











|
33.
Leit við Borgarnes
16. ágúst 2010 -
20:20
13. ágúst kl 11:25.
F2 gulur. Kallað út til leitar að konu við Borgarnes,
sem hafði farið að heiman frá sér á mánudeginum.
Viðbótarmannskapur af höfuðborgarsvæðinu var kallaður út
þegar fyrstu leitir voru árangurslausar. Tveir menn fóru og
leituðu á fjórhjóli. Konan fannst látinn daginn eftir 10 km
suður af Borgarnesi.
~:~
32.
Útafkeyrsla á Snæfellsnesi
16. ágúst 2010 -
20:17
10. ágúst kl 10:46.
F3 grænn. Ekið var fram á Dodge pallbíl
sem lent hafði utan vegar i talsverðum halla við
Öndverðarnes á Snæfellsnesinu. Ekki urðu slys á fólki en
börn í bílnum urðu skelkuð og eitt dekkið affelgaðist.
Bíllinn var dreginn upp á veg og skipt um dekk. Fordinn var
á ferðinni að sækja Stormsunglinga á Gufuskálum.
~:~
31.
Eldur í bát við Kjalarnes
9. ágúst 2010 -
21:54
9. ágúst kl 14:46.
F1 rauður. Landhelgisgæslan óskaði eftir aðstoð
vegna elds í bát vestur af Kjalarnesi. Þrír menn voru klárir
í sjósetningu þegar afturköllun barst skömmu síðar. Þá hafði
eldurinn verið slökktur og báturinn tekinn í tog af bátum í
nágrenninu.
~:~
30.
Ferðalangar í vandræðum við Arnarvatn
29. júlí 2010 -
20:54
22. júlí kl 18:30.
F2 gulur. Neyðarlínan kallaði eftir aðstoð
Hálendisgæslunnar vegna bíls sem sat fastur í á, á
Stórasandsleið, norðan við Langjökul. Fjórir lögðu af stað á
Kjöl 1 frá Hveravöllum, en þegar ljóst varð að staðsetningin
var við Arnarvatn, var snúið við. Björgunarsveitin Ok
kláraði dæmið neðan úr byggð.
~:~
29.
Bíll í Blöndu
29. júlí 2010 -
20:51
21. júlí kl 11:00.
F2 gulur. Útkall vegna bílaleigubíls sem
festist í Blöndu á meðan sveitin var í Hálendisgæslu á Kili.
Boðað gegnum bílaleiguna og staðarhaldara á Hveravöllum -
Neyðarlínu gert viðvart. Fimm fóru á Econoline og dróu
bílinn upp úr ánni.
~:~
28.
Slys í Esjunni
25. júlí 2010 -
21:31
11. júlí kl 18:11.
F2 gulur. Útkall vegna slyss með böruburði Esjunni.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var í grenndinni og sótti hinn
slasaða. Tveir menn voru á leið úr húsi á fjórhjóli, þegar
afturköllunin barst.
~:~
27.
Innanbæjarleit
11. júlí 2010 -
09:01
10. júlí kl 12:34.
F2 gulur. Leit að manni í Reykjavík. Slöngubátur með
tveimur mönnum sigldi yfir og leitaði með ströndinni frá
Skarfakletti og austur úr. Farið var upp að Elliðaánnni og
inn í Grafarvoginn þar sem þriðji maður bættist við áhöfn.
Voru fjörur leitaðar allt að Straumsvík og einnig leitað á
landi í kringum Fossvoginn. Hinn týndi fannst heill áhúfi í
Fossvogsdalnum um kl 16.30.
~:~
26.
Slys í Miðdal
8. júlí 2010 -
22:05
7. júlí kl 14:02.
F2 gulur. Kallað út vegna slyss er varð þegar bíll
ók út af veginum og ofan í skurð í Miðdal í Kjós. Einn maður
fór á staðinn og hlúði að ökumanni sem hlaut höfuðmeiðsl,
þangað til sjúkrabíll kom.
~:~
25.
Strand við Akurey
22. júní 2010 -
21:35
19. júní kl 15:30.
F2 gulur útkall vegna lundaskoðunarbáts sem
strandaði nálægt landi austan við Akurey. Slöngubátur með
þremur mönnum voru á bátamessu HSSK við Kópavogshöfn og fór
á staðinn ásamt fleiri björgunarbátum SL. Farþegar voru
ferjaðir í stærri skip og aðstæður kannaðar á strandsstað.
Engin hætta á ferðum en báturinn var vaktaður fram að því að
hann losnaði á flóði um kvöldið.
~:~
24.
Fótbrot í Esjunni
22. júní 2010 -
21:32
17. júní kl 16:57.
F2 gulur. Kona sótt á börum á göngustígnum
neðan við Einarsmýri af SHS og björgunarsveitarmönnum í
sameiningu. Tveir Kjalarmenn gengu á slysstað og aðrir tveir
mættu á fjórhjólinu.
~:~
23.
Leit í Landbroti
13. júní 2010 -
20:48
10. júní kl 10:40.
F2 gulur. Farið til leitar á svæði 16 vegna
ungs manns sem var saknað frá því um nóttina. Þrír fóru á
Patrol með fjórhjól. Maðurinn fannst heill á húfi um kl
13:30
~:~
22.
Eldur í vörubíl
26. maí 2010 -
19:35
22. maí kl 23:38.
F2 Útkall á vegum og til aðstoðar SHS
vegna elds í ökumannshúsi vörubíls sem lagt hafði verið á
viktarplaninu við Hvalfjarðargöngin. Patrol var nýttur til
flutninga á slökkviefni og mannskap. Alls fóru 5 menn í
útkallið á dælubíl og björgunarsveitarbíl.
~:~
21.
Öskuhreinsun við Skóga
26. maí 2010 -
19:32
22. maí kl 08.30.
F3 Óskað
eftir aðstoð við öskuhreinsun undir Eyjafjöllum á
vegum Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra. Farið var með
dælubúnað SHS á kerru og aska skoluð af þökum útihúsa og
íbúðarhúsa að Drangshlíðardal. Þrír menn ásamt Patrol voru
að allan daginn við góðar aðstæður.
~:~ 20.
Eldur í sumarhúsi í Kjós
18. maí 2010 -
19:30
16. maí kl 16:12.
F2 Útkall á vegum og til aðstoðar SHS
vegna elds í sumarhúsi á Norðurnes-svæðinu. Einn maður á
Patrol fór á staðinn með lausa dælu til vatnsöflunar á
kerru. Nágrönnum tókst að slökkva eldinn að mestu áður en
aðstoð barst. Alls mættu þrír dælubílar ásamt lögreglu í
útkallið .
~:~
19.
Klifrari féll í Esjunni
18. maí 2010 -
19:26
16. maí kl 14:46.
F1 rauður Útkall
vegna manns sem féll um 5-6 m við klifur við Heljaregg í
Esjunni. Tveir fóru að Esjubergi og Dýjahlíð á fjórhjóli og
Patrol. Þyrlan sótti manninn þar sem erfitt var að komast á
slysstað gangandi.
~:~
18.
Leit í Reykjavík
9. maí 2010 -
08:36
6. maí kl 6:14.
F2 gulur Leit að
Breta sem ekkert hafði spurst til frá því kvöldið áður. Fimm
fóru til leitar með Patrol, fjórhjól og reiðhjól og leituðu
í Laugardalnum, Elliðaárdalnum, í Skeifunni og
Háteigshverfi. Maðurinn fannst látinn í Hafnarfjarðarhöfn um
kvöldið.
~:~
17.
Dæluverkefni við Skóga
1. maí 2010 -
16:19
24.-25. apríl.
F3 Dæluvinna
aðallega við Skóga þar sem aska var smúluð af húsum og
plönum. Laus dæla og slöngur í 250 m lögn með frá SHS, sem
nýttust vel. Þrír menn við vinnu á laugardeginum og fjórir á
sunnudeginum. Patrol ásamt dælukerru.
~:~
16.
Drengur fótbrotnar
1. maí 2010 -
16:09
24. apríl kl 12:00.
F2
Neyðarlínan boðaði vegna slyss í íþróttamiðstöðinni að
Klébergi, þar sem ungur drengur fótbrotnaði. Tveir menn fóru
og hlúðu að uns sjúkrabíll kom.
~:~
15.
Hreinsunarstörf undir Eyjafjöllum
27. apríl 2010 -
22:19
22. apríl.
F3 grænn Hreinsunarstörf
á bæjum undir Eyjafjöllum. Aska hreinsuð af þökum, úr
yfirfullum þakrennum og af stéttum/pöllum við hús af
björgunarsveitarmönnum víðs vegar af landinu.. Fjórir menn
fóru á Patrol og voru fram á kvöld
~:~
14.
Maður slasaður á fæti
20. apríl 2010 -
21:24
20. apríl kl 11:55.
F2 útkall á
vegum SHS, vegna manns sem slasaðist við störf hjá
Stjörnugrís í Saltvík. Einn maður frá Kili og einn frá
slökkviliðinu fóru á vettvang á Patrol. Sjúkrabíll kom
skömmu síðar.
~:~
13.
Ökklabrot í Esjunni
20. apríl 2010 -
21:24
17. apríl kl 15:12. F1
rauður. Tilkynnt um ökklabrot fjallgöngumanns í
Esjunni ofan brúar, kalt í veðri. Undanfarar, Kyndill og
Kjölur boðaðir. Einn maður fór fótgangandi frá Mógilsá og
annar á Kjöl 10 á slysstað. Ökkli spelkaður og maðurinn
fluttur niður í sjúkrabíl.
~:~
12.
Hættustig í Keflavík
14. apríl 2010 -
21:44
13. apríl kl 13:13.
F2 gulur
útkall vegna efnagufu í farþegarými Boeing 767 þotu sem var
ákveðið að lenda í Keflavík. 5 úr áhöfn fengu aðhlynningu.
Tveir úr Kili fóru á söfnunarsvæði í Straumsvík uns
afturköllun barst um kl 14:20.
~:~
11.
Leit í Esju
14. apríl 2010 -
21:44
7. apríl kl 21:10.
F2 gulur.
Leit í Esju að stúlku á göngu, sem óttast var um, en kom
síðar fram. Patrol + fjórhjól og 5 menn fóru af stað.
~:~
10.
Leit við Hattfell
14. apríl 2010 -
21:44
6. apríl kl 19:00.
F2 gulur.
Leit að manni úr þriggja manna hópi sem fór akandi inn
Fljótshlíð að skoða gosið en skilaði sér ekki til baka.
Farið af stað með Patrol + fjórhjól og 3 menn. Maðurinn
fannst látinn um kl 21:30.
~:~
9.
Hættuástand á Fimmvörðuhálsi
5. apríl 2010 -
13:41
31. mars kl 19:00.
Rýming á Fimmvörðuhálsi og Mýrdalsjökli að beiðni
almannavarnarnefnd Ríkislögreglustjóra. Aðgerðin fór af stað
þegar ný sprunga opnaðist fyrirvaralaust NV af eldstöðvunum
í lok gosvaktar á svæðinu. Lögregla og björgunarsveitir komu
akandi og gangandi fólki á hættusvæði niður á láglendi.
Kyndill var með bíl og fjóra menn - Kjölur með einn mann.
~:~
8. Leit
við Hveragerði
6. mars 2010 -
09:35
5. mars kl 8:48.
F2 gulur.
Útkall vegna leitar að manni sem ekkert hafði spurst til frá
því kvöldið áður. Leitað var um nóttina og óskað eftir
viðbótarmannskap um morguninn. Maðurinn fannst látinn skömmu
síðar. Þrír menn fóru til Hveragerðis á Kjöl Wagon en leit
var afturkölluð áður en hópurinn fékk verkefni.
~:~
7.
Bíll losaður úr festu
6. mars 2010 -
09:35
28. febrúar kl
17:00.
F3 grænn.
Fólksbíll, sem hafði farið út af veginum við
Melagerðisafleggjara og sat fastur í skafli, var spilaður
upp. Tveir menn fóru á Patrol.
~:~
6. Leit
að stúlku í Reykjavík
27. feb 2010 -
09:35
26. febrúar kl
21:35.
F2 gulur.
Útkall vegna leitar að ungri stúlku í Reykjavík. Tveir menn
fóru til leitar á Patrol og einn á fjórhjóli. Stúlkan fannst
heill á húfi skömmu áður en Kjalarmenn hófu leit.
~:~
5. Slys
í Svínaskarði
27. feb 2010 -
09:35
20. febrúar kl
13:30.
F2 gulur.
Óskað eftir aðstoð vegna manns sem hafði oltið á fjórhjóli
í norðanverðu Svínaskarði. Maðurinn var sóttur á Patrol og
fluttur á móts við sjúkrabíl. Þrír menn fóru í flutininginn.
Þrír aðrir Kjalarmenn aðstoðuðu ásamt fleiri
björgunarsveitarmönnum á slysstað.
~:~
4. Leit
í Reykjavík
18. feb 2010 -
20:25
15. janúar kl
21:24.
F2 gulur. Útkall
vegna leitar að manni í Reykjavík. Fimm menn
fóru til leitar á Patrol. Maðurinn fannst heill á húfi
skömmu eftir að komið var á upphafsstað leitar í
Seljahverfi.
~:~
3.
Mosfellsbæjar-vindstrengur
18. feb 2010 -
20:20
14. febrúar kl
18:53.
F2 gulur.
Óskað eftir aðstoð við að festa þakkant sem var að losna á
tveggja hæða húsi í Mosfellsbæ. Hvasst á Kjalarnesinu en
aðeins gola í Mosfellsbæ. Létt verk fyrir fjóra menn á
Patrol.
~:~
2. Leit
í Hvalfjarðarbotni
25. jan 2010 -
22:01
22. janúar kl 9:30.
F2 gulur. Útkall
vegna leitar að manni við Botnsá í Hvalfirði. Tveir menn
fóru á Patrol með slöngubát, tveir til viðbótar ásamt
fjórhjóli komu seinna. Hinn týndi fannst í Botnsvogi um kl.
16.30.
~:~
1.
Umferðarslys við Hvalfjarðargöng
7. jan 2010 - 13:51
6. janúar kl 12:12.
F1 útkall á
vegum SHS vegna bílveltu við Saurbæ. Ökumaður einn í bíl og
hugsanlega fastur. Hlúð að hinum slasaða þangað til
sjúkrabílar komu af Tunguhálsi. Þrír menn fóru á Kjöl 2 auk
tveggja slökkviliðsmanna á dælubílnum.
~:~
2010
- - -
- - - Árið 2009; 50 útköll alls, þar af 11 vegna SHS þrjú F2 gul útköll urðu á innan við 6 klst
21. júlí.
Týnd kona
innanbæjar 1. jan 2010 - 16:51
30. desember
Kl 20:13
F2
gulur: leit að konu innanbæjar.
Afturkallað kl 20:38. Útkallið kom í miðri
flugeldasölutörn og fóru allir nema tveir,
sem er lágmarksmönnun í sölunni. Sem sagt, 5 menn á Patrol.
~:~
Barn í krampa í Kjós
20. des 2009 - 10:16
19. desember
Kl 12:05
F2
Neyðarlínan boðar vegna barns í krampa vð
skógræktarsvæði í Brynjudal. 500 m upp
í hlíð og mjög kalt í veðri. 2 menn fóru með fyrstu hjálparbúnað og Patrol
fór úr húsi síðar. Sjúklingur tekinn í
sjúkrabíl við Laxá. ~:~
Hvasst á Kjalarnesi
13. des 2009 - 15:06
10. desember
Kl 23:00
F2,
gulur
böndum komið á kerru sem var að fjúka á
Vesturlandsvegi. 3 menn + Patrol. ~:~
Hvalfjörður
13. des 2009 - 14:56
9. desember
Kl 9:00
F3 grænn
Rafgeymir sóttur í fjöruna við Hvammsvík og
komið til lögreglu. 3 menn + Patrol og bátur.
~:~
Kafaraslys í Hvalfirði
13. des 2009 - 14:56
8. desember
Kl 15:09
F1 rauður
útkall vegna kafaraslyss við Hvammsvík í
Hvalfirði þar sem kafari lést við köfun við
annan mann. 2 menn, Patrol + bátur, aðstoðað
við að ferja búnað. ~:~
Umferðaróhapp á vesturlandsvegi
26. okt 2009 - 19:58
23. október
Kl 18:53
F3 SHS kallar út til aðstoðar við slökkvilið og
lögreglu vegna umferðaróhapps þriggja
ökutækja á vesturlandsvegi skammt ofan við
OLÍS stöðina. Olíuhreinsun. Patrol og tveir
menn, komu aftur kl 21:15 í hús. ~:~
Bílvelta við Víkurgrund
12. okt 2009 - 19:36
9. október
Kl 21.26
F1 Kallað út vegna tilkynningar um bílveltu við
Víkurgrund. Við eftirgrennslan kom í ljós að
ekkert slys hafði átt sér stað. Fimm menn
fóru á staðinn með fyrstuhjálpar búnað. ~:~
Óveðursaðstoð á Kjalarnesi
12. okt 2009 - 19:36
9. október
Kl 9.40
F3
grænt útkall vegna óveðurs á
Kjalarnesinu. Fóru hviður á Skrauthólum yfir
50 m/sek allan daginn, mesta veðurhæð 58
m/sek. Talsvert af verkefnum í Grundarhverfi
og nágrenni - brotnar rúður, lausir hlutir,
þakkantar, flutningur á skólabörnum o.fl. og
komu fleiri sveitir úr bænum til aðstoðar.
Verkefni hættu að berast um kl. 19. Alls
voru 6 Kjalarmenn að störfum og báðir
bílarnir. ~:~
Endurlífgun í Grundarhverfi
6. okt 2009 - 21:56
4. október
Kl 10.55
F1
útkall vegna endurlífgunar. Fimm menn fóru á
staðinn með fyrstuhjálpar búnað. Lögregla og
sjúkrabílar komu um 10 mín. seinna. ~:~
Leit í Hvalfirði
27. sept 2009 - 9:46
25. september
Kl 00:17
F2
gulur,
útkall til leitar við Hvalvatn að tveim
mönnum sem gengu frá bíl sínum í festu við
Hvalvatn. Veður var slæmt og mennirnir
vanbúnir til útivistar. Urðu þeir viðskila
hvor við annann, en fundust loks heilir á
húfi. Tveir menn fóru til leitar við Botnsá á
Kjöl2 og leit var afturkölluð um kl 7. ~:~
Óhapp við Hvalstöð
3. sept 2009 - 20:42
16. ágúst
Kl 12:30
F2,
Neyðarlínan óskar eftir að Kjölur 2, sem er
á keyrslu í grennd við Hvalstöðina fari til
aðstoðar vegna barns með hugsanlega hryggs-
og hálsáverka eftir fall. Sjúkrabíll kemur á vettvang um svipað leyti.
Einn maður og jeppi. ~:~
Slys í Hvalfjarðargöngum
12. ágúst 2009 - 22:30
11. ágúst
Kl 16:25
F2, útkall
á vegum SHS. Árekstur þriggja bíla í
göngunum. Slökkvilið og sjúkrabílar frá
Akranesi voru fyrstir á staðinn. Ekki
alvarleg meiðsl á fólki. Tveir menn fóru á
Fordinum. ~:~
Fótbrot í Svínaskarði
9. ágúst 2009 - 14:30
5. ágúst
Kl 16:38
F2
gulur, útkall vegna manns sem talið
var að væri fótbrotinn í Svínaskarði, austan
Esju. Komið var að manninum og hlúð að,
þangað til frekari aðstoð við böruburð
barst. Hinn slasaði var fluttur með HSSR á
móts við sjúkrabíl. . Tveir menn fóru á Ford
og sá þriðji fékk far með Ársæli. ~:~
Bíll
fastur í Blöndu
9. ágúst 2009 - 14:20
3. ágúst
Kl 18:35
F1
rauður, útkall gegnum bakvakt
Hálendisgæslu vegna bíls stopp
í miðri ánni á efra Blönduvaði. Ökumaður
einn um borð í sjálfheldu. Bíll spilaður upp
í nokkrum tilraunum. Ökumanni og um 13
samferðamönnum komið í skjól á Hveravöllum.
Þremur jeppum snúið frá vaðinu og leiðbeint
með aðra leið á Hveravelli. Þrír Kjalarmenn
á Ford og einn maður með jeppa frá HSSH. ~:~
Trukkur í vanda við Kerlingafjöll
9. ágúst 2009 - 14:20
3. ágúst
Kl 14:35
F3
grænn, beiðni gegnum skálavörð
í Kerlingarfjöllum
Hálendisgæslu um að aðstoða
DAF trukk á slóðanum inn að Setri.
Trukkurinn dreginn upp lausa brekku og fylgt
upp að gatnamótum við Ásgarðssskála. Tveir
menn á Ford. ~:~
Fótbrot við Hagavatn
9. ágúst 2009 - 14:10
1. ágúst
Kl 16:35
F2
gulur, útkall gegnum Neyðarlínu
Hálendisgæslu
vegna manns sem
talið var að væri fótbrotinn við Hagavatn.
Ökklinn spelkaður og maðurinn fluttur í Ford
15 km á móts við sjúkrabíl. Björgunarfélagið
Eyvindur var líka kallað til vegna
hugsanlegs böruburðar. Tveir menn á Ford. ~:~
Bíll í sjálfheldu við Hagavatn
9. ágúst 2009 - 14:10
31. júlí.
Kl 19:15
F2
gulur, gegnum bakvakt
Hálendisgæslu vegna jeppa sem
talið var að væri fastur í á við Hagavatn.
Jeppinn reyndist vera í sjálfheldu utan
slóða, í brekkunni austan við Farið og var
spilaður upp. Tveir menn á Ford. ~:~
Rafmagnslaus bíll við Leppistungur
9. ágúst 2009 - 13:50
29. júlí.
Kl 18:00
F3
grænn, beiðni gegnum bakvakt
Hálendisgæslu vegna bifreiðar sem
var rafmagnslaus á slóða sv við
Kerlingafjöll. Gefið start og bifreiðinni
fylgt út á Kerlingafjallaafleggjara. Tveir
menn á Ford. ~:~
Grennslast fyrir um bíl á Kjalvegi
9. ágúst 2009 - 10:50
25. júlí.
Kl 23:00
F3
grænn, beiðni frá lögreglunni
á Selfossi gegnum bakvakt
Hálendisgæslu um
að gá að bifreið þar sem sprungið hafði á
tveimur dekkjum. Staðsetning um það bil klst
akstur frá Gullfossi. Ekki fannst bíllinn en
vegfarandi taldi sig hafa séð aðstoðarbíl á
staðnum og því reiknað með að snúið hafi
verið suður aftur. Þrír menn fóru á
Fordinum. ~:~
Umferðaróhapp á Hellisheiði
9.ágúst 2009 - 10:44
24. júlí.
Kl 15:15
F1
rauður Komið að
útafkeyrslu á Hellisheiðinni á leið í
Hálendisgæslu á Kili. Neyðarlínu gert
viðvart og hugað að ökumanni sem var einn í
bílnum, ásamt lækni og hjúkrunarfræðingi sem
komu að. Staðfest meðvitundarleysi í fyrstu
og súrefni gefið. Hlúð að manninum þangað
til sjúkrabílar komu. Sex manns frá Kili á
báðum bílunum. ~:~
Leit við Nesjavallaleið
22. júlí 2009 - 19:44
21. júlí.
Kl 20:36
F2
gulur, útkall vegna leitar að manni á
Nesjavallaleið. Þar sem tvö útköll voru í
gangi á sama tíma, var ákveðið að fara fyrst
í Esjuna og að því loknu eða upp úr miðnætti
í næstu aðgerð. Þrír menn með Patrol og
fjórhjól leituðu á svæðinu frá
Nesjavallavegi að Suðurlandvegi um nóttina.
~:~
Fótbrot í Esjunni
22. júlí 2009 - 19:44
21. júlí.
Kl 20:36
F2
gulur, útkall vegna fótbrots við
efsta skilti á gönguleið á Þverfellshorn.
Farið með skel, teppi og
skyndihjálparbúnað og hlúð að hinum slasaða,
þangað til frekari aðstoð barst. 3 menn, fjórhjól og
Ford. ~:~
Brynjudalur
22. júlí 2009 - 19:44
21. júlí.
Kl 14:45
F2
gulur, útkall vegna böruburðar.
Afturkallað kl 15:09 Þrír menn á Ford og fjórhjól lögðu af stað
úr húsi. ~:~
Hættustig í Keflavík
22. júlí 2009 - 19:44
20. júlí.
Kl 14:22
F2
gulur útkall vegna Boing 763 sem
tilkynnti um reyk í stjórnklefa, 190
farþegar um borð. Tveir menn fóru á Patrol á
söfnunarsvæði bjarga við Straumsvík.
Afturköllun kom tæplega hálftíma síðar þegar
vélin hafði verið rýmd. ~:~
Fótbrot við Þverfellshorn
19. júlí 2009 - 13:14
17. júlí.
Kl 10:43
F2
gulur, útkall vegna fótbrots ofarlega
við Þverfellshorn. Þar sem erfitt var að
bera hinnn slasaða niður, var þyrla kölluð
til. Þrír frá Kili aðstoðuðu SHS við að
ferja búnað upp, búa um hinn slasaða og taka
á móti þyrlunni. Patrol og fjórhjól. ~:~
Bátur strand við Lundey
19. júlí 2009 - 13:14
15. júlí.
Kl 15:38 F2
gulur - boðað aftur skömmu síðar sem
F1
rauður, vegna farþegabáts sem
strandaði við Lundey. Tíu manns um borð og
talsverður halli á bátnum. Tveir menn voru
með slöngubátinn tilbúinn til sjósetningar
þegar ljóst var að ekki var þörf á frekari
aðstoð. ~:~
Ungbarn í andnauð
19. júlí 2009 - 13:14
11. júlí.
Kl 10:20
F1 SHS,
ungbarn í öndunarerfiðleikum við
Meðalfellsvatn í Kjós. Ekið á móts við þau
ásamt lögreglunni og læknabíl. Aðstoð veitt
þar til sjúkrabíll kom. Læknabíll ferjaður á
bráðadeild barna. Björgunarsveitarbíll og
tveir menn. ~:~
Reykur út í móa
9. júlí 2009 - 21:24
7. júlí.
Kl 11:03
F2
SHS, mikill reykur norðan við
OLÍS Esjuskála. Óstaðfest hvað væri að
brenna. Í ljós kom að kveikt hafði verið í
rusli. Dælubíll og björgunarsveitarbíll, með
í allt 5 mönnum. ~:~
Skúta strönduð
4. júlí 2009 - 9:44
1. júlí.
Kl 19:25
F1 rauður, útkall vegna skútu sem
strandaði á Engeyjarrifi. Ekkert amaði að
áhöf, fimm manns og skútan var losuð af
strandstað af björgunarskipinu Ásgrími þegar
hafði flætt að. Tveir menn á báti fóru í
útkallið. ~:~
Leit að manni
1. júlí 2009 - 20:48
28. júní.
Kl 14:00
F2 gulur, útkall til leitar að
manni við Straumsvík. Maðurinn fannst
um þrem klst síðar, heill á húfi. Tveir menn fóru til
leitar. ~:~
Týndir í Esjunni
8. júní 2009 - 21:45
6. júní.
Kl 21:42
F2 gulur útkall vegna týndra
göngumanna í Esjunni.
Fyrst var einn týndur í þoku og síðan
bættust tveir útlendingar við og skömmu
síðar gekk einn íslendingur fram á hina þrjá
og gat leiðbeint þeim niður af fjallinu.
Kjölur kom á móts við hópinn við Steininn. 4
göngumenn fóru á Patrol og tveir á
fjórhjóli. ~:~
Fótbrot í Esjunni
6. júní 2009 - 21:15
4. júní.
Kl 21:18
F2 gulur útkall vegna fótbrotins
göngumanns í Esjunni ofan við brú.
Fjórhjólið fyrst á slysstað, SHS aðstoðað
við að koma hjólbörum upp og flytja sjúkling
niður - alls 3 manns frá Kili. ~:~
Leit að manni á Ingólfsfjalli
31.
maí 2009 - 18:25
24. maí.
Kl 20:15
F2 gulur útkall vegna leitar að
manni á Ingólfsfjalli. Afturkallað 6 mín.
síðar. Maðurinn fannst heill á húfi. Þrír
menn klárir í bíl þegar afturköllun barst. ~:~
Slösuð kona í Esju
21.
maí 2009 - 08:47
20. maí.
Kl 16:41
F2 gulur
útkall vegna slasaðrar
konu á göngustíg í Esju. Aðstoðað við að
flytja konuna á hjólabörum niður. Fjórhjól og einn maður. ~:~
Bíll losaður úr festu
17.
maí 2009 - 20:27
16. maí.
Kl 20:00 beðið um aðstoð við aða losa bíl úr
festu í fjöru við Arnarholt. Bílinn var
spilaður upp. Bíll og einn maður. ~:~
Maður með brjóstverk í Kjós
17.
maí 2009 - 20:27
16. maí.
Kl 18:08
F1
SHS. Útkall vegna einstaklings með
brjóstverk við Meðalfellsvatn. Bíll og 2 menn fóru uppeftir. Afturkallað 10
mín. síðar þegar í ljós kom að sjúklingur
hafði verið keyrður niður á Kjalarnes til
móts við sjúkrabíl. ~:~
Leit í Mosfellsbæ og nágrenni
16.
maí 2009 - 10:17
14. maí.
Kl 20:41,
F2 gulur leitað að einstaklingi í
Mosfellsbæ og nágrenni. Afturkallað tveim
tímum síðar. Fannst heill á húfi í Reykjavík. 1
bíll 3 menn. ~:~
Aðstoð í óveðri
10.
maí 2009 - 18:15
8. maí.
Kl 17:30, beiðni um aðstoð frá
félagsmiðstöðinni Flógyn að ferja upp á
Kjalarnes 27 unglinga úr Grafarvogi ásamt
leiðbeinanda, en þeir voru veðurtepptir í
Mosfellbæ. Mjög hvasst var og hviður allt að
40 m/sek á Esjubergi. Econoline og tveir
menn. ~:~
Endurlífgun á barni
1.
maí 2009 - 08:15
25. apríl.
Kl 8:29,
F1 SHS, útkall vegna endurlífgunar
á barni í Grundarhverfi. 4 menn og
einn frá slökkviliði Kjalarness. ~:~
Slasaður í Esju
18.
apríl 2009 - 16:35
17. apríl.
Kl 17:55
F2 gulur, útkall vegna slasaðs
ferðalangs í Esju. Afturkallað 10 mín.
seinna vegna þess að maðurinn gat bjargað
sér niður sjálfur. 2 menn og fjórhjól
voru tilbúnir að fara úr húsi. ~:~
Fastur bíll við Laxá
18.
apríl 2009 16:20
12. apríl.
Kl 18:00
F3
grænn. Fjarskipatamiðstöð lögreglu hefur
samband vegna bíls sem er fastur í drullu
við Laxá í Kjós. Beiðni afturkölluð skömmu
síðar, en þrír menn voru tilbúnir að fara úr
húsi. ~:~
Árekstur við Esjumela
29.
mars 2009 - 21:45
29. mars.
Kl 19:57
F2, útkall vegna 5 bíla áreksturs
við Esjumela í hvassviðri. Engin alvarleg
slys á fólki. Þrír félagar fóru á bíl í
eftirgrennslan, kanna aðstæður og gefa
skýrslu um færð frá Grundarhverfi að
vettvangi. ~:~
Bíll
fastur á Mosfellsheiði
29.
mars 2009 - 21:45
29. mars.
Kl 01:12
F2 gulur, beiðni um aðstoð gegnum
bakvakt um að senda bíl til að draga bíl úr
festu á Mosfellsheiði. Bíll mannaður einum
frá Kili og öðrum frá Kyndli leystu
verkefnið. ~:~
Aðstoð á svæði 4
29.
mars 2009 - 21:45
28. mars.
Kl 15:38
F2 gulur, útkall á fjórhjól á svæði
1 til aðstoðar á svæði 4. Einn úr gönguhópi
á Skessuhorni í Skarðheiði slasaðist. Koma
þurfti hinum slasaða í aðhlynningu og
aðstoða hina í hópnum niður af fjallinu.
Tveir félagar fóru á jeppa og fjórhjóli.
~:~
Maður fótbrotnar í Esjunni
8.
mars 2009 - 16:45
7. mars.
Kl 18:43:
F2 gulur, útkall vegna manns sem hafði
dottið og fótbrotnað efst í Þverfellshorni í
Esjunni. Björgunarsveitarmaður frá Kyndli
var í göngu rétt hjá og var fyrstur á
staðinn og gat hlúð að hinum slasaða. Þyrla kom og hífði manninn um borð
og fór með hann á sjúkrahús. Tveir menn Kjalar
fóru fyrst á fjórhjóli og síðan gangandi upp
fjall. Aðstoðuðu við að taka á móti þyrlu og
fylgdu ásamt öðrum tveim félögum hins
slasaða niður.
~:~
Leit að
konu við Reynisvatn
8.
mars 2009 - 16:42
5. mars.
Kl 15:00
F3
grænn, var leitað við
Reynisvatn að sömu konunni sem saknað hefur verið
síðan 24. febrúar. Tveir menn og
fjórhjól fóru á vettvang.
~:~
Leit að konu í Fossvogi
1.
mars 2009 - 16:30
28. feb.
Kl 14:20
F3
grænn, var beðið um aðstoð kajakamanna
Kjalar við leit á grynningasvæði í Fossvogi.
Leitað var að konu sem saknað hefur verið
síðan á þriðjudag. 2 kajakar, tveir menn og
bíll fóru á vettvang.
~:~
Fjórhjól sunnan Skálafells
17.
febrúar 2009 - 20:49
14. feb.
Kl 21:20
F2
gulur úkall til að aðstoða 3
fjórhjólamenn í hremmingum á hjólum sínum í
slæmu færi og myrkri sunnan Skálafells. 4
menn fóru af stað, jeppi og fjórhjól. Allt fór það vel.
~:~
Fjórhjól fast í snjó
12.
febrúar 2009 - 20:45
8. feb.
Kl 15:30
F3
grænn. Slegist í för með Kyndli til að
losa fjórhjól á Mosfellsheiði. Afturkallað
skömmu síðar þegar viðkomandi hafði borist
önnur aðstoð. Einn maður og fjórhjól við það
að leggja af stað úr húsi.
~:~
Umferðarslys við Grundarhverfi
11.
janúar 2009 - 19:00
9. jan.
F2 SHS kl 7:38 var útkall vegna umferðarslyss á
Vesturlandsvegi móts við Grundarhverfi á
hættulegum gatnamótum við Klébergsskóla.
Fjórir bílar í árekstrinum og mikil umferð,
slökkvilið Kjalarness og Kjölur
björgunarsveit unnu saman, sjö manns í allt
sinntu fyrstu hjálp og tryggðu öryggi þar
til frekari aðstoð barst. Fimm voru fluttir
á slysadeild.
~:~
2009
- - - -
Árið 2008; 49 útköll alls, þar af 10 vegna SHS átta útköll urðu á níu dögum 7. - 15.
febrúar.
Leit á Skarðsheiði
26.
desember 2008 - 22:25
20.des.
F2 gulur kl 20:22 var útkall fyrir sérhæfða
leitarhópa í leit að
göngumanni, sem hreppti vont veður á
Skarðsheiði. Þrír Kjalarmenn klárir í leit í
húsi, en til þess kom ekki. Leit afturkölluð
kl 21:42. Maðurinn fannst heill á húfi en
nokkuð kaldur. Stuttu síðar var óskað eftir aðstoð við
ökumann bíls, sem hafði lent utanvegar í
hálku á Vesturlandsvegi. Aðrir vegfarendur
dógu bílinn upp rétt áður en komið var á
staðinn.
~:~
Leit að Alzheimersjúklingi
7.
desember 2008 - 9:40
6.des.
F2 gulur kl 19:43 var útkall í leit að
Alzheimersjúklingi í Reykjavík. Fimm manns
voru klárir frá Kili þegar afturköllun kom.
Maðurinn fannst heill á húfi.
~:~
Framhaldsleit að rjúpnaskyttu á
Skáldabúðaheiði
7.
desember 2008 - 9:40
5.des.
F3 grænn kl 7:30 var fram haldið leit að
rjúpnaskyttu, þrír göngumenn frá Kili.
Sveitir komu frá öllu landinu. Leitin bar
ekki árangur og var maðurinn formlega talinn
af og leit hætt.
~:~
Leitað að rjúpnaskyttu á Skáldabúðaheiði
7.
desember 2008 - 9:40
29. nóvember - 2.des.
F2 gulur kl
19:? var hafin leit að rjúpnaskyttu, sem
hafði ekki komið fram til félaga sinna á
tilsettum tíma. Svæðið er erfitt til leitar
og nefnist Skáldabúðaheiði í
Gnúpverjahreppi. Leitað hefur verið í fjóra
daga og um 100 manns tekið þátt í henni. Á
laugardag voru 5 félagar frá Kili í leit með
bíl og fjórhjól. Fyrstu nóttina var hvílt í
veiðikofa inn á svæðinu í nokkra tíma og
haldið síðan áfram í fyrstu dagsskímu.
Sunnudag voru 6 manns fjórhjól og jeppi.
Mánudag voru tveir á jeppa og þriðjudag var
haldið áfram leit með minni mannskap. Þá var
einn frá Kili sem leitaði með HSSR. Norðan
gjóla var með um -10° stiga frosti.
~:~
Bíll fastur í Laxá í Kjós
16.
nóvember 2008 - 21:35
15. nóvember.
F2 gulur kl
19:40 Tryggingaélag í samráði við lögreglu
hringir vegna bíls sem var fastur í Laxá í
Kjós. Grafist hafði undan bílnum þar sem
hann var fastur í ánni neðan við Eyrar og
vatn flæddi inn í hann. Bílinn var spilaður
upp úr ánni og mennirnir, nokkuð kaldir
eftir volkið, voru fluttir heim í bústað. 3
menn á Patrol jeppa í útkallið. ~:~
Leit að unglingum við Grundargerði
28.
október 2008 - 19:50
27. október. kl
22:35 svæðisstjórn biður um menn til að
leita að unglingum, sem hugsanlega höfðu
slasast í gassprengingu, en flúið af
vettvangi. Leit hafði staðið í 1.5 klst
þegar fleiri voru kallaðir á staðinn og var
leitað í 1 km radíus út frá vettvangi. Fimm
Kjalarfélagar fóru í leitina. ~:~
Bílvelta við Sjávarhóla
28.
október 2008 - 19:47
27. október. kl
8:38 F2 neyðarlínan boðar vegna
bílveltu, ökumaður fastur í bíl. Hlaupari
fór á slysstað, en þá höfðu vegfarendur
hjálpað ökumanninum út, sem talinn var
óslasaður. Neyðarlínu tilkynnt um það og
lögregla kom á staðinn skömmu síðar. ~:~
Bílslys við Esjuberg
4.
nóvember 2008 - 21:45
25. október. kl
16:33 Neyðarlína boðar F1 vegna bílslyss við
Esjuberg, þrír bílar og hjólhýsi. Hjólhýsi
aftan í jeppa á norðurleið fauk þversum í
veg fyrir tvo aðvífandi bíla á suðurleið.
Einn maður mætti og aðstoðaði lögreglu á
vettvangi. ~:~
Beiðni um aðstoð
26.
október 2008 - 14:30
23. október. kl
15:50 óskað eftir aðstoð við að losa bíl úr
festu í skafli í Skálafelli. Lögreglu var
gert viðvart og einn maður fór á staðinn. ~:~
Aðstoð vegna óveðurs
26.
október 2008 - 14:30
23. október. kl
1:00 - 3:00 viðbragðsstaða vegna óveðurs á
höfuðborgarsvæðinu. Farið í Svínahraun til
aðstoðar vegna fastra bíla. Fjögur á Patrol
Kjölur 2 fóru stóðu vaktina. ~:~
Aðstoð vegna bíls í festu
19.
október 2008 - 21:50
19. október. kl
18:30 útkall, svæðisstjórn biður um aðstoð
vegna bíls í festu í fjörunni á Hvaleyri. 3
menn fóru og losuðu bílinn áður en flæddi
að, en sjór var kominn að dekkjum. ~:~
Leit að manni
10.
október 2008 - 18:00
5. október.
F2 - gulur kl 20:06 útkall, leit að manni
við Kleppsveg. Afturkallað kl 20:45,
maðurinn fannst heill á húfi. 4 menn ýmist
lagðir af stað eða í startholunum. ~:~ Aðstoð vegna foks í Kjós
20.
september 2008 - 20:05
20. september.
Um Kl 11 var hringt og beðið um aðstoð vegna
foktjóns í Kjós. 2 menn og einn snáði fóru
og skrúfuðu spjald fyrir svalahurð sem hafði
fokið upp í snarpri vindhviðu og tvístrast í
þusund mola. ~:~
Óveður
19.
september 2008 - 15:45
17. september.
Kl 00:24 F3 grænn útkall vegna óveðurs. 4
menn frá Kili fóru í Mosfellsbæ og Grafarvog
til kl 03:00 vegna
aðstoðarbeiðna í roki og rigningu, en alls
voru um 100 manns að störfum vegna veðursins. ~:~
Brjóstverkur í heimahúsi
22.
september 2008 - 22:00
14. september.
F1 Kl 19:02 útkall vegna
manns með brjóstverk í heimahúsi. Hlaupari
stökk beint á staðinn og bíll með fyrstu
hjálpar búnaði kom skömmu seinna. Súrefni
gefið uns sérhæfð aðstoð barst. 2
björgunarsveitarmenn og tveir úr
slökkviliðseiningu. ~:~
Brjóstverkur í Grundarhverfi
30.
ágúst 2008 - 15:45
29. ágúst.
Kl 14:11 hringt beint frá neyðarlínu vegna
manns með brjóstverk í Grundarhverfi.
Slökkvilið Kjalarness boðað út skömmu síðar.
Súrefni gefið þar til sjúkrabíll kom. 1
maður fór í útkall. ~:~
Leit að Alzheimersjúklingi
1.
september 2008 - 21:32
27. ágúst.
F2 gulur kl 19:35 útkall vegna leitar að
Alzheimersjúklingi í Grafarvogi. Hann fannst
heill á húfi rúmlega hálftíma síðar. 2
göngumenn fóru frá Kili og einn á fjórhjóli. ~:~
Maður villtur í þoku á Esju
23.
ágúst 2008 - 09:25
19. ágúst.
Kl 20:02 útkall F2 gulur á undafara og Kjöl,
maður í fjallgöngu á Esju villtist í þoku og
hringir í neyðarlínu eftir aðstoð. Hálftíma
síðar var kallað í viðbótarmannskap til
leitar. Sjö manns fóru frá bjsv Kjölur.
Econolininn bilaði á leið upp og aðrar
sveitir voru mjög hjálplegar við að koma
honum til baka. Leitað var upp við Hábungu
og Hátind og þar fannst maðurinn með aðstoð
þyrlu Landhelgisgæslunnar um kl 23:30.
Síðust menn komu af fjallinu í hús um kl 03.
~:~
Hálendisvakt, augnslys í Kerlingarfjöllum
16.
ágúst 2008 - 18:00
6. ágúst.
Um Kl 15:00 hefur neyðarlínan samband og
biður sveitina um að fara í Kerlingafjöll
því maður hafi slasast á auga. Bíllinn ásamt
fjórum mönnum var þá staddur við Stóru-Laxá
sunnan Kerlingafjalla í lélegu
fjarskiptasambandi og maður á gámavakt á
Hveravöllum bíllaus. Bílnum var snúið við og
læknir ræsir út þyrlu og jafnframt er sendur
sjúkrabíl frá Selfossi, því óvíst var hvort
þyrla gæti lent. Manninum á Hveravöllum
tekst að útvega sér fjórhjól þar og snarast
í Kerlingafjöll og hugaði að hinum slasaða
uns þyrlan kom og gat lent. Flutti hún
manninn til Reykjavíkur. ~:~
Hálendisvakt, bíll bilaður á Stórasandi
16.
ágúst 2008 - 17:54
5. ágúst.
Um Kl 00:30 bakvakt Landsstjórnar hefur
samband við sveitina á hálendisvakt vegna
bíls sem hefur bilað á Stórasandi norðan
Langjökuls. Hafði pústið farið undan og
bremsur voru ónýtar. Í bílnum var maður með
tvö börn. Fólk ásamt farangri var ferjað
niður á Blönduós og því útvegað gisting.
Þrír fóru í þetta og voru komnir heim á
Hveravelli um 7:30 um morguninn.
~:~
Hreyfilbilun í þotu á Keflavíkurflugvelli
29.
júlí 2008 - 09:42
27. júlí.
F2, hættustig stórt, Kl 17:31 þota með
hreyfilbilun í flugtaki neyðist til að lenda
aftur á Keflavíkurflugvelli og lenti heilu
og höldnu. Fimm menn frá Kili tilbúnir til
brottfarar þegar afturköllun kom kl 17:37. . ~:~
Maður týndur í Esjunni 26.
júlí 2008 - 21:23
24. júlí.
F2 gulur, Kl 12:21 Kjölur og Kyndill
kallaðir út til aðstoðar lögreglu við að
finna mann í Esjunni, sem sést hafði þar
klæðlaus á gangi ofarlega í fjallinu.
Hálftíma síðar voru allar sveitir á svæði 1
ræstar út. 4 menn frá Kili fóru til
leitar á Econoline og fjórhjóli og leituðu
þeir Þverfellshornið við slæm
leitarskilyrði, rok og rigning og þoka.
Maðurinn fannst látinn í Gunnlaugsskarði
daginn eftir, hann fannst við leit úr þyrlu.
Alls tóku 120 leitarmenn þátt í leitinni
þegar mest var. ~:~
Kaffi Kjós 12.
júlí 2008 - 17:10
10. júlí.
F2, SHS, Kl 15:45 boðun vegna konu sem hafði
slasast í Kaffi Kjós. Þar sem ljóst var að
sjúkrabílar kynnu að tefjast vegna
Keflavíkur útkalls var björgunarsveitarbíll
Kjalar ásamt tveim mönnum boðuð á staðinn.
Hlúð var að konunni þar til sjúkrabíll kom á
staðinn. ~:~
Keflavíkurflugvöllur
12.
júlí 2008 - 17:10
10. júlí.
Hættustig stórt Kl 15:24, Boing 757 með
bilaðan hreyfil, 180 manns innanborðs. 5
tilbúnir fóru úr húsi. Vélin lenti heilu og
höldnu skömmu síðar og beiðnin afturkölluð
kl 15:37. ~:~
Ökklabrot í Esjunni
8.
júlí 2008 - 22:30
7. júlí.
F2 gulur Kl 21:16 útkall í fjallabjörgun
vegna ökklabrotins fjallgöngumanns í
Þverfellshorni. Úr varða að þyrlan sótti
manninn. Þrír Kjalarfélagarar á jeppa og
einn á fjórhjóli mættu á svæðið, kl 22:05
var beiðnin afturkölluð. ~:~
Leit að Alzheimersjúklingi
8.
júlí 2008 - 22:30
7. júlí.
F2 gulur Kl 14:25 útkall í leit að
Alzheimersjúklingi frá Kópavogi og voru
allar sveitir á svæði 1 boðaðar. 4 menn frá
Kili fóru í leit í Seljahverfi, en maðurinn
fannst síðan rétt fyrir kl 16 á Hlemmi.
~:~
Leit að 11 ára stúlku
19.
júní 2008 - 21:30
14. júní.
F2 gulur Kl 12:55 útkall í leit að 11 ára
stúlku. 3 menn voru nýlagðir af stað úr húsi
þegar stúlkan fannst heil á húfi og leit var
afturkölluð kl 13:05.
~:~
Jarðskjálfti á Ölfusi
31.
maí 2008 - 22:45
29. maí.
Kl 16:08 boð um viðbragðsstöðu og síðan
breytt í beiðni um að fara austur í
Hveragerði til hjálparstarfa í kjölfar
jarðskjálfta. Stærsti skjálftinn var 6.3
stig á Richter með upptök nærri Hveragerði.
Lýst var yfir hæsta stigi almannavarna og
stjórnstöð almannavarna virkjuð. Aðstoðað
var við að koma upp fjöldahjálparstöð við
grunnskólann í Hveragerði og við skráningu
fyrir vettvangsstjórn. Þegar neyðarástandi
var létt í Hveragerði var farið til Selfoss
og í verkefni að kanna mannaferðir í
bústöðum við Þingvallavatn. Átta manns
alls fóru í útkallið sem stóð fram á nótt.. ~:~
Leit að stúlku
6.
maí 2008 - 22:05
5. maí.
Kl 13:40, F2 gulur, útkall vegna leitar að
sex ára stúlku, sem hvarf úr útivistarstund
í grunnskóla í Garðabæ. Einni klukkustund
seinna var leit afturkölluð þar sem kennarar
höfðu fundið stúlkuna eftir tveggja og hálfs
tíma útiveru, heila á húfi, á göngu nærri
miðbæ Garðabæjar, að hennar sögn " hún mætti
nú alveg skoða heiminn !!" Þrír
Kjalarfélagar mættu í leit.
~:~
Bílvelta 4.
maí 2008 - 20:55
4. maí.
Kl 16:40, F3 útkall vegna bílveltu á
Vesturlandsvegi rétt við Grundarhverfi.
Kerra tekst á loft í hvassviðri og dregur
bílinn með sér á hliðina. Bílinn affelgaðist
á einu hjóli, gera þurfti bílinn ökuhæfan
svo hægt væri að koma honum og kerrunni í
skjól. Í bílnum var kona og fjögur börn.
Ekki urðu slys á fólki. 5 mættu í útkallið.
~:~
Fólk í sjálfheldu í Esjunni
4.
maí 2008 - 9:45
3. maí.
Kl 20:15, F2 gulur, útkall vegna konu og
tveggja sona hennar sem komust í sjálfheldu
í skriðu á gönguferð sinni í Lág Esjunni
ofan Grundarhverfis. Jeppi með göngumenn
fóru að staðnum að neðan og fjórhjól með
tveimur mönnum að ofanverðu. Sett var upp
lína og fólkið aðstoðað niður. Nokkurt
hvassviðri gerði mönnum erfitt við að
athafna sig. Sex manns
komu í aðgerðina.
~:~
Meðvitundarlaus maður í heimahúsi
3.
maí 2008 - 16:55
3. maí.
Kl 12:09, F1 rauður, útkall í heimahús í
nágrenni Grundarhverfis vegna
meðvitundarleysis manns. 2 hlauparar fóru á
staðinn og huguðu að manninum uns sjúkrabíll
kom á staðinn, sem flutti hann á sjúkrahús.
~:~
Hestakerra fýkur á Vesturlandsvegi
1.
maí 2008 - 17:37
30. apríl.
Kl 20:20, lögreglan í Mosfellsbæ hefur
samband og biður um aðstoð þar sem
hestakerra hafði fokið á Vesturlandsvegi við
Grundarhverfi. Kerra og jeppi voru þversum
yfir veginn og teppti umferð. Hleypa þurfti
umferð framhjá í hollum. Kerran var spiluð
til á veginum og síðan dregin í fylgd
lögreglu í skjól. Þar sem þetta gerðist í
upphafi aðalfundar sveitarinnar var góð
mæting eða sex alls í útkalli. ~:~
Umferðarslys á Vesturlandsvegi
10. apríl 2008 -
21:33
9. apríl.
Kl 7:10, menn á leið til vinnu sjá hvar
umferðarslys hefur orðið á þjóðveginum rétt
ofan Grundarhverfis. Rúta og
flutningabíll lenda saman í fljúgandi hálku
og hvassviðri og lélegu skyggni. Báðir bílar
lenda útaf og flutningabíll lokar veginum.
Lítil slys á fólki. Bíll og þrír félagar
mættu á svæðið. Björgunarsveitarbíll náði að
spila tengivagn flutningabíls til hliðar svo
umferð gæti komist í aðra áttina í einu.
Lögregla tók annars við vettvangsstjórn. ~:~
Menn í sjálfheldu í Esju
5. apríl 2008 -
18:30
4. apríl.
Kl 14:00, F2 gulur útkall vegna tveggja
manna sem voru í sjálfheldu í Esju, efst í
Þverhorni. Tveir fóru á bíl úr húsi á bíl og
einn á fjórhjóli. Ekinn var vegslóð austan
við og norður fyrir Rauðhól, fjórhjól og
einn jeppi fóru alla leið að mönnunum og
sóttu þá. Aðrar sveitir komu einnig í
aðgerðir akandi og gangandi.
Sjá frétt á mbl.is ~:~
Leit að fullorðnum manni á Akranesi
16. mars 2008 -
17:30
16. mars.
Kl 9:45, hafði svæðisstjórn samband og bað
um aðstoð við leit að eldri manni á bíl, sem
saknað var síðan í gær. Beðið um leit að bíl
mannsins á vegum og slóðum frá Botnsá í
Hvalfirði og vestur í Kjós. Maðurinn kom
síðan leitirnar um kl 12:20. 3 menn og bíll fóru úr húsi. ~:~
Bíll í skurði
9.
mars 2008 -
20:30
7. mars.
Kl 21, tveir björgunarsveitarmenn á ferð um
Vesturlandsveg urðu vitni að því þegar
ökumaður missti stjórn á bíl sínum í mikilli
hálku og hafnaði út í skurði. Hugað var að
ökumanni, sem var einn í bílnum. Reyndist
hann ómeiddur og haft var samband við
lögreglu og beðið eftir henni og bílinn
síðan dreginn upp. ~:~
Fjórhjólafesta
18. feb 2008 -
22:22
15. febrúar.
Kl 17:40, beðið um aðstoð við að losa
fjórhjól úr festu við Hvalfjarðareyri. Haft
var samband við svæðisstjórn og farið á
fjórhjóli og hjólið losað. Einn maður og
fjórhjól í klukkustundar aðgerð. ~:~
Veikt barn í Grundarhverfi
14. feb 2008 -
20:57
13. febrúar.
Kl 21:00, hringt beint í sveitina vegna
skyndilega veiks barns, sjúkrabíll og læknir
á leiðinni, félagar á vinnukvöldi beðnir um
að fara á staðinn, höfð samskipti við
sjúkrabíl og barni gefið súrefni. 3 félagar sinntu beiðninni.
~:~
Endurlífgun
13. feb 2008 -
21:10
13. febrúar.
Kl 7:24, Útkall frá neyðarlínu um
endurlífgun á meðferðarheimili. 4 félagar
mættu í útkall.
~:~
Beiðni um aðstoð
10. feb 2008 -
12:20
9. febrúar.
Kl 19:00, barst beiðni um aðstoð, við að
draga bíl úr skafli við Hafravatn. Haft var
samband við svæðisstjórn og lögreglu áður en
farið var á staðinn. Bíll og tveir menn. ~:~
Eftirhreytur óveðurs
9. feb 2008 -
18:25
9. febrúar.
Kl 14, óskað eftir aðstoð við bóndann í
Stardal, við að loka gati á gafli hlöðu, sem
hafði skemmst í ofsaveðrinu í gær. 2 menn fóru á fjórhjólinu nýja, fyrsta
verkefni þess, og tókst að loka hlöðunni.
~:~
Óveður gengur yfir landið
9. feb 2008 -
18:17
8. febrúar.
Kl 17, Samhæfingarstöð er virkjuð upp úr
hádegi, og Svæðisstjórn biður Kjöl um að
fara á stúfana um kl 17 vegna tveggja
verkefna í Grafarholti
Skrauthólar
vindhæð, af Veðurstofuvefnum.
og
Mosfellssbæ. Verður var arfavitlaust,
fáránlega hvasst og slagveður, asahláka.
Mikið um fok og vatnsflóð, með tilheyrandi
dæluverkefnum fyir flestar sveitir. Verkum
var hætt um kl 20, 5 menn. Bílinn fór skömmu
seinna aftur úr húsi með 4 slökkviðliðsmenn
og dælur, í verkefni í bílakjallara í
Mosfellsbæ og Egilshöll. Unnið var langt
fram á nótt við að dæla og skafa upp vatn.
Mikið tjón varð í þessu veðri. ~:~
Ófærðaraðstoð
9. feb 2008 -
18:15
7. febrúar.
Kl 23:55, Svæðisstjórn hefur samband og
biður um bíl og menn til að aðstoða ökumann,
sem festi bílinn í snjó við
Helgafellsafleggjara. Fólkið var ferjað
hjeim og bílinn spilaður laus úr skaflinum.
Annar bíll var losaður við Hafravatnsleið.
Aðgerðum hætt um kl 1:30. 3 menn í
aðgerðum.
~:~
Maður slasast í Kjós
9. feb 2008 -
18:05
7. febrúar.
Kl 8:50, Neyðarlínan hefur samband þegar
maður sem slasaðist á hendi í Kjós, bað um
aðstoð að komast á slysavarðstofu, komst
ekki vegna ófærðar. Enginn bílstjóri fyrir
björgunarsveitarbíl var á svæðinu. Brugðið
var á það ráð að fá snjóruðningstæki til
ryðja leið til móts við hann, þar sem í
millitíðinni fékk far með öflugum bíl.
2 menn til taks, en einn fór með
snjóplógnum.
~:~
Óveður
22. jan 2008 -
18:00
22. janúar.
Kl 5:00 viðbragðsstaða, var farið úr húsi
til að kanna sjávarstöðu neðan
Grundarhverfis. Gert var ráð fyrir 950 mb
lægð vestur af landinu, stórstreymi um kl 6
með 4.20 í flóðhæð og SA stormi. Allt
reyndist í lagi þar vegna austlægrar
vindáttar. Vöruflutningabíll var í
erfiðleikum, nærri farinn á hliðina, á
heimreið að Vallá, vegna staðbundinnar hálku
og hvassviðrisins, hviður allt að 57 m/sek á
Skrauthólum.

Veðurstöð Skrauthólar, vindhraðamynd að ofan
fengin af vef Veðurstofunnar.
Fauk björgunarsveitarbíllinn
þrisvar útaf vegi. Loks var hann tjóðraður
við flutningabílinn með spilinu og
skotbómukrani á hitt horn hans, sem akkeri.
Vegagerðin kom og saltaði á staðnum. Á sama
tíma varð bílslys á þjóðvegi nærri
Esjuskála, þar sem lítil rúta fauk ofan á
fólksbíl. Þangað fuku og gengu tveir
björgunarsveitarmenn og einn neðan úr hverfi
til aðstoðar. Engin slys urðu á fólki.
Krókheysisbíll frá SHS kom og dróg bílana af
Vesturlandsvegi og aðstoðaði við að ná
flutningabílnum inn á veginn við Vallá.
Tjón varð á fjórum bílum, þar á meðal
björgunarsveitarbílnum, skrámur og
smátognanir hjá björgunarsveitarmönnum. Störfum var hætt um kl 10. Fjórir félagar
voru að störfum. ~:~
Bíll
dreginn upp við Grundarhverfi
22. jan 2008 -
17:50
20. janúar.
Beiðni um aðstoð við að draga upp bíl sem
hafði runnið til í hálku og hafnað með
trýnið ofan í skurð. Leyfi fengið hjá
lögreglu, sem hafði fengið vitneskju um
óhappið.
~:~
Esjumelar
22. jan 2008 -
17:45
19. janúar.
Kl 13:30 Á leið á æfingu sást til bifreiðar
sem rann til í hálku og útaf vegi við
Esjumela og komst ekki upp af sjálfsdáðum.
Atvikið tilkynnt til lögreglu og fengið
leyfi til að draga hann upp.
~:~
Leit að 19 ára dreng í byggð
4. jan 2008 - 21:09
2. janúar.
Kl 7:30 Útkall F2 leit að ungum manni í
byggð. Leit hófst kvöldið áður og
leitað alla nóttina og verið að leysa af með
óþreyttu liði. Leitað allan daginn fram á
kvöld. Leit afturkölluð kl 22:20 þegar
staðfest var að drengurinn var fundinn
látinn við Snarfarahöfn. Alls fóru 9 manns
úr sveitnni og leitðu aðallega við
Elliðaárdalinn.
~:~
2008
~:~
Árið 2007;
26 útköll alls,
þar af 8 vegna SHS.
10 útköll voru í desember
~:~
Óveður og aurskriða við Dalsmynni
25.
des 2007 - 20:14
30. desember.
Kl 9:31 Útkall F2 vegna aurskriðu og
vatnsflóðs í kjallara í Dalsmynni
hundahóteli. Farið í björgunaraðgerðir og
dælingu. Í framhaldi af því var farið í
verkefni í bænum, flóð og fok vegna óveðurs
með úrhellisrigningu og asahláku. Störfum
hætt kl 15:40. Alls fóru 8 manns í útköllin.
~:~
3 bíla árekstur á Kjalarnesi
25.
des 2007 - 20:14
25. desember.
Kl 15:12 Útkall F1 rauður vegna áreksturs
við vigtarplan rétt norðan við Grundarhverfi
vegna hálku. Lögreglan var á staðnum.
Viðbragðstími var nánast enginn þar sem
allir voru enn í bækistöð eftir fyrra
útkall. Hlúð að fólki þar til sérhæfð aðstoð
barst. Slasaðir voru fluttir með sjúkrabílum
í bæinn. Alls fóru 9 manns í útkallið.
~:~
Árekstur á Kjalarnesi
25.
des 2007 - 20:04
25. desember.
Kl 14:05 Útkall F1 rauður vegna áreksturs á
þjóðvegi við Hvalfjarðargöng vegna hálku.
Stjórnandi fór beint á slysstað, aðrir komu
á björgunarsveitarbíl. Hlúð að slösuðum
einstaklingi ásamt barni þangað til sérhæfð
aðstoð barst (SHS). Alls fóru 9 manns í
útkallið.
~:~
Hross í
umferðarslysi
23.
des 2007 - 12:37
21. desember.
Kl 21:38 aðstoð við lögreglu vegna
umferðarslyss þar sem ekið var á hross á
þjóðveginum við Esjuberg. Tveir menn og
bíll, umferðarstjórn, hross dregið út í
vegkant og leit að öðrum hestum í átt að
Saltvík. Aðgerðum lokið kl 22:30.
~:~
Barn með krampa
18.
des 2007 - 22:17
18. desember.
F1 útkall kl 15:49, beðið um aðstoð vegna
barns með krampa í heimahúsi í nágrenni
Grundarhverfis. Gefið súrefni uns frekari
aðstoð barst. 3 menn á tveim bílum fóru í
útkallið.
~:~
Meira óveður
14.
des 2007 - 20:17
14. desember.
Heildaróveðursútkall á svæði 1, 6 komin í
hús kl 08:00 og 2 bættust við skömmu síðar.
Verkefni tveggja hópa í Mosfellsbæ og
Grundarhverfi. Meðal annars var hugað að
loftlúgu hjá Ístex og þakkanti hjá Kaupþing
í Mosfellsbæ. Eftir hádegi voru verkefni
aðallega í Reykjavík. Veður gekk niður
síðdegis og sveitin hætti störfum kl 17:00.
~:~
Óveður
13.
des 2007 - 22:07
13. desember.
Heildarútkall á svæði 1 kl 01:49,
viðbragðsstaða vegna óveðurs. Fljótlega fór
að hvessa af ASA og síðar af suðri, svo um
munaði og mestu vindhviður fóru í 50 m/sek á
Skrauthólum. Fimm manns mættu í Þórnýjarbúð.
Farið var um Grundarhverfi og nágrenni og
aðstæður kannaðar. Ruslatunnur og gámar voru
á hreyfingu, girðingar og fótboltamörk lutu
ógnandi í gras. Á Arnarholti losnuðu
þakplötur og timburborð af einni húsálmu og
dreifðust um stórt svæði. Rúmlega
klukkustundarverk var að ganga tryggilega
frá lausum plötum. Störfum hætt um kl 05:00.
~:~
Þakplötur á þeytingi
12.
des 2007 - 22:57
12. desember.
Hringt í félaga á kvöldfundi frá Jörfa og beðið
um aðstoð vegna lausra þakplatna, sem voru
líklegar til hreyfings í hvassviðri.
Viðkomandi beðinn um að tilkynna til
lögreglu og við höfðum samband við
svæðisstjórn og þakplöturnar komust í skjól.
Fjórir félagar fóru úr húsi.
~:~
Óveður innan bæjar
11.
des 2007 - 21:30
10. desember.
Útkall F2 gulur, svæðisstjórn svæði 1, kl
22:14 gegnum neyðarlínu sveitin fer úr húsi
skömmu síðar. Fok lausamuna heft í hverfi ,
tunnur, girðingar, ruslagámar, stillasar og
einn þakkantur festur. Hviður á Skrauthólum
fóru í 45 m/sek í austan átt ásamt
slagveðursrigningu. Tvö verkefni í
Mosfellsbæ og Grafarholti. Veður lægði um kl
2 um nóttina. 8 manns úr sveitinni voru úti
þegar flest var.
~:~
Endurlífgun
5.
des 2007 - 21:17
5. desember.
Útkall F1 frá neyðarlínu kl 18:55. óskað
eftir aðstoð við endurlífgun á bæ rétt utan
við Grundarhverfi. Tveir menn í húsi komu
strax með bíl og búnað, aðrir komu á
einkabílum, alls fimm skráðir frá
björgunarsveit auk nokkurra úr slökkviliði
Kjalarness. Endurlífgun reynd í hálftíma á
staðnum.
~:~
Aðstoð vegna hvassviðris
26.
nóv 2007 - 22:03
26. nóvember.
Útkall F2 gulur, Neyðarlínan óskar eftir
aðstoð við vegfarendir á Vesturlandsvegi.
Kerra fauk við Hvalfjarðargangamunna.
Aðstoðað við að festa niður palllok. Farið
inn fyrir Tíðaskarð til eftirlits og niður í
Kollafjörð. Endurtekið um kl 22. Um 1 klst í
hvort sinn. Bíll og þrír menn.
~:~
Bíll úr festu
25.
okt 2007 - 20:03
24. október.
Óskað var eftir aðstoð við að draga bíl úr
festu á Kjalarnesi. Bíll og þrír menn fóru
úr húsi og drógu jeppa úr festu á blautu
túni bak við Arnarholt.
~:~
Leit á sjó við Kjalarnes
17.
okt 2007 - 20:15
16. október.
Útkall F1 rauður. Óskað var eftir aðstoð við
að finna einn félaga björgunarsveitarinnar
Kjölur er varð viðskila við tvo félaga sína
á bátaæfingu á Hofsvíkinni við Kjalarnes.
Maðurinn fannst fljótlega heill á húfi á
kletti nærri landi við Presthús. Þyrla
Landhelgisgæslunnar fann manninn fljótlega.
Bíll og þrír menn voru í fyrstu aðgerðum,
fóru út í Nesvík og reyndu að lýsa upp
ströndina. 5 félagar til viðbótar úr Kili
voru að gera sig klára að leita hans með
ströndinni er afturköllun barst.
~:~
Endurlífgun á Kjalarnesi
27.
sept 2007 - 21:45
26. september.
Óskað var eftir liðsinni við endurlífgun á
konu í heimahúsi í Grundarhverfi. Fyrst komu
boð frá nágranna og líka frá 70 manninum hjá
SHS. Nokkrir félagar voru á vinnufundi í
Þórnýjarbúð og hægt að bregðast skjótt við.
Fimm félagar unnu við endurlífgun uns
sérhæft lið kom úr bænum. Tveir
Kjalarfélagar fóru síðan í bæinn með neyðar-
og sjúkrabílum.
~:~
Leit í Soginu
21.
sept 2007 - 22:00
20. september.
Óskað eftir viðbótarmannskap í leit að manni
er féll í Sogið 19. september við veiðar. 3
menn fóru í framhaldsleit og voru rúmlega
hundrað manns við leit frá þremur svæðum.
Gengið var með árbakkanum við Álftavatn og
róið á kajak. Einnig var leitað frá
Þrastalundi að Laugabökkum. Kafarar fundu
manninn látinn ofan við Álftavatn daginn
eftir.
~:~
Leit á Svínafellsjökli
2.
sept 2007 - 17:35
25. og
26.
ágúst. Óskað var eftir
fjallamönnum í stóra erfiða leit að tveimur
þýskum ferðamönnum sem saknað var og leitað
hafði verið að frá því 21. ágúst. Tjöld
mannana fundust við Svínafellsjökul hjá
Skaftafelli og var leitað á jökli og
fjallendi þar í kring án árangurs. Leitinni
var hætt á sunnudeginum 26. ágúst. Þrír
félagar úr Kili fóru til stóru leitarinnar
laugardag og sunnudag.
~:~
Böruburður í Esjuhlíðum
6.
ágúst 2007 - 21:35
Mánudagur
6.
ágúst kl 14:49, útkall F2 gulur.
Óskað var eftir mönnum í böruburð niður úr
Esjuhlíðum. Göngumaður slasaðist á fæti við
fall af hálum steini og þurfti aðstoð. Þrír
fóru úr húsi og voru fyrstir fótgangandi á
staðinn ásamt SHS mönnum sem komu á hjóli og
bíl. Hinn slasaði var settur á börur og ekið
í bílnum niður á plan þar sem sjúkrabíll tók
við.
~:~
Gróðureldur á Miðdalsheiði
27.
júní 2007 - 21:35
Laugardagur
23.
júní kl 16:25, útkall F2 gulur.
Hópur úr björgunarsveitinni Kili var að
ljúka við námskeið á vegum SHS á Tunguhálsi,
þegar boð bárust frá svæðisstjórn. Óskað var
eftir mannskap til þess að slökkva í eldi í
gróðri, aðallega mosa á Miðdalsheiði.
Slökkvistarf gekk erfiðlega framan af vegna
vatnsskorts og langra slöngulagna. Einnig
var hvass vindur af norðri. Sex menn úr
sveitinni mættu á staðinn og luku störfum að
mestu um kl 22. Um 10 ha svæði brann.
~:~
Aðstoð í Esju
27.
júní 2007 - 21:35
Föstudagur
22.
júní kl 03:25, útkall F3 grænn,
neyðarlínan biður um aðstoð vegna manns sem
er villtur í þoku í Esjuhlíðum. Kallað út að
Esjubergi þaðan sem farið var til leitar um
Gljúfurárdal og nágrenni. Maðurinn fannst
fljótt eftir að komið var inn í dal og hafði
þá sjálfur komið sér niður úr þokunni.
Kjölur og Ársæll aðstoðuðu við að styðja
manninn niður, sem var meiddur á ökkla.
Fjórir menn frá Kili fóru til leitarinnar.
~:~
Umferðaróhapp
12.
júní 2007 - 21:20
Laugardagur
11.
júní kl 21:01, útkall F2,
neyðarlínan biður um aðstoð vegna
umferðaróhapps þegar mótorhjóli var ekið á
girðingarnet sem strengt hafði verið fyrir
brúarenda á gamla veginum við Blikdalsá
sunnan megin Hvalfjarðargangna. Ökumaður
slasaðist lítið og ekki var þörf á aðstoð
þar sem læknir og sjúkrabíll voru komnir, en
hjólið var ferjað til síns heima í
Grundarhverfi.
~:~
Leit að kajökum
12.
júní 2007 - 21:20
Sunnudagur
10.
júní kl 18:36, útkall F2 gulur
leit á sjó að tveim kajakræðurum sem lagt
höfðu í siglingu frá Garðskaga til
Snæfellsness. Hátt í 200
björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni.
Þrír menn frá Kili auk bílstjóra leituðu á
slöngubát í Hvalfirði. Kajakmennirnir komu í
leitirnar á mánudagskvöldið vestur á
Rauðasandi heilir á húfi, höfðu þá róið í 22
klst nánast í einni lotu. Tilkynning þeirra
í gervihnattasíma um breytta ferðaáætlun fór
einhverra hluta vegna forgörðum.
~:~
Fastur jeppi
21.
apríl 2007 - 18:00
Laugardagur
21.
apríl, útkall, hringt frá
svæðisstjórn rétt fyrir tvö um nóttina,
vegna jeppa sem sat fastur við Skyggni rétt
við Hafravatn. Tveir fóru á bíl og fundu
jeppann, en komust ekki nógui nærri til að
geta dregið hann upp, vegna bleytu. Kalla
þurfti út tvo jeppa frá HSSR til að ná honum
upp. Komið í hús um kl sjö um morguninn.
~:~
Leit að einstaklingi í Reykjavík
21.
apríl 2007 - 18:00
Fimmtudagur sumardagurinn fyrsti
19.
apríl, útkall F2 gulur, leit að
einstaklingi í Reykjavík. Kjölur fór af stað
með 6 manns að morgni og leitaði við
Fellsmúla og Blesugróf og Háaleiti. Leit var
afboðuð rétt fyrir hádegi þegar maðurinn
fannst heill á húfi. Leit hafði þá staðið
alla nóttina og aðstoð fengin frá svæðum 2,
3 og 4, alls tóku um 150 manns þátt í
leitinni.
~:~
Nemendum
ekið heim úr Klébergsskóla
20.
mars 2007 - 22:00
Þriðjudaginn
20.
mars, var nemendum
Klébergsskóla ekið heim í hverfinu eftir að
skóla lauk. Farið var út í Kátakort og niður
í hverfi. Slæmt veður var, hvassviðri með
snörpum (38 m/sek) vindhviðum. Ekki var talið óhætt að
láta nemendur fara gangandi milli húsa.
~:~
Viðbúnaðarstig á Reykjavíkurflugvelli
4.
mars 2007 - 21:30
Þriðjudaginn
27. febrúar um kl 16:50, útkall
F2 gulur, flugvél í vandræðum með nefhjól
eftir flugtak á Reykjavíkurflugvelli.
Afturköllun kemur 11 mín. seinna þegar
flugvélin hafði lent heilu og höldnu, en þá
var mannskapur að fara úr húsi.
~:~
Leit að manni
4.
jan 2007 - 21:30
Fimmtudaginn
4.
janúar um kl 07:36, útkall F2
gulur, leit að manni í bíl á
Hafnarfjarðarsvæðinu, sem hafði verið saknað
frá miðnætti. Maðurinn fannst heill á húfi
um kl 10. Þrír Kjalarfélagar mættu til
leitar og verkefni hópsins var að leita við
höfnina og í Mosahlíð.
~:~
2007
~:~
Leit að manni
27.
des 2006 - 19:00
Miðvikudaginn
27.
desember um kl 01:20, útkall F2
gulur, leit að alzheimersjúklingi. Lagt af
stað úr húsi og komin í Ártúnsbrekku þegar
afturköllun berst, maðurinn fannst heill á
húfi. Fimm Kjalarfélagar mættir.
~:~
Óveður í aðsigi !!
23.
des 2006 - 22:15
Laugardaginn
23.
desember um kl 04:00, að beiðni
almannavarnadeildar var beðið um að
björgunarsveitir væru í viðbragðsstöðu vegna
slæmrar veðurspár. Sveitin var komin upp í
hús um kl 03:30. Hvassast var við
Brautarholt og Arnarholt. Farið var í
eftirlitsferðir að Hvalfjarðargöngum og í
Mosfellsbæ um Grundarhverfi og fjöruna.
Viðbragðsstaðan var síðan afturkölluð um kl
6:00. Fjórir Kjalarfélagar voru mættir.
~:~
Umferðaróhapp
22.
des 2006 - 22:15
Fimmtudaginn
21.
desember um kl 21:30, hafði bíll
farið útaf Vesturlandsvegi í grennd við
Sjávarhóla, sennilega í hálku. Einn
Kjalarfélaga var vitni og lögregla kom á
staðinn. Vinnukvöld var upp í áhaldahúsi og
menn drifu sig út og spiluðu bílinn upp á
veg. Ökumaður var ómeiddur en treysti sér
ekki að aka lengra. Kjölur ók með hann til
móts við aðstandendur sína. Fjórir
Kjalarmenn tóku þátt.
~:~
Útafkeyrsla
16.
des 2006 - 19:00
Laugardaginn
16.
desember um kl 00:09, útkall F2
gulur SHS, umferðaróhapp við Móa. Fólksbíl
ekið útaf Vesturlandsvegi og út í skurð.
Lögregla og sjúkraflutningalið var mætt á
staðinn þegar að var komið og var að huga að
ökumanni og farþega. Fólk slasaðist lítið og
var flutt af vettvangi í lögreglubíl.
Bílflakið var vaktað þar til dráttarbíll kom
á staðinn. Komið í hús rétt um kl 02 og
fjórir Kjalarfélagar mættir til starfa.
~:~
Árekstur
15.
des 2006 - 21:00
Föstudaginn
15.
desember um kl 18:28,
Þórður
Bogason hringdi af Árbæjarstöð og tilkynnir
um bílslys á Víkurgrund við Vesturlandsveg.
Hugsanlega yrði sveitin kölluð út, en nánari
upplýsingar af slysstað vantaði. Bísltjóri
kom fljótlega í hús og farið var á vettvang
ef þörf yrði á aðstoð. Tveir bilar lentu í
árekstri á Vesturlandsvegi og fóru útaf vegi
sunnan megin. Ekki urðu slys á fólki og
lögregla og sjúkrabílar komu á vettvang um
10 mín, seinna.
Tveir Kjalarmenn fóru á vettvang og tveir
bættust í hópinn á staðnum.
~:~
Eftir storminn
12.
des 2006 - 18:00
Þriðjudaginn
12.
desember um kl 20:20, var farið
að Esjubergi til að huga að brotnum glugga
vegna óveðursins 9. des. Beiðnin barst fyrr
um daginn frá lögreglu gegnum framkvæmdasvið
Reykjavíkurborgar. Eigandinn var
fjarverandi. Stór brotinn þakgluggi á
íbúðarhúsi var byrgður og laust drasl á þaki
viðbyggingar fjarlægt eða fest niður.
Lögreglan var á staðnum meðan á vinnu stóð.
Sex félagar úr Kili voru mættir vegna þessa.
~:~
Óveðursaðstoð á Kjalarnesi og víðar
10.
des 2006 - 16:00
Laugardaginn
9.
desember um kl 20:00, tilkynnti
Kjölur sig inn til bakvaktar, vegna óveðurs
í aðsigi. Vindhraði fór síðar úm kvöldið í
30 m/sek og hviður í tæplega 50 m/sek á mæli
VÍ á Skrauthólum og með þessu
slagveðursslydda og síðar rigning. Verkefnin
voru margskonar; konu ekið til vinnu á
sambýli í Mosfellsbæ, hjólhýsi,
fótboltamörk, trampolín og gasgrill tjóðruð
niður. Járnplötur á helmingi þaks og vegg
viðbyggingar á Esjubergi var fokið og voru
lausar plötur negldar niður. Töluvert
vatnsflóð var á götum í hverfinu og stutt í
að flæddi niður í neðstu hús,
niðurfallsristar voru teknar upp á nokkrum
stöðum. Veður gekk niður upp miðnætti og
aðgerðum hætt upp úr kl 01. Fjórir
Kjalarmenn hófu störf og síðar bættust tveir
í hópinn, haft var á orði að elstu menn
myndu ekki annað eins veður og einn úr
hópnum fauk og fór nokkrar byltur á plani
við áhaldahús, en engin slys urðu á mönnum.
~:~
Leit að kajakræðara
27.
nóv 2006 - 20:00
Sunnudaginn
26.
nóvember um kl 23:50 F2 gulur,
voru bátahópar ræstir út af Neyðarlínu.
Leitað var að kajakræðara, sem hafði áætlað
að róa frá Hvalfirði til Reykajvíkur, en
ekki komið fram. Þar sem bátur sveitarinnar
er ekki sjóklár, var farið í leit á landi
með ströndinni frá göngum og inn Hvalfjörð,
með bíl og öfluga kastara. Stuttu síðar var
alsherjarleit boðuð. Leitaði sveitin fjöruna
við Saurbæ, Hjarðarnes og Eyri. Stuttu síðar
fann Landshelgisgæslan kajak mannsins
á hvolfi í sjónum undan Hvammsvík og skammt
þar frá hinn týndi og var hann látinn. Leit
var lokið kl 2:00 og fjórir Kjalarmenn tóku
þátt í henni.
~:~
Leit að manni
21.
nóv 2006 - 23:00
Þriðjudaginn
21.
nóvember kl 08:54 F2 gulur, var
útkall vegna leitar að manni, sem ekki hafði
komið fram frá því um miðnætti
mánudagskvöld. Leitað var að bíl mannsins á
öllum helstu vegum í nágrenni Reykjavíkur.
Kjölur hraðleitaði á vesturlandsvegi frá
Kjalarnesi inn að Brynjudalsá í Hvalfirði. Á
leið í næsta verkefni í kringum Hafravatn
var leit afturkölluð, viðkomandi hafði
skilað sér heim heill á húfi. Þrír
Kjalarfélagar mættu til leitar.
~:~
Ófærð á Kjalarnesi
19.
nóv 2006 - 23:00
Sunnudaginn
19.
nóvember kl 03:23 F2 gulur, var
útkall vegna ófærðar á Kjalarnesi. Slæmt
veður var, hvassviðri með blindbyl. Ekki var
talið óhætt að hleypa bílum norður
Hvalfjarðargöngin vegna ófærðar á Akranesi
og því var bílum snúið til baka og farið með
bílalest í Mosfellsbæ. Ekki var fært um
Grundarhverfi og sátu bilar fastir í
Jörfagrund, Hofsgrund og Esjugrund og
Vallargrund, einnig í Lykkjuhverfi við
Brautarholtsveg og við Dýjahlíð og
Skrauthóla. Bílar voru losaðir og fólk
ferjað heim til sín og í skjól. Þá var farið
í Víðines og starfsmenn aðstoðir við að
komast út á veg. Þessari törn lauk um 11, en
svo var farið síðdegis að draga bíl upp á
veg og kanna færð í Kjós og á Kjalarnesi.
Fjórir björgunarsveitarmenn Kjalar tóku þátt
í starfinu fyrri törnina og þrír seinni
partinn. Töluverð ófærð var annars staðar á
höfuðborgarsvæðinu fram eftir degi og allar
sveitir voru kallaðar út.
~:~
Nemendum
ekið heim úr Klébergsskóla
22.
nóv 2006 - 19:00
Fimmtudaginn
16.
nóvember, var nemendum
Klébergsskóla ekið heim í hverfinu eftir að
skóla lauk. Slæmt veður var, hvassviðri með
snörpum vindhviðum. Ekki var talið óhætt að
láta nemendur fara gangandi milli húsa.
~:~
Óveðursútkall
5.
nóv 2006 - 17:00
Sunnudaginn
5.
nóvember, ákvað Kjölur að vera í
viðbragðsstöðu snemma morguns sökum þess að
spáð var suðvestanstormi og fór það saman
við stórstreymi kl 5:45. Fylgst var með
ágangi sjávar fyrir neðan Grundarhverfið, á
vegi neðan Vallár og í Kollafirði. Sjór gekk
yfir veg með smá möl þegar verst var og
lítilsháttar upp á bakka neðan hverfis.
Svæðisstjórn sendi sveitina í verkefni í
Mosfellsbæ að hemja fjúkandi trampólín og
kanna ástandið. Skömmu síðar kom
heildarútkall á svæði 1 vegna fjölda
verkefna á höfuðborgarsvæðinu. Lítið var
fjúkandi hluti á Kjalarnesinu og fór mestur
tími í að festa þakplötur og fergja laust
dót í Mosfellsbæ. Sveitin hætti störfum um
kl 13. Alls tóku sex félagar þátt í
starfinu.
~:~
Leit við Nesjavallaveg
31.
okt 2006 -
22:00
Sunnudaginn
29.
október
kl 22:12,
var útkall frá 112, F2-gulur, leit við
Hengil. Leitað var að manni sem saknað var
frá því á fimmtudeginum. Bíll hins týnda
fannst við Nesjavallaveg og maðurinn fannst
látinn við Dyradal rétt fyrir miðnætti.
Fjórir menn frá Kili tóku þátt í leitinni.
~:~
Farþegaþota Continental Boeing 757
með hreyfilbilun
26.
okt 2006 -
21:20
Miðvikudaginn
25.
október
kl 15:05, var útkall frá 112,
F2-gulur-stórt, vegna gangtruflana í báðum
hreyflum farþegaþotu með 176 farþega á leið
að lenda í Keflavík áætl. lending 15:50 -
16. Fjórir félagar gáfu sig fram og voru
boðaðir kl 15:59 í slökkvistöð SHS
Tunguhálsi. Afboðað var síðan kl 16:15.51
þar sem tókst að lenda vélinni heilu og
höldnu. Brottför frá Tunguhálsi kl 16:19.
~:~
Eldur í Sorpu Grundarhverfi
17.
okt 2006 -
22:20
Þriðjudaginn
17.
október
kl 19:50, var eldur laus í gámi í
endurvinnslustöð Sorpu við Norðurgrund í
Grundarhverfi. Slökkvilið Kjalarness var
boðað í gegnum neyðarlínu. Nokkrir félagar í
Kili komu til aðstoðar ýmist af sjálfsdáðum
eða með úthringingum. Um hálftíma tók að
slökkva eldinn, enda slökkvistöðin nánast í
næsta húsi.
~:~
Eldur í Jörfagrund
12.
okt 2006 -
22:20
Fimmtudaginn
12.
október
kl 02:27, var útkall F1-Rauður
(slökkvilið SHS)vegna elds í stigagangi
fjölbýlishúss í Jörfagrund 23A. Óttast var í
fyrstu að menn væru innilokaðir á efri hæð
hússins. Nokkrum mínútum seinna var búið að
ganga úr skugga um að svo var ekki og þá
fékk bsv Kjölur boðun á F2 - gulur. Menn
voru snöggir á staðinn enda stutt að fara og
greiðlega gekk að slökkva eldinn. Nokkurt
tjón varð af völdum elds, reyks og sóts, en
eldurinn hafði teygt sig upp í þakkant og
reykur var í risi. 5 björgunarsveitarfélagar
tóku þátt í störfum á vettvangi.
~:~
Eldur í farþegaþotu
27.
ágúst 2006 -
21:20
Laugardaginn 26.
ágúst
kl 18:03, var útkall F1-Rauður
vegna elds í farþegarými Boeing-þotu á
flugi. 3 mættu í hús og voru að leggja af
stað þegar afturköllun kom 13 mín. síðar.
Vélin var þá lent og hættan liðin hjá. Í
ljós kom að reyk lagði frá bökunarofni í
eldhúsi aftur í vélinni.
~:~
Týndur einstaklingur
8.
júlí 2006 -
22:25
Mánudaginn 3. júlí
kl 20:51, var útkall vegna leitar
að týndri konu á höfuðborgarsvæðinu. Leit
var afturkölluð skömmu síðar þar sem konan
fannst heil á húfi.
~ : ~
Vélarvana bátur við Kjalarnes
5.
júní 2006 -
22:25
Mánudaginn 5. júni
kl 19:26, annan í hvítsunnu, var
útkall vegna vélarvana báts við Kjalarnes.
Báturinn var mannaður, sjósettur og siglt í
átt að Kjalarnestá þegar afturköllun barst
20 mínútum seinna og báturinn þá kominn í
tog.
~ : ~
Göngumaður slasast í Esjunni
28.
maí 2006 -
20:15
Fimmtudaginn 25. maí,
Uppstigningardag, var útkall vegna óhapps
við Þverfellshorn í Esjunni. Göngumaður úr
hópi skólanemenda missti fótanna í
snjóskafli, honum tókst ekki að stöðva sig í
harðfenninu og rann stjórnlaust út í urð. Einn maður frá Kili fór á
vettvang, og menn komu víðar að á svæðið. Maðurinn
var fluttur með þyrlu á sjúkrahús.
~ : ~
Umferðarslys í
Hvalfjarðargöngum
21.
maí 2006 -
18:15
Laugardaginn 20. maí
var beðið var um aðstoð við slökkvilið vegna
umferðarslyss í Hvalfjarðargöngum. Fólksbíl var ekið utan í
gangavegginn skammt innan við suðurenda ganganna.
Hópur frá Kili og Slökkviliði Kjalarness fór á vettvang og
aðstoðaði við að ná fólkinu út úr bílnum og færa yfir í sjúkrabíla. Tvennt var flutt slasað á slysadeild. Þá
hreinsaði hópurinn til á vettvangi eftir slysið.
~ : ~
Umferðarslys
við Skorarfoss í Kjós
21.
maí 2006 -
18:15
Laugardaginn 13. maí
var beðið var um aðstoð
við slökkvilið vegna umferðarslyss skammt
frá gatnamótum Hvalfjarðarvegar og
Meðalfellsvegar. Fólksbíll hafði oltið afan
í gil og ökumaður horfið af vettvangi. Leita
þurfti mannsins og fannst hann um 6 km frá
slysstað.
~ : ~
Langjökull
25.
ágúst 2006 -
22:15
Föstudagurinn langi
14. apríl
kl 9, var útkall, leit að
vélsleðamönnum við Langjökul. Fjögur fóru af
stað með búnað en var snúið við í nágrenni
Hvanneyrar, þegar mennirnir fundust heilir á
húfi.
~ : ~
Sinubruni við Esjuberg
25.
ágúst 2006 -
22:15
Sunnudagur
2.apríl
kl 16:11, var útkall, beðið um
aðstoð við slökkvilið vegna sinuelda við
Esjuberg. Farið var ásamt SHS í að slökkva á
austurjaðri, en þá hafði allstórt svæði
þegar brunnið og hús sunnan þjóðvegar í
nokkurri hættu. Eldur var slökktur eftir
nokkra stund og svæðið vaktað um stund.
Bálhvasst var og skraufþurrt. Þrír mættu
strax og aðrir þrír bættust í hópinn síðar.
~ : ~
Hofsjökull
25.
ágúst 2006 -
22:15
Laugardagur
25. febrúar
kl ??, var útkall, beðið um jeppa
í viðbragðsstöðu, vegna leitar á Hofsjökli.
Beðið í húsi í tvær og hálfa klst. þegar
beiðni var afturkölluð.
~ : ~
Leit innanbæjar
25.
ágúst 2006 -
22:25
Laugardagur
18. febrúar
kl 3:13, var útkall vegna leitar
í Kópavogi að þroskaheftum einstaklingi sem
saknað var frá kvöldinu áður við Smáralind.
Einn maður mætti og leitaði með öðrum
sveitum í Smáralind og Hlíðahverfi, þangað
til að maðurinn kom fram kl 8 heill á húfi.
Hann hafði gengið út á Álftanes.
~ : ~
Bruni í bílhræjum
25.
ágúst 2006 -
22:25
Föstudagur
27. janúar
kl ??, slökkvistjóri á Kjalarnesi
bað um aðstoð við frágang á slöngum og þrif
á búnaði vegna slökkvistarfa í bílhræjum
norður af bænum Lyngási. Slökkvibíllinn
komst ekki að staðnum og talsverð ganga með
búnaðinn. Einn kom til aðstoðar.
~ : ~
Þæfingur á Kjalarnesi
25.
ágúst 2006 -
22:25
Þriðjudagur
17. janúar
kl 7:15, var beðið um aðstoð vegna
þæfingsfærðar á Kjalarnesi. Beðið var um að
sækja fólk heim á bæi og einn bíll var
losaður úr festu við Stekk og Skriðu.
Bíllinn var dreginn upp á þjóðveg.
~ : ~
Leit innanbæjar
25.
ágúst 2006 -
22:25
Þriðjudagur
17. janúar um
kl 15, var útkall vegna leitar að
einstaklingi innanbæjar. 4 tilkynntir inn.
Lagt af stað í bæinn, en leit afturkölluð
rétt áður en komið var í Skógarhlíð.
~ : ~
|