Skiltavinna í Esju og Heiðmörk
8.
júní 2006 -
18:20
Björgunarsveitin Kjölur hefur undanfarið
unnið við skiltauppsetningar í Esjuhlíðum
og í Heiðmörk og er þetta fjáröflun
sveitarinnar til björgunarbátakaupa. Það er
Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík
sem hefur
forgöngu um skiltauppsetninguna í
Esjuhlíðum, en Skógræktarfélag Reykjavíkur,
sem verður 60 ára á árinu, stendur að
verkefninu í Heiðmörk. Fjölmargir aðilar
koma að undirbúningi, s.s. hönnun, kostun og
framleiðslu skiltanna, en þetta eru
gönguleiðaskilti með upplýsingum fyrir
útivistarfólk. Uppsetningu sex skilta er
lokið í Esjuhlíðum, sem verða vígð á
Esjudaginn, en núna um hvítasunnuhelgina
voru Kjalarmenn að grafa fyrir undirstöðum
um 30 skilta af 50 í Heiðmörk (sjá mynd
fyrir ofan og fleiri
>> myndir
bæst við á myndasíðu Kjalar <<).
Efst á síðu
Steypt undir skilti í Esjunni
28.
maí 2006 -
20:20
Í
gær, laugardaginn 27. maí, luku menn úr Kili við að
steypa undirstöður undir ný skilti, sem
setja á upp á gönguleið á Þverfellshorn í
Esjunni.
Efst á síðu
Námskeið og útköll
21.
maí 2006 -
18:15
Enginn friður hefur verið á síðustu tveimur
námskeiðum sveitarinnar með SHS mönnum, því
rjúka hefur þurft af stað í útköll á miðju
kafi. Laugardaginn 13. maí var meðal annars
farið yfir Tetra fjarskiptakerfið þegar
beiðni barst um aðstoð vegna bílslyss í
Kjósinni. Laugardaginn 20. maí var verið
fara yfir búnað sjúkrabíls þegar óskað var
eftir aðstoð vegna umferðarslyss í
Hvalfjarðargöngum. Því má segja að kennslu
hafi verið haldið áfram í aðgerð á
vettvangi. Nánar má lesa um útköllin í nýjum
tengli hér til vinstri.
Efst á síðu
Ný myndasíða Kjalar
13.
maí 2006 -
10:15
Myndefni björgunarsveitarinnar hefur verið
sett á nýjan myndavef -
lítið á
!!
Efst á síðu
Fyrstu-hjálpar-kvöld SHS á miðvikudaginn
10.
apríl 2006 - 20:30
Annað fyrstuhjálpar kvöld SHS verður núna á
miðvikudaginn 12. apríl í
Þórnýjarbúð. Tekið
verður fyrir aðkoma að bílslysi.
Slökkvilið Kjalarness og Kjölur héldu sína
fyrstu sameiginlegu æfingu um helgina. Æfð
voru handtök við að leggja slöngur og
vatnsöflun með dælum. Fleiri myndir
>>> hér.
Efst á síðu
Æfingadagskrá SHS fyrir Kjöl
6.
apríl 2006 - 17:30
Nú er að fara í gang æfingar, fræðsla og
kynningarfundir vegna samstarfs við SHS.
Búið er að fara yfir nýjan sjúkrabúnað undir
styrkri stjórn Stefnis Snorrasonar
bráðatæknis. Á laugardaginn 8. apríl
verður æfing á heimasvæði með
slökkviliðsmönnum af Kjalarnesi, stöð 800.
Æfingin snýst um vatnsöflun, brunahana og
sog úr sjó og lækjum. Laugardaginn 22.
apríl verður kynningarfundur á boðun, aðkomu
og samstarf á vettvangi. Laugardaginn
13. maí verður fjallað ítarlegar um aðkomu á
slysstað, skipulag á vettvangi, fjarskipti
og fleira. Laugardaginn 20. maí kemur
sjúkrabíll í Þórnýjarbúð og verður fræðst um
búnað hans.
Efst á síðu
Samstarf bjsv Kjalar og SHS
21.
mars 2006 - 19:30
Formlega var gengið frá samstarfi
slökkviliðs höfuðborgarsvæðis og bsv. Kjalar
með undirritun samnings í dag. Sjá nánar
frétt með mynd á
heimasíðu
Landsbjargar.
Efst
á síðu
Starf með nemendum í Klébergsskóla,
bátaæfing
15.
mars 2006 - 10:30

Fleiri myndir úr starfi með nemendum
Klébergsskóla eru
hér.
Hópur nr. 2 hefur lokið við búnaðarkynningu
og slöngubátaæfingu.
Efst á síðu
VETRARFERÐIN
2.
mars 2006 - 18:30
Vetrarferð, 10. - 12. mars n.k. verður farin
í Hálsaból
www.halsabol.net við Grundarfjörð á
Snæfellsnesi. Skráning í síma 893-3620 eða
saramb@internet.is Bústaðurinn kostar
13.000 kr, tveir í boði, alveg útaf fyrir
okkur. Hvor bústaður tekur 6 - 8 manns.
Skráning fyrir mánudag 5. mars n.k.
Efst á síðu
1 1 2 dagurinn
13.
febrúar 2006 - 23:00
1 1
2 dagurinn var haldinn hátíðlegur þann 11.2
s.l. um allt land. Á höfuðborgarsvæðinu ók
lest björgunartækja með blikkandi ljósum, í
lögreglufylgd og með þyrlu sveimandi yfir,
frá björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð um
Reykjavík, Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð.
Opið hús var í Björgunarmiðstöðinni og
kynning á starfsemi viðbragðsaðila, s.s.
lögreglu, björgunarsveita, rauða krossins,
heilbrigðisstofnana, landhelgisgæslu,
slökkviliðs og fleiri. Einnig var kynnig við
Reykjavíkurhöfn þar sem m.a. varðskip og
björgunarskólaskip voru til sýnis.
Björgunarsveitir sýndu tækjakost sinn og
búnað m.a.; vélsleða, jeppa,
stjórnstöðvarbíl, snjóbíl, báta og
leitarhunda. Kjölur sýndi kayakana fyrst og
fremst, en var einnig með slöngubátinn og
bílinn. Margt var um manninn á planinu við
Skógarhlíð og ófáir vildu fræðast og eða
máta sig í kayaka.
Efst á síðu
Kynning fyrir nemendur
9. og 10. bekkja Klébergsskóla
2.
febrúar 2006 - 22:00
Þessa daga og vikur fer fram kynning á
björgunarsveitarstarfi sem valáfangi
í 9. og 10. bekk Klébergsskóla. Farið er í
nokkra þætti björgunarsveitarstarfa og er
fræðslunni skipt á milli verklegra æfinga og
fyrirlestra. Fyrsti hópur nemenda mætir einu
sinni í viku í janúar og febrúar og er nú
hálfnaður með áfangann. Í mars og apríl mun
næsti hópur taka við. Flestir tímar
fara fram í Þórnýjarbúð, en kassaklifur var
í íþróttahúsinu þar sem það býður upp á
meiri lofthæð. Alls náðist að klifra upp 26
kassa upp í tryggingar og er það
Kjalarnesmet. Þeirri hæð náði einn nemenda,
Hólmar, í fyrstu tilraun.
Nokkrar myndir úr kassaklifri og
ferðamennskutíma má sjá
>>> hér
og fleiri bætast við síðar.
Efst á síðu
Heimasíðumál
23.
janúar 2006 - 12:00
Uppfærsla heimasíðunnar hefur legið niðri um
hríð vegna tæknilegra örðugleika hjá hýsli
síðunnar, sem legið hefur undir árásum
tölvuþrjóta og þurfti að færa heimsíðusvæðið
til. Vonandi hefur það ekki komið að sök.
Efst á síðu
Efst á síðu
2006
Gleðilegt nýár !!
2.
janúar 2006 - 12:00
.jpg)
Ljósadýrð
yfir Grundarhverfi
á Kjalarnesi,
ljósm. Friðrik Theodórsson.
Í
mörg horn var að líta hjá björgunarsveitinni
á gamlársdag. Vinna við uppsetningu
flugeldasýningar stóð fram eftir degi í
áhaldahúsinu. Skotpallar fengust að láni hjá
HSSR og uppsetningu önnuðust Árni Sveinsson,
Hólmar, Biggi og Pétur Ostapiuk.
Flugeldasalan var opin frá 10 - 16 og var
tómlegt um að litast í gáminum við lokun,
enda seldust upp margar tegundir..JPG)
Kveikt var í myndarlegri brennu á Klébergi
um kvöldið og stuttu síðar hófst
flugeldasýningin neðan við Fólkvang. Margt
var um manninn á brennunni og brúðhjón gengu
spariklædd til brennu frá brúðkaupsveislu í
Fólkvangi. Veður var hið besta um miðnætti
og mikið sjónarspil að sjá ljósadýrðina loga
um allan næturhimininn. Fleiri myndir
>> hér.
Á myndinni
sjást Biggi og Árni hlaða skothólkana,
ljósm. María Theodórsdóttir.
Efst á
síðu
F L U G E L D A S Ý N I N G
31.
desember 2005 - 19:00
Björgunarsveitin Kjölur
þakkar íbúum Kjalarness og Kjósar fyrir
veittan
stuðning á árinu
og
býður upp á
flugeldasýningu á Gamlárskvöld
stuttu eftir
að kveikt
verður í brennunni.
Áætlaður
skottími er kl 20:45.
Kveikt verður
í brennunni á Klébergi kl 20:30
Minnum á
opnunartíma flugeldasölunnar við
áhaldahúsið,
Þórnýjarbúð;
Föstudagur 30.
des kl 13 – 22
Laugardagur
31. des kl 10 – 16
Förum varlega um áramótin !!
„EKKERT
FIKT" !!
16.
desember 2005 - 22:00

Nemendur
í 6. til 10. bekk í Klébergsskóla fengu kynningu á
efni hins nýja forvarnarmynddisks
Slysavarnarfélagsins Landsbjörg, „Ekkert fikt", rétt
áður en þau fóru í jólafrí. Þórður Bogason mætti til
leiks sem fulltrúi björgunarsveitarinnar og SHS og
sá um kynninguna. Nemendum var skipt í tvo hópa og
fengu fyrst fræðslu á glærum um helstu slys,
reglugerðir, áhættuhópa og meðhöndlun flugelda.
Eftir það var „Ekkert fikt" sýnt og boðið upp á
umræður. Flestir nemendur sýndu efninu áhuga og er
það von manna að fræðslan beri árangur.
Efst á síðu
FLUGELDASALAN
14.
desember 2005 - 20:00
Kjölur verður með árlega
flugeldasölu sína við
Þórnýjarbúð, áhaldahúsið,
rétt hjá Sorpu.
Opnunartímar:
miðvikudagur 28. desember kl
13 - 22
fimmtudagur 29. desember kl
13 - 22
föstudagur 30. desember kl
13 - 22
laugardagur 31. desember kl
13 - 16
Efst á síðu
... að vita meira ...
7.
desember 2005 - 19:00
Skortur á kennurum innan
sveitar hefur ekki hamlað
því að menn fái sín
námskeið. Undanfarnar vikur
hefur verið auðsótt mál að
smeygja tveimur til þremur
með á námskeið hjá öðrum
sveitum. Eins hefur verið
sótt í björgunarskóla SL.
Einn aðili fór á fagnámskeið
í leitartækni sem haldið var
í Kópavogi, tveir á
slöngubátur I hjá Ársæli og
tveir á
flugeldasýningarnámskeið um
síðustu helgi. Einnig hafa
menn verið að fara í
nýliðaþjálfun hjá HSSG.
Eftir áramót verður hugað að
frekari námskeiðum. Þá mun
sveitin einnig spreyta sig á
því að "leiðbeina" þegar
kynning á
björgunarsveitarstarfi,
fyrir nemendur í 9. og 10.
bekk í Klébergssskóla, fer
af stað.
Efst á síðu
Næsta mál !
5.
nóvember 2005 - 11:00
Miðvikudaginn 9. nóvember
verður bílinn gerður klár, og
kertapökkun.
Efst á síðu
Fram undan - næstu vikur.
20.
október 2005 - 22:00
Miðvikudaginn 26. október
verður bátaæfing, þar
sem prófuð verðu ný tegund
af skrúfu og nýir hjálmar.
Sunnudaginn 30. október
er gámadagur. Hann
verður tekinn í gegn að utan
og allir að mæta, margar
hendur og allt það ...
Miðvikudaginn 2. nóvember
verður Þórður Bogason með
upprifjun í skyndihjálp.
Efst á síðu
Opið hús - myndir !
5.
október 2005 - 19:00
Nokkrar myndir frá deginum
er hægt að skoða
>>>> hér !! fleiri
væntanlegar.
Efst á síðu
Opið hús gekk vel - takk fyrir daginn !
3.
október 2005 - 21:00
Fjölmargir gestir lögðu leið
sína í Þórnýjarbúð á
sunnudeginum 2. okt. þegar
slökkvilið Kjalarness og
Björgunarsveitin Kjölur
kynntu starfsemi sína.
Tækjakostur var til sýnis
jafnt utan dyra sem innan og
þar á meðal slökkvibíllinn
Ford F700, Econoline og
Zodiak slöngu
bátur.
Mjög vinsælt var hjá
börnunum að sprauta með
brunaslöngunni, sprella í
hoppikastalanum og príla í
kassaklifri. Hæðarmetið í
Þónýjarbúð reyndist 17
kassar og var þá komið upp í
rjáfur og ekki hærra komist.
Hægt var að koma með tillögu
að nafni á björgunarbáti
sveitarinnar og verða
tillögurnar skoðaðar á næsta
stjórnarfundi. Einnig gæddu
menn sér á pönnukökum og
tertum og skoluðu því
niður með kaffi og djúsi.
Ekki viðraði til siglinga að
þessu sinni, en vonast er
til að svona dagur verði
endurtekinn að ári.
Efst á síðu
Sunnudaginn 2. október n.k. í
Þórnýjarbúð
Opið hús.
24.
september 2005 - 10:00
Sunnudaginn 2. október kl 13 – 17
verða Björgunarsveitin Kjölur og Slökkvilið
Kjalarness með opið hús í Þórnýjarbúð (áhaldahúsið
við hliðina á Sorpu). Kynning verður á starfseminni,
tækjakostur til sýnis, kassaklifur, hoppukastali og
bátsferðir ef veður leyfir, kaffisala og margt
fleira.
Sex
slökkviliðsmenn eru í Slökkviliði Kjalarness og hafa
yfir að ráða slökkvibíl af Ford F700, árgerð 1979.
Hann var keyptur notaður með öllum búnaði frá
slökkviliðinu í Marlborough í New York fylki USA
árið 1994 fyrir 1.8 millj. kr eftir að þáverandi
slökkviliðsbíll skemmdist í bruna í áhaldahúsinu,
Þórnýjarbúð. Dælugeta “nýja” bílsins er 4000 l á
mínútu !!
Slysavarnardeild Kjalarneshrepps var stofnuð 1949 og
stóð hún fyrir björgunarsveit hreppsins, sem stofnuð
var 26.apríl 1951. Sveitin var nafnlaus í fyrstu en
var nefnd 'Ernir' 1975, en nafnið Kjölur kom síðar.
Efst á síðu
Áfram leitað
á Viðeyjarsundi
14.
september 2005 - 23:00
Í dag var leit haldið áfram
að manninum sem enn er
saknað eftir sjóslysið á
Viðeyjarsundi. Slöngubátar
frá Kili og Ársæli leituðu
saman strandlínu við Viðey
og Engey fyrir hádegi á
fjöru. Einnig var leitað á
sjó NV af þeim stað sem
báturinn sökk, milli
Engeyjar og Viðeyjar.
Aðstæður til leitar voru
erfiðar norðanvert við
eyjarnar, þar sem talsvert
brimaði við land.
Á laugardaginn n.k. kl. 8:30
verður allsherjarleit
skipulögð og er áætlað að
bátur fari ásamt Econoline.
Þeir sem eru lausir á
laugardaginn hafi sambansd
við Hermann í síma 8959705.
Efst á síðu
Leit
á Viðeyjarsundi
12.
september 2005 - 19:00
Um helgina var sveitin
kölluð út vegna slyssins á
Viðeyjarsundi, þar sem bátur
steytti á skeri undan
Laugarnesi og sökk.
Á laugardeginum var
slöngubáturinn í verkefnum
frá kl. 06 - 19. Leitað var
m.a. á svæði norður af
Skarfaskeri, á ströndinni
við Viðey og Þerney ásamt
því að selflytja kafara og
leitarhópa. Þrír félagar sáu
um að manna bátinn yfir
daginn, tveir í áhöfn hverju
sinni. Tveir voru til vara
og útveguðu jafnframt vistir
og bensín á bátinn. Veður
til leitar var gott eftir að
fór að birta og siglt var
fram og tilbaka frá
Kjalarnesinu.
Á sunnudeginum hófst leit um
tvöleytið og var farið af
stað með slöngubát með 3 - 4
manna áhöfn, ásamt 2 kajökum
í leit meðfram ströndinni
við Sæbraut, við Leirvoginn
og Lundey. Leitarhópar voru
einnig selfluttir milli
Sundahafnar og eyjanna.
Hvasst var á Kjalarnesinu
framan af degi og því var
ekið með bátana í bæinn og
þeir sjósettir í
Snarfarahöfninni við
Elliðavog og í Sundahöfn.
Verkefnum lauk um sjöleytið.
Efst á síðu
Starfsplan
10.
september 2005 - 10:00
Undir hnappinum Dagskrá hér
til hliðar er nýtt
starfsplan næstu mánaða,
kíkið á það. Það er í
vinnslu og verður uppfært,
fylgist með.
Efst á síðu
Nýjustu fréttir
6.
ágúst 2005 - 14:00
Undanfarnar vikur hafa verið
rólegar, en þó hafa verið
nokkrar bátaæfingar með og
án kajaka. Tveir úr
sveitinni fóru til leitar 20. júlí um kl.
9:30 í
Þjórsárdal vegna manns sem
var saknað frá kvöldinu
áður. Hann fannst heill á
húfi fyrir hádegi við Dímon,
rétt áður en aðstoð af svæði
eitt barst.
Annað leitarútkall kom 3.
ágúst þegar spánverji kom
ekki fram í skálann við
Álftavatn að Fjallabaki.
Aftur fóru tveir til leitar
ásamt um hundrað
björgunarsveitarmönnum.
Leitarsvæði okkar ásamt
mönnum frá Björgunarsveit
Hafnarfjarðar var suðaustur
af skálanum í
Hrafntinnuskeri. Upp úr
hádegi var leit afturkölluð
þar sem maðurinn kom fram á
Kirkjubæjarklaustri.
Efst á síðu
Sjóæfingar
16.
júni 2005 - 22:00
Nýlega hafa verið tvær
æfingar á sjó, báðar í
frábæru veðri. Sú fyrri var
sett upp sem gallasundæfing,
þar sem menn syntu með
frjálsri aðferð út í
gúmmíbát, sem lá við akkeri
um hálfan kílómetra frá
landi og reru í land. Á
seinni æfingunni æfðu menn
saman á gúmmíbáti og
kajökum. Ýmsar aðferðir voru
reyndar við að draga kajaka
með gúmmíbáti, félagabjörgun
úr sjó og fara milli báta.
Myndir af fyrri æfingunni
eru
>> .. hér og myndir frá
námskeiði í fyrstu hjálp 2 í
apríl síðastliðnum
>> ... hér
Efst á síðu
Æfa æfa æfa .. æfing skapar
meistarann
7.
júni 2005 - 16:00
Athugið !
Æfing annað kvöld þann
8.6.
Biggi ætlar að sjá um
skemmtilega æfingu á
heimasvæði annað kvöld
(SMSboð á morgun).
Vonast er til að allir
blotni og því er ráðlagt að
aukafatnaður sé tekinn með - eins er gott að vera
með eitthvað til að skola
kverkarnar.
Allir mæti í hús á
venjulegum tíma.
Efst á síðu
Landsþing SL og
Björgunarleikar
Akureyri 2005
24.
maí 2005 - 17:20
Kjölur sendi 2 fulltrúa á
landsþingið og eina sveit á
björgunarleikana, sem fram
fóru á Akureyri um síðustu
helgi, 20. - 21. maí.
Hópurinn
mætti í grillveislu að
Hömrum á föstudagskvöldið og
heilsaði upp á aðra
Landsbjargarmenn og konur
víðsvegar af landinu. Á
laugardaginn sátu Hólmar og
Hermann þingið, sem ekki fór
átakalaust fram, en endaði þó
með "sáttum". Hin tóku
þátt í björgunarleikunum,
Hópurinn á góðri stund (vantar Maríu)
Fleiri Kjalarmyndir hérna...
sem fóru fram
víðsvegar um bæinn, ásamt 6
öðrum sveitum. Dalbjörg og
Súlur sáu um skipulagningu
og framkvæmd leikanna og var
einstaklega vel vandað til
verks. Verkefnin voru alls
9, fjölbreytt og skemmtileg,
allt frá m.a. viðgerð á
mannbroddum og festa tölu,
yfir í hörku sig og
rústabjörgun.
Liðið
stóð sig með prýði á sínum
fyrstu björgunarleikum, var
vel samstillt og hafði gagn
og gaman af.
Úrslit voru kunngjörð á
fjörugri árshátíðinni,
laugardagskvöldið, en þá vorum við á
heimleið í góðum fíling.
Síðasta
verkefni...síðasti hópurinn,
en engu að síður kátt á
hjalla!!
Fleiri myndir hér
Bergur, HSSK
Úrslit;
1. Björgunarfélag Akraness
2. Hjálparsveit skáta Garðabæ
3. Hjálparsveit skáta Kópavogi
4. Björgunarsveit Hafnarfjarðar
5. Björgunarsveitin Suðurnes
6. Björgunarsveitin Kjölur
7. Hjálparsveit skáta Reykjavík
Efst á síðu
Kajakhópur Kjalar !
18.
maí 2005 - 19:20
Nýlega voru keyptir á vegum
Kjalar fjórir sjókajakar af
Prijon gerð ásamt
tilheyrandi búnaði. Kaupin
styrktu Sportbúð Títan og
Samskip. Kajakarnir eru
hugsaðir til leitar á svæðum
sem erfitt er að komast að á
annan hátt. Aðstæður við
Kjalarnes henta vel til
æfinga; grynningar, gjótur
og skerjótt strönd. Fjórir
félagar munu mynda leitarhóp
í byrjun, en verið er að
þjálfa fleiri.

Frá afhendingu kajakanna.
Efst á síðu
Kajaknámskeiðin hafin á ný
........
18. maí 2005 - 19:10
Nú eru kajaknámskeið í
samvinnu Kjalar og
íbúasamtakanna hafin á ný.
Þátttakendur kynnast
sjókajakbúnaði og læra
undirstöðuatriði í
róðrartækni og geti bjargað
sér og ferðafélögum sínum
við einföldustu aðstæður.
Kennt verður í sundlauginni
á Klébergi, Kjalarnesi.
Nánari upplýsingar hjá
Baldvin í GSMsíma 6969559 og
Önnu í GSMsíma 6168493 eftir
kl 1900.
Efst á síðu
Það er leikur að læra
........
29. apríl 2005 - 21:20
Um síðustu helgi sátu
nokkrir úr sveitinni
námskeið í fyrstu hjálp II í
Skógarhlíð, ásamt fólki úr
Sigurvon og Árborg.
Einnig sótti einn af
bílstjórum okkar námskeið í
neyðarbílaakstri hjá
Hjálparsveit Skáta í
Garðabæ.
Efst á síðu
Æfing í Hvalfjarðargöngum
17. apríl '05 kl
14:00
Laugardaginn 16.4.05 fór fram fyrsta stóra
slysaæfingin í Hvalfjarðargöngunum, þar sem m.a.
Slysavarnafélagið Landsbjörg kom að. Bjarga átti
fólki úr tveim fólksbílum og einni rútu eftir
árekstur og eldsvoða í miðjum göngum. Dagurinn
byrjaði snemma því slysaförðun
sjá myndir
hér
fyrir æfinguna fór fram í húsnæði okkar og
slökkviliðsins. Alls voru um 35 "slasaðir" farðaðir
og allt gólfpláss í húsinu nýtt.
Útkallið
kom kl. 10:15 og skömmu seinna tilkynntu hópar sig
inn til svæðisstjórnar. Við fórum ásamt HSG sem
sjúkrahópur og eins var bíll og bátur tilbúinn í að
ferja fólk yfir fjörðinn. Veður var hins vegar það
slæmt, SA 20 m/sek að alllur flutningur
björgunarmanna frá suður- að norðurenda ganga fór
fram með þyrlu. Við vorum síðasti hópur yfir
fjörðinn og lentum við greiningartjald við
norðurenda
ganga, þegar æfingu var rétt ólokið.
Verkefni dagsins höfðu gengið greiðlega og engin
eftir fyrir okkur, en flugferðin yfir Grundarhverfi
og Hvalfjörð bættu það aðeins upp.
Meðan hópurinn gekk frá í húsinu kom beiðni frá
Neyðarlínu um aðstoð við fólk í bíl með
farangurskerru, sem hafði fokið á hliðina í
hvassviðri við Brynjudalsá í Hvalfirði. Fólkið var
aðstoðað við að flytja hljómsveitarbúnað, sem var í
kerrunni og kerruna sjálfa niður á Kjalarnes.
Efst á síðu
Landsæfing björgunarsveita
12. apríl '05 kl
19:00
Landsæfing Slysavarnafélagsins Landsbjargar var
haldin 9. apríl á Austurlandi með þátttöku um 28
björgunarsveita. Fulltrúar Kjalar voru 5 manns ásamt
Econoline og voru þeir allan tímann í samfloti með 6
manns úr sjúkrahópi HSG. Farið var akandi
suðurleiðina á Egilsstaði síðdegis á föstudegi. Á
laugardeginum voru verkefni af ýmsu tagi fyrir alla
flokka, en Kjölur/HSG unnu fyrstuhjálparverkefni,
greiningu, forgangsröðun, meðhöndlun og flutning
vegna rútuslyss og bílslyss innanbæjar. Dagskráin
stóð frá kl. 5 og fram eftir degi í góðu veðri og
lauk með sameiginlegum kvöldverði í boði SL og
sundi. Þar sem Kjölur var með einstaklega
skemmtilegum Garðbæingum, lá ekkert á heim og því
teygðist dvölin fram á sunnudag. Þá var haldið heim
norðurleiðina með viðkomu í Grjótagjá við
Reykjahlíð.
Efst á síðu
Félagafundur á Kjalarnesi
6. apríl '05 kl
19:00
Þriðjudaginn 5. apríl komu fulltrúar flestra félaga,
samtaka og ráða á Kjalarnesi saman að frumkvæði
nýstofnaðs kvenfélags. Markmið fundarins var að
vinna að því að styrkja innbyrðis tengsl íbúa á
heimasvæðinu. Vinna má að forvörnum (unglinga) og
standa að skemmtun á sumardaginn fyrsta,
Kjalarnesdegi og Þorrablóti. Frekari fundahöld voru
skipulögð. Fulltrúar Kjalar og kajaka: Baldvin og
Anna.
Efst á síðu
Leit við Stokkseyri
5. apríl '05 kl
20:00
Leit fór fram að 28 ára gömlum Brasilíumanni í og
við Stokkseyri um helgina. Kjölur mætti kl. 7 á
mánudag með 9 göngumenn og fínleitaði í samvinnu með
4 - 5 manna sveit HSSR þrjú svæði norðaustur af
Stokkseyri. Síðasta verkefni dagsins var að ganga
fjöruna við Stokkseyri þegar fjaraði út. Tveir úr
Kili fóru á meðan á lánskajökum til leitar í
Löngudæl og Selvatni og lækjarfarvegum þar á milli.
Komið var heim um kl. 23. Leit hefur nú verið hætt
og hefst ekki aftur, nema nýjar upplýsingar komi
fram.
Efst á síðu
Hvalfjarðargangaæfing
3. apríl '05 kl
16:00
Hvalfjarðargangaæfingin fer fram 16. apríl og þetta
er í fyrsta sinn sem björgunarsveitir koma að æfingu
í göngunum. Kveikt verður í bíl í göngunum og gert
er ráð fyrir 45 slösuðum til að meðhöndla og koma á
spítala. Kjölur hefur undanfarið kannað aðkomu á bát
og bíl beggja vegna fjarðarins, þar sem gera verður
ráð fyrir þeim möguleika að ferja björgunarmenn og
jafnvel sjúklinga yfir. Sigling yfir tekur aðeins 5
- 10 mín á móti 40 mín. akstri (78 km) fyrir
Hvalfjörð. Hvergi er akfært okkar megin alveg niður
í fjöru, en mögulegt að lenda á nokkrum stöðum við
gangamunna. Ströndin er almennt skerjótt og hár
sjávarkambur. Góð lending er Akranesmegin rétt við
gjaldskýlið.
Efst á síðu
Banff og "Beyond the Void"
3. apríl '05 kl
9:00
Mánudaginn 4. apríl verður Símon Yates með
fyrirlestur og myndasýningu í Mörkinni 6 (hús FÍ).
Yates og félagi hans Simpson lentu í hremmingum í
ferð sinni á Siula Grande í Perú, árið 1985. Um þá
sögu hefur bæði verið skrifuð bók og gerð kvikmynd
(Touching the Void). Þetta er í fyrsta sinn sem
Yates heimsækir Ísland, en hann er eftirsóttur
fyrirlesari um allan heim. Dagskráin hefst kl. 20 og
aðgangseyrir er 800 kr.
Banff-hátíðin fer fram 5. - 6. apríl í Smárabíói en
það verða sýndar 19 fjalla- og ævintýramyndir sem
spanna allt frá kajakferðum til snjóflóða. Fleiri
upplýsingar og nánar um dagskrána hjá ÍSALP.
Efst á síðu
Slysaæfing
með læknanemum
21. marz kl
21:00
Laugardaginn 19. mars
héldu sjúkrahópar slysaæfingu fyrir læknanema þar
sem þeir kynntust störfum björgunarmanna við hópslys
af eigin raun. Öll vinna við greiningu,
forgangsröðun, flutninga og meðhöndlun var í höndum
læknanema. Þurftu þeir að sinna um 40 "slösuðum"
meðan "jarðskjálftar" riðu yfir. Stefanía lék einn
hinna slösuðu, en Árni Sveins og Anna fengu það
skemmtilega hlutverk að leiðbeina læknanemum.

Mynd: Bergur hjá Hjálparsveit Skáta
Kópavogi
fleiri myndir hér
Efst á síðu
Vindstrengur yfir Grundarhverfi
18. marz kl
18:30
Í
gær var mikið rok í Grundarhverfi og vindhviður fóru
upp í 50 m/sek á Skrauthólum. Fjórar rúður brotnuðu
í Klébergsskóla um hádegi. Síðdegis bað lögreglan
björgunarsveitina um að huga að lausum þakkanti á
húsi við Búagrund og lausu spýtnabraki sem dreifðist
um bílastæðið við leikskólann. Einnig var hugað að
foki og lausamunir tjóðraðir niður og fergðir annars
staðar í hverfinu. Vaktina stóðu Andrés, Bergur og
Anna og voru að frá 16:30 til 18:30.
Efst
á síðu
Aðalfundur
afstaðinn
18. marz kl
18:30
Aðalfundur BSV Kjalar var haldinn í Fólkvangi
þriðjudaginn 15. mars s.l. Þrettán félagar
mættu og fimm löglega afsakaðir. Dagskrá var með
hefðbundnum hætti. Hermann situr áfram í stjórn sem
formaður, svo og Bergur og Henry, Anna er ritari í
stað Sonju og til vara eru Stefanía og Kristinn.
Efst
á síðu
Fjöruleitaræfing
03. marz kl
17:15
Í
gærkvöldi var sviðssett sjóslys undan ströndum
Kjalarness. Leitað var að fjórum mönnum sem allir
fundust í mismunandi krefjandi ásigkomulagi. Fjörur
voru gengnar í Hofsvík og á Presthúsatöngum. Fín og
fjölbreytt æfing.
Efst
á síðu
Samæfing
sjúkrahópa á svæði 1
03. marz kl
17:00
Sl.
mánudagskvöld var haldin venjubundin samæfing
sjúkrahópa á svæði 1. Þrír WFR-arar fóru sveitinni
ásamt astoðarmanni. Þar sem Kjölur hefur ekki
skilgreindan skyndihjálparhóp munu WFR-arar
sveitarinnar starfa með
sjúkraflokki HSG.
Efst
á síðu
Kvöldganga
17.febrúar kl
20:55
Henry, Hjalti og Árni fóru að kveldi 16. febrúar og
klifruðu tvö snjó/ísgil í Búahömrum í Esju.
Efst
á síðu
Námskeið í
fjarskiptum
17.febrúar kl
20:50
Anna
Filbert, Beggi, Sara og Kiddi fóru á námskeið í
fjarskiptum á Laugarvatni þann 16. febrúar sl.
Efst
á síðu
Fyrsta
hjálp í óbyggðum
17.febrúar kl
20:40
14.
febrúar kláruðu Árni G. Sveinsson, Anna L. Filbert
og Henry A. Hálfdansson námskeið um fyrstu hjálp í
óbýggðum og fengu í kjölfarið réttindi til að starfa
sem Wilderness First Responder (WFR) að loknu prófi.
Björn Guðmundur sem sat allt námskeiðið forfallaðist
á prófdaginn og stefnir hann á að ljúka prófi sem
fyrst í samvinnu við Björgunarskólann. Myndir frá
námskeiðinu er hægt að sjá
hér og
hér, en BOI í HSSK á veg og vanda að myndunum.
Efst
á síðu
Ýmsar
ferðir í Esjuna
09.febrúar kl
23:00
12.
janúar var farið í ísklifur/göngu í Sauðagili við
Esjuberg. Aðstæður til klifurs ekki góðar þar sem
mikið var um holklaka, en engu að síður var fundin
leið upp ísfoss og niður kletta. Frábært veður,
frost - logn - stjörnur.
26.
janúar fór gönguhópur í Esjuför. Gengið var upp við
Mógilsá, utan stíga og upp á Langahrygg og þaðan
sömu leið niður aftur. Hlýtt var í veðri og þoka
efst. Svell á stígum en drulla og snjór
annarsstaðar.
Efst
á síðu
Leiðbeinendur í Útivistarskólann
05.febrúar kl
14:20
Slysavarnafélagið Landsbjörg auglýsir eftir
leiðbeinendum við Útivistarskólann að Gufuskálum í
sumar. Starf þetta hentar menntaskólafólki mjög vel.
Áhugasamir þurfa helst að vera með
leiðbeinendaréttindi í fleirum en einu fagi frá
Björgunarskólanum. Umsóknarfrestur er til 28.
febrúar 2005.
Áhugasamir sendi inn umsókn á
joningi@landsbjorg.is
Efst
á síðu
Bílaflokkur
05.febrúar kl
13:55
Þann 12. janúar var haldinn bílaflokksfundur þar sem
farið var yfir skipan bílstjóra, umgengnisreglur,
dekkjakaup og fleira. Alls eru átta bílstjórar, og
er Bergur formaður flokksins. Bílaflokkur verður með
finnukvöld/fundi annan miðvikudag í hverjum mánuði.
Efst
á síðu
WFR
námskeið
31.janúar kl
11:50
Anna, Björn Guðmundur, Henry og Árni hafa
undanfarnar helgar setið stíft við lærdóm á WFR
námskeiði á vegum Björgunarskólans sem haldið er í skemmu HSSK. Hægt er að
sjá myndir af námskeiðinu
hér og
hér, í boði BOI (Bergs í HSSK).
Efst
á síðu
Ísklifur
31.janúar kl
11:30
Farið var í ísklifur í Búahamra ofan Esjubergs
þriðjudaginn 18. janúar í frábæru veðri. Eftir að
hafa klárað nokkra fossa var ákveðið að nota veðrið
og fara hærra í fjallið. Að endingu var komið niður
að Mógilsá um miðnætti. Ekki er hægt að birta myndir
sem voru teknar vegna myrkurs... :(
Efst
á síðu
Endurskinsmerki
31.janúar kl
11:15
18.
janúar fór Björgnarsveitin Kjölur fór með
endurskinsmerki frá
VÍS
í
Leikskólann Berg og
Klébergsskóla og afhenti öllum nemendum.
Efst
á síðu
Aðstoð í
Esju
31.janúar kl
11:00
Laugardaginn 15. janúar óskaði Neyðarlínan eftir að
sveitin sendi menn til að aðstoða Neyðarsveit
Slökkviliðsins vegna manns sem hafði hrasað á
göngustígnum ofan við Mógilsá.
Er komið var á staðinn
bárust fréttir af því að maðurinn væri mun slasaðri
en haldið var í fyrstu og breyttist þar af leiðandi
umfang aðgerðanna á þann veg að þyrla LHG sótti
manninn og flutti hann á sjúkrahús.
Ljóst er að boðun í
þetta verkefni var ekki í samræmi við vinnureglur
svæðisstjórnar og strax hefði átt að vera ljóst
hvers eðlis útkallið var.
Efst
á síðu
Útkall
vegna vélsleðaslyss, 08.01.'05
8.janúar kl
17:50
Um
ellefuleytið í morgun var beðið um að sveitin sendi
tafarlaust bíl, fjóra menn og skyndihjálparbúnað upp
á Mosfellsheiði vegna vélsleðaslyss sem gerst hafði
þar skömmu áður. Náðist strax í Önnu Filbert, Henrý,
Kidda og Þórð sem héldu strax af stað. Þegar
komið var á vettvang voru þar fyrir félagar okkar úr
Björgunarsveitinni Kyndli í Mosfellsbæ sem
voru byrjaðir að veita fyrstu hjálp. Þórður
tók að sér hinn slasaða þangað til félagar hans
úr slökkviliðinu komu á sjúkrabíl og fluttu hinn
slasaða á sjúkrahús.
Efst
á síðu
Prófun á
boðkerfi, 06.01.'05
6.janúar kl
17:20
Björgunarsveitin Kjölur lét gera prófun á boðkerfi
gegnum 112,
síðdegis á fimmtudegi, og var svarhlutfall 83 %
af útkallslista.
Á fyrstu 5 mínútunum svöruðu 70 %...
...stórkostleg bæting miða við síðustu prófun!!
Efst
á síðu
Bílaflokksfundur 12.janúar
Miðvikudaginn 12.jan., kl 20:30, verður
bílaflokksfundur í húsi
þar sem farið verður yfir skipulag, markmið, reglur
m.a.
Allir þeir sem áhuga hafa á að starfa með
bílaflokki mæti.
Á sama tíma verður farið í göngu, þeir
sem ekki eru í bílaflokki.
Efst
á síðu
2005
Gleðilegt nýtt ár!!
31.desember '04
kl 17:40
Viljum
þakka sýndan stuðning á liðnu ári um leið og við
óskum ykkur farsældar á því nýja.
Farið varlega á áramótunum og notið viðeigandi
öryggisbúnað þegar verið er að skjóta upp flugeldum.
Sveitin: Enn eru til rauðar Cintamani WindPro
á lager hjá Önnu.
Þeir sem eiga eftir að greiða fyrir peysur geri það
sem
fyrst til sama aðila.
Herrasnið kostar 10.515 kr.
Dömusnið kostar 8.305 kr.
Prófun á útkallslista: í byrjun janúar verður
gerð prófun á
útkallslista sveitarinnar og eru menn beðnir að
fylgja
fyrirmælum sem fram koma í sms-i.
Efst
á síðu

Flugeldasala!!
25.desember
kl 11:57
Flugeldasala sveitarinnar verður staðsett milli
Þórnýjarbúðar (áhaldahús)
og Sorpu v/Norðurgrund..
Opið
verður eftirfarandi daga:
28.desember kl:13 - 22
29.desember kl:13 - 22
30.desember kl:13 - 22
31.desember kl:13 - 16

Efst
á síðu
Annasöm
jól hjá björgunarsveitum:
25.desember
kl 11:31
Allar sveitir á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út
á aðfangadagskvöld.
Leita átti að týndum einstaklingi í Vogahverfi og
fór Kjölur með
ellefu manns á tveimur bílum.
Kjölur leitaði í Laugardalnum með bíl og gönguhópa,
ásamt
Hjálparsveit skáta Garðabæ.
Hinn týndi fannst síðan heill á húfi í Vogahverfinu
og var það
besta jólagjöfin sem hægt var að hugsa sér.
Síðan var haldið heim í áframhaldandi jólaboð og
pakka..
Sjá nánar af
annasömum jólum hjá björgunarsveitum um land allt!!
Efst
á síðu
Undirbúningur fyrir flugeldasölu:
14.desember
kl 22:00
Á
morgunn, miðvikudagskvöldið 15.desember, er
áframhaldandi
undirbúningur fyrir flugeldasölu.
Meðal annars verða fleiri skilti máluð, smíðavinna í
gámnum
og margt fleira!
Margar hendur vinna létt
verk!!
Myndir frá síðasta vinnukvöldi hafa bæst inn á
hér..
Efst á síðu
Fundahöld:
10.desember kl 21:20
Á morgunn, laugardaginn 11.desember, er fundur í
Skógarhlíð vegna
komandi flugeldasölu.
Fundur hjá bílaflokki frestast fram yfir áramót...
Efst á síðu
Bátaæfing
6.desember
kl 18:45
Sunnudaginn 5.des var kallað út í gegnum 112 og
mættu
6 menn úr báta - og bílaflokki í hús skömmu seinna.
Æfingin fólst m.a. í því að fara í gegnum
vinnuferlið við útkall báts,
sjósetningu, siglingu og frágang á eftir.
Veður var ekki gott: austan 15-25 m/s, brim við
ströndina og öldugangur.
Báturinn hélt sig við land í Hofsvíkinni enda spáði
versnandi veðri.
Sjósetning og lending var flóknari heldur en ella en
gekk engu að síður
ágætlega. Kristinn stóð sig vel í sinni fyrstu
ferð sem bílstjóri með
bátakerruna.
Á sjó var æfð björgun við öldungang og rek,
flothæfni galla og
viðbrögð ef björgunarmaður fellur útbyrðis undir
leiðsögn Reynis sjómanns.
Góð æfing þar sem allir komu klofblautir og
saltbaðaðir heim!
Efst á síðu
Afhending
lokaskýrslu vegna flugslysaæfingar á
Reykjavíkurflugvelli
30.nóvember kl
22:47
Í dag var afhent lokaskýrsla flugslysaæfingarinnar
REYKJAVÍK 2004, og mættu tveir fulltrúar frá
sveitinni á fundinn.
Eftir snöggan yfirlestur á skýrslunni ber ekki á
öðru en að sveitin hafi staðið sig með afbrigðum vel
á æfingunni, sem og aðrar sveitir Landsbjargar sem
tóku þátt.
Af
þessu tilefni eru fleiri myndir komnar inn á vefinn
HÉR.
Efst á síðu
Mikilvægur
fundur hjá bílaflokki
28.nóvember kl 12:05
Fyrirhugaður er fundur um skipulagsmál með öllum
þeim sem vilja
starfa í bílaflokki...
Nánari tímasetning auglýst síðar!
Fleiri
myndir komnar inn!
Efst á síðu
Sala á
kertum hefst í dag!!
20.nóvember
kl 13:00
Hin
árlega kertasala sveitarinnar hefst í dag,
laugardaginn 20.nóvember, og stendur yfir í viku.
Efst
á síðu
Myndir komnar inn!
20.nóvember
kl 12:00
Loksins búið að hlaða inn myndum á síðuna!
Myndir frá flugslysaæfingunni á Keflavíkurflugvelli,
smölun o.fl.
Endilega kíkið
á þær!!
Efst á síðu
Yfirlit
frá 13.nóvember
20.nóvember
kl 11:30
Anna, Baldvin, Henry (+ hundar), Hjalti, Kristinn,
María og Stefanía
lögðu af stað um tíuleytið á laugardagsmorgni,
síðastliðinn.
Farið var að Kiðafelli og sest inn í kaffi hjá
heimafólki. Eftir kaffispjallið
var keyrt inn í Hvalfjörð og smölunin plönuð.
Og svo lagði hópurinn af stað upp
Eyrarfjall í leit að Kiðafellskindum.
Smölunin tók lengri tíma en áætlað var og voru
margir orðnir heldur svangir
þegar allar kindur voru loks komnar niður af fjalli
og á leið inn í hús.
Þegar á bæinn var komið bauð húsfreyjan upp á
dýrindis kjötsúpu og var tekið
hressilega til matar síns!
Með mettan maga var svo lagt af stað í Garðabæinn
til að aðstoða
HSG við frágang alls konar á nýja húsnæðinu þeirra.
Þrif og smíðavinna var það sem við komum helst að
þar. Unnið var fram
eftir kvöldi (Birgir bættist í hópinn), boðið var
upp á flatböku og gos
fyrir mannskapinn.. Henry og Hjalti mættu
einnig þangað daginn eftir
og var hjálp þeirra mikils metin.
Efst
á síðu
Hugsanleg
leitaræfing
16.nóvember kl 15:00
Miðvikudagskvöldið, 17.nóvember kl.20:00,
verður sennilega létt leitaræfing.
Ef ekki, verður örugglega eitthvað annað skemmtilegt
í boði!
Mætið bara gölluð og hress!!
Kertasalan hefst svo á laugardaginn..
Efst
á síðu
Smalamennska og vinnudagur með HSG!!
12.nóvember kl 21:00
Afmælisbarn miðvikudagsins, Hjalti, fékk hressandi
göngu um
heimasvæði sitt að kvöldi sama dags!
Með honum í för voru Anna, Birgir, Henry og María.
Veðrið að síbreytilegt..en engu að síður stutt og
hressandi ganga!!
Mæting upp í hús kl 09:30 á morgunn, laugardaginn
13.nóvember.
Farið er að Kiðafelli og aðstoðað við að smala af
fjalli til ca. 14:00.
Þaðan er svo haldið í Garðabæinn og tekið til
hendinni við að
fullklára nýtt húsnæði hjá
Hjálparsveitinni.
Myndir sem ritarinn okkar tók á flugslysaæfingunni
er
hægt að skoða
hér...
Efst
á síðu
Ganga í
kvöld
10.nóvember kl 12:00
Í kvöld kl.
20:00 verður
farið út að ganga!
Endilega mætið!!
Efst
á síðu
Æfing á
Keflavíkurflugvelli
8.nóvember kl 20:40
Rúmlega hálftólf, laugardaginn 6.nóvember var allt
tiltækt björgunarlið af
svæði 1 og 2 samankomið hjá Keflavíkurflugvelli.
Þegar útkallið kom loks voru sveitirnar sendar inn á
svæðið í hollum og
fékk hver sveit ákveðið verkefni.
SSS (söfnunarsvæði slasaðra) var okkar staður..
..en þar sem helmingur af sjúklingaleikurunum
vantaði var eins og klippt á
innstreymið af sjúklingum þegar klukkan var ekki
nema rúmlega tvö.
Eftir það var bara að koma sjúklingum á sjúkrahús,
frágangur og annað
þar til æfingin var formlega kölluð af.
Boðið var upp á heita súpu og meðlæti á Stapanum,
Keflavík eftir æfinguna.
Æfingin gekk betur fyrir sig en hin fyrri á
Reykjavíkurflugvelli
enda lært af reynslunni og margt hægt að gera betur.
Myndir frá okkur koma inn með tímanum en
hér er hægt að
skoða myndir sem Björgunarsveitin Ársæll tók á
æfingunni.
Efst
á síðu
Flugslysaæfing í dag - nýtt útlit á síðuna
06. nóvember kl 13:46
Þegar þessi orð eru rituð er lunginn af sveitinni
staddur á Keflavíkurflugvelli að taka þátt í
umfangsmestri flugslysaæfingu síðari ára. Myndir og
fréttir af því síðar.
Síðan hefur tekið miklum stakkaskiptum, en skipt
hefur verið um útlit á henni. Hefur síðan þróast
mikið síðastliðna mánuði eftir því sem vefstjórar
eru orðnir leiknari í html-forritun. Við vonum að
allir taki viljann fyrir verkið!
Efst
á síðu
Ævintýraferð starfsfólks Teits Hópferða
31. október kl 14:00
Óskað var eftir að sveitin sæi um öryggi starfsfólks
frá
ferðaskrifstofu Teits í ævintýraferð þeirra
vegna sigverkefnis sem hópurinn átti að leysa í
Almannagjá laugardaginn 30 október.
Ákveðið var að skoða aðstæður eftir vinnu á
föstudeginum en þar sem Henry var ekki búinn að
vinna fyrr en kl. 10 um kvöldið var lagt frekar
seint af stað sem var bara ekkert verra. Var
brunað austur á Skugganum með Björninn, Hjalta og
Henry og fundnir staðir fyrir tryggingar og prófaðar
leiðir í myrkrinu en þegar menn töldu komið nóg var
þegið kaffi hjá næturverðinum í Valhöll og sagðar
ógurlegar draugasögur til kl 03:00.
Eru
næturverðinum færðar okkar bestu þakkir fyrir.
Á
laugardagsmorgun var svo ræs og haldið austur en á
leiðinni bættust Maggi skagamaður og Stefanía
í hópinn en Björninn tók að sér fararstjórn með
hópnum frá Teiti.
Á
staðnum voru settar upp tryggingar, baktryggingar og
ennþá fleiri baktryggingar, og settar línur í ýmsar
leiðir. Var allt klárt þegar hópurinn frá
Teiti birtist með Björninn í broddi fylkingar sem
hafði bundið á sig gjallarhorn eitt mikið en úr þvi
komu hin verstu óhljóð. Björninn hófst þegar
handa við að láta fólkið síga niður í Almannagjá og
gékk það með afbrigðum vel en það var hreint
ótrúlegt hvað fólkið bar sig fagmannlega við sigið
enda Björninn einn af bestu fjallaleiðbeinendum
landsins.
Þegar á leið var Hjalti sendur í leiðangur til að
sækja glaðning handa þeim sem voru komnir niður en
var sá leiðangur hin mesta skemmtun. Á endanum
voru allir komnir niður og fór þá hópurinn frá Teiti
í mat í Valhöll en við hin að gera upp línur og taka
upp tryggingar. Þegar við vorum að klára, kom
hraðboði frá Teiti með þau skilaboð að okkar biði
matur með hópnum og var það þegið með miklum þökkum
enda allir orðnir svangir.
Þetta ævintýri var allt hið skemtilegasta og er
Teiti Hópferðum og starfsfólki þakkað kærlega fyrir
samstarfið.
Myndir
eru komnar
Efst á síðu
Vel mætt í pökkun!
28.október - 21:00
Á miðvikudagskvöldi síðastliðnu mætti
hópur af fólki til að aðstoða við að paka kertum, fyrir hina
árlegu kertasölu sveitarinnar. Pökkunin kláraðist á
mettíma!
Að henni lokinni var aðeins rýnt í útbúnað og græjur og
dagskrá sveitarinnar skoðuð.
Framundan: verkefni fyrir
sveitina á Þingvöllum. Hafið samband við Henry
eða Björn Markús!
Nú fer að næsta flugslysaæfing að nálgast.
Undirbúningskvöld í vikunni fyrir æfinguna.
Fylgist með á síðunni. Nánari upplýsingar eru að finna
hér.
Efst á síðu
Björgunaræfing í Borgarvík
24.október 2004 - 22:00
Í gær var haldin mikil björgunaræfing í
Borgarvík á Kjalarnesi með fjallaflokki og björgunarbáti
sveitarinar. Sveitin var "kölluð út" til að aðstoða
Krókodílamanninn sem hafði fallið fyrir kletta á norðanverðu
Kjalarnesi. Farið var með bát á staðinn til að nálgast hann
neðanfrá en fjallaflokkur fór fram nesið til að komast að
honum ofanfrá. Var svo deginum eytt við ýmsar klifur og
björgunaræfingar með þeirri nýbreytni að hafa bát með í för
enda var hvergi hægt að lenda þurrum fótum í fjörunni.
Þurfti fjallaflokkur því að æfa bæði sig og klifur til baka.
Bátaflokkur fékk mjög góða æfingu í að "tryggja" bátinn við
kletta og var notast við dreka og baujufæri. Sjá myndir
hér.
Efst á síðu
Upprifjun í notkun áttavita
24.október 2004 - 22:00
Fimmtudagskvöldið 21. október var haldin
"skrifborðsæfing" í áttavitanotkun. Lagði Henry útpælt
verkefni fyrir mannskapinn sem stóð sig með afbrigðum vel
við að setja út miðanir í kort.
Hér er hægt að nálgast
verkefnið, en það er fengið að láni úr bókinni Notkun
áttavita og korta eftir Óskar Þór Karlsson, en það var
staðfært fyrir heimasvæði sveitarinnar.
Efst á síðu
Óveður - rúta fauk
24.október 2004 - 22:00
Skaðræðis veður gerði um vestanvert landið
aðfaranótt 19. október, og var beðið um aðstoð sveitarinnar
að morgni þriðjudagsins við að negla þakkant á hús á sem var
að fjúka. Um kvöldið kom beiðni um að gæta rútu sem hafði
oltið snemma um morguninn, og var höfð vakt við flakið alla
nóttina og fram á morgun þegar flakið var fjarlægt. Nóttinni
var m.a. eytt í að stúdera stórmyndina "Touching
the Void".
Efst á síðu
Fjölmennum á fund!!
17.október 2004 - 22:00
Á þriðjudaginn, þann 19.október, er
fundur í Þórnýjarbúð með manni frá
björgunarsviði Landsbjargar. Farið verður yfir
heilmargt sem tengist björgunarmálum og mun hann
einnig svara spurningum sem við kunnum að hafa. Fundurinn hefst klukkan 20:00 en sveitarmeðlimir eru
vinsamlegast beðnir um
að mæta örlítið fyrir þann tíma..skilaboð verða send.
Því fleiri
sem mæta, því betra!!
Efst á
síðu
Afmælisganga 13.október:
16.október 2004 - 13:20
Margt var um manninn í Þórnýjarbúð,
miðvikudagskvöldið 13.október. En þegar kom að því
að leggja af stað í göngu inni í Hvalfirði þá voru ekki
fleiri en sex manns sem stigu fram:
Anna, Henry, Hjalti, Magnús, María og Sonja.
Hitt liðið hélt áfram að spjalla inni á meðan hin sex fræknu
lögðu af stað inn í Hvalfjörð.
Stefnan var tekin á Valshamar og var labbað þangað í stilltu
veðri og rigningaúða. Þegar komið var
að klettinum var raðað á jörðina snúðum, köku og
drykkjarföngum: haldið upp á afmæli
Henrys og Maríu! Eftir veitingarnar var klætt sig í
sigbeltin og drifið sig upp á klett.
Tryggingar, línur og svo framvegis...Henry var fljótur að
fara niður eina leiðina sem reyndist vera
svokölluð 'kvenfélagsbrekka' að hans mati!! Hin leiðin
var hin ágætasta og fór hver minnst tvisvar..
..nema Anna og Sonja sem vildu bíða með að síga þangað til
farið væri í björtu!
Ferðin heppnaðist vel og fóru allir heim þreyttir og ánægðir
með kvöldið!
Myndir eru komnar inn
Framundan er fundur með Landsbjörgu (sjá starfsplan) og að
sjálfsögðu göngur!
Flugslysaæfing á Keflavíkurflugvelli fer að nálgast..minni
enn og aftur á starfsplanið...
SKOÐIÐ ÞAÐ REGLULEGA!
Efst á síðu
Útkall ... afturkall:
9.október 2004 - 18:10
Rúmlega fjögur í dag voru björgunarsveitir
á svæði 1 kallaðar út í leit. Senda átti þær upp
í Bláfjöll að leita að fólki í göngu...en ekki leið á löngu
þar til útkallið var afturkallað..
..Hjálparsveit hafði fundið fólkið!
Síðastliðinn miðvikudag var unnið í
bátnum, spjallað og síðan keyrt að Helgafelli. Árni,
Birgir, Baldvin,
Björn M., Henry, Hjalti, Jón H. og Kristinn voru í þeirri
ferð sem lauk
ekki fyrr en að ganga 2 um nótt!
Anna og María voru á Fyrstu hjálpar I æfingu úti á Granda,
ásamt nýliðum
Björgunarsveitarinnar Ársæll. Sú æfing gekk
sæmilega..en æfingin skapar meistarann!
Efst á síðu
Starfsplan komið!!
6.október 2004 - 13:40
Undir 'Dagskrá sveitar' er að finna
starfsplan sveitarinnar sem nær fram í október á næsta ári.
Sveitarmeðlimir eru beðnir um að fylgjast með planinu
reglulega.
Hægt er að fletta mánuð fram í tímann og aftur í tímann og
svo koll af kolli.
Þetta er gert með því að smella á nafn mánaðarins sem skoða
á.
Endilega kíkið á dagskránna!!
Í kvöld: vinnukvöld og
fleira..allir sem sjá sér fært að mæta .. mæti!
☺
Efst á síðu
Fyrsta hjálp I búin...
5.október 2004 - 23:40
Síðustu helgi fór Anna og María á námskeið
í Fyrstu hjálp I með nýliðum
björgunarsveitarinnar Ársæll. Byrjað var strax á
föstudagskvöldið að fara yfir efni..og svo var
haldið áfram á laugardagsmorgni og fram eftir degi.
Hörku námskeið og hresst fólk!
Nú er ritarinn okkar kominn úr 'útlegð' og einnig er búið að
sjóða
saman dagskrá sem ætti að duga í eitt ár!!
Miðvikudaginn 6.október verður farið í göngu. Lagt
verður af stað frá Þórnýjarbúð
kl: 20.00 og allir sem vilja mæta.
Kl: 19.30 sama kvöld er æfing í fyrstu hjálp hjá Bjsv.
Ársæli...myndir
frá námskeiðinu
er hægt að nálgast hér.
Efst á síðu
Ganga upp Helgafell:
1.október 2004 - 18:15
Hellisheiðin var löbbuð í tungsljósi
29.september í blíðviðri.
Vinnukvöld þann 30.september var
vel sótt og komst eitthvað í verk. Það sem er
framundan:
Yfir þessa helgi er námskeið með björgunarsveitinni Ársæli,
svo á miðvikudaginn,
6.október er ganga..Helgafellið tekið fyrir!
Efst á síðu
Ganga og fundur framundan:
28.september 2004 - 11:20
Miðvikudaginn 29.september er áætlað að
fara í göngu um Hellisheiðina að kvöldlagi. Allir sem
sjá sér fært að koma, mæta upp í hús kl: 20.30.
Kvöldið eftir, fimmtudaginn 30.september, kl:20.30 er fundur
... allir sem hafa tíma: mæta!
Efst á síðu
Flugslysaæfing á
Reykjavíkurflugvelli:
28.september 2004 - 11:10
Á laugardaginn var fór sveitin af stað með
11 manna hóp á flugslysaæfinguna eftir að sms hafði verið
sent út um tólfleytið. Þegar á staðinn var komið og
búið að tilkynna sig var farið að
sinna ýmsum störfum s.s. björgun á slysstað, flutningi á
slösuðum, leit,
aðhlynningu og skráningu.
Hópurinn stóð sig mjög vel, en hefðu mátt vera fleiri
verkefni.
Unnið var skv. drögum að nýrri flugslysaáætlun Rvíkur
flugvallar og var almennt talið að æfingin
hafi tekist vel, þótt margt þurfi að lagfæra bæði hjá hinum
ýmsu aðilum og eins skipulagið sjálft.
Hér eru
myndir.

Flugslysaæfingarhópurinn, frá vinstri:
Sara, Jón Harðar, Henry, Árni,
Sigurborg Ósk, Hólmar, María, Anna, Hjalti og Birgir.
Á myndina vantar: Stefaníu.
Meðan sveitin beið eftir að börur skiluðu sér í hús
Flugbjörgunarsveitarinnar, eftir æfinguna, aðstoðuðum
við systur Hjalta við að bera marga rúmmetra af WC pappír og
eldhúsrúllum
milli hæða á stúdentagörðum.
Efst á síðu
Komandi
flugslysaæfing:
22.september 2004 - 16:20
Í gærkvöldi var ýmiss konar undirbúningur
vegna flugslysaæfingarinnar enda margt smátt sem
þarf að huga að! Á morgunn er svo aftur
undirbúningskvöld og eru þáttakendur í æfingunni
sérstaklega beðnir um að mæta.
Drög að flugslysaæfingunni eru að finna
hér ásamt ýmsum öðrum upplýsingum.
Efst á síðu
Óveðursútkall í morgun:
16. september 2004 - 11:10
Kl:06.16 var sent út útkall gult á svæði 1. Milli hálfsjö og sjö vorum við sex tilbúin að leggja af stað en mætum formanninum á leiðinni niður í Jörfagrund. Á byggingasvæðinu þar var húsgafl farinn í heilu lagi og ekkert sem við gátum gert meira þar. Keyrt var um hverfið, skjólveggur skorðaður af, bílskúrshurð lokað, tunnur settar í skjól og bátskrifli fært til. Fleiri bættust í hópinn þegar farið var upp að grunnskólanum. Þar var brotin rúða og tekið var við að loka honum og setja plast í rammann. Kyndill var kallaður út að Vallá að týna upp þakplötur. Á meðan vorum við að týna upp spýtnabrak og fleira við leikskólann. Eignatjón var eitthvað í hverfinu; brotnar rúður í húsum og bílum, tjón á báti og fleira.
Mikið var hringt í bíl sveitarinnar og spurt um hvort ófært væri í bæinn. Reynt var að ráðleggja fólki eftir bestu getu útfrá gerð bíls og láta fólkið meta það sjálft líka hvað það gæti.

(sjálfvirk veðurathugunarstöð við Skrauthóla, 16.september)
Þegar komið var upp í hús um níuleytið leið ekki á löngu áður en tilkynnt var um laust bárujárn á fjósþaki að Skrauthólum. Þangað fóru flest allir sem mættu í útkallið en vopnaðir fleiri nöglum og hömrum en í morgun. Snarpar vindhviður voru við Skrauthóla en vel gekk að ganga frá illa leiknu þakinu. Lögreglan mætti á svæðið og smellti af nokkrum myndum af mannskapnum á þakinu. Loks var farið að bænum Gili og nokkrar plötur skorðaðar af svo ekki meira tjón hlytist af þeim.
Meira var ekki af verkefnum og því fór mannskapurinn heim..í bili.
Þeir sem að mættu í útkall: Andrés, Anna, Árni, Bergur, Birgir, Guðmundur, Henry, Hermann, Jón Harðar og María. Vel mætt og vel að verki staðið!!
Minni á fund í kvöld..nýliðafundur, kl:20.30!
Efst á síðu
Ný síða í vinnslu:
12. september 2004 - 19:03
Gjaldkeri sveitarinnar hefur verið með einsdæmum virkur það sem af hausti er liðið og hefur hann m.a. búið þannig um að sveitin hefur nú eigin netslóð. allt er þetta á vinnslustigi..en framundan er lokun þessa vefrits og opnun www.bjorgunarsveit.com
Nánar auglýst síðar...
Efst á síðu
Æfing tókst vel..
12. september 2004 - 18:52
Á
auka-aðalfundinum síðastliðinn fimmtudag var margt um
manninn. Mikið var umrætt á þeim fundi og ákafi í mönnum
mikill vegna komandi flugslysaæfingar m.a.
Sent var út sms frá 112 í morgunn um æfingu. 7 manns mættu
upp í hús og var farið yfir þær upplýsingar sem okkur voru
gefnar og síðan var lagt af stað með bátinn í teymi. Þrír
fóru út á bátnum og fjórir fóru á bíl. Leita átti að
kajakræðara sem heyrðist síðast frá þegar hann var hjá
Kjalarnestá. Þangað fór bátaliðið og silgdi það síðan suður
í átt að Kollafirði. Þaðan labbaði gönguhópurinn fjörurnar
norður á móti þeim. Bátaliðið kom fyrst auga á kajakinn
yfirgefinn í fjöruborðinu við bæina Tinda, Móa og Enni.
Beðið var eftir gönguhóp og síðan farið upp á land að leita
að 'manninum'. Hann fannst 100 m frá fjörunni, neðan við
bæinn Enni, og var honum skellt á börur og labbað með hann
upp á veg.
Æfingin þótti vel heppnuð og eftir að gengið hafði verið frá
,og skolað af tækjum og búnaði, var farið yfir hvað hefði
betur mátt fara og hvað við gætum lært af þessu...
En framundan er nýliðafundur, fimmtudaginn 16.september kl.
20:30. Auglýsingar verða sendar í hús í vikunni.
Efst á síðu
Námskeið í boði:
6. september 2004 - 15:57
Framundan er heill hellingur af námskeiðum hjá Landsbjörgu og eru sveitarmeðlimir hvattir til að kynna sér þau á síðu Landsbjargar..
Minni á auka-aðalfund, komandi fimmtudag (9.september) kl:20:30.
Efst á síðu
Fundadagskrá þessa mánaðar:
3. september 2004 - 12:47
Fjölmenni
var á fundinum í gærkvöldi og m.a. var rætt um viðhald ýmiss
konar og komandi námskeið. Sett var niður dagsetning á
auka-aðalfundi: fimmtudaginn 9.september, kl:20:30. Á honum
verður m.a. farið yfir drög að nýjum lögum/reglugerðum
sveitarinnar og þau vonandi samþykkt o.sv.fr. Eftir tvær
vikur, fimmtudaginn 17.september, kl:20:30 er svokallaður
nýliðafundur. Sá fundur verður auglýstur nánar síðar.
Á morgun, laugardaginn 4.september hefur sveitin samþykkt að
leggja til fylgd vegna kajak marathons sem stendur yfir.
Kajakræðararnir eru ræstir kl:09:30 frá Geldinganesi og
fylgir sveitin þeim eftir á bátnum að Hvammsvík.
En annað framundan: meiri tiltektir í áhaldahúsinu (nokkrir
hraustir meðlimir sveitar eru þó mikið búnir að taka til
hendinni!), endurnýjun korta, lagasetning og
samningaviðræður...nú verður sko brett upp ermar!
Vefstjóri mun svo reyna að gera sitt til að halda uppi nýjum
upplýsingum hér til hliðar..
Sveitin í gang!
31. ágúst 2004 - 13:52
NÁMSKEIÐ: Fyrsta hjálp 1 verður að Skógarhlíð, 10.-12.september. Nánar verður fjallað um það á komandi fundi.
Nú fer að hausta og tími kominn á að dusta af fundarhöldum
sveitarinnar. Eins og áður þá eru fundir fyrir alla sveitina 1.fimmtudag hvers mánaðar kl:20:30. Þannig að fimmtudaginn 2.september klukkan hálfníu er fyrsti fundur vetrarins..endilega látið sjá ykkur!
Efst á síðu
Nýtt í ágúst:
10. ágúst 2004 - 14:55
Verslunin Fjallakofinn hefur hafið starfsemi sína að
Bæjarhrauni 14, Hafnarfirði. Linkur er á heimasíðu þeirra
undir tenglar. Allir björgunarsveitarmeðlimir fá 10% afslátt
í Fjallakofanum.
Nokkur pláss eru laus í Útivistarskólann 5. og 12.ágúst nk.
Útivistarskólinn heldur 6 daga námskeið þar sem kennd er
fyrsta hjálp, bjargsig, ferðamennska, rötun, notkun
áttavita, kortalestur, hnútar, að sigla slöngubátum,
kassaklifur, upplifa rústir og margt fleira. Svo eru það
sjálfsögðu allskyns aðrar skemmtanir, leikir og fleira.
Skráning og upplýsingar eru í síma 570-5900.
Golfmót Slysavarnafélagsins Landsbjargar 2004 Verður haldið
á Strandarvelli á Hellu sunnudaginn 29. ágúst næstkomandi.
Keppt verður í karla og kvennaflokki og er leikfyrirkomulag
punktakeppni. Hámarksforgjöf er hjá körlum 30 en hjá konum
36.
Verðlaun verða veitt fyrir fyrsta til þriðja sætið,
nándarverðlaun á öllum par 3 holum, einnig fyrir besta
skorið auk annara verðlauna. Mæting er kl 11:15 og er ræst
út kl. 12:00
Mótsgjald er 2000 kr. og er innifalið í því hamborgari eftir
keppni.
Skráning er í síma 570-5900 eða í netfangið
hilmarg@landsbjorg.is
Gefið upp forgjöf og félagseiningu við skráningu. Athugið að
takmarkaður fjöldi kemst í mótið.
Efst á síðu
Tvö leitarútköll
31. júlí 2004 - 10:32
Í júlímánuði hefur sveitin aðstoðað við leit í Gravarvoginum og á Kjalarnesinu. Leit á heimasvæði okkar er enn ekki lokið en óljóst er hvenær leit verður haldið áfram.
Frá Kjalarnesdegi:
3. júlí 2004 - 20:41
Hvassviðri
var laugardaginn 26.júni þegar Kjalarnesdagurinn var.
Auglýst var að sveitin myndi bjóða upp á siglingar á
gúmmíbátnum en hætta varð við það vegna veðurs. Binda þurfti
gúmmíbátinn niður á kerruna og var vonast eftir að hann
(vindinn) myndi lægja, en kerran og báturinn þar með líka
fóru aldrei lengra en að Fólkvangi, félagsheimili
Kjalnesinga. Anna og Baldvin voru þeir meðlimir sem létu sjá
sig við störf en meiri mannskap vantaði ekki og því kom það
ekki að sök...fleira er ekki fréttnæmt!
Nýjasta nýtt:
18. júní 2004 - 14:08
Búið er að
bæta við nokkrum tenglum af síðu Landsbjargar hér til hliðar
og fleira á eftir að bætast við með tímanum...
Og eins og margir sveitarmeðlimir kannast við þá verður
starfsemi sveitarinnar í lægð yfir sumarið: fundastarfsemi
og fleira leggst nánast af. Hermann formaður mun tilkynna ef
námskeið eða annað liggur fyrir.
Þó eru atburðir eins og Kjalarnesdagurinn þar sem sveitin
mun vera við störf.
Efst á síðu
Umf.ráð að gefa björgunarsveitum húsgögn
10. júní 2004 - 16:12