BJÖRGUNARSVEITIN KJÖLUR kt. 690390-1089 r.nr. 0315-26-26332
 Þórnýjarbúð - Grundarholti - 116 Kjalarnes -
símar: 616 8493 / 866 5960 - senda póst  bjorgunarsveit@simnet.is       Kjölur   f jésbók 

Samstarfs- og styrktaraðilar:  
 
         

  Síðast uppfært 17-05-2012
11-2-12, 204 heims. /mán


Dagskrá
Um sveitina
Myndir
Skjöl
Tæki
Unglingastarf
Krækjur
Fyrir almenning
Útköll
Eldri fréttir
Veður - flóðogfjara
¤ Skrauthólar
¤ Esjubergi

¤ Blikdalsá
¤ Kjós
¤ Belgingur-spá
¤
Flóð og fjara

Á döfinni:

Sveitarfundir/
vinnukvöld eru
kl 20.00 í Þórnýjarbúð,  miðvikudaga

 >>NÆST<<
15. maí
þriðjudagur
Stormur yngri og eldri
kl 19

16. maí
Kjölur
Þórnýjarbúð
bílavinna
kl 20

19. maí
Bátamessa
Akranes
kl 11 - 19

23. maí
Framhaldsaðalfundur
Þórnýjarbúð
kl 20

.. Fróði ..

 


 

 

 

 

 

Ferð Björgunarhesta Borgarfjarðar til USA
17
.maí 2012 - 20:15

Vikuna 5. – 12. apríl síðastliðinn fóru nokkrir meðlimir Björgunarhesta Borgarfjarðar (BB) vestur um haf. BB er hópur björgunarsveitarmanna, úr nokkrum sveitum á sv-horninu sem undanfarin ár hefur unnið að því að hestar séu nýttir við leit og björgun.
Ferðin var farin í þeim tilgangi að taka þátt í æfinga- og úttektarhelgi TrotSAR, mounted search and rescue og heimsækja viðbragðsaðila í Virginia og Maryland. Í ferðina fóru sex aðilar frá fjórum sveitum, þar af einn frá Kili.
Dagskráin ytra bauð upp á fjölbreyttar og áhugaverðar kynningar hjá TrotSAR hópnum, lögreglu, leitarhunda- og sporhundateymum, yfirmönnum leitar og björgunar og þjóðgarðsvörðum.
Ferðin heppnaðist í alla staði vel og bar margt nýtilegt og forvitnilegt fyrir augu og eyru.
Sjá má nánar >>ferðaskýrslu<< hópsins ...og >> ..  fleiri myndir .....<<

Styrk til fararinnar veittu Slysavarnafélagið Landsbjörg, viðkomandi björgunarsveitir, þar á meðal Kjölur og Landsamband hestamannafélaga.

~ : ~

Styrkir frá ISAVIA og Faxaflóahöfnum
13
.maí 2012 - 10:09

Nýlega voru veittir styrkir til björgunarsveita úr styrktarsjóði ÍSAVIA og frá Faxaflóahöfnum, þar á meðal til Kjalar. Sjóði ISAVIA er ætlað  að styrkja viðbragð björgunarsveita í hópslysum.
Styrkur Kjalar er ætlaður upp í kaup á FERNO SCOOP, bakbretti.
Faxaflóahafnir gerði styrktarsamning til 5 ára við björgunarsveitir, sem eru með sjóflokka á starfssvæði
Faxaflóahafna.
Björgunarsveitin Kjölur kann þessum aðilum bestu þakkir fyrir styrkina. 
landsbjorg2012
Myndin (af vef Faxaflóahafna) er tekin á Sjóminjasafninu við undirritun samnings. Þar eru fulltrúar bjsv Brákar Borgarnesi, Björgunarfélags Akraness, Kjalar Kjalarnesi, Faxaflóahafna, SL, Ársæls og Björgunarbátasjóðs. 

~ : ~

Húnar og Strönd í Þórnýjarbúð
1
.maí 2012 - 19:39

Það komu góðir gestir í dag í heimsókn í Þórnýjarbúð. Sex félagar úr björgunarsveitunum Húnum Hvammstanga og Strönd Skagaströnd voru á ferð í 4 sveita heimsókn á höfuðborgarsvæðinu. Við áttum við þá gott spjall og kynntum sveitarstarfið hjá Kili.

 

~ : ~

Aðalfundur Kjalar
1
.maí 2012 - 19:20

Aðalfundur Kjalar var haldinn 25. apríl s.l. Í framboði til stjórnar voru 5 um 3 sæti og þurfti leynilega kosningu.  Í nýrri stjórn eru Brynjar, Adam, Ragnar, Anna, Sonja og Árni. Stjórnin hefur skipt með sér verkum, Brynjar er formaður, Anna er ritari, Sonja er gjaldkeri og 3 meðstjórnendur. Framhaldsaðalfundur verður haldinn 23. maí þar sem ekki tókst að ljúka við breytingar á reglum og lögum sveitarinnar og verða þær auglýstar í tíma. Á fundinum tilkynnti Hólmar að hann væri hættur sem umsjónarmaður unglingadeildarinnar Storms.

~ : ~

Fjórhjólaæfing
14
.apríl 2012 - 15:28

Strákarnir tóku fjórhjólafákana til kostanna á æfingu á Svínaskarðsleið í Esjunni 6. apríl s.l. Með tilkomu K11 verður nú auðveldara að taka öruggari og markvissari æfingar þar sem bæði hjólin eru notuð.
Aðstæður í skarðinu voru nokkuð góðar til þess að æfa akstur á torleiði. Ný gripmeiri dekk voru prófuð og dráttarspilin notuð. Ný gpstæki voru með í för og eins og sjá má á myndasíðu er hægt að nýta þau líka í myndatökur.
 ~ : ~

Nýtt fjórhjól K11
1
.apríl 2012 - 22:35

Í dag er fyrsti apríl. Kjölur fékk afhent nýtt fjórhjól á miðvikudaginn 28. mars. -Í dag er það til sýnis - hér á myndinni. og á myndinni eru þeir Birgir Þór og Brynjar formaður Kjalar og Karl Helgi Jónsson fulltrúi Ellingssen við afhendingu hjólsins. Það er af gerðinni Can Am Outlander 800R, kallmerkið K11 og búið að merkja hjá Logo Flex, en eftir er að setja nokkuð af lausum búnaði á hjólið.
ATH Þetta er ekki aprílgabb.

 ~ : ~
 

 

 

 

First Responder upprifjun
18
.mars 2012 - 17:15

Hin árlega upprifjun í First Responder var hjá sveitinni og fór fram í Slökkvistöðinni í Hafnarfirði. Þátttaka var góð, alls 15 manns, þar af tveir frá slökkviliði Kjalarness. Kennari var Sveinbjörn Berentsson bráðatæknir frá SHS og hefur verið kennari sveitarinnar frá upphafi samstarfs SHS og Kjalar. Meðal annars var farið yfir breyttar áherslur við súrefnisgjöf og meðhöndlun blæðinga og voru verklegar æfingar.
Á myndinn má sjá þá Hermann, Brynjar og Aron æfa samvinnu við endurlífgun.
Fleiri myndir >>>      <<<

 ~ : ~
 

Minningargjöf til SL frá fjölskyldu Daniels Hoij
11
.mars 2012 - 10:40

Fjölskylda Daniels Markusar Hoij, sem leitað var á Sólheimajökli í nóvember sl. hefur fært Slysavarnafélaginu Landsbjörg höfðinglega gjöf til minningar um Daniel. Styrkurinn nemur 10.000,- breskum pundum eða um 2.000.000,- kr. Með þessu vill fjölskyldan koma á framfæri þakklæti til björgunarsveita sem leituðu Daniels við afar erfiðar aðstæður á jökli.

Styrkurinn mun renna til Björgunarskóla Slysavarnafélagsins Landsbjargar og verður hann notaður til að efla þjálfun í fjallamennsku og stjórnun aðgerða á jöklum. Mun hann með þeim hætti nýtast björgunarsveitum um allt land.
Af vef Slysavarnafélagsins Landsbjargar 2. mars 2012.
 ~ : ~
 

Námskeið í Þórnýjarbúð
3
.mars 2012 - 10:40

Tvö námskeið voru haldin í Þórnýjarbúð á síðustu vikum. Tetra 1 fjarskiptanámskeið og Sálræn hjálp. Námskeiðin voru vel sótt og þétt setinn bekkurinn í þrengslum upp undir súð í Þórnýjarbúð. Auk Kjalarfélaga komu björgunarsveitarmenn frá Hveragerði, Selfossi og Þorlákshöfn. Námsefnið var nýtt í Sálrænni hjálp. Það er mikilvægt að þekkja einkenni sálræns álags hjá leitar- og björgunarmönnum og aðstandendum, ekki síður en hjá þeim sem aðstoðar þarfnast. Nauðsynlegt er að kunna til verka í þessum efnum í aðgerðum og eftir þær. Kennari var Einar Örn Arnarson sjúkraflutningamaður frá Selfossi.


 ~ : ~
 



Aðstoð í Esjunni
26
.febrúar 2012 - 21:10

Björgunarsveitir af höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út eftir hádegi í dag vegna göngukonu sem slasaðist í Esjunni. Konan, sem var í stórum hópi göngumanna féll við á gömlu gönguleiðinni á Kerhólakambi, beint fyrir ofan Esjuberg og slasaðist hún á fæti. Um 15-20 björgunarsveitamenn tóku þátt í að aðstoða hana niður af fjallinu. Á myndinni eru hluti göngumanna og björgunarmanna við Esjuberg.

 ~ : ~
 

 

 

 

112  dagurinn
11
.febrúar 2012 - 10:10

Í dag laugardaginn 11.2.2012 er 112 dagurinn. Markmið hans er að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. Ekki hika við að hringja í 112 teljir þú þig þurfa á aðstoð að halda. Starfsemin verður kynnt í Smáralind í dag með dagskrá milli kl 11 - 17. Þar er meðal annars ljósmyndasýning " ÚTKALL" . Kjölur verður að sjálfsögðu á staðnum. Kynningin er samstarf margra aðila: 112, Barnaverndarstofa, Embætti landlæknis, Isavia, Landhelgisgæslan, Landspítalinn, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Mannvirkjastofnun, Rauði krossinn, Ríkislögreglustjórinn, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og samstarfsaðilar um allt land.

 ~ : ~

Kærleikar
5
.febrúar 2012 - 16:50

Í gær, á löngum laugardegi, voru Kærleikar miklir á Austurvelli, kærkomin tilbreyting frá trumbuslætti og mótmælum undanfarin misseri. Nokkrir tugir manna komu þar saman, gengu kringum Tjörnina, sungu saman, efldu samkennd og hlýju á erfiðum tímum. Bergljót Arnalds hafði veg og vanda af Kærleikum nú, sem undanfarin ár. Okkar félagar voru á staðnum, lögðu sitt að mörkum,  lögðu blómakrans í hendi félaga Jóns Sigurðssonar. Á myndinni eru þeir Kjalar félagar Ragnar Kr. Skúlason og Magnús Kristinsson á Austurvelli. Ljósmyndina tók Anna Filbert.

 

~ : ~
 

 

 

Styrkur til Kjalar
15
.janúar 2012 - 13:55

Á janúarfundi sínum afhenti Slysavarnadeild Kvenna í Reykjavík björgunarsveitinni Kili styrk að verðmæti tæplega 900 þús. kr. Um er að ræða fjóra bátagalla að Ursuid gerð, fjóra innanundirgalla og fjögur björgunarvesti. Deildin hefur marg sinnis áður styrkt starf Kjalar og unglingastarf sveitarinnar og er slíkt ómetanlegt. Á myndinni afhendir varaformaður slysavarnadeildarinnar Laufey Haflína Finnsdóttir styrkinn formlega til Önnu Filbert.
~ : ~

2011
annasamt
3
.janúar 2012 - 21:05

Nýliðið ár var sérstaklega annasamt er varðar útköll og aðstoðarbeiðnir. Alls var sveitin kölluð til í 71 skipti, sem er um 40% aukning miðað við fjölda útkalla síðastliðin tvö ár. Munar þar mestu um fjölgun í útköllum á vegum SHS vegna bráðaveikinda, slysa og eldsvoða á Kjalarnesi og nágrenni. Flest urðu útköllin í júlímánuði s.l. þegar sveitin var kölluð út 9 sinnum, auk þess að sinna viku Hálendisgæslu að Fjallabaki.

Fyrsta útkall ársins 2012 kom á nýársdag þegar sveitin lagði í leiðangur upp í Kjósarskarð til þess að losa þar tvo bíla sem sátu fastir í snjó. Kjósarskarð var ófært öllum óbreyttum bílum og alls ekki ökumönnum óvönum akstri í snjó. Virtist sem leiðin um skarðið að vestanverðu á Þingvelli hafi heillað margan útlendinginn þann daginn, því auk bílanna tveggja sem voru losaðir, var tveimur til viðbótar snúið við. Allt bílaleigubílar með Bretum, Bandaríkjamönnum og Hollendingum. Myndin er frá aðgerðinni í Kjósarskarði og fleiri myndir >> hér <<

Við þökkum íbúum Kjalarness
stuðninginn við starf okkar á flugeldasölunni.

Klárum flugeldalagerinn á Þrettándasölunni
í gáminum á Sorpuplaninu
og höfum opið:
fimmtudag 5. jan kl 17 – 22 föstudag 6. jan kl 16 – 20

~ : ~

GLEÐILEGT NÝTT ÁR
1
.janúar 2012 - 16:50

Nú nýverið setti björgunarsveitin Kjölur upp tvo gáma hlið við hlið á Sorpuplaninu fyrrverandi, samdi um leigu á því við Reykjavíkurborg. Gámarnir verða nýttir til flugeldasölunnar og einnig verður þar geymdur hluti af búnaði sveitarinnar. Rýmkast þá aðeins til í Þórnýjarbúð, því þar inni eru þrengsli mikil og varla hægt að skipta um skoðun.
Myndirnar eru teknar innan dyra í gámunum flugeldasölunni - fleiri myndir HÉR << .

 

 

 

 

 

 


Flugeldasalan tók góðan lokasprett á Gamlársdag og þökkum við Kjalnesingum og öðrum fyrir góðan stuðning.  Kjölur hélt síðan flugeldasýningu við brennuna á Klébergi í ágætu veðri og komu fjölmargir á brennuna.
Allt gekk slysalaust fyrir sig.


Flugeldasalan verður svo opin á Þrettándanum, 5. og 6. janúar.
~ : ~

Styrkur til sveitarinnar
30
.desember 2011 - 18:30


Höfðinglegur styrkur barst sveitinni í dag, á næst síðasta degi ársins. Sigurður R. Guðmundsson,
öðru nafni Kjalnes Siggi í Nesi kokkur, gaf sveitinni söluhagnað af Skötuveislunni í Fólkvangi á Þorláksmessu. Hagnaðurinn varð minni en efni stóðu til,  þar sem Reykjavíkurborg vildi ekki gefa eftir leigugjald af Fólkvangi, auk þess sem slæmt veður hamlaði aðsókn. Einnig gaf hann forláta þokulúður í slöngubátinn. Hann hefur í gegnum árin áður styrkt önnur félagasamtök með ágóða af Skötuveislu og hefur fullan hug á að halda því áfram. Á myndinni eru þeir Sigurður t.v. og Hólmar að handsala styrkinn og John Lennon er yfir um og allt um kring.
 


~ : ~
F L U G E L D A S A L A N !!
26.desember 2011 - 20:00

Björgunarsveitin Kjölur verður með flugeldasölu í gámum á Sorpuplaninu milli jóla og nýárs.
Styrkjum sjálfboðaliðastarf og styðjum um leið við öryggisþjónustu í heimabyggð,
verslum hjá eigin björgunarsveit.

Heitt verður á könnunni.
Opnunartíminn
28.desember kl.13-22
29.desember kl.13-22
30.desember kl.13-22
31.desember kl.10-16

 
Auglýsingin er hér á pdf formi

Brenna - flugeldasýning - auglýsing

~ : ~
 

Gleðileg jól
26.desember 2011 - 19:45

Kertasníkir og Hurðaskellir fengu liðsinni sveitarinnar við að koma síðustu pökkunum í áfangastað á aðfangadagsmorgun og gekk það vel.

~ : ~

Flugeldaforvarnir í Klébergsskóla
18
.desember 2011 - 21:35


Björgunarsveitin Kjölur var með forvarnafyrirlestur í miðstigi og efstastigi Klébergsskóla á fimmtudaginn 15. des. Þar talaði Þórður Bogason, starfandi sjúkraflutningamaður og björgunarsveitarmaður og sýndi nokkrar glærur. Hann þekkir þessa hluti vel, afleiðingar rangrar umgengni við flugelda og segir m.a. að það þurfi mjög lítið út af að bregða svo úr verði eitt stórt BÚUUUMMMM  og ÆÆÆÆiiii.

 

 

 


~ : ~

Austanhvellur gerir ökumönnum lífið leitt
11
.desember 2011 - 22:05

Slæmt veður með austan hvassviðri og snjókomu gerði á nokkrum stöðum á suðurlandi og suðvesturhorninu í gær, laugardaginn 10. desember. Víða þurftu björgunarsveitir að koma ökumönnum sem sátu fastir, til aðstoðar. Á Kjalarnesinu var vaxandi vindur síðdegis og um kvöldið, með hviðum upp í um 35 m/sek þegar verst lét, með talsverðum skafrenningi og afleitu skyggni. Auk þessa hlánaði nokkuð sem jók á hálkuna. Sérstaklega var veður vont á stuttum kafla þjóðvegarins frá Grundarhverfi upp að Hvalfjarðarafleggjara og fóru a.m.k. fimm bílar út af veginum þar auk strætó. Engin slys urðu á fólki en ferja þurfti farþega strætó í Mosfellsbæ á Kjöl 1. Um kvöldið rákust tveir fólksbílar saman á brúnni Blikdalsá og sinnti sveitin vettvangshjálp og umferðarstjórnun með lögreglu við afar slæmar aðstæður. Veðrið gekk niður seint um kvöldið og sunnudagurinn rann upp með rjómablíðu og logni eins og svo oft áður.
~ : ~

Stormur á kayakkynningu
9
.desember 2011 - 10:05

Unglingarnir í Stormi fengu kayakkynningu á dögunum (4. des) í Laugardalslauginni í boði Kayakklúbbsins. Þetta er í annað skipti sem þetta er í boði og er hluti af góðu samstarfi við Kayakklúbbinn vegna gæslu Kjalar í árlegu Hvammsvíkurmaraþoni. Stormsfélagar skemmtu sér hið besta við ýmsar kayakkúnstir, straumkayakar, áratökin, drekkja bátum, stökkva sitjandi í bát af palli af bakka í sundlaugina. Síðan var sundlaug og pottur og pulsur á eftir. Sumir höfðu prófað áður aðrir ekki en allir komu hreinir og þreyttir heim.

 Ljósm. Guðrún Þorláksdóttir - fleiri myndir á myndasíðu.
 

~ : ~

Minningarathöfn um fórnarlömb umferðarslysa
27
.nóvember 2011 - 22:05

Sameinuðu þjóðirnar hafa frá árinu 1993 tileinkað þriðja sunnudag nóvembermánaðar minningu fórnarlamba umferðarslysa. Að því tilefni boðaði starfshópur innanríkisráðuneytisins um áratug aðgerða í umferðaröryggismálum til minningarathafnar við bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi sunnudaginn
20. nóvember.

Þar komu saman fulltrúar þeirra starfsstétta sem í mörgum tilfellum eru kallaðar til þegar umferðarslys eiga sér stað. Einnig var viðstaddur forseti Íslands og aðrir gestir.

Klukkan 11:00 var einnar mínútu þögn þar sem þeirra var minnst sem látist hafa í umferðinni og læknir, lögreglumaður og sjúkraflutningamaður sögðu frá reynslu sinni af starfi á vettvangi umferðarslysa.

Björgunarsveitin Kjölur á Kjalarnesi og Páll Ágúst Ásgeirsson, stjórnarmaður, voru fulltrúar SL við athöfnina.
(Af vef SL)

Ljósmynd:
Adam Finnsson

~ : ~

 Leit að ferðamanni á Fimmvörðuhálsi og Sólheimajökli
16
.nóvember 2011 - 20:05

Umfangsmikil leit fór fram dagana 10.-12. nóvember s.l. að sænskum ferðamanni, sem villtist á göngu. Fyrstu upplýsingar bentu til þess að hann væri á Fimmvörðuhálsi og var leitað þar við erfiðar aðstæður í tæpan sólarhring. Þegar bíll hins týnda fannst við Sólheimajökul var leitin færð þangað og fannst maðurinn látinn ofarlega á jöklinum á þriðja degi.
Bjargir komu af öllu landinu og er talið að um 500 manns hafi komið að aðgerðinni, margir hverjir oftar en einu sinni. Félagar í bjsv. Kjölur fóru tvisvar austur til leitar með fjórhjólið, bæði á Fimmvörðuhálsi og við Sólheimajökul. Þá var fulltrúi Kjalar einnig í vettvangsstjórn við Sólheimajökul.

~ : ~

NEYÐARKALL
3
.nóvember 2011 - 16:50

Hin árlega sala Neyðarkallsins fer af stað í dag og stendur fram á sunnudag. Þetta er orðin ein helsta fjáröflun björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar og þetta er í sjötta sinn sem hún fer fram.

Björgunarsveitin Kjölur verður með sölustaði við  Bónus í Holtagörðum, Bónus og Krónuna í Árbæ og Krónuna í Seljahverfi og er um að gera að STYRKJA SÍNA SVEIT.

Þá ganga félagar í unglingadeildinni Stormi í hús í Grundarhverfi og biðjum við alla að taka vel á móti þeim.


 

 


~ : ~

Samæfing á sjó

30
.október 2011 - 17:20

Þann 29. október var haldin samæfing sjóflokka undir nafninu „Klettur“ fyrir sveitir á sv-horninu. Æfingin var sett upp af Hafnfirðingum með HSSK til aðstoðar fyrir hinar ýmsu stærðir af björgunarbátum á sjó.
Sveitir af höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Selfossi mættu til leiks í býtið á laugardeginum og leystu verkefni á svæðinu frá Straumsvík og að Álftanesi. Kjölur mætti með slöngubát og fjóra menn í áhöfn og voru nýir bátagallar og vesti vígð við það tækifæri. Auk þess var einn maður með í æfingastjórn.
Verkefnin voru af ýmsu tagi og m.a. þurfti að bjarga fólki úr sjó og af skerjum, leita að kafara og neyðarsendi, ferja búnað, kynnast Rescue Runner björgunartæki, fjarlæga rekald og færa til pramma.
Björgunareiningar enduðu daginn á stóru sameiginlegu verkefni við Löngusker, þar sem flugslys hafði átt sér stað. Fjöldi farþega var með vélinni og þurfti björgunar við úr sjónum og af skerjum. Björgunarskipið Einar Sigurjónsson fór með stjórn á vettvangi og slökkvilið Reykjavíkurflugvallar kom einnig til aðstoðar með tvo slöngubáta. Í lok dags bauð æfingastjórn upp á grillaðar pylsur á hafnarbakkanum fyrir saltstokkna en ánægða þátttakendur.  Myndir frá æfingunni >>  hér  <<.

~ : ~

Þór kemur til landsins
29
.október 2011 - 17:20

Þór, hið nýja glæsilega varðskip Íslendinga kom til landsins í vikunni, miðvikudaginn 26. október. Það kom fyrst í heimahöfn í Vestmannaeyjum, en þar var fyrsti Þór keyptur til landsins árið 1920 af Björgunarfélagi Vestmanneyja. Það markar síðar eða árið 1926 upphafið að stofnun Landhelgisgæslunnar. Þór kom síðan til Reykjavíkurhafnar, fimmtudaginn 27. okt. og tóku þá á móti því og fylgdu til hafnar, meðal annars ýmsir bátar og skip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, þyrlur og flugvél Landhelgisgæslunnar. Síðan hefur almenningi gefist kostur að skoða skipið, þar sem það liggur við miðbakkann í Reykjavík. Þar var nánast þjóðhátíðarstemming í dag og löng biðröð fólks myndaðist á hafnarbakkanum til að komast um borð.  Myndin hér til hliðar er tekin er björgunarbátar fylgdu Þór eftir inn til Reykjavíkur.

 

~ : ~

Landsæfing á Ísafirði

15
.október 2011 - 17:10

Sex félagar í Kili fóru á Landsæfingu Slysavarnafálagsins Landsbjörg sem haldin var á Ísafirði 8. október s.l. Gistu þeir á Súðavík á föstudeginum og tóku þátt í ýmsum verkefnum í fyrstu hjálp og öðrum almennum verkefnum á laugardeginum. Eftir æfingu var slegið upp grillveislu í boði SL fyrir þátttakendur. Alls voru um 300 björgunarsveitarmenn víðs vegar að af landinu á æfingunni auk 200 manna starfsliðs, sem gerir æfinguna þá stærstu á árinu. Veðrið hentaði æfingunum vel, þoka og rigning.

Á myndinni er hópurinn tilbúninn í þyrluverkefni á Ísafirði

f.v. Birgir, Ragnar, Kristján, Magnús og María, en Magnús K mundaði vélina 
 

 


~ : ~

Kjölur 2 Patrol seldur

1.október 2011 - 12:23

Nú hefur Patrol bíll sveitarinnar, Kjölur 2, verið seldur til björgunarsveitarinnar Týr á Svalbarðseyri.

Hann var keyptur til Kjalar notaður frá HSSR, árið 2008 og hefur gagnast vel. Breyttar áherslur hjá sveitinni gera það að verkum að nú verður skipt yfir í bíl sem nýtist betur í fleiri útköll sem reynslan sýnir að sveitin er að sinna.

Í staðinn hefur verið keyptur bíll Hyundai Starex. Hann tekur fleiri farþega og ökumaður hans þarf ekki að vera eins sérhæfður og á Patrol jeppann, sem var allnokkuð breyttur.

Við kveðjum Patrol með söknuði, óskum Tý til hamingju með hann og erum viss um að tækið nýtist vel í verkum þeirra á Svalbarðseyri.


~ : ~

Landsæfing á sjó

24
.september 2011 - 16:53

Nýlega var haldin landsæfing á sjó á Skagaströnd. Tveir Kjalnesingar stóðu bátlausir vegna forfalla bíl- og skipsstjóra. Samt var ákveðið að fara og fengu þeir að vera með á slöngubátum HSSK og björgunarskipinu Húnabjörginni. Mörg verkefni voru leyst á laugardeginum í kringum höfnina, leit, björgun og flutningar. Svæðið er skerjótt, miklar grynningar og varasamt yfirferðar og æfingin því góð þjálfun. Rescue Runner frá sænsku sjóbjörguninni var kynntur og stærri björgunarbátar og skip fengu verkefni í að slökkva eld og dæla og taka í tog. Endað var á breiðleit á Húnaflóa og lambalærisgrillveislu í boði heimamanna. Veðrið var upp á það allra besta, rennisléttur sjór og bongoblíða.
Kunnum við heimamönnum á Skagaströnd og Björgunarsveitinni Strönd á Skagaströnd og Húnum á Hvammstanga bestu þakkir fyrir góða skipulagningu og góða æfingu. >> Fleiri myndir á myndasíðu <<

~ : ~

Styrkur og Stormur

18
.september 2011 - 08:53

> Styrkur <
Nýlega barst sveitinni styrkur til tækjakaupa frá Hverfisráði Kjalarness og Nýherja. Styrkurinn kemur sér vel og mun nýtast öllum aðilum sem nota aðstöðuna í Þórnýjarbúð;
björgunarsveitinni, unglingadeildinni og slökkviliði Kjalarness.

Kunnum við Hverfisráði og Nýherja bestu þakkir fyrir.

> Stormur <
Í haust kom nýr hópur unglinga úr 8. bekk Klébergsskóla inn í Storms starfið. Í vikunni fór hópurinn í sína fyrstu sigæfingu við Arnarhamar upp við Esju. Þar voru sigbelti, línur og karabínur kynnt og tækni í meðferð þeirra kennd. Farið var fram af klettunum í kvöldsólinni og sigið niður í Arnarhamarsrétt. Þau reyndari og eldri í hópnum æfðu línuvinnu með börur og aðstoðuðu við tryggingu á nýliðunum.

>>Fleiri myndir á myndasíðu<< Sumir voru að kynnast þessum hlutum í fyrsta sinn og leist kannski ekki á blikuna, en allir stóðu sig vel.
Í Stormi eru nú um 25 unglingar og hefur verið ákveðið að skipta honum í tvennt eftir aldri. Mæting er í Þórnýjarbúð á þriðjudögum - yngri kl. 17 og eldri kl. 19.

~ : ~

Foreldrafundur hjá Stormi

3
.september 2011 - 16:33

Starf unglingadeildarinnar hófst í síðustu viku með fundi og sprelli og í þessari viku er komið að kynningarfundi fyrir foreldra. Verður fundurinn haldinn þriðjudaginn 6. 9. kl 20.30 í Þórnýjarbúð.
Talsverð aðsókn er í deildina og voru alls 25 unglingar skráðir núna í vetrarbyrjun. Starfið er opið fyrir 8. bekkinga og eldri, og fer fram í Þórnýjarbúð einu sinni í viku. Á dagskránni í vetur verður m.a. fyrsta hjálp, rötun, gönguferðir, fjáraflanir, heimsóknir til annarra unglingadeilda, kayakkynning og helgarferðir. Umsjónarmenn deildarinnar eru Hólmar og Guðrún.

Myndin er tekin að loknu Hvammsvíkurmaraþoni Kayakklúbbsins. Að þessu sinni voru það Maggi, Anna og Hemmi sem gættu ræðaranna á sjó á Zodiaknum. Félagar í Kili hafa annast gæslu í Hvammsvíkurmaraþoni allt frá árinu 2004. Siglt er á milli Hvammsvíkur og Geldinganess.
Myndin er fengin af vef Kayakklúbbsins - fleiri myndir >> hér

~ : ~

Kjölur á vaktinni á Menningarnótt

21
.ágúst 2011 - 14:16

Björgunarsveitir í Reykjavík, Ársæll, FBSR, HSSR og Kjölur, stóðu vaktina á nýliðinni Menningarnótt með margvíslegum hætti. Sinna þurfti gæslu vegna Maraþonsins og tónleika, vakta lokanir á götum í miðbænum, sjá um flugeldasýninguna og aðstoða lögreglu eftir miðnætti.
Kjölur var með nánast allan sinn mannskap og farartæki í bænum vegna lokunarpósta og gæsluverkefna og mikið mæddi líka á hinum sveitunum. Vel gekk að manna vaktirnar og voru menn fúsir að fórna frídegi í þágu sveitarinnar, þótt verkefni af þessu tagi séu oft krefjandi. Ekki spillti fyrir að veður og stemning í miðbænum var með besta móti.

Um næstu helgi eru síðan tvö önnur gæsluverkefni, Hvammsvíkurmaraþon og gæsla á Fossárdegi.

~ : ~

Stormur á námskeiði í Þórsmörk

8
.ágúst 2011 - 21:56

Þessa vikuna eru sex unglingar á námskeiði Útivistarskóla SL í Þórsmörk. Öll tóku þau grunnnámskeiðið í fyrra og sækja því framhaldsnámskeiðið núna. Gist verður í tjöldum og gönguferðir farnar um nágrenni Þórsmerkur í þeim tilgangi að rifja upp og æfa ýmsa kunnáttu tengda útivist og björgunarstörfum. Hópurinn lagði af stað á mánudagsmorgni og kemur heim aftur á föstudaginn.
Á myndinni eru Daníel, Berglind, Agnes, Linda og Lelíta klár í útileguna og Petra bættist í hópinn á leiðinni.

~ : ~

Hálendisvakt Kjalar lokið

26
.júlí 2011 - 13:00

Kjölur lauk hálendisvakt sinni á föstudaginn að Fjallabaki með aðstöðu í Landmannalaugum. Þetta er í fyrsta sinn sem Kjölur er þar á vakt, en fyrstu sumrin var sveitin á Kjalvegi með aðstöðu á Hveravöllum. Hópurinn var núna fjölmennastur 8 manns og verkefnin fjölmörg og fjölbreytt.

Mest var um að draga alls konar farartæki úr festum og blauta vélfáka upp úr vöðum. Gestkvæmt var og veður  með besta móti. Myndin hér að ofan, sem María tók, er tekin í verkefni við vaðið á Syðri-Ófæru. Myndir eru nokkrar fleiri hér á myndasíðunni og dagbók í skjalahnappinum fyrir fróðleiksfúsa.

~ : ~

Hálendisvakt að Fjallabaki

15
.júlí 2011 - 18:00

Kjölur stendur nú hálendisvakt björgunarsveitanna 15. - 22. júlí í Landmannlaugum á Fjallabaksleið nyrðri, eftir að hafa verið þrjú síðustu árin á Hveravöllum. Sjö manna hópur með báða jeppana og fjórhjól lögðu í hann í dag.  Aukin umferð er nú um Fjallabaksleiðina vegna flóðsins í Múlakvísl austan Víkur í Mýrdal, sem tók brúna af þar. Einnig var sett aukavakt björgunarsveitar í Hólaskjóli austast við Fjallabaksleið.
Að þessu sinni styrktu

Stjörnuegg, Stjörnugrís og Vífilfell
sveitina með vistir til vaktarinnar.

~ : ~

Unglingalandsmótið á Dalvík

15
.júlí 2011 - 17:45

Unglingalandsmótið á Dalvík fór fram dagana 6. - 10. júlí s.l. Gist var á Húsabrekku. Eldsnemma á morgnana var ræst upp og tekist á við pósta út um allar trissur. Meðal annars var farið í bátaverkefni, fyrstu hjálp og fjallabjörgunarverkefni. Þá voru haldnir björgunarleikar með keppni milli hópa. Einnig var haldið landsþing unglinga samhliða öllu hinu. Á sunnudeginum var pakkað saman , eeeeeldsnemma, og haldið suður um heiðar. Allir voru vel þreyttir og þrælánægðir. Á myndinni eru glaðbeittar Stormsstúlkur á vettvangi í Dalvík, tengill á fleiri myndir >>hér<<

~ : ~

Útkall F1 rauður

10
.júlí 2011 - 14:55

Enn er ekkert lát á útköllum og eins og sjá má undir „útkall“ hnappinum hér til hliðar, þá eru þau komin upp fyrir 40 frá áramótum.
Fyrstu átta dagana í júlí hefur sveitin verið kölluð út fimm sinnum, þar af fjórum sinnum í F1 útköll með hæsta forgangi. Útköllin hafa verið af ýmsu tagi: bílslys, bráðaveikindi, skipsstrand eða slys á vatni, en fyrir tilviljun öll þó haft einhverja tengingu við vatn eða sjó, hvort sem það er beint eða óbeint.
Undanfarið hafa öll miðvikudagskvöld farið í vinnu við viðhald á búnaði og tækjum enda hefur mætt mikið á tækjakosti síðustu vikurnar. Einstaka útkall hefur einnig fallið til þegar menn eru í húsi og allri vinnu frestað á meðan. Ekki er reiknað með neinu sumarfríi hjá sveitinni í ár, en þó stefnt að því að hvíla eina viku eftir hálendisvaktina, ef tækifærið gefst.

~ : ~

Unglingalandsmót á Dalvík
7
.júlí 2011 - 20:20

Í gærmorgun hélt fríður hópur Stormsunglinga ásamt umsjónarmönnum á unglingalandsmót á Dalvík. Farið var í samfloti með hópi frá Kyndli í Mosfellsbæ og von var á fleirum deildum í bílalestina á leiðinni.
Um 400 þátttakendur eru skráðir til leiks og spreyta þeir sig á hinum ýmsu þrautum sem tengjast björgunarsveitarstarfinu í þrjá daga. Gist er í tjöldum á Húsabakka, skammt utan við bæinn , en farið í póstana yfir daginn á Dalvík. Kvöldin verða svo nýtt til samveru, skemmtunar og leikja, þar sem umsjónarmennirnir spreyta sig á óvenjulegum verkefnum.
 
~ : ~

Hálendisvakt
2
.júlí 2011 - 10:45

Hálendisvakt björgunarsveitanna var hleypt af stokkunum 24. júní. Verkefnið var kynnt víða við helstu viðkomustaði ferðamanna, meðal annars við OLÍS Esjuskála á Kjalarnesi, þar sem Kjölur var með tæki og mannskap. Jafnframt var kynnt upplýsingaverkefnið SAFETRAVEL, sem er upplýsingavefur um öryggismál ferðamanna á íslensku og ensku. Fram undan er því undirbúningur Kjalar fyrir Hálendisvaktina, sem að þessu sinni verður að Fjallabaki.
Hálendisleiðir opnast annars frekar seint í ár og nú er t.d. ekki búið að opna Sprengisandsleið.



~ : ~

Aðstoð á láði og legi
17
.júní 2011 - 10:25

Undanfarið hefur verið frekar rólegt í útköllum hjá sveitinni, sem betur fer. Sveitin var þó nýlega kölluð út í tvö ólík tilvik, annars vegar til aðstoðar vélarvana báti rétt við Kjalarnes og hins vegar til aðstoðar konu sem lent hafði í óhappi með hest sinn í Svínaskarði.
Í bæði skiptin var góð mæting af Kjalarmönnum.


 
Á myndinni sem Helgi Reynisson tók í lok aðgerðar sjást björgunarsveitarmenn og tæki þeirra í Svínaskarði.

 



~ : ~
 

Námskeið í Straumvatnsbjörgun
12
.júní 2011 - 18:22

Nýverið var haldið alþjóðlegt viðurkennt námskeið í straumvatnsbjörgun, á vegum Björgunarskóla SL.
Þátttakendur voru ellefu, frá Árborg, Hjálparsveit skáta í Garðabæ og Kópavogi, Björg Eyrarbakka og Kili. Námskeiðið var um 30 klst, með áherslu á verklegar æfingar í Tungufljóti og Hvítá. Kennarar voru þeir Jón Heiðar Andrésson og Ragnar Þór. Unnin var tæknileg vinna með línu, þar sem einn eða fleiri björgunarmenn voru til staðar. Einnig var æft hvernig menn bjarga sér einir, kennd umgengi við straumharðar ár og hvernig best er að koma að farartækjum föstum í ám. Gagnlegir þættir sem nauðsynlegt er að skerpa á og kenna, þar sem aðstæður við vöð og óbrúuð vatnsföll krefjast oftast varúðar.
Einn Kjalarmaður sótti námskeiðið og hann hefur miðlað af því sem hann lærði til félaga sinna í sveitinni, svo menn séu enn betur undirbúnir í straumvötnin í sumar, meðal annars á Hálendisvaktina að Fjallabaki.
 
Myndir frá námskeiðinu tók HSG.
~ : ~

Stormur og Sjómannadagsmerkið
6
.júní 2011 - 21:00

Vösk sveit unglinga í  Stormi, aðstandendur þeirra og félagar í Kili seldu sjómannadagsmerki um helgina á Hátíð hafsins. Gekk býsna vel að selja og viðtökur góðar.


Myndin er af hluta hópsins í lok sjómannadags, sumir kaldir, en allir hressir með árangur dagsins

~ : ~

Björgunarfélagið Eyvindur í heimsókn
21
.maí 2011 - 10:10

Félagar í  Björgunarfélaginu Eyvindi frá Flúðum fylltu Econolininn sinn og komu í heimsókn til okkar á Kjalarnesið í Þórnýjarbúðina á miðvikudagskvöldið. Þetta var aðallega sjúkrahópur félagsins, hress og skemmtileg og voru fyrst og fremst að kynna sér samstarf Kjalar og Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins, reynsluna af því og hvers konar verkefni af því hljótast. Þau eru einnig í óformlegu samstarfi við Heilsugæsluna á Selfossi, lögreglu og slökkvilið á sínu víðfeðma svæði í Árnessýslu.

~ : ~

Fyrirlestur í Þórnýjarbúð
12
.maí 2011 - 21:10

Og Jón Gauti fararstjóri og fjallaleiðsögumaður, kom í heimsókn og flutti fróðlegan og ítarlegan pistil um örlagaríka gönguferð á Skessuhorn að vetrarlagi 28. mars 2009. Vefhlekkur á ferðafrásögn hér >>  <<. Slíkar krefjandi göngu- og

 

 

 

 

 fjallaferðir eru staðreynd og vaxandi hluti af ferðaframboði og  markaðssetningu fyrir vetrarferðir á Íslandi. Mikill metnaður er lagður í faglegan undirbúning, þjálfun leiðsögumanna með tilsögn og kennslu erlendra reynslubolta á þessu sviði. En lengi má læra og athyglisvert að heyra Jón Gauta tilgreina atvik, ummæli og Video frá félögum í hópnum, sem eftir á að hyggja áttu að tikka inn sem varúðarmerki fyrir farastjóra. Þetta sígilda í ferðmennsku, hvenær á að snúa við ef tvísýnt er um aðstæður og framhald ferðar.  Björgunarsveitarmenn geta líka lært, t.d. skipulag á stjórnun, hvaða tæki geta hvað og eiga við aðstæður sem þessar. Umhugsunarefni fyrir yfirstjórn björgunarmála er líka hvernig bregðast á við vaxandi framboði á þess háttar "atvinnuferðamennsku" í krefjandi veðurskilyrðum og okkar fagra fjalllendi innan seilingar frá höfuðborgarsvæðinu.

~ : ~

„Slysið í Skessuhorni“ – fyrirlestur í Þórnýjarbúð
8
.maí 2011 - 14:40

Fyrir rétt um tveimur árum síðan barst Neyðarlínunni símtal frá leiðsögumanni gönguhóps, sem var staddur ofarlega í Skessuhorni, Skarðsheiði. Kona í hópnum hafði fallið um 200 metra niður snarbratta hlíðina og var meðvitundarlítil. Í kjölfarið fór í gang umfangsmikil björgunaraðgerð við erfiðar aðstæður.
Jón Gauti leiðsögumaður hópsins heimsækir okkur og heldur fyrirlestur um atvikið og hvaða lærdóm megi draga af því. Allir sem áhuga hafa á útiveru, fjallgöngum og björgunaraðgerðum eru hvattir til þess að mæta kl. 19 miðvikudaginn 11. maí, í Þórnýjarbúð.

~ : ~

Bílbeltakönnun í leikskóla
7
.maí 2011 - 18:02

Sveitin kannaði nýverið notkun bílbelta við leikskólan Berg fyrir Umferðarstofu. Könnunin fór fram um allt land á sama tíma og var fyrst og fremst verið að kanna notkun öryggisbúnaðar meðal barna, þótt beltanotkun fullorðinna í sama bíl, fengi að fljóta með.
Fullnægjandi öryggisbúnaður fyrir börnin, var því miður ekki notaður í öllum tilfellum og einnig skorti upp á beltanotkun foreldranna. Freistast líklega margir Kjalnesingar til þess að sleppa því að spenna beltin, því „ það er BARA verið að fara innan hverfis“.
Samskonar könnun var gerð við leikskólann í fyrra og og skorti einnig upp á að hlutirnir væru í lagi. Vonandi taka menn sig til og muna eftir öryggisbúnaðinum í hvert sinn sem þeir eða börnin setjast inn í bíl.

~ : ~

Aðalfundur, klifurveggur og Reykjavíkurbikar
30
.apríl 2011 - 16:23

Aðalfundur Kjalar var haldinn miðvikudaginn 27. apríl s.l. 14 félagar voru mættir til fundar í Þórnýjarbúð. Ársskýrslu starfseminnar má sjá >> hér <<. Þá lágu drög að ársreikningum frammi. Litlar breytingar urðu í stjórn, einn hætti. Í stjórn voru kosnir: Birgir Þ. Guðbrandsson, Sonja Þórsdóttir, Anna L. Filbert, Adam Finnsson, Brynjar Már Bjarnason og Ragnar Kr. Skúlason. Stjórnin skiptir síðar með sé verkum.

Klifurveggur hefur verið settur upp inni á suðurvegg Þórnýjarbúðar og var unnið í að ganga frá tryggingum fyrir sigbönd fyrir ofan hann.

Kjölur annaðist öryggisgæslu á árlegri Vorhátíð Kayakklúbbsins í dag 30. apríl. Bátur sveitarinnar fylgdi kayakræðurum í Reykjavíkurbikarnum við Geldinganes. Um er að ræða 10 km róður og þetta er í 15. sinn sem keppnin fer fram.

Ragnar sá um myndatöku fyrir klúbbinn og hægt  að sjá myndirnar >> hér << og Kayakklúbburinn með tengil >>  hér  <<.

~ : ~

Kjölur fær styrk frá Reykjavíkurborg
17
.apríl 2011 - 16:43

Á föstudaginn (15.4.11) var skrifað undir samning til þriggja ára milli Reykjavíkurborgar og björgunarsveitanna fjögurra í Reykjavík, um 24 milljóna króna styrkveitingu. Árleg upphæð styrks er því 8 miljónir króna og skiptist hlutfallslega milli sveitanna fjögurra, en þær eru; Björgunarsveitin Kjölur, Kjalarnesi, Hjálparsveit skáta Reykjavík, björgunarsveitin Ársæll og Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík. Með styrknum sýnir Reykjavíkurborg viðurkenningu á starfi sveitanna og jafnframt ríkir ánægja með að gera slíkan langtímasamning. Jón Gnarr skrifaði undir samning fyrir hönd Reykjavíkurborgar, Birgir Þór Guðbrandsson fyrir hönd Kjalar, Borgþór Hjörvarsson fyrir Ársæl, Haukur Harðarson fyrir Hjálparsveit skáta í Reykjavík og Stefán Þór Þórsson fyrir Flugbjörgunarsveitina í Reykjavík.

Mynd af vef SlysavarnfélagsinsLandsbjörg landsbjorg.is.

~ : ~

Aðalfundur björgunarsveitarinnar Kjalar
17
.apríl 2011 - 14:17

Miðvikudaginn 27. apríl n.k. verður aðalfundur Kjalar haldinn í Þórnýjarbúð kl 20.

Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf skv. lögum sveitarinnar:
- fundargerð síðasta aðalfundar
- skýrsla stjórnar
- reikningar lagðir fram
- lagabreytingar
- stjórnarkjör
- kosning skoðunarmanna

>>
Auglýsing pdf hér<<
~ : ~

Stormur hér og þar
15
.apríl 2011 - 20:17

Stormur í nokkrum merkingum orðsins kom við sögu um síðustu helgi.
Á laugardeginum gekk hópur úr unglingadeildinni Stormi, ásamt unglingadeild Kyndils milli Mosfellsbæjar og Þingvalla. Gengið var í fjáröflunarskyni með sjúkrabörur fram og tilbaka án hvíldar. Ferðin tók 18 tíma. Skiptust unglingarnir á að bera og ýta börunum í litlum hópum. Leiðin var farin yfir heiðina í strekkings vindi og úrkomu, og reyndi duglega á úthald og vatnsheldni hlífðarfatnaðs.  Peningunum sem Stormur safnaði, verður varið til kaupa á nýjum hlífðargalla frá SL og í námskeið Útivistarskólans að Gufuskálum.

Á sunnudeginum brast stormur á víða um land og voru meðal annars allar sveitir kallaðar út á höfuðborgarsvæðinu. Talsverðar skemmdir urðu á mörgum stöðum og rigndi bókstaflega inn beiðnum um aðstoð. Verkefnin voru af ýmsu tagi; vegna þakplatna sem losnuðu, brotinna rúða, hurða sem fuku upp, grindverka og trjáa sem fóru um koll o.fl. Kjölur fór með einn hóp í verkefni í Mosfellsdal og í Reykjavík, en eins og oft áður var veður ekki eins slæmt í heimabyggð og bárust engar tilkynningar um skemmdir á Kjalarnesinu.

~ : ~

Endurskoðun á viðbragðsáætlun
31
.mars 2011 - 20:43

Viðbragðsáætlun fyrir Keflavíkurflugvöll er nú í endurskoðun og eru menn beðnir að kynna sér áætlunina nánar á slóðinni almannavarnir.is

Viðbragðsstigin eru þrjú: 
  ÓVISSUSTIG - HÆTTUSTIG - NEYÐARSTIG
Umfangið er einnig þrír flokkarGRÆNT (5 eða færri um borð)
                                         GULT     ( 5-55 um borð)
                                                         RAUTT   ( 56 eða fleiri um borð)

Kjölur og aðrar sveitir á svæði 1 hafa einungis skyldum að gegna á:
        

 HÆTTUSTIG   –      RAUTT

 NEYÐARSTIG  –  GULT / RAUTT

Við boðun skal:
* halda í bækistöð og taka til búnað: teppi, börur, fyrstu hjálpar- og fjarskiptabúnað
* mæta á ytra biðsvæði í Straumsvík og bíða frekari fyrirmæla frá svæðisstjórn
* fjarskipti skulu vera á ÚTKALL SV 1  (VHF ev 1 til vara)  og Rás 16 á sjó

~ : ~
 

Á faraldsfæti  .. ..
27
.mars 2011 - 13:43

Með hækkandi sól bregða menn sér oftar af bæ og leggja land og snjó undir fót og dekk. Síðustu tvær helgar hafa verið nýttar til þess að sameina æfingar, félagsstarf, skemmtun og ferðalög. Um síðustu helgi fór Kjölur 2 í samfloti með sleðum og jeppum frá Kyndilsmönnum inn í Hvanngil, þar sem vetrarlandslagið var nýtt til æfinga. Gott færi var fyrir farartækin og var m.a. rennt inn að Álftavatni. (sjá myndir á myndasíðu)
Þessa helgi voru einnig unglingar í Stormi með umsjónarmönnum á Gufuskálum á Snæfellsnesi. Aftur var farið í samfloti með góðum grönnum í Mosfellsbæ, stór hópur úr unglingadeild Kyndils var með í för. Ævintýralegt svæði til útiæfinga er á Gufuskálum og einnig góð aðstaða til samveru inni.

~ : ~

Einstakt samstarf á landsvísu
6
.mars 2011 - 09:53

Nýir  einstaklingar hafa nú bæst í viðbragðshóp sveitarinnar vegna útkalla á vegum Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins (SHS)eftir að hafa lokið námskeiðinu  First Responder. Fimmtán björgunarsveitarmenn uppfylla nú skilyrðin sem sett eru um námskeið og  þjálfun í vettvangshjálp. Viðbragðshópur SHS samanstendur af björgunarsveitarmönnum ásamt slökkviliðseiningu SHS á Kjalarnesi og er kallaður til vegna bráðaveikinda, slysa og slökkvistarfa á Kjalarnesi og nágrenni. Góður árangur hefur náðst í að stytta viðbragðstímann og efla þjónustu við íbúa á þeim rúmlega fjórum árum, sem samningurinn hefur verið í gildi.
Verið er að skoða svipað samstarf milli björgunarsveita og annara viðbragðsaðila í slysum og bráðaveikindum á nokkrum stöðum á Suðurlandi.  Á Kjalarnesinu og Kjós eru 15-25 mínútur í aðstoð sjúkraflutningamanna eða læknis,  en  annars staðar háttar svo til að mun lengri tími getur liðið uns hjálp berst.  Víða er möguleiki á að þjálfa og virkja björgunarsveitir sem fyrsta viðbragð og góða viðbót við aðra viðbragðsaðila.
Framundan  er kynningarfundur á Heilsugæslu Mosfellsumdæmis. Þar verður læknum og starfsfólki kynnt samstarfið við SHS, útkallsbúnað og þjálfun viðbragðshópsins.  Læknir á bakvakt er í mörgum tilfellum kallaður út samtímis sjúkrabíl frá Reykjavík og björgunarsveitinni og vinna þessir þrír aðilar saman á vettvangi.

~ : ~
 

Vettvangshjálp
21
.febrúar 2011 - 21:45

Stór hópur sveitarinnar eða ellefu manns, mun næstu tvær helgar sitja námskeið í Vettvangshjálp eða First Responder í slökkvistöð Hafnarfjarðar. Í hópnum eru bæði nýir menn og aðrir sem hafa tekið Vettvangshjálp eða EMT-B áður, auk eins slökkviliðsmanns af Kjalarnesinu.
Kennslan fer líkt og fyrir 4 árum fram á vegum Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins (SHS) og með Sveinbjörn Berentsson bráðatækni sem leiðbeinenda. Honum til aðstoðar í verklegum æfingum er Ólafur Sigurþórsson, einnig bráðatæknir. Farið er í gegnum líffærafræði, öndunarhjálp, endurlífgun, bráðasjúkdóma, meðhöndlun áverka, björgun úr bílflökum og búnað sjúkrabíls svo fátt eitt sé nefnt, verklegar æfingar og sýnikennsla. Námskeiðið spannar 40 klst og endar á bóklegu og verklegu prófi.
Námskeiðið hentar vel þeim sem eru fyrstir á vettvang og veita bráðaþjónustu þangað til sjúkraflutningamenn koma, líkt og samningur sveitarinnar við SHS gerir ráð fyrir. Það sem af er ári 2011, hafa orðið 7 útköll vegna slysa og bráðaveikinda á Kjalarnesi og í Kjós og því kemur aukin þjálfun á þessu sviði sér afar vel. Fleiri myndir >> hér <<

~ : ~

Tækjamót
21
.febrúar 2011 - 21:45

Tækjamót SL við Grenivík um síðustu helgi heppnaðist vel. Þátttakendur voru um 300 talsins og úr sveitum af öllu landinu. Flóran spannaði m.a. jeppa, sleða, snjóbíla og fjórhjól. Saman komu alls um 140 tæki, sem lætur nærri að vera einn þriðji af tækjakosti björgunarsveita á landinu.
Frá Kili fór "ABBA hópurinn", þeir Adam, Biggi, Baldvin og Aron og voru með Patrol og fjórhjól sem fararskjóta. Óku norður á föstudagskvöldið og lögðu snemma í‘ann morguninn eftir, ásamt öðrum jeppum inn í Flateyrardal. Blíðskaparveður var á svæðinu, skarir á lækjum og ám, skaflar, festur og rennifæri eins og við á í tækjaferð. Endað var á góðu grilli í Grenivík og komið í bæinn eftir skemmtilegan sólarhring seint á laugardagskvöldinu. Fleiri myndir >> hér  <<
~ : ~

Dýrvitlaust veður
9
.febrúar 2011 - 20:10

Í gær og sérstaklega í gærkvöldi og fram á nótt, hvessti hressilega í suðaustan átt sem Esjan virðist skrúfa upp á Kjalarnesinu og reyndar var hvasst víðar sunnan og vestanlands. Björgunarsveitir voru kallaðar út, Kjölur fór á kreik á einum bílum í verkefni á Kjalarnesinu, nokkuð var um fok á lausum munum, þakflasningar losnuðu og ytra byrði á rúðum brotnuðu á húsum á Lykkjuhverfi, þakplötur losnuðu á hálfónýtu húsi á Arnarholti, glerhurð fauk af hjörum í Fólkvangi, svalahandrið gaf sig á húsi í Grundarhverfi, kofar og tunnur dönsuðu rúmbu út og suður, plaströraflækja ógnaði umferð eins og svartur kolkrabbi á þjóðveginum sunnan hverfis, blaðagámur sviftist á hvolf við OLÍS skála og ógnaði bensíndælum, plötur af bensíndælum skrældust burt, starfsmaður missti gleraugun út í buskann, annar á heimleið af vakt ætlaði að skjótast út í bílinn, fauk til, greip í ljósastaur og náði að stöðva sig. Ekki eru fregnir af neinum slysum á fólki, sem betur fer og er það mesta mildi. Skal enn ítrekað hér að í slíku veðri ætti enginn að vera á ferli utan húss, það kembir enginn hærurnar sem fær í sig stálplötu í láréttu flugi eins og hnífsblað. Hæstu hviðurnar eða þoturnar sem innfæddir kalla svo, mældust tæplega 50 m/sek á mælinum á Skrauthólum, en mælirinn tók síðan skemmtilega dýfu um kl 21 úr 46 m hviðum niður í um 20 m hviður, (einhver bilun líka, sjá myndasamanburð) en að því er virtist var ekkert lát á veðurham í hverfinu, þetta virðist leggjast í frekar staðbundna strengi eftir vindátt. Þessu fylgdi mikil úrkoma.

Hér á öðrum stað vefsíðunnar >> hér er hlekkur << eru minnisatriði um varúðarráðstafanir sem rétt er að hafa í huga og grípa til þegar von er á slíkum veðrum og bent á stormviðvaranir Veðurstofunnar.


(sjá mynd af vef Veðurstofunnar, sem sýnir vindhraðann á Skrauthólum vikan vinstra megin og sólarhringurinn hægra megin)

(mynd af vef Vegagerðarinnar, sem sýnir heldur minni vindhviður á mæli Vegagerðarinnar við þjóðveg neðan við Esjuberg vindhraðinn ofan við og vindátt neðan við)

Einnig er aðgengileg hér á heimasíðunni til fróðleiks skýrsla Trausta Jónssonar og Árna Sigurðssonar um "Kjalarnes - stutt úttekt á vindafari" frá Veðurstofunni 2006.

~ : ~

Vel sýnilegur
5
.febrúar 2011 - 18:10

Tvö umferðarslys hafa orðið á Vesturlandsvegi í vikunni, þar sem björgunarsveitin hefur verið kölluð til. Í báðum tilfellunum hefur sannast mikilvægi þess, að vera á vel merktum bílum þegar menn þurfa að vinna á vettvangi, þar sem bæði umferðarþungi og hraði er mikill. Í snjókomu, skafrenningi og myrkri duga hefðbundin viðvörunarljós skammt.
Kjölur 1 er nýkominn frá Radíó Raf þar sem appelsínugul blikkljós voru sett allan hringinn á toppgrind, til viðbótar við bláu forgangsljósin. Endurskinsrendur eru auk þess á hliðum bílsins sem endurvarpa jafn vel hinn minnsta ljósgeisla. Kjölur 2 mun fara í samskonar ljósabreytingar í næstu viku og verða þá báðir bílarnir vel sýnilegir þótt skyggni sé lélegt.

~ : ~

Fyrsta hjálp æfð
5
.febrúar 2011 - 18:00

Stormur fékk nýlega fræðslu í fyrstu hjálp, þar sem farið var í gegnum glærur, umræður og verklegar æfingar í Þórnýjarbúð. Fyrr í vetur hefur verið tekið á meðvitundarleysi, öndunaraðstoð og endurlífgun, en nú var á dagskrá sárameðferð, aðskotahlutir, brunasár, augn- og tannslys.
Efnið er unnið upp úr fyrstu hjálpar námskeiði SL fyrir unglinga og kryddað með efni frá Guðrúnu hjúkrunarfræðingi og björgunarsveitinni. Hópurinn stóð sig vel í kunnáttunni um fyrstu viðbrögð og meðferð, enda er hluti hópsins búinn að fá fyrstu hjálpar fræðslu m.a. á Gufuskálum.


Á myndinni eru Stormsstúlkur í verkefni að skorða aðskotahlut í sári svínsskanka og búa um það.
Fleiri myndir eru á myndasíðu.
 
~ : ~

Gulur, rauður, grænn....
16.janúar 2011 - 14:33

Nýja árið hefur byrjað með látum og er þegar búið að kalla sveitina út fjórum sinnum, þar af þrisvar á vegum Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins. Forgangur hefur spannað allan skalann og ástæður boðunar líka, þar sem óveður, slys í heimahúsi, bráðaveikindi og vatnsleki hafa átt i hlut.
 
Núna að lokinni flugeldavertíð tekur við tímabil þar sem sveitin hugar að endurbótum á farartækjum, endurnýjun á búnaði, námskeið fyrir félaga og æfingaferðir. Starfið hjá Stormi er einnig hafið eftir frí og ýmislegt spennandi á döfinni þar; æfingar, ferðir o.fl.

~ : ~

Áramótin - Þrettándinn
2. janúar 2011 - 14:25

Vel tókst til með brennu og flugeldasýningu á Klébergi um áramótin.
Sýningin var kostuð að hluta til af


S
AMSKIP

           

og einnig unnin í góðu samstarfi við þá félaga í Áhaldahúsinu Stjána og Óla Valla og kunnum við öllum bestu þakkir fyrir. Þetta var eina flugeldasýning við brennu í Reykjavík þessi áramótin. Veður var einstaklega gott, logn og milt veður og fjöldi manna sótti brennuna heim. Kjölur þakkar stuðninginn með kaupum á flugeldum og minnir jafnframt á að restarnar verða seldar í flugeldagámnum utan við Sorpu
ÞRETTÁNDASALAN
miðvikudag 5. jan kl 18 – 22
fimmtudag 6. jan kl 13 – 18

~ : ~

FLUGELDASÝNING OG BRENNA
30.desember 2010 - 20:32

Björgunarsveitin Kjölur þakkar fyrir veittan stuðning á árinu og verður með flugeldasýningu
á Gamlárskvöld stuttu eftir að kveikt verður í brennunni.
Áætlaður skottími er kl 20:45.

Kveikt verður í brennunni á Klébergi kl 20:30

Minnum á opnunartíma flugeldasölunnar við Sorpu, vestan við
Þórnýjarbúð;
fimmtudagur 30. des kl 13 – 22
föstudagur 31. des kl 10 – 16

Óskum íbúum Kjalarness og Kjósar gleðilegs nýs árs

~ : ~

FLUGELDAR - FLUGELDAR - FLUGELDAR
22.desember 2010 - 20:38

Flugeldasala Björgunarsveitarinnar á Kjalarnesi verður í gámum vestan við móttökustöð Sorpu, rétt vestan við söluskála OLÍS. 
Opnunartímar;

þriðjudag 28. desember kl 13 – 22
miðvikudag 29. desember kl 13 – 22
fimmtudag 30. desember kl 13 – 22
Gamlársdag 31 desember kl 10 – 16

Styrkjum sjálfboðaliðastarf björgunarsveitar í heimabyggð.

~ : ~

Jólasveinar einn og átta ..
22.desember 2010 - 19:51

Jólasveinar í heimsókn á aðfangadagsmorgun


Líkt og í fyrra munum við aðstoða jólasveinana við að dreifa pökkum til barna í Grundarhverfi.
Sveinarnir áætla að vera á ferðinni á Kjalarnesi og nágrenni á aðfangadagsmorgun.
Best er að koma pökkunum á Esjugrund 35 á Þorláksmessu.
Muna að merkja pakkana vel, nafn og heimilisfang.
Verð pr. pakka kr 500, hámark 1000 kr á heimili.

Með kveðju – björgunarsveitin Kjölur
(Anna s: 6168493)
~ : ~

Flugeldaslys
17.desember 2010 - 20:30

Í vikunni fóru þau María og Þórður í Klébergsskóla og fræddu nemendur í 6. - 10. Bekk um flugeldaslys.
Þótt flugeldar séu okkur til mikillar ánægju og gleði um áramótin, eru þeir í raun litlar handsprengjur og geta valdið högg- og brunaskaða samkvæmt því. Börn og ungmenni ættu því aldrei að meðhöndla flugelda án þess að einhver fullorðinn sé til staðar.
Áréttað var að nauðsynlegt er að vera hræddur við flugelda, því þá fari maður varlega. Þeir sem slasast um áramótin eru aðallega tveir hópar. Í fyrsta lagi fullorðnir sem eru undir áhrifum áfengis og þar af leiðandi ekki hræddir, heldur kærulausir og óstöðugir. Í öðru lagi slasast „fiktararnir“, þ.e. aðallega ungmenni, sem bera ekki virðingu fyrir hættunni heldur telja sig vita betur en hönnuðir flugeldana og taka þá í sundur.
Þórður benti á að Æ-ÆIÐ væri eitthvað sem hyrfi oft ekki fyrr en eftir nokkra daga eða vikur og hjá sumum sæti eftir ör, varanlegar sjónskemmdir eða örkuml til frambúðar. Ekki væri hægt að spóla til baka eins og í tölvuleikjum og „leika upp á nýtt“.
Krakkarnir lofuðu allir að passa vel upp á sig og aðra í kringum áramótin, svo Þórður á sjúkrabílnum og María á björgunarsveitarbílnum þurfa ekki að bregðast við útkalli.


~ : ~

Hellisferð
1.desember 2010 - 19:30

Unglingarnir í Stormi fóru í hellaferð um helgina með Hólmari og unglingum í Kyndli. Byrjað var á að koma við hjá Kyndli og hrista hópinn saman í þar til gerðum hristara ;-), bíða aðeins eftir þeim og svo var lagt í hann. Farið var sem leið lá suður í Hafnarfjörðinn hýra og þegar þangað var komið, var beygt eins verið sé að fara í Bláfjöll, en á þeirri leið er hellirinn Leiðarendi. Leiðarendi er auðveldur og frekar skemmtilegur að skoða. Þegar klukkan var að nálgast 12:00 var stefnan sett á Mosó og fengið sér að snæða í húsnæði Kyndils. Eftir hádegi var farið að síga í klettum upp í Stardal (Mosfellsdal). Þar sigu menn allt frá 10 til 30 m sig með 3 línum.
Ferðin tókst í alla staði ágætlega.

~ : ~

Þakkarbréf
20.nóvember 2010 - 17:30

Eftirfarandi þakkarbréf birtist í Kjalnesingi 8. tölublaði 4. nóvember s.l. og er það birt hér með leyfi bréfritara: 
„Okkur
hjónunum langar til að senda okkar bestu þakkir til þeirra frábæru aðila sem starfa í Björgunarsveitinni Kili og vekja um leið athygli á því hversu mikilvægt það er fyrir okkur Kjalnesinga og Kjósverja að hafa starfrækta björgunarsveit á svæðinu. Öll vitum við af því að þau eru að sendast út í hvaða veðri sem er til að aðstoða jeppamenn í vanda, sækja fótbrotinn fjallagarp á Esjuna, leita að týndu fólki eða sendast út í rokið til að negla niður nokkrar þakplötur sem eru að fjúka meðan við hin kúrum okkur niður í sófann og bíðum eftir logninu. Annað sem við hjónin vissum ekki er að þau eru líka á vaktinni allan sólahringinn tilbúin að stökkva af stað þegar alvarlegt neyðarkall kemur frá Kjalarnesi eða Kjós til neyðarlínunnar.
Við lentum nefnilega í því í vikunni sem leið að vakna upp við þá óskemmtilegu lífsreynslu að sonur okkar var meðvitundarlaus, í krampa og gat ekki andað. Við hringdum um leið í 112 og gerðum allt sem í okkar valdi stóð til að blása í hann lofti og biðum eftir aðstoð. Ekki liðu nema örfáar mínútur þar til nágrannar okkar og félagar í Björgunarsveitinni Kili voru mættir á svæðið með súrefni og nauðsynlegan búnað til skyndihjálpar. Við fundum fyrir miklu öryggi enda þaulvant fólk á ferð og ekki verra að hafa sjúkraflutningamenn og hjúkrunarfræðing innan sveitarinnar. Þau voru fimm sem mættu á svæðið eldsnemma, tóku að sér að hlúa að hinum veika, hafa ofan af fyrir yngri systur, hughreysta okkur og bíða úti í kuldanum til að leiðbeina sjúkrabílnum rétta leið. Sjúkrabíllinn kom svo eftir tilsettan tíma. Á leiðinni á Landsspítalann sagði starfandi sjúkraflutningamaður mér að þeir hefðu um þónokkurt skeið haft það fyrir reglu að ræsa út Björgunarsveitina Kjöl þegar þeir fá alvarlegt kall frá þessu svæði þar sem hver mínúta getur skilið milli lífs og dauða og vegna staðsetningar okkar tekur það sjúkrabílinn a.m.k. 20 mínútur að mæta á svæðið og lengur ef veður eru vond eða hálka. Sem betur fer, fór allt saman vel en eftir situr mikið þakklæti og hrós til allra þessa aðila sem í sjálfboðavinnu gefa af sínum tíma til að starfrækja björgunarsveit á Kjalarnesi sem er mjög mikilvæg fyrir okkar litla samfélag. Við viljum hvetja alla Kjalnesinga og Kjósverja sem eru aflögu færir að taka vel á móti og styðja við bakið á Björgunarsveitinni okkar og styrkja starfsemi þeirra þegar þeir fara af stað í fjáröflun hvort sem um er að ræða flugeldasölu um áramótin eða sölu á Neyðarkallinum.

Hólmar, Guðrún, Anna Filbert, María, Doddi og allir hinir í Björgunarsveitinni
þúsund þakkir og bestu kveðjur
Dröfn og Leifi, Esjugrund 74
31.10.2010"

~ : ~

Nýjar leiðbeiningar í endurlífgun
10.nóvember 2010 - 20:00

Evrópska endurlífgunarráðið hefur gefið út nýjar leiðbeiningar í endurlífgun. Leiðbeiningarnar eru endurskoðaðar á 5 ára fresti og byggðar á nýjustu rannsóknum í þeim efnum. Lesa má nánar íslenska þýðingu á slóðinni <<........>> en helstu atriðin sem snúa að sveitinni eru:

• Stök andköf geta verið hjartastopp
• Gæði hjartahnoðs er mikilvægt
• Hnoða skal fullorðna með minnst 5 cm dýpt
• Dýpt hnoðs hjá börnum er 1/3 af þykkt brjóstkassa
• Hlutfall hnoðs/blásturs er óbreytt: 30/2 (fullorðnir) og 15/2 (börn)
• Hraði hnoðs skal ekki vera undir 100/mín.
• Brjóstkassi þarf að þenjast út milli hnoða
• Aukin áhersla á sem minnstar tafir í hnoði
• Hefja skal tafarlaust hnoð eftir stuð
• Ekki er þörf á að hnoða í ákveðinn tíma áður en stuðað er
• Greina/stuða strax og hjartastuðtækið er tilbúið
• Hnoða á meðan hjartastuðtækið er að hlaða
• Vitni geta gefið hjartamagnyl (300 mg) án aðstoðar frá neyðarverði/sjúkraflutningamönnum

Sjá einnig  endurlifgun.is og
Sjúkraflutningaskólinn ems.is

~ : ~

Svæðisstjórnarfundur í Þórnýjarbúð
8.nóvember 2010 - 22:10

Svæðisstjórn á svæði 1 hélt fyrir skömmu sinn mánaðarlega fund í Þórnýjarbúð og átti í framhaldinu fund með stjórn Kjalar. Í haust hefur fjölgað í svæðisstjórn og er hún nú mönnuð 16 manns úr sjö sveitum á höfuðborgarsvæðinu, þar af eru tveir úr Kili.
Sveitirnar skiptast á að bjóða svæðisstjórn í sínar bækistöðvar og nota tækifærið til þess að eiga óformlegan fund, kynna sig og sýna tæki og búnað.

Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á fundaraðstöðunni undir súð í Þórnýjarbúð og er nú rýmra um fólk. Vaskur með borði var settur upp, svo nú er fundafært án þess að sækja vatn í kaffi á neðri hæðinni eða skvetta úr glösum úti á plani. Einnig voru settar upp plötur í gluggabil, hillur færðar, fenginn minni ísskápur og frískað upp á málningu, sem líklegast var frá 1992.

~ : ~

Kjölur 2 til sölu !!
7.nóvember 2010 - 18:45

Ákveðið hefur verið að bjóða Kjöl 2 til sölu til annarra björgunarsveita.
Kjölur hefur átt bílinn í rúmlega tvö ár.

Um er að ræða Nissan Patrol árgerð 2002. (áður Reykur 3 HSSR), SS-715,
Bíllinn er ekinn um 95000km.

Vél: 3.0 lítra Diesel turbó intercooler, ekinn um 25000km, ný vél sett í af umboði. Hann er með öllum helstu fjarskiptatækjum en öðrum tækjum er lýst í skjali um bílinn
<< auglýsing >>
Tilboð óskast í bílinn á netfangið birgir@kjalarnes.is
F.h. Björgunarsveitarinnar Kjalar á Kjalarnesi
Birgir Þór Guðbrandsson

~ : ~

Neyðarkall til þín !!
6
.nóvember 2010 - 10:15

Fjáröflun björgunarsveitanna með sölu á Neyðarkallinum stendur nú sem hæst og hafa viðtökur gerið góðar. Björgunarsveitin Kjölur þakkar stuðninginn, en þessi fjáröflun er sveitinni afar mikilvæg.

NEYÐARKALL
~ : ~

BJÖRGUN 2010
15.október 2010 - 09:40

Ráðstefnan BJÖRGUN verður haldin á Grand Hótel í Reykjavík dagana 22.-24. október og verður að venju með fjölbreytt og áhugaverð erindi á dagskránni. Boðið er upp á yfir 60 fyrirlestra, íslenska og erlenda, sem tengjast með einum eða öðrum hætti björgunarstörfum. Sem dæmi má nefna: „Íslensku alþjóðabjörgunarsveitina á Haíti“, „Sprengjuárásir í London 2005“, „Að bjarga mannslífum með greiningarforritum“, „Hestar í leit og björgun“, „Eldgosin á Fimmvörðuhálsi og Eyjafjallajökli“ og „Hegðun týndra – íslensk tölfræði“.
Auk fyrirlestra frá föstudegi til sunnudags fer m.a. fram vígsla á nýjum svæðisstjórnarbíl á svæði 1 og kynning á búnaði og þjónustu. Í tengslum við Björgun fara einnig tvær aðrar ráðstefnur fram – Almannavarnir sveitarfélaga og Verkfræði, jarðskjálfar, rústabjörgun.
Nánari upplýsingar um BJÖRGUN 2010 má finna á slóðinni >>
http://www.landsbjorg.is/ <<


~ : ~

Endurskinsmerki fyrir veturinn
4
.október 2010 - 21:15

Í síðustu viku fengu nemendur í Klébergsskóla endurskinsmerki, þegar farið var á vegum sveitarinnar í alla bekkina. Leikskólinn Berg var einnig heimsóttur og börnin þar minnt á hversu mikilvægt er að vera sýnilegur þegar myrkrið sækir að. Endurskinsmerkin eru keypt á skrifstofu SL og hafa verið vinsæl, enda til í ýmsum skemmtilegum gerðum og mörgum litum.


~ : ~

„Rauði október“
4.október 2010 - 21:05

Um fimmhundruð manns tóku þátt í 60 ára afmælisæfingu Flugbjörgunarsveitarinnar (FBSR), „Rauði október“, sem fram fór á höfuðborgarsvæðinu á laugardaginn var. Fjölmennt lið sá um skipulag og framkvæmd æfingarinnar og mættu sveitir víða af til þess að spreyta sig á ýmsum verkefnum á














sviði leitar og björgunar á sjó og á landi.
Kjölur fór með sex manna hóp á Econoline og vann að leitar- og fyrstu hjálpar verkefnum frá kl. 06 til 17 í blíðskapar veðri. Farið var í að finna og meðhöndla mann með brjóstverk á Helgafellinu, hlúð að slösuðum óþekktargemlingi innan um róna og steypustyrktarjárn í nýbyggingu, týndur pjakkur í Öskjuhlíðinni staðsettur, leitað að ölvuðum, verðandi brúðguma við Gróttu, fimm óábyrgum og stórslösuðum ungmennum bjargað úr bílflaki og brenndum vélstjóra náð upp úr vélarrými Hvalveiðiskips við Reykjavíkurhöfn. Í lok dags bauð FBSR upp á grillaða hamborgara og sundsprett í Laugardalslaug fyrir þátttakendur.
Sami háttur var hafður á árið 1980, þegar FBSR varð 30 ára og boðið til stórrar samæfingar. Kjölur tók einnig þátt í þeirri æfingu, sem fram fór að vori til við Hlíðardalsskóla í Ölfusi. Er ekki að efa það að sá viðburður hafi verið bæði til gagns og gamans líkt og nú, þótt búnaður og tækni sveita hafi breyst heilmikið á þessum árum, sem liðin eru.
>>>>  FLEIRI MYNDIR KOMNAR  <<<<

~ : ~

Unglingar með bros á vör
23
.september 2010 - 21:35

Nemendur í 10. bekk Klébergsskóla gerðu sér glaðan dag að loknum samræmdu könnunarprófum, sem fram fóru 20.-22. september. Björgunarsveitin sá um hluta af dagskránni sem Foreldrafélagið stóð að og voru unglingunum þrælað í gegnum ýmsar þrautir og leiki, sem tengjast björgunarstörfum.
Vísir að reykköfunarbraut var sett upp í íþróttasalnum, leitaræfing með snjóflóðaýlum úti við höfða og fyrsta hjálp iðkuð í skjóli af norðanáttinni við leikskólann. Unglingarnir stóðu sig vel og unnu með bros á vör, alls ekki auðveld né einföld verk. Að loknum verkefnum slakaði hópurinn á með flotgallasvamli í sundlauginni og sokkabolta í sal, áður en haldið var til pizzaveislu í skólaeldhúsinu.
>> fleiri myndir   <<

~ : ~

Æfing með Björgunarfélagi Akraness
16
.september 2010 - 20:55

Um síðustu helgi sameinuðust Skagamenn og Kjalnesingar um æfingu í Hvalfirði. Æfingin var hugsuð sem tækifæri til þess að koma sér í réttan gír í upphafi vetrarstarfs, bæði félagslega og tæknilega og sóttu hana ungliðar, nýliðar og reyndari menn. Kjalarmenn sáu um skipulag og undirbúning ásamt Björgunarfélaginu.
Verkefnin voru af ýmsu tagi og unnu hóparnir bæði sjálfstætt og saman. Leita þurfti að tveimur kajakræðurum ætluðu að róa frá Hvammsvík í Hvalstöðina, finna og kafa eftir æðardúnsbónda sem féll útbyrðis við sker í Hvammsvík, bjarga fótbrotinn fuglaskoðara úr fjöru upp kletta og koma að tveggja bíla árekstri með fimm slösuðum hjá Staupasteini.
Veðrið var hið ákjósanlegasta til útiveru og í lok dags var slegið upp grillveislu í boði Skagamanna, þar sem menn fóru yfir verkefnin, meðan þeir gæddu sér á góðum veigum.
>>Sjá myndir á myndasíðu<<


~ : ~

Úr starfinu
4
.september 2010 - 20:30

Á nýafstaðinni Menningarnótt voru sjö manns frá Kili við gæslustörf i miðborginni á vegum lögreglu og fram undan er öryggisfylgd kajakræðara í keppni milli Geldinganess og Hvammsvíkur. Gæsluverkefni hafa verið nokkur undanfarið og voru m.a. aðrar björgunarsveitir aðstoðaðar við Hálendisgæslu í ágústmánuði. Myndir frá Fjallabaki og Sprengisandi má sjá á myndasíðu.
Vetrarstarf sveitarinnar fer nú að síga af stað með æfingum, vinnukvöldum og fundum í Þórnýjarbúð. Nokkur handtök eru eftir í nýuppgerðum Econoline og einnig verða áherslur á námskeið Björgunarskólans, sem nú starfar eftir nýju sniði.


~ : ~

Unglingastarfið
22
.ágúst 2010 - 16:48

Unglingastarf er nú farið af stað aftur eftir sumarfrí með dagskrá á þriðjudagskvöldum kl. 19. Stormur var þó ekki í algjöru fríi, því farið var á Landshlutamót unglinga í Vestmannaeyjum 9.-11. júlí og í Útivistarskólann að Gufuskálum 5.-10. ágúst.
Í báðum ferðunum var unglingadeildum stokkað upp og hrært vel í, svo þau hefðu sem best tækifæri til að kynnast jafnöldrum frá öðrum svæðum. Allar æfingar, verkefni, samveran, veðrið .... „geðveikt gaman“.
Í Eyjum komu um 300 unglingar ásamt umsjónarmönnum saman á flötinni við Stórhöfða og skemmtu sér við sprang, 60 metra bjargsig, rústabjörgun, sund, kassaklifur, grill, kvöldvöku og keppnisleika um helgina. Frá Stormi fóru sjö unglingar ásamt aðeins „eldri unglingum“ þeim Guðrúnu og Hólmari.

Hópurinn á síðasta námskeiði Útivistarskólans taldi 28 unglinga m.a. frá Reyðarfirði, Neskaupstað, Selfossi, Akranesi og Kópavogi auk Kjalarness. Góð aðstaða til æfinga er á Gufuskálum og kennarar voru allir þaulvanir björgunarsveitamenn frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Fræðsla var í fyrstu hjálp, rústabjörgun, sigi, rötun og ferðamennsku og kryddað með æfingum, leikjum og bátsferð frá Rifi inn á milli. Á Gufuskálaleikjum setti Agnes nýtt met í Gufuskálakollhnísum með 30 hnísum. Vonandi eiga Stormsunglingar það um ókomin ár. >> Fleiri myndir. <<

Unglingar í björgunarsveitunum eiga hrós skilið fyrir þátttöku sína.

~ : ~

Hálendisgæsla á Hveravöllum við Kjalveg
29
.júlí 2010 - 20:15

Hálendisgæsluvakt sveitarinnar á vegum Landsbjargar á Hveravöllum er afstaðin. Alls voru 8 manns í verkefninu, sem stóð í viku. Eknir voru 2600 km og gekk allt vel, verkefni voru færri en í fyrra. Tveir bílar og fjórhjól sveitarinnar voru á ferðinni og ýmis aðstoð veitt bæði fótgangandi, hjólandi og akandi ferðamönnum. Einnig kynntust menn svæðinu vel og fallegri náttúru. Veður var einmuna gott, sólríkt og hlýtt.
Hægt er að lesa nánar um vaktina í skýrslu >>hér<< og myndir eru á >>myndasíðu<<.

 

 

~ : ~

Kjölur 1  tekinn í gegn
11
.júlí 2010 - 09:07

Fordinn er þessa dagana að verða útkallsklár aftur eftir mikla yfirhalningu og verður fyrsta verkefni hans að fara til Hálendisgæslu á Kili um miðjan júlí.
Sveitin fékk bílinn nýjan árið 1992 gegnum tryggingarnar, eftir að samskonar bíll eyðilagðist við brunann í Þórnýjarbúð. Á þeim tíma var hann fyrsti bíllinn af þessari gerð, sem breyttur var hér á landi og var í kjölfarið mikið notaður til auglýsinga fyrir Fjallabíla. Á síðustu tveimur árum hefur verið farið markvisst í endurbætur og nauðsynlegt viðhald enda er bíllinn lítt keyrður og hefur alla tíð fengið góða umönnun. Búið er að setja m.a. loftpúða, nýja toppgrind með kössum, ryðbæta og heilsprauta og endurnýja allt rafmagn. Nýjar merkingar verða settar samkvæmt stöðlum SL og má sjá drög að nýju útliti hér til hliðar.

Alls fara níu björgunarsveitarmenn til Hálendisgæslu í ár og verða til taks fyrir ferðamenn á Kili í viku, sem hluti af Save Travel verkefninu. Ford, Patrol og fjórhjól verða með í för líkt og í fyrra og gist verður á Hveravöllum. Verkefni af þessu tagi eru mjög viðamikil, þar sem taka þarf allan nauðsynlegan búnað með til viðgerða eigin tækja og ferðamanna, björgunar ökutækja og fólks, fyrstu hjálpar og fjarskipta auk eldsneytis, matar og hefðbundins útilegubúnaðs.
Í ár styrktu Iðnmark, N1 og Iceland Spring sveitina með vörur fyrir gæsluna.

~ : ~

Stormur í Eyjum
7
.júlí 2010 - 21:47

Sex vaskir unglingar úr Stormi fóru í dag ásamt þeim Hólmari og Guðrúnu til Eyja á Landshlutamót unglingadeilda sem stendur yfir þessa helgi. Unglingar úr Stormi og Kyndli í Mosfellsbæ tóku mótið snemma og voru þeir fyrstir á svæðið, en tjaldað er við skátaskálann undir Stórhöfða. Veður er gott með sól og stillu, (ólíkt því sem verið hefur á Kjalarnesinu síðustu daga) og verður vonandi áfram. Alls er von á um 250 þátttakendum víðsvegar af landinu.
Laugardagurinn verður þéttskipaður skemmtun og samveru í formi póstavinnu, grilli, keppni og kvöldvöku í boði heimamanna.
Snemma sunnudagsmorgun er svo ráðgert að sigla upp á fastalandið aftur.

~ : ~

Menntunarátak Landsbjargar
5
.júlí 2010 - 23:20

Vert er að benda á yfirstandandi menntunarátak Landsbjargar, sem ætlað er að tryggja grunnmenntun allra útkallsfélaga björgunarsveitanna. Fyrsta áfanga þess hefur verið hrundið af stað, sjálfsmati í grunnfögum Björgunarmanns 1; fyrstu hjálp, rötun,ferðamennsku, leitartækni, fjallamennsku 1 og snjóflóðaleit 1. Beinn hlekkur á sjálfsmatið er hér
>>
http://www.landsbjorg.is/category.aspx?catID=560 <<
og eru félagar hvattir til þátttöku og taka stöðu á þekkingu sinni, hvar megi síðan berja í bresti með námskeiðum síðar á árinu eða í vetur.

Á vef Landsbjargar stendur til boða frekara kynningarefni.

~ : ~

Bátamessa
20
.júní 2010 - 10:40

Boðað var til bátamessu í gær, á kvennadaginn 19. júní í hjá Hjálparsveit Skáta í Kópavogi. Þangað söfnuðust fjölmargir bátar og liðsmenn þeirra frá Suðurnesjum, Björg á Eyrarbakka, Árborg á Selfossi, Ársæli, Kili og HSSK til þess að skiptast á upplýsingum og skoða hina mismunandi tegundir björgunarbáta og búnað sem þeim fylgir. Með í för voru m.a. tveir Atlantic 75 bátar sem nýverið hafa bæst í flóruna, þeir Njörður frá Suðurnesjum og Halla frá Ársæli og jetskiið Buni frá Árborg. Siglt var út fyrir Gróttu að Þerney þar sem HSSK bauð upp á grillmat.
Tvö útköll fléttuðust inn í bátamessuna - kafaraslys á Þingvöllum og strand við Akurey sem menn sinntu líka. Myndin hér til hliðar er af Ársæls- og Kjalarmönnum á vaktinni við Akurey um kvöldið.
~ : ~

„Mennt er máttur“
11
.júní 2010 - 23:10

Þessa dagana sitja nokkrir félagar námskeið Björgunarskóla SL í fyrstu hjálp 2. Námsefnið kennir Kristófer Sigurðsson, læknanemi á 4. ári og sjúkraflutningamaður og lætur sér fátt um finnast þótt aðstaðan undir súð í Þórnýjarbúð sé bæði þröng og loftlaus.
Mikil áhersla hefur verið lögð á menntun félaga eftir áramót og hafa námskeið í m.a. fjallamennsku, fjarskiptum, fyrstu hjálp, björgunarmenn í aðgerðum, leitartækni og hópstjórnun verið sótt bæði hjá björgunarskólanum og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins. Hluti hópsins hefur verið að sækjast eftir upprifjun en aðrir að fara í gegnum grunninn að Björgunarmanni 1.
Næsta haust breytast kennsluhættir hjá Björgunarskólanum og verða með talsvert öðru sniði en nú er. Hægt verður að taka sjálfsmat á netinu, bóklegi hluti námskeiða verður færður í fjarnám og munnleg stöðupróf verða á endurmenntunarnámskeiðum. Frekari upplýsingar um menntunarátak Björgunarskólans má fá á heimasíðu SL.

~ : ~

Öskuhreinsun undir Eyjafjöllum
30
.maí 2010 - 23:10

Laugardaginn 22. maí fóru þrír félagar austur til öskuhreinsunar undir Eyjafjöllum. Með í för var enn og aftur vinnuþjarkurinn, Rósenbauer, dæla slökkviliðsins ásamt tilheyrandi búnaði. Svo vel vildi til að verkefni hópsins var hreinsun við bæinn Drangshlíðardalur, þar sem við höfðum áður verið við hreinsistörf.
Að þessu sinni lá heldur þykkara öskulag yfir en í fyrra skiptið og var gróður á einstaka blettum alveg hulinn. Veður var gott, stilla og hlýindi og askan til friðs, þar sem hún var rök og í grófara lagi. Að venju var gestrisnin í fyrirrúmi hjá bændum og hópnum boðið bæði í mat og vöfflur þrátt fyrir annir við sauðburð og fjósverk. Dagurinn fór í að hreinsa þök á íbúðar- og útihúsum við bestu aðstæður. Ekki spillti fyrir að fá þær fréttir daginn eftir að hlé væri á öskufalli í bili og von til þess að bændur á svæðinu þurfi ekki að búa við frekari óvissu.

Á myndinni má sjá Rósenbauer hinn knáa og lagnir frá "læk" að fjárhúsum og grillir í mann á stút spúla ösku af þaki.

Fleiri myndir á myndasíðu.

~ : ~

Nýr svæðisstjórnarbíll skoðaður
24
.maí 2010 - 22:10

Nýlega fóru formenn á svæði 1 að skoða nýjan svæðisstjórnarbíll, sem reiknað er með að verði tekinn í gagnið í haust.  Bíllinn er fyrrum vöruflutningabíll og verður hólfaður niður út frá SÁBF kerfinu. Búið að leggja allt rafmagn, loftnet, kapla, teppaleggja loft og veggi, setja upp flest öll tæki, sprauta og merkja, allar hillu einingar, ljós, kortaaðstaða og tússtöflur/veggir, leðursófi, ísskápur og örbylgjuofn og margt fleira. Enn vantar að klára frágang á loftnetum uppi á þaki bíls og setja upp vettvangsmyndavél utan á bíl sem hægt er að stjórna innan frá og skoða vettvang. Einnig er hugsunin að smíða framlengingu á pallinn aftan á bílnum, og útbúa segl/tjald yfir.
Verið er að skoða staðsetningu bílsins og rekstrarumhverfi en vonast er til að hann nýtist við stærri aðgerðir á landsvísu jafnt og á svæði 1.

~ : ~

Aðalfundur Kjalar 2010 og árshátíð
15
.maí 2010 - 18:35

Aðalfundur björgunarsveitarinnar Kjölur var haldinn 28. apríl síðastliðinn í Þórnýjarbúð.
Ný stjórn var skipuð sem hér segir:
Formaður: Birgir Þór Guðbrandsson
Varaformaður: María Theodórsdóttir
Gjaldkeri: Sonja Þórey Þórsdóttir
Ritari: Anna Filbert
Meðstjórnendur: Adam Finnsson og Brynjar Már Bjarnason
Fram kom á fundinum að árið 2009 hafi verið með þeim betra í sögu sveitarinnar. Útköll voru 50 auk fjölmargra annara verkefna, boðið var upp á tvenns konar unglingastarf, nýliðun var með mesta móti og fjárhagur góður, þrátt fyrir talsvert viðhald á tækjum og endurnýjun á búnaði.

Árshátíðin var síðan haldin í heimahúsi hér í hverfi 12. maí s.l. Félagar mættu þar ásamt mökum sínum, borðuðu heimalagaðan grillmat með öllu tilheyrandi og eftirrétt. Spjölluðu menn síðan og sátu að sumbli fram á nótt, fóru í pottinn og varð úr hin besta skemmtan og góður rómur gerður að viðburðinum.

~ : ~

Afmælisrit Kjalar er komið út
1
.maí 2010 - 16:35

1. prentun afmælisritsins er komin út og er þegar uppseld.
2. prentun er væntanleg eftir 2. - 3. vikur. Anna tekur við pöntunum í síma 616 8493 eða á bjorgunarsveit
@simnet.is. Félagar í Kili borga kr 3.000,- (niðurgreitt) en aðrir kostnaðarverð sem er kr 5.000,-  Ritið er 120 bls. stútfullt af myndum og skemmtilegu og fróðlegu efni. Ritið er 20x24 cm á stærð, á kiljubókarformi.
Einnig er hægt er að panta ritið í harðri kápu á netinu á slóðinni 
http://www.blurb.com/bookstore/detail/1346251
 Þar er líka hægt að skoða fyrstu síðurnar.
Anna, María og Sonja tóku saman efni í ritið og vinnan hefur tekið um 2 ár frá því er fyrstu hugmyndir komu fram um það.


~ : ~


Aðalfundur Kjalar 28. apríl
24
.apríl 2010 - 18:20

Aðalfundur Kjalar verður haldinn 28. apríl n.k. í Þórnýjabúð kl 20.
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
lögum félagsins.

~ : ~

Eldgos í Eyjafjallajökli
24
.apríl 2010 - 15:07

Eitthvað er að draga úr öskufallinu og hafa björgunarsveitir haft í nógu að snúast ásamt fleirum vegna þess. Félagar í björgunarsveitum hafa verið og eru við hreinsunarstörf á bæjum undir Eyjafjöllum og þar á meðal félagar í Kili sem fóru í þrjá daga austur til aðstoðar fyrir og um síðustu helgi. Myndir má sjá á myndasíðunni og einnig nokkrar teknar af fréttamanni Reuters: sjá Reuters link hér<<. Verið er að skafa upp öskuna af húsum, þökum, þakrennum og gangstéttum, en hún er eins og kítti eða steypa þar sem blotnað hefur í henni. Slökkviliðið hefur síðan komið í kjölfarið og spúlað burt því sem eftir situr, en einnig fóru Kjalarmenn austur með öfluga lausa dælu frá SHS sem nýttist við hreinsun húsa og plana. 
Hér fylgja leiðbeiningar frá Almannvörnum ríkisins (pdf 304 Kb), um hvað ber að varast og fyrirbyggjandi aðgerðir ef til öskufalls kemur. Ekki er útilokað að öskuskýin nái til Reykjavíkursvæðisins eins og spár gera ráð fyrir.
Fleiri myndir <<

~ : ~

„Matur er mannsins megin"
18
.apríl 2010 - 9:43

Aldrei er of oft minnst á það góða bakland sem björgunarsveitir eiga í slysavarnadeildum. Slysavarnadeildirnar sinna margvíslegum og þörfum störfum innan Slysavarnafélgsins Landsbjargar þótt þær séu sjaldanst eins sýnilegar og björgunarsveitirnar.
Helstu verkefni deildanna eru slysavarnir og fjáraflanir til stuðnings sveitunum, en nokkrar deildir eru auk þess virkar í útköllum og sinna hússtjórn, sálrænni fyrstu hjálp og reiða fram mat fyrir björgunarsveitarmenn og aðra sem koma að útkallinu. Mismikið mæðir á mönnum við langvarandi aðgerðir og þrátt fyrir að allir björgunarsveitamenn séu ávalt með nesti til sólarhrings, gerir góður aðbúnaður það að verkum að menn nýtast enn betur og lengur. Á vettvangi er sjaldnast tækifæri til þess að hvílast eða fá heita hressingu.
Um páskana stóðu Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík ásamt öðrum deildum vaktina í Heimalandi undir Eyjafjöllum og höfðu tilbúinn mat allan sólarhringinn fyrir viðbragðsaðila, sem stóðu vaktina vegna gossins á Fimmvörðuhálsi.
Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík tekur oft til mat fyrir um 100 manns í einu og fær til þes stuðning frá ýmsum fyrirtækjum og verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Flest fyrirtæki taka vel í að aðstoða, en einn dyggasti stuðningsaðilinn undanfarin tvö ár hefur verið „Þín Verslun“ á Seljabraut og verður þeim seint fullþakkaður stuðningurinn.

~ : ~

Aðalfundur Kjalar 28. apríl
17
.apríl 2010 - 18:43

Aðalfundur Kjalar verður haldinn 28. apríl n.k. í Þórnýjabúð kl 20.
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
lögum félagsins.
~ : ~

Gosvakt á Fimmvörðuhálsi
2
.apríl 2010 - 15:37

Miðvikudaginn 31. 3. stóðu fjórir úr björgunarsveitinnni Kyndli ásamt einum úr Kili vaktina á Fimmvörðuhálsi. Komið var að gosstöðvunum snemma morguns og svæðið vaktað allan daginn. Þrátt fyrir einstaklega bjart og stilt veður var fátt um manninn í byrjun og jókst umferð ekki fyrr en eftir hádegi. Lítið var um verkefni, aðallega að leiðbeina ferðalöngum, einstaka skutl á þreyttum göngumönnum og vöktun hættusvæða.
Gosið sjálft hélst nokkuð stöðugt en einhverjar breytingar urðu á hraunrennslinu í Hrunagili.
Um það leyti er vaktaskipti við Ársælinga fóru fram bárust fregnir af hugsanlegri nýrri sprungu NV af eldstöðvunum og kom það í okkar hlut að fara og staðfesta það. Í framhaldinu fór af stað rýming fólks af Fimmvörðuhálsinum og Mýrdalsjöklinum öllum. Unnu björgunarsveitir og lögregla sem voru á staðnum, að því í sameiningu að snúa fólki við og beina niður á láglendi.Gekk rýmingin vel þótt sumir væru tregir til að snúa baki við nýju sjónarspili. Vorum við ásamt lögreglu með þeim síðustu til þess að aka niður með Skógará og komum að Skógum um miðnætti, eftir ánægjulegan dag í grennd við stórkostleg náttúruöfl.

Myndin er af bíl Kyndilsmanna á leið að eldstöðvum á Fimmvörðuhálsi að morgni í um 19° frosti.
Fleiri myndir eru á myndasíðu Kjalar.


~ : ~

Hvanngil og Fimmvörðuháls
30
. mars 2010 - 20:59

Tveir Kjalarmenn á Kjöl 2 aðstoðuðu Björgunarsveitina Kyndil við flutning á þeirra mönnum, þegar þeir héldu í árlega sveitarferð sína. Einng var bílstjóri frá bjsv. Hafnarfjarðar á Spora 2 til aðstoðar.
Lagt var af stað frá höfuðstöðvum Kyndils um 18:30 föstudaginn 26. mars ásamt Kyndli 1 og Dodge Ram og haldið suður eftir þjóðvegi 1, stoppað á Hvolsvelli og tankað á tækin ásamt því að teygja úr sér. Það var strax ljóst að mikil umferð var af fólki sem vildi skoða gosið á Fimmvörðuhálsi og sóttist ferðin seint inn Fljótshlíðina. Þeir sem voru á sleðum fóru hinsvegar upp Sólheimajökul og yfir jökulinn að Hvanngilsskála. Þegar úr örtröðinni í Fljótshlíðinni var
komið, byrjaði færið einnig að þyngjast og þunn snjóskel sem lá ofan á ískrapa brotnaði sífellt undan bílunum. Erfitt var að spila Kyndilströllið (Ford Econoline á 46") aftur upp og ekki komið í skála fyrr en 04:00. Sem betur fer voru sleðamennirnir ásamt sleðamönnum Fbsr mættir á undan og búnir að kynda upp. Við fengum ekki að spreða tímanum í svefn, því nýliðar Kyndils voru ræstir um 07:00 til þess að fara í allskyns æfingar. Ákveðið var að Kjölur 2 og Spori 2 skildu kanna færið á Mælifellssandi fyrir Kyndil 1 sem er í þyngri kantinum. Á söndunum var færið gott fyrir utan einn krapakafla, svo ákváðum við að skella okkur norðan meginn upp Mýrdalsjökul og kíkja á gosstöðvarnar.
Færið upp jökulinn

var mjög þungt og mjökuðumst við á 10-15km/klst í 3 klst. Þegar komið var inn á leið ferðamanna frá Sólheimajökli var þetta eins og malbik. Eftir smá skoðun á gosstöðvunum var rennt niður í skála á 2 tímum og í tíu dýrindis lambalæri sem Kyndill var búinn að elda. Mikið var um fjórhjólahópa við skálann og lentum við í smá viðgerðum fyrir þá..
Eftir matin var pakkað saman og hélt bílahópurinn að
gosstöðvunum kl 22:30 til þess að sjá sjónarspilið í myrkri. Þar sem  Kjalarmenn voru búnir að keyra tvisvar sinnum upp á Fimmvörðuháls á nokkrum tímum  var ákveðið að sofa uppi við gostöðvarnar og sjá þær í
ljósaskiptunum. Um 7 leytið var haldið niður Sólheimajökul og á
malbikið sem leiddi okkur svo aftur heim.
Við þökkum Kyndilsmönnum, Sporamanni og Fbsr mönnum kærlega fyrir flotta ferð.

~ : ~

Björgunarhundanámskeið
30
. mars 2010 - 20:57

Vetrarnámskeið BHSÍ var haldið dagana 12. – 17. mars í Eyjafirði. Leiðbeinendur á námskeiðinu voru sex, þar af tveir frá Noregi og æft á 3 svæðum ofan Víkurskarðs. Um 30 teymi tóku þátt og af þeim tóku 19 teymi próf. Fyrirlestrar voru á dagskrá á kvöldin og aðalfundur BHSÍ einnig haldinn.

Eftir þetta námskeið eru hundateymin í Kili orðin þrjú, sem eru í þjálfun – þeir Birgir/Breki, Hólmar/Vaskur og Nansý/Hilmir.

~ : ~
 

Afmælisritið
21
. mars 2010 - 14:32

Afrmælisritið er farið í prentun erlendis og tekur nokkrar vikur. Spurning hvort það verði ekki bara á undan febrúarskýrslunni frægu. Í afmælisritinu er farið yfir sögu sveitarinnar og slysavarnamála á Kjalarnesi í máli og myndum. Ritið verður 120 blaðsíður að stærð og verður selt á kostnaðarverði.
Sýnishorn einnar af mörgum myndasíðum ritsins er til hægri úr veðravítishluta þess.
 

 

 

 

 ~ : ~

112 dagurinn
27
. feb 2010 - 17:52

112-dagurinn var haldinn víða um land þ. 11. febrúar síðastliðinn og var áherslan í ár lögð á skyndihjálpar kunnáttu almennings. Skyndihjálparmaður ársins 2009 var valinn og viðbragðsaðilar kynntu störf sín með ýmsum hætti.

Kjölur var með fræðslu um neyðarnúmerið og viðbrögð við slysum meðal skólabarna í 1.-7. bekk Klébergsskóla af því tilefni. Einn félagi sveitarinnar var í Smáralind ásamt fulltrúum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, Rauðakrossinum og Neyðarlínu.

Á myndinni t.h. sem Sigurður Viðar Ottesen tók í Smáralindinni þann 13 feb eru f.v. Sæunn Ósk Kjartansdóttir frá Slysavarnasviði Slysavarnafélagsins Landsbjörg, Garðar Guðjónsson skipuleggjandi dagsins og María Theodórsdóttir frá bjsv Kjölur

Almenningi bjóðast fjölmörg námskeið í fyrstu hjálp hjá Rauða Krossinum og hvetjum við fólk til þess að fara á þau og kynna sér þetta. Reynslan sýnir að þeir einstaklingar sem einhvern tíma hafa farið á slíkt námskeið er líklegra til að bregðast rétt við í neyðartilfellum.

Ekki þarf að fara langt því ýmis námskeið bjóðast í Mosfellsbæ og er næsta 4 klst námskeið í skyndihjálp á dagskrá þ. 24. 3. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Rauðakrossins WWW.REDCROSS.IS

~ : ~

Haítískipið
13
. feb 2010 - 18:20

Í síðustu viku fór fram á Kjalarnesi og víðar söfnun á hjálpargögnum sem fara munu til Haítí. Leitað var til fyrirtækja og almennings um aðstoð við að leysa brýnustu þörf bágstaddra á hamfarasvæðinu. Dæmi um það sem helst var sótt eftir var;
Matvæli – hrísgrjón, haframjöl, súpur, núðlur, kex og dósamatur
Hreinlætisvörur – sápur, bleyjur, tannkrem og tannburstar
Fyrsta hjálp – plástrar, grisjur, sárabindi og teygjubindi
Afþreying fyrir börn – bangsar og lítil leikföng
Annað – tjöld, tjalddýnur og teppi

Tekið var á móti gögnum í húsi björgunarsveitarinnar, Þórnýjarbúð og voru undirtektir sérdeilis góðar. Menn komu færandi hendi með ýmsar vörur -  bæði nýtt og notað. Margir fóru sérstaklega í verslunarleiðangur til þess að kaupa mat, hreinlætis- og ungbarnavörur. Einn Kjalnesingur fékk aðstoð þeirra í Krónunni við að versla og flytja mikið magn af mat og leikföngum í aðstöðu verkefnisins við Holtaveg.  

Þökkum við öllum hjartanlega fyrir að bregðast svo vel við.

Gögnin hafa nú verið flokkuð og pökkuð til flutnings í miðstöðinni við Holtaveg. Þau barnaföt, pelar, og aðrar barnavörur, sem meðal annars söfnuðust á Kjalarnesi, eru farin út með flugi og dreifast meðal SOS barnþorpa á Haítí. Enn er leitað að skipi til þess að sigla héðan suður með önnur hjálpargögn.

Fylgjast má með framvindu verksins á  heimasíðunni HAITISKIPID.IS og facebook

~ : ~

1 1 2 dagurinn
10
. feb 2010 - 18:46

1 1 2 dagurinn er haldinn fímmtudaginn 11.2. víða um land. Þema dagsins er aðkoma venjulegs fólks að vettvangi slysa, veikinda og áfalla. Nánar um daginn er hægt kynna sér á >> heimasíðu Neyðarlínunnar  og meðal annars taka skyndihjálparprófið.

~ : ~

Til hamingju með afmælið, Óðinn
1
. feb 2010 - 18:40

Varðskipið Óðinn átti 50 ára afmæli 27. janúar og um helgina var þess minnst. Opið var og ókeypis aðgangur í Víkina, sjóminjasafnið á Grandagarði og hægt að skoða Óðinn, sem þar hvílir við bryggju sem minjasafn. Um borð er hægt að að kynna sér farsæla sögu skipsins og snoturlega er búið um muni í vistarverum þess.

Þá var boðið upp á sýningu á hífingu á mönnum úr "sjávarháska" í höfninni með þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-EIR. "Skipbrotsmennina" tvo léku félagar úr Kili, þau Anna Filbert og Brynjar Bjarnason.

Björgunarskipið Ásgrímur, sem einnig kom við sögu, æfir reglulega með þyrlu LHG slíkar hífingar úr sjó.

Nokkrar fleiri myndir eru á >>myndasíðu Kjalar<<

~ : ~


Söfnum í Haítískipið
29
. jan 2010 - 21:35

Þessa dagana fer fram söfnun á hjálpargögnum sem fara munu til Haítí með
skipi. Leitað er til fyrirtækja og almennings um aðstoð við að leysa brýnustu þörf bágstaddra á hamfarasvæðinu.
Það sem helst vantar eru:
Matvæli – hrísgrjón, haframjöl, súpur, núðlur, kex og dósamatur
Hreinlætisvörur – sápur, bleyjur, tannkrem og tannburstar
Fyrsta hjálp – plástrar, grisjur, sárabindi og teygjubindi
Afþreying fyrir börn – bangsar og lítil leikföng
Annað – tjöld, tjalddýnur og teppi
Tekið verður á móti hjálpargögnum í húsi björgunarsveitarinnar, Þórnýjarbúð
Þriðjudaginn 2. Febrúar kl. 19-22
Miðvikudaginn 3. Febrúar kl. 19-22

Sjá nánar á heimasíðu >>HAÍTÍSKIPIÐ<<

~ : ~


Styrkveiting frá Reykjavíkurborg
24
. jan 2010 - 20:53

Á föstudaginn undirrituðu borgarstjóri Hanna Birna Kristjánsdóttir og fulltrúar björgunarsveita í Reykajvík styrktarsamning til eins árs. Reyndar var fulltrúi Kjalar ekki viðstaddur þar sem hann var í útkalli í Hvalfirði.
>> Frétt á mbl.is og mynd <<  
Björgunarsveitirnar sem um ræðir eru; Björgunarsveitin Ársæll, Björgunarsveitin Kjölur, Flugbjörgunarsveitin og Hjálparsveit skáta Reykjavík.
Reykjavíkurborg mun á samningstímanum styrkja sveitirnar samtals um 5.460.000 kr.
Á myndinni (mbl.is) eru Borgþór Hjörvarsson, f.h. Björgunarsveitarinnar Ársæls, Elsa Gunnarsdóttir, f.h. Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík, Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, og Haukur Harðarson f.h. Hjálparsveitar skáta.
 
~ : ~

Starfsemin framundan
14
. jan 2010 - 22:23

Starfsemi sveitarinnar er nú að verða eðlileg aftur eftir hátíðarnar og dagskrár að tínast inn á heimasíðuna.
Dagskrá Storms og æfingaplan SHS má sjá á tengli undir liðnum á döfinni á forsíðu. Stormur verður með fasta tíma á þriðjudögum kl 19. Helgarferðir og heimsóknir til annara unglingadeilda eru enn í vinnslu og verða settar inn í dagskrá seinna. Næsti hópur skólavals byrjar 21. janúar og verður með tíma á fimmtudögum kl 11.25.
Fastir tímar sveitarinnar verða áfram á miðvikudögum kl 20 og skiptast á fundir, æfingar og vinnukvöld. Dagskráin er prjónuð af fingrum fram og menn beðnir um að fylgjast með tilkynningum á heimasíðu. Fyrirhugað er að nota næstu vikur og mánuði til endurmenntunar og fræðslu á ýmsum sviðum. Má þar nefna námskeið í fjarskiptum I, fjallamennsku, snjóflóðaleit, fyrstu hjálp I, Vettvangshjálp og Fyrstu hjálp í óbyggðum. Flestar tíma- og staðsetningar á námskeiðum eru komnar inn í dagskrá. Menn eru hvattir til þess að ná sér í meiri þekkingu og láta stjórn vita ef þeir hafa áhuga á námskeiðum.

 ~ : ~

ÞRETTÁNDAFLUGELDASALA
4
. jan 2010 - 22:25

Í ár verða flugeldar seldir á Þrettándanum eins og oft áður, miðvikudaginn 6. janúar kl 14 - 20,
sjá meðfylgjandi auglýsingu.

 ~ : ~

Afmæli og áramót
3
. jan 2010 - 10:30

Gleðilegt nýtt ár !!


60 ára afmælisboð Kjalar var haldið í Þórnýjarbúð 29. des s.l. og var mjög ánægjulegt hve margir eða um 150 manns sáu sér fært að koma.
Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir komuna, frómar afmælisóskir og gjafir. Húsið, tæki og tól voru til sýnis og boðið upp á kaffi og afmælistertu.
Fleiri myndir eru á myndasíðu.

Afmælisritið er áfram í vinnslu, vantar lokahnykkinn, og nokkrar ágætar ábendingar komu fram í boðinu og stefnt að útgáfu hið fyrsta.

Flugeldasalan gekk vel og þökkum við Kjalnesingum og öðrum fyrir góðar undirtektir. Kjölur hélt flugeldasýningu við brennuna á Klébergi og var veðrið sérlega gott til útiveru og flugeldaskota. Allt gekk slysalaust fyrir sig.

Flugeldasalan verður opin á Þrettándanum.
______________________________________________________________________________________________

© Allur réttur skilin að börum og sárabindum 2004
Vefstjóri:  Theodór Theodórsson